Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
11
Fréttir
Úlfar Eysteinsson með poka af Baccalá roðsnakkinu. DV-mynd BG
Úlfar á Þrem Frökkum:
Framleiðir snakk
úr fiskroði
„Varan er fullunnin, verið er að
kanna hagkvæmnireikninga og
finna út það sem þarf í verksmiðju.
Það þarf verksmiðju til framleiðsl-
unnar því að varan þarf alltaf að
vera nákvæmlega eins,“ sagði Úlfar
Eysteinsson, veitingamaður á Þrem
Frökkum.
Hann er búinn að þróa fram-
leiðslu á snakki úr þorskroði. Það
er djúpsteikt, með sítrónubragði.
„Þetta er gert í samvinnu við Iðn-
tæknistofnun og er hluti af verkefni
sem nefnist snjallræði. 260 manns
sóttu um og átta voru valdir úr, sið-
an fjórir og ég er einn af þeim.
Við erum að vinna að markaðs-
setningu erlendis. Portúgalir eru
búnir að smakka og eru mjög hrifn-
ir af þessu og vilja fá einkaleyfi. Það
eru saltfisklöndin, Portúgal, Spánn
og Frakkland, einnig Holland, sem
við komum til með að flytja þetta út
til. Þetta er nefnt Baccalá snack og
verður selt í litlum pokum. Grýla
hafði þetta méð sér til Hollands á
dögunum og gaf fólki að smakka,
þetta er fint Grýlugott," sagði Úlfar.
- Hvenær getum við íslendingar
fengið að smakka?
„Ég gæti ímyndað mér að það
yrði í vor þegar sól fer að hækka á
lofti.“
-ÞK
Sauðburður á Ósi í Arnarfirði:
Kind bar fyrsta
desember
- 40 kindur báru frá 22. desember til 5. april í fyrra
„Það bar ein veturgömul gimbur
hjá mér hrútlambi núna fyrsta des-
ember. Ég hafði grun um að hún
væri svona á sig komin um miðjan
nóvember," sagði Þorbjörn Péturs-
son, bóndi á Ósi í Arnarfírði, en hjá
honum er sauðburður hafinn eða
ekki lokið eftir því hvernig á það er
litið.
„Þetta er ekki nýtt hjá mér því að
síðastliðinn vetur báru 40 kindur af
um það bil 250 á tímabilinu 22. des-
ember til 5. apríl. Þetta virðist vera
einhver ruglingur í hormónakerfi
og dýralæknar skilja ekki neitt í
þessu. Fyrst fór að bera á þessu eft-
ir að skorið var niður hjá mér
vegna riðu. Eftir það, eða 1986, fékk
ég nýtt fé úr Árneshreppi og það var
1989 sem fór að bera á því að kind-
urnar bæru á röngum tíma. Eðlileg-
ur tími fyrir sauðburð er frá því í
byrjun eða um miðjan maí og fram
undir miðjan júní,“ sagði Þorbjörn.
Hann sagði að gimbrin sem bar
núna væri sjálf fædd 4. janúar í
fyrra og væri því tæplega ársgömul.
Hann segist ekki vita um fleiri sem
beri núna á svona afbrigðilegum
tíma enda hafi hann reynt að kom-
ast hjá að setja á kindur með þess-
ari öfugnáttúru í þeirri von að eðli-
legt ástand kæmist á. Hann segir að
þetta sé að öllu leyti óeðlilegt og
óþægilegt og kindurnar þurfi mun
meira fóður og meiri sinningu með
þessu fyrirkomulagi.
Kind sem ber í byrjun desember
hefur, að sögn Þorbjörns, fengið um
eða fyrir verslunarmannahelgi.
DV hafði samband við Höskuld
Jensson, dýralækni á ísafirði, vegna
þessa máls. „Ég er nú nýfluttur á
svæðið en veit af þessu. Ég hef enga
skýringu á því. Það er varla skýring
að kindur séu meira inni við en
áður var. Þær eru inni viða um land
án þess að beri á þessu. Kindur sem
fæðast á óvanalegum tíma þroskast
náttúrlega á óvanalegum tíma.
Venjulegir hrútar eru ekki til f tu-
skið á þeim tíma sem þetta lamb
hefur komið undir," sagði Höskuld-
ur. -ÞK
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ
SÍMA 563 2700
Venturer ferðatæki
með geislaspilara
útvarpi og seguibandi
KR. 13.900 stgr.
Nesco ferðatæki
með geislaspilara
tvöföldu segulbandi, og
fjarstýringu
KR. 15.900 stgr.
KR. 17.900 stgr.
United
hljómtækjasamstæða
með geislaspilara
útvarpi m/minnum, segulbandi
og fjarstýringu
t3mmm
UMC-5226
%Wa\®HtP^KlilIIS¥ÖÐiN
SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • OPIÐ LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA
“ýu„nið 56« 5Ö00
simanumer
- Á GÓÐU VERÐI
AJW-325
URR-366
PRCD-700
Akai ferðatæki
með geislaspilara
útvarpi og tvöföldu segulbandi.
United ferðatæki
með geislaspilara
útvarpi og segulbandi.
CD-168