Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Page 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
r númerið -
nafnið
BOKIN ER KOMIN
Þú þnkkir númerið
sölustad á
aðeins
895 kr.
og ennþá
Sviðsljós
Franska leikkonan Irene Jacob ljóstrar upp leyndarmáli:
Nýr ilmur fyrir nýjar persónur
Franska leikkonan Irene Jacob
hefur dottið niður óbrigðult ráð til
að setja sig í spor persónunnar sem
hún túlkar. Hún notar nýtt ilmvatn
á meðan aörar leikkonur mundu
skipta um hárgreiðslu. „Áður en ég
leik persónu vel ég alltaf ilmvatn
handa henni,“ segir Irene Jacob,
sem skaust upp á alþjóðlega stjömu-
himininn í kvikmynd Kieslowskis,
Tvöfóldu lífi Veróniku, árið 1991 og
aftur árið 1994 fyrir leik sinn í
Rauðum, eftir sama höfund. „í hvert
skipti sem ég set á mig þetta ilm-
vatn finnst mér ég því breytast í
þessa persónu."
Irene Jacob leikur Desdemónu í
nýrri kvikmynd eftir Óþelló Sha-
kespeares, þar sem hún leikur á
móti stórmennum eins og Laurence
Fishbume og Kenneth Branagh. Ir-
ene valdi ilmandi ölkelduvatn frá
tískukónginum Paco Rabanne til að
laða fram persónueinkenni þessarar
konu, sem gefur allt upp á bátinn,
þar á meðal eigið lif, fýrir Óþelló.
Um ilmvatnið og Desdemónu segir
Irene: „Þegar ég var með það fann
ég fyrir mýkt hennar en einnig
Irene Jacob þykir með glæsilegri
leikkonum Frakklands um þessar
mundir.
styrk.“
Irene var að vonum dálítið óstyrk
að þurfa að leika Shakespeare á
hans eigin tungu, þar sem enskan
er Frökkum ekki alltaf mjög töm.
En Kenneth Branagh var þó ekki
seinn á sér að stappa í hana stálinu,
sannur séntilamður sem hann nú
er. „Veistu hvað, Shakespeare er
lika á hálfgildings útlensku í okkar
augum,“ sagði Kenneth Branagh við
Irene.
Eins og nærri má geta, er Irene
mikil ilmvatnskerling, flengist á
milli tíu, tólf tegunda þegar hún er
bara að dúlla sér heima í París. En
hún notar bara eina tegund af vara-
lit: Mon Rouge frá Palomu Picasso.
„Ég er alltaf með hann, en ekki of
mikið. Mér finnst að farði, rétt eins
og föt, eigi ekki að vera of áberandi.
Ég er hrifin af fótum sem leyfa lín-
um konunnar að njóta sín. Á sama
hátt á farðinn að laða fram lögun
augnanna, varanna og kinnanna,"
segir Irene Jacob, þrítug þokkadís
og frábær leikkona sem við eigum
áreiðanlega eftir aö sjá meira af í
náinni framtíð.
Goi i >i rsrpvi-:
i áskrift
550 5000
n
URVALS
BÆKUR
Önnur
Býr heima
Jenny úr sænsku hljómsveitinni
Ace of Base er fyrir löngu orðin
milljónamæringur, 23 ára gömul.
Margir í hennar sporum mundu ef-
laust vera búnir að kaupa sér glæis- •
villu og glæsibíl eða bíla en stúlkan
sú fer sér að engu óðslega frekar en
systir hennar, Linn, sem einnig
syngur í hljómsveitinni. Jenny býr
enn heima hjá pabba og mömmu i
Gautaborg. Það kemur reyndar ekki
til af góðu þar sem hún varð fyrir
þeirri óþægilegu reynslu að geðveiU
Þjóðverji réðst inn í svefnherbergi
hennar vopnaður hnífi fyrir
nokkru. Síðan hefur hún ekki þorað
tt*
Nöfn vinningshafa verða birt daglega í DV til 23. desember.
Jólaleikur Bónus Radíó - Hringdu í 904-1750 - Verð 39,90 mínútan
Jálalaikur
Skoðaðu Jólagjafahandbók
sem fylgdi í 25. nóvember og
hringdu í s. 904-1750 og taktu
í jólaleiknum.
YOKQ
með
útvarpstæki
verðmæti
AFFINiTY 930 GSM símar, hver að
verðmæti kr. 54.890. Petta eru öflugir
símar með 60 númera símaskrá með
nöfnum, 15 mismunandi hringingum,
dagsetningu og klukku,
5 styrkstillingar o.fl.
Og aðalvinningurinn
dreginn verður út
Þorláksmessu:
CMC 486DX4/100 fullbúin marg-
miðlunartölva með 8 MB vinnsluminni,
540 MB hörðum diski. Tölvunni fylgir
PCI skjákort, 16 bita hljóðkort,
innbyggt 4 hraða geisladrif CD-ROM,
tveir 40 vatta hátalarar, Samsung 17"
Gli Sync Master S-VGS lágútgeislunar
litaskjár, 28800 bps modem, Internet-
tenging í 1 mánuð, 2 raðtengi, 1
hliðtengi, 1 leikja tengi, straumlínulaga
mús, músarmotta og Windows 95.
systranna úr Ace of Base:
hjá pabba og mömmu
að búa ein.
En þær systur láta peningana og
frægðina ekki rugla sig í ríminu. Þó
Linn búi ein í Gautaborg fer hún
hægt í sakimar. En Jonas bróðir
þeirra, sem einnig er í Ace of Base,
og Ulf, hinn meðlimurinn, eru hins
vegar komnir í meiri ríkmannsstell-
ingar og eyða í hús, bila og annað
sem hugurinn gimist.
Jenny, t.h., og Linn i Ace of Base.
Það eru ekki allir jólasveinar sem notast við hreindýr til að komast staða á
milli. Á Indlandi þykir eðlilegast að sveinki notist við ffla enda nóg af þeim
þar um slóðir. Á myndinni heilsar Irtiil jólasveinn á fílsbaki upp á börn fram-
an við hótel í Nýju-Dehli. Um 20 milljónir kristinna halda jólin hátíðleg í landi
þar sem flestir hallast að hindúisma. Símamynd Reuter