Dagblaðið Vísir - DV - 19.12.1995, Síða 36
FR ÉTTAS KOTID
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í
stma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
550 5000
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER
Frjálst,6háð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 1995
Langholtskirkja:
Enn sýður
upp úr milli
prests og
organista
„Ég er að fara á fund þar sem
þessi mál gætu skýrst,“ sagði Jón
Stefánsson, organisti og kórstjóri í
Langholtskirkju, í samtali við DV í
morgun.
I gær sauð enn upp úr í samskipt-
um hans og sóknarprestsins, séra
Flóka Kristinssonar. Mun Jón hafa
hótað því að leika ekki við aftan-
söng á aðfangadag.
„Jón telur sig vera listamann.
Listamenn telja líka að þeim leyfist
að segja eitt og annað og gera eitt og
annað i krafti þess að þeir séu til-
finninganæmari en annað fólk.
"Ánnars er best að þú talir við Jón
um þetta,“ sagði séra Flóki Kristins-
son í morgun.
„Því miður eru aftur komnar upp
væringar með þeim presti og org-
anista. Þetta mun hafa komið upp í
gær en ég veit enn of lítið um málið
til að úttala mig um það. Það verð-
ur haldinn sóknarnefndarfundur
um málið í dag,“ sagði séra Ragnar
Fjalar Lárusson, prófastur í Reykja-
vík, en hann var sáttasemjari í
deilu þeirra Jóns og Flóka sem sett
var niður í sumar er leið. -S.dór
Prestsembættið að Staðastað:
Alltaf ósk
um kosningu
- segir Guðjón Skarphéðinsson
„Almennar prestskosningar hafa
tíðkast frá 1987 og verið vinsæl
skemmtun í sveitum landsins. Hver
sá sem les lög og er sæmilega glögg-
ur veit að óskin er sú að alltaf og
ævinlega verði almennar prests-
kosningar. Með tilliti til þess að ég
kom til landsins laugardaginn fyrir
prestskosningarnar er ekkert eðli-
legra en að fólkið vilji kjósa aftur,“
segir Guðjón Skarphéðinsson, guð-
fræðingur í Kaupmannahöfn.
DV greindi frá því í gær að 80
manns hefðu skrifað á lista og af-
hent biskupi til að mótmæla því að
Guðjón yrði prestur að Staðastað en
hann sigraði Braga Benediktsson,
prest á Reykhólum, í prestskosning-
um í byrjun desember. Talið er að
mótmælin megi rekja til þess að
Guðjón var viðriðinn svokallað
Geirfinnsmál á sínum tíma. -GHS
Skatan 99 kr.
„Við ætlum okkur að kynna
tindaskötuna fyrir fólki og lækkum
hana því úr 450 kr. kg í 99 kr. kg,“
segir Kristján Berg Ásgeirsson, fisk-
sali hjá Fiskbúðinni Vör í Höfða-
bakka. Vör og Fiskbúðin Árbjörg í
JL-húsinu munu bjóða skötuna á
þessu verði á morgun. -sv
L O K I
Hnífur bankaræningjanna fundinn en sjálfir leika þeir lausum hala:
Horfði skelkaður
inn í byssuhlaupið
- segir Erlendur Guðjónsson, viðskiptavinur í bankanum, þegar ránið var framið
:
1
Bankarán var framíð í
Búnaöarbankanum á
Vesturgötu kl. 10.23
mánudagsmorgun
Sporhundur
lögreglunnar tapaði
slóðinni i Garðastr.
Bíll meö hníf
ræningjanna fanst
við Blómvallag. I
gærkvöldi
Tjörnin f
„Þeir ruddust þarna inn og allt í
einu horfði ég inn í hlaupið á
haglabyssunni. Það tók mig sek-
úndubrot að átta mig á hvað var
að gerast. Þá lagðist ég í gólfið eins
og ræninginn skipaði. Það dettur
engum í hug að bera sig á móti við
þessar aðstæður,“ segir Erlendur
Guðjónsson járnsmiður, einn við-
skiptavina Búnaðarbankans á
Vesturgötu þegar hann var rænd-
ur í gær.
Ræningjarnir komu að bankan-
um laust eftir klukkan tíu í gær-
morgun. Þeir voru á grárri Toyota
Corolla bifreið sem þeir óku upp
að aðaldyrum bankans. Sjónar-
vottar segja að þeir hafi hikað þar
stuttu stund og kíkt inn um glugg-
ana. Þá var látið til skarar skríða
og þegar klukkan var 10.23 voru
skúffur gjaldkeranna brotnar upp.
Ránið tók varla nema eina mín-
útu og á þeim tíma náðu ræningj-
arnir að hrifsa til sín vel á aðra
milljón króna. Lögreglan vill ekki
staðfesta nákvæmlega hve miklum
peningum þeir náðu en það mun
hafa verið um ein og hálf milljón.
Það var allt sem í peningaskúffun-
um var.
Lögreglan fann í gærkvöldi Toyota-bifreiö sem talið er að mennirnir sem
rændur útibú Búnaðarbankans við Vesturgötu hafi notað við flóttann
eftir ránið. í bílnum fannst hnífurinn sem þeir notuðu við ránið.
Lögreglan hefur enn engar áreiðanlegar vísbendingar um hverjir rændu
bankann og ekki heldur um hvar þeir eru nú niðurkomnir. Sporhundur
lögreglunnar rakti slóð þeirra frá Vesturgötunni í átt að höfninni og
síðan suður á bóginn um Garðastræði í átt að Blómvallagötu.
DV-mynd S
Eftir ránið hlupu mennirnir eft-
ir gangstíg við vesturenda útibús-
ins niður á Nýlendugötu og þaðan
sennilega áfram niður á Mýrar-
götu í áttina að Stálsmiðjunni.
Sporhundur rakti slóð þeirra
þangað og hélt síðan áfram yfir á
Garðastræti en virtist tapa slóð-
inni á leiöinni og fór aftur að
bankanum.
í gærkveldi fann lögreglan
Toyota bifreið á Biómvallagötu.
Talið er að Toyotuna hafi ræningj-
arnir notað til að komast undan.
Þar í var hnífur ræningjanna en
ekki annað úr fórum þeirra. Enn
er allt á huldu um hvar þeir halda
sig. Fylgst var með öllum manna-
ferðum úr bænum þegar eftir rán-
ið en það gaf engan árangur. Rann-
sókn málsins verður fram haldið í
dag.
„Við munum vinna úr þeim litlu
vísbendingum sem við höfum. Enn
höfum við ekkert á aö byggja sem
gæti bent til hvaða menn voru
þarna á ferð og ekki heldur hvar
þeir eru niðurkomnir,“ sagði
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn hjá Rannsóknarlögreglunni,
í samtali við DV í morgun.
-GK
Veðrið á morgun:
Talsvert
frost
Á morgun verður fremur hæg
norðaustanátt um landið norðan-
vert en hæg suðaustan- eða aust-
anátt sunnanlands. É1 verða á
Norðausturlandi og með suður-
ströndinni en annars þurrt og
bjart veður.
Talsvert frost, eða á bilinu 3 til
12 stig á láglendi, mildast sunnan
til.
Veðrið í dag er á bls. 36
Gronsasvegí 11
Sfmi: 5 886 886 Fox: 5 886 888
Groent númer: 800 6 886 j
MTT#
alltaf á
Miövikudögnin