Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996 Fréttir Björk Þórðardóttir segir sögu sina í fyrsta sinn eftir Súðavíkurslysið: Vinnan er aðferð mín til að komast yfir sorgina - segir Björk en hún keypti og rekur blómabúð í Reykjavík „Ég keypti mér blómabúð í sumar og nota vinnuna við hana til að komast yfir sorgina. Ég vissi að rekstur búðarinnar útheimti mikla vinnu og að ég gæti ekki leyft mér að hringja bara á morgnana og segj- ast vera veik. Vinnan er aðferð mín til að komast yfir þetta,“ segir Björk Þórðardóttir, en hún missti sambýl- ismann sinn og dóttur í snjóflóðinu mikla í Súðavík þann 16. janúar á síðasta ári. Björk hefur ekki áður sagt frá reynslu sinni í fjölmiðlum. Hún flutti frá Súðavík þegar eftir slysið eins og allir aðrir sem misstu ást- vini sína í flóðinu. Húnn segir að rekstur blómabúðarinnar, Rauðu rósarinnar á Laugavegi, gangi þokkalega þrátt fyrir harða sam- keppni. „Það er ekki hægt að lýsa því hvemig sorgin hefur verið þetta ár. Ég vissi að þetta yrði erfitt en ég reyni að taka einn dag í einu. Þar hjálpar vinnan mikið. Það verður að fara á fætur á morgnana og afla blóma og gera það sem gera þarf,“ segir Björk. Hún fór að vinna á hjúkrunar- heimilinu Eir skömmu eftir flóðið og segir að sér hafi fundist gott að geta hugsað um gamla fólkið þar í stað þess að vera alltaf að hugsa um sjálfa sig. Eldri dóttir Bjarkar flutti og til hennar og hefur það verið mikill styrkur. Björk segist ekki vita hvernig hún verji morgundeginum - 16. jan- úar - þegar ár verður liðið frá snjó- flóðinu. Hún reiknar þó með að vera við minningarguðsþjónustuna í Dómkirkjunni. Björk Þórðardóttir, sem missti sambýlismann sinn og dóttur í snjóflóðunum, segist nota vinnuna til að komast yfir sorgina. Hún flutti eftir slysið til Reykjavíkur þar sem hún keypti biómabúð við Laugaveg. DV-mynd JAK „Ég kvíði þessum degi. Ég tek venjulega bara einn dag í einu og það verður að takast á við 16. janú- ar eins og aðra daga. Flateyrarslys- ið fór illa með mig eins og alla aðra sem lentu i Súðavíkurflóðinu. Við upplifðum allt aftur. Sem betur fer var mikið að gera fyrir jólin og þess vegna ekki timi til að velta sér upp úr sorginni," segir Björk. Björk er ofarlega í huga þakklæti til allra sem hafa stutt hana og aðra sem misstu allt sitt í Súðavík. Hún segir að það hafi verið mikils virði ' að þurfa ekki að takast á við fjár- hagsáhyggjur með sorginni. „Það er samt líka í mér reiði vegna þess hvernig staðið var að málum eftir slysið og eins að vera ekki vöruð við hættunni. Ég keypti hús í Súðavík án þess að vera nokkru sinni sagt að það væri á hættusvæði. Ég var alveg granda- laus. Ég verð því reiðari sem ég kynni mér þessi mál betur,“ sagði Björk. -GK Áriö hefur veriö erfitt fyrir Hafstein Númason og Berglind Kristjánsdóttur: Langaði mest til að gleyma jólunum - segir Berglind, sem finnst eins og slysiö hafi orðið fyrir einni viku ,„Þetta hefur verið erfitt ár og mikil barátta að takast á við sorg- ina. Núna fyrir jólin langaði okkur mest til að gleyma að halda upp á þau, kaupa ekki jólatré og gera ekk- ert. Það var hrikalegt að hugsa sér að halda jólin án barnanna. En það hjálpaði mikið að dætur Hafsteins frá fyrra hjónabandi voru báðar hjá okkur þannig að það urðu jól. Við keyptum jólatré og skreyttum það,“ segir Berglind Kristjánsdóttir, en hún og Hafsteinn Númason, maður hennar, misstu þijú böm sín ung í snjóflóðinu í Súðavík fyrir ári. Þau Berglind og Hafsteinn segjast eiga erfitt með að komast yfir sorg- ina og það óréttlæti sem