Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Page 33
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
37
plötu í Leikhúskjallaranum.
Zebraf Súkkat
og Sólstranda-
gæjarnir
Þrjár ólíkar hljómsveitir
halda saman tónleika i kvöld í
Leikhúskjallaranum, en þær
eiga það þó sameiginlegt að vera
að senda frá sér hljómplötur um
þessar mundir. Annað eiga þess-
ar sveitir sameiginlegt og það er
að aðeins tveir eru í hverri
sveit, Þetta eru Sólstrandagæj-
amir, Súkkat og Zebra.
Sólstrandagæjamir, sem er
stuðband mikið, koma til með
að syngja lög af plötunni Uglu-
jól, dúettinn geðþekki, Súkkat,
er með húmorinn í lagi eins og
flestir kannast við og mun hann
flytja efni af annarri geislaplötu
sinni, Fjáp. Síðast á svið verður
tvíeykið Zebra, sem einnig er
Tónleikar
með nýja plötu og því til full-
tingis er myndbandagjörningur.
Tónleikarnir byrja stundvíslega
kl. 11.00 og em allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Jólabarokk
Barokkónleikar verða haldnir
í Listasafhi Kópavogs, Gerðar-
safni, þriðjudaginn 19. desember
kl. 20.30. Þau sem leika eru
Camilla Söderberg, Martial Nar-
deau, Guðrún Birgisdóttir, Peter
Tompkins, Elín Guðmundsdótt-
ir og Páll Hannesson.
Framtíð Sameinuðu þjóð-
anna
í tilefni þess að fimmtíu ár
eru liðin frá stofnun Sameinuðu
þjóðanna heldur Heimdallur
fund í Valhöll í kvöld kl. 20.30.
Upplestur á Café Au Lait
Andri Snær Magnason og
Björgvin ívar lesa upp úr nýút-
komnum ljóðabókum sinum kl.
22.00.
Djass á Sóloni
Jazztríó Sigurðar Flosasonar
og Gunnars Gunnarssonar leika
á Sóloni íslandus í kvöld kl.
22.00.
Samkomur
Jólatónleikar
Tónlistarskóli Rangæinga
heldur sína árlegu jólatónleika í
kvöld í Grunnskólanum á Hellu
og annað kvöld í Heimalandi.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.00.
\
0- 0
-leikur að læra!
Vinningstölur 18. desember 1995
1*6*10»16»20*21*30
Eldri úrslit á símsvara 568 1511
Borgarleikhúsið:
Páll Óskar og Kósy
í kvöld munu Páll Óskar Hjálmtýs-
son og unglingahljómsveitin Kósý
halda sameiginlega tónleika. Tónleik-
amir, sem verða á stóra sviði Borgar-
leikhússins, munu hafa jólalegt yfir-
bragð. Fyrst mun Kósý stíga á svið og
leika nokkur jólalög og önnur lög af
plötu sinni Kósý-jól.
Páll Óskar mun flytja lög af bal-
löðuplötu sinni, Palli, sem hlotið hef-
ur góðar viðtökur. Auk þess mun -
hann flytja lög frá gamalli tíð. Fjöl-
Skemmtanir
margir hljóðfæraleikarar koma við
sögu og munu hjálpa honum við að
flytja lög eins og Taumlausa gleði,
Heródusar lagið, Ljúfa líf og Sjáumst
aftur. Milljónamæringarnir munu
taka með honum suðræna sveiflu
eins og þeim er einum lagið. Sem fyrr
leggur Páll Óskar mikla áherslu á líf-
lega framkomu og munu dansarar
taka þátt í sýningunni með honum.
Páll Oskar mun koma víða við á
kvöld.
í Borgarleikhúsinu f
Mokstur haf-
inn á Breiða-
dalsheiði
Vegir á landinu eru yfirleitt færir
en víða er hálka á vegum á vestan-
og norðanverðu landinu, aðallega á
heiðum. Á Vestfjörðum er hafinn
Færð á vegum
mokstur á Breiðadalsheiði og Botns-
heiði. Eyrarfjall er ófært. Þá er á
mörgum leiðum snjór á vegum, má
þar nefna Öxnadalsheiði og Öxnadal
á leiðinni Reykjavík- Akureyri. Á
Austurlandi og Norðurlandi er víða
snjór á vegum en vegir þó allir fær-
ir þar, en vert er að brýna fyrir veg-
farendum, sem eru á ferð á þjóðveg-
um landsins, að vera vel útbúnir
því veður getur breyst fljótt.