þau voru beitt þegar öllum eigum þeirra var rutt burt og þær eyðilagðar eftir flóðið. „Það er prinsipmál hjá okkur að settar verði reglur eða lög um hvemig á að fara með eigur fólks eftir slíkar hamfarir. Ef hrepps- nefndin hefði séð að sér og beðist opinberlega afsökunar á að hafa ratt eigum okkar i höfnina værum við tilbúin til að gleyma. Við ætlum okkur að fá það sannað að ekki megi eyðileggja eigur fólks. Þetta er ekki spuming um peninga heldur virðingu við það fólk sem lét lífið í slysinu,“ segir Hafsteinn. Þau segja að erfitt verði að takast á við lífið og sorgina fyrr en eftir- mál snjóflóðsins era úr sögunni og endanlega frá. Þau hafa lögfræðing sem vinnur aö málinu með þeim en seint gengur. Enn eins og martröð „Stundum finnst mér eins og það sé bara liðin ein vika frá flóðinu. Samt er líka eins og það hafi gerst í öðrum heimi. Enn finnst mér þetta stundum eins og martröð sem ég muni vakna af og þá verði allt eins og áður. Samt veit ég að það verður aldrei,“ segir Berglind. „Flateyrarslysið varð einnig til þess að allt riíjaðist upp að nýju. Það var erfitt að hlusta á fréttimar og bíða eftir að allir fyndust," bætir Hafsteinn við. Hann hefúr nú tekið sér frí frá vinnu um tíma en ætlar að byrja aftur eftir þann 16. janúar. Hann á og rekur sendibíl. „Það eina sem maður hefur að halda í er trúin á að hitta þau aftur. Við hugsuðum ekkert sérstaklega um trúmál áður en það er óhjá- kvæmilegt að gera það nú. Fyrst var ég ekki sátt við að fá ekki að fara með bömunum en nú finn ég að það era margir aðrir sem maður hefur að lifa fyrir. Okkar sorg er heldur ekkert meiri en margra annarra sem misst hafa ástvini í slysum," segir Berglind. „Maður verður að vinna úr hverj- um degi fyrir sig. Stundum þoli ég ekki að vera einn en vil svo vera einn þess á milli,“ segir Hafsteinn og þeim ber saman um að hjálp prestanna séra Karls Matthíassonar og séra Jakobs Hjálmarssonar hafi verið þeim mikils virði. „Við eigum líka okkar góðu stundir. Við ræðum þessi mál en ekki öllum stundum. Það þýðir ekk- ert. Oft ber flóðið ekki á góma svo dögum skiptir enda er mikilvægt að geta hugsað um önnur mál líka. Og við vonum að næsta ár verði ekki eins erfitt og það sem liðið er,“ seg- ir Hafsteinn. -GK Líður enn eftir hörmungar snjóflóðsins í Súðavík fyrir ári: Er döpur og illa upplögð alla daga - segir Wieslawa Lupinska, pólska konan sem lenti í snjóflóðinu „Aðstæður mínar eru alls ekki slæmar að öðru leyti en því að ég er oft veik. Ég er enn eins og döpur, kraftlaus og illa upplögö alla daga. Ég var ekki svona áður. Þá gat ég unnið og hafði ekki undan neinu að kvarta,“ segir Wieslawa Lupinska, pólska konan sem lenti með Tómasi syni sínum í snjóflóðinu mikla i Súðavik 16. janúar í fyrra. „Tómas virðist spjara sig betur. Hann er í skóla og gengur vel en ég er ekki eins og ég á að mér að vera,“ segir Wieslawa. Tómas sonur henn- ar lá grafinn í flóðinu í fullan sólar- hring og mátti það teljast krafta- verk að hann slapp lifandi frá hörm- ungunum. Þau mæðgin búa nú í Kópavogi og hafa keypt sér íbúð. Hún vinnur við bókband hjá Prentsmiðjunni Odda og lætur vel af vinnunni þótt þrálát veikindi hafi óneitanlega sett strik í reikninginn. „íslendingar hafa hjálpað mér mikið og samstarfsfólk mitt er gott. Ég hef þannig ekki undan neinu að kvarta hvaö varðar ytri aðstæður. Læknar segja að vandamál mín stafi af stressi vegna afleiðinga slyssins," segir hún. Pólland ekki á dagskrá Wieslawa fór til Súðavíkur í júní í sumar og hún heldur enn sam- bandi við fólk þar. Hún hefur einnig farið eina ferð til Póllands og segir að móðir sín vilji að hún komi aftur í heimsókn fljótlega. Móðirin býr ein og vill halda nánu sambandi við dóttur sína. Wieslawa segir að ekki sé á dag- skrá að flytja aftur til Póllands. Hún ætlar sér að ílengjast á Islandi þrátt fyrir það sem á undan er gengið en í snjóflóðinu missti hún nánustu vini sína hér og allar eigur. „Ég verð að vinna mig út úr vandamálum mínum. Það er ekkert hægt að gera annað en að vinna í þessu sjálf en það tekur tíma,“ sagði Wieslawa. -GK Sandkorn Engin sýning Valsmenn neit- uðu því að 20-30 manna hópur þolfimi- iökenda fengi að halda sýn- ingu í leikhléi á bikarleik KA og Valsmanna í handboltan- um á miðviku- dagskvöld. Rök neitunarinnar voru að þá kæmi inn í salinn fólk sem ekki greiddi aðgangseyri og af yrði tekjutap. KA-menn voru gap- andi af undrun vegna þessarar af- stöðu en hlógu reyndar að öllu sam- an þegar um hægðist. Stór hluti þol- fimifólksins hugðist ekki fylgjast með leiknum, aðeins lífga upp á stemninguna i leikhléinu. En hefði allt þetta fólk annars ætlað að greiða aðgangseyri en sloppið við það vegna sýningarinnar hefði það þýtt „tekjutap" fyrir Valsmenn upp á 7-10 þúsund krónur. KA-menn minntu á það í leiðinni að í úrslita- leik félaganna í Islandsmótinu sl. vor hefðu félögin tapað hundruöum þúsunda króna vegna þess að Vals- menn vildu ekki fara með leikinn úr Valsheimilinu í íþróttahöllina i Laugardal og ijölmargir fengu ekki aðgöngumiða. Togstreita Sjónvarpið gerði leiknum á Akureyri ágæt skil og sýndi beint frá hluta fyrri hálf- leiks og öllum síðari hálfleik. Ekki mun hafa gengið átaka- laust fyrir íþróttadeildina að fá tíma í dagskránni fyrir þessa útsendingu enda einhverjir innan stofnunarinn- ar sem hafa talið sig vera með betra efni í höndunum til að sýna á sama tíma. E.t.v. hefur eitthvert efni orð- ið út undan þegar jóladagskrá Sjón- varpsins var sett upp, efni sem ein- hverjir sjónvarpsmanna hafa talið að landsmenn mættu alls ekki missa af. Landsmenn sjá þessa tog- streitu innan Sjónvarpsins birtast á fleiri vegu, m.a. með yfirlýsingu fréttastjórans um að til greina komi að hætta með fréttir kl. 23 og fækka starfsmönnum fréttastofu ef Sjón- varpið hyggst þjóna landsmönnum þegar ólympíuleikamir fara fram í sumar. Söng hann „Bláhimininn"? Blaðið Feykir á Sauðárkróki segir frá því að þinganaðurinn Árni Johnsen hafi „birst óvænt“á þrett- ándaskemmtun Karlakórsins Heimis í Skaga- firöi á dögun- um og skemmt þar ásamt öðrum þingmanni, Hjálmari Jónssyni. Sem kunnugt er hefur Árni gert landsþekkt lagið Undir bláhimni sem karlakórinn söng reyndar inn á plötu á sínum tíma. Þótt það hafi ekki fengist stað- fest hvarflar aö manni sá grunur að Árni Johnsen hafi ákveðið að mæta á skemmtun kórsins og leyfa um 600 gestum á skemmtuninni aö heyra (og sjá) hvemig flytja á þetta vinsæla lag. Og hver veit nema „kartöflulagið" hafi flotið með í leiðinni. Knattspyrna á skautum Aðstöðuleysi knattspymu- manna á Akur- eyri til vetrar- og voræfinga er að verða lands- þekkt, enda ár- angur þeirra undanfarin ár i samræmi við þaö. Nú hafa reyndar verið sett upp flóðljós á Sanavellinum svokallaða niðri við höfn sem eitt- hvað eiga að bæta ástandiö. Nói Bjömsson, þjálfari Þórs, sagðist fagna þessu, svo framarlega sem svellið á veflinum gerði mönnum ekki erfitt fyrir. En hvers vegna er ekki bara æft á skautasvellinu í Innbænum sem einnig er vel upp- lýst?___________________ Umsjón: Gylfi Kristjánsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.