Ástand vega
[3 Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
Q>) Lokaö^100^ ® ÞunSfært © Fært fiallabílum
Þórarinn Bjartur
eignast bródur
Litli myndarlegi drengurinn á
myndinni fæddist á fæðingardeild
Landspítalans 6. október kl. 15.17.
Barn dagsins
Hann var við fæðingu 5.090 grömm
og 56 sentímetra langur. Foreldrar
hans eru Stefanía Þórarinsdóttir og
Guðmundur Á. Magnússon. Hann á
einn bróður sem heitir Þórarinn
Bjartur.
Barnasálfræðingurinn Sanuel
Faulkner (Hugh Grant) er ekki
hrifinn af þeirri staðreynd að
hann eigi eftir að verða faðir.
Níu
mánuðir
Jólamynd Regnbogans er gam-
anmyndin Nine Months með
Hugh Grant í aðalhlutverki.
Leikur hann barnasálfræðinginn
Samuel Faulkner, sem hefur allt
sem hann getur hugsað sér, fal-
lega kærustu, keyrir um á
Porsce, á íbúð í finu hverfi í San
Francisco með útsýni yfir flóann
og starfsframi er í vændum. Allt
er planlagt hjá Faulkner og það
verður því handagangur í öskj-
unni þegar kærastan Rebecca til-
Kvikmyndir
kynnir honum að hún sé ófrísk
en það var aldrei ætlun hans að
eignast bam. Það er víst óhætt
að segja að hann verður í fram-
haldinu áttavilltur og veit varla í
hvorn fótinn hann á að stíga.
Þau kynnast hjónum sem eru
óspör óumbeðin á að veita þeim
og ekki batnar ástandið þegar
læknirinn þeirra er í fríi og stað-
gengill hans er fyrrum dýra-
læknir í Rússlandi. Auk Grants
leika í Nine Months Julianne
Moore, sem leikur Rebeccu,
Robin Williams leikur rússneska
lækninn, Jewff Goldblum, besta
vin Samuels, og Tom Arnold og
Joan Cusack sem leika hjálp-
sömu hjónin.
Gengið
Almenn gengisskráning U nr. 299.
19. desember 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,090 65,430 65,260
Pund 100,210 100,720 101,280
Kan. dollar 47,220 47,520 48,220
Dönsk kr. 11,7190 11,7810 11,7440
Norsk kr. 10,2640 10,3210 10,3220
Sænsk kr. 9,8330 9,8880 9,9670
Fi. mark 15,0730 15,1620 15,2950
Fra. franki 13,1810 13,2560 13,2300
Belg. franki 2,2079 2,2211 2,2115
Sviss. franki 56,6200 56,9300 56,4100
Holl. gyllini 40,5400 40,7800 40,5800
Þýskt mark 45,4400 45,6700 45,4200
ít. lira 0,04080 0,04106 0,04089
Aust. sch. 6,4540 6,4940 6,4570
Port. escudo 0,4325 0,4351 0,4357
Spá. peseti 0,5331 0,5365 0,5338
Jap. yen 0.64020 0,64410 0,64260
irskt pund 103,680 104,330 104,620
SDR 96,83000 97,41000 97,18000
ECU 83.3500 83,8600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270.
Krossgátan
a 5 * 1 5T <o 1?
J ir
T~ 10 II
w 15 rr
1 i
FT lo j
2T ‘11
Lárétt: 1 vist, 5 form, 8 undanbrögö, 9
kverk, 11 dýpi, 13 greppitrýni, 15 slá, 16
iðin, 17 blóm, 19 stétt, 21 spil, 22 nesið.
Lóörétt: 1 bikkja, 2 mndæmisstafir, 3r"-
hindruðu, 4 lána, 5 lendar, 6 grillur, 7
drykkur, 10 bókstafur, 12 rennslið, 14
gabb, 16 fugl, 18 karlmannsnafn, 20 haf. .
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 þruma, 6 ká, 8 jór, 9 alls, 10 %
óttu, 11 dár, 13 raular, 16 framan, 18
slór, 20 úði, 21 Si, 22 sárir.
Lóðrétt: 1 þjór, 2 rót, 3 urtur, 4 maular, /
5 alda, 6 kláraði, 7 ás, 12 rænir, 14 afli^.
15 oss, 17 múr, 19 ós.