Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Page 19
MÁNUDAGUR 15. JANÚAR 1996
31
Meniúng
Ingólfur Arnarsson. Hljóðlát verk.
í samræmi við rými eða
samkvæmt skoðanakönnun
- sýningar Ingólfs Arnarssonar og Komars og Melamids
Það viðhorf að listina sé ekki að hægt að líta á sem
sér fyrirbæri, aðgreint frá umhverfi sínu, hefur notið
aukins fylgis hin síðari ár. Innsetningar af ýmsu tagi
eru orðnar algengar í sýningarsölum, sem og sýning-
ar þar sem verkum er sérstaklega fyrir komið þannig
að þau rími við rýmið. Ingólfur Arnarsson er einn
þeirra listamanna sem hafa iðkað
þá list á undanfömum árum að láta
verk sín taka mið af viðkomandi
sýningarsal. Þó má segja að Ingólf-
ur fari mjög almenna leið að þessu
marki því hann gerir ekki verk sér-
staklega fyrir hvem sal heldur
vinnur þau í algeng efni eins og steypu sem hann
grunnar líkt og húsvegg. Þessi byggingartæknilega
nálgun listamannsins við bygginguna utan um verk-
in er engin tilviljun. Ingólfur Arnarsson er listamað-
ur sem kappkostar að koma svo til móts við rýmið að
verk hans verði nánast ósýnileg og verði vart aðskil-
in frá því. Um helgina vora opnaðar tvær ólíkar sýn-
ingar á verkum Ingólfs; að Ingólfsstræti 8 og að Kjar-
valsstöðum. Það er fróðlegt að sjá hvernig rýmið
virkar á mismunandi hátt með verkunum á þessum
stöðum.
Að ríma við rýmið
Að Ingólfsstræti 8 hefur Ingólfur komið fyrir f]ór-
um rétthymdum verkum úr grunnaðri steinsteypu
sem hann hefur vatnslitað mjög naumlega þannig að
einungis er slikja af lit á hluta flatarins. í salnum er
skær birta af flúrljósum svo erfitt er að greina verk-
in í fyrstu. Hér hefði verið vænlegra að deyfa birtuna.
Hins vegar rammar salurinn verk Ingólfs vel inn og
þau eru þama í góðum samhljómi við rýmið. Á Kjar-
valsstöðum hefur Ingólfur fengið miðrýmið til afnota
sem er vel því stóra salirnir henta greinilega ekki
verkum á borð við þessi. Hins vegar er miðrýmið það
opið að verkin missa talsvert vægi og hefði þurft að
loka rýminu betur til að betra næði myndaðist og
verkin fengju aukið svigrúm. Fimm steypuverk
áþekk verkunum i Ingólfsstræti eru á langveggnum
og beggja vegna á vegg við gluggana era tuttugu og
fimm blýantsteikningar á pappír, fínt dregin net sem
þarfnast nándar og miðla í senn virðingu listamanns-
ins fyrir því smágerða og áhuga
fyrir skynvillum augans. Hér hefði
mátt byrgja gluggana til að draga
úr mismunandi sterkum sólará-
hrifum á glerjaðar teikningarnar.
Hin hljóðlátu verk Ingólfs Am-
arssonar era sannarlega ekki allra,
enda leitast hann við að vera samkvæmur umhverf-
inu en ekki fólki. Það gera hins vegar rússnesku
listamennirnir Komar og Melamid sem sýna „eftir-
sóttasta málverk íslensku þjóðarinnar" í fremur
óþægilegri nálægð við verk Ingólfs á Kjarvalsstöðum.
Meðaltalsmálverk
Skoðanakönnun Hagvangs, sem málverkið byggist
á, er hægt að nálgast í formi bæklings á Kjarvalsstöð-
um og einnig á Mokka, þar sem „eftirsóttasta mál-
verk bandarísku þjóðarinnar" er til sýnis. 1 könnun-
inni kemur m.a. fram að afstaða íslendinga til mynd-
listar virðist lítið frábrugðin þvi sem búast hefði mátt
við um síðustu aldamót og er það vissulega umhugs-
unarvert. Þeir Komar og Melamid fara hins vegar
greinilega einhverja meðaltalsleið við gerð málverka
sinna og þannig eru þessi eftirlætisverk íslendinga og
Bandaríkjamanna mjög áþekk; sama mótífið, kyrrt
stöðuvatn, óhrjálegt tré og hindir sem ganga á vatni.
Það eina sem virðist ólíkt er fólkið. Athygli vekur
jafhframt að „málverkið" ameríska á Mokka er í
raun silkiþrykk og í þokkabót fremur óskýrt. Upp-
setningin og framkvæmdin er hins vegar vel úr garði
gerð á báðum stöðum og niðurstöður könnunarinnar
fara ekki á milli mála.
Myndlist
Úlafur J. Engilbertsson
Hátíðartónleikar
Haldnir voru hátíðartónleikar í Hjallakirkju í
Kópavogi sl. þriðjudagskvöld.
Fjölmargir flytjendur komu fram á tónleikunum:
Samkór Kópavogs undir stjóm Stefáns Guðmunds-
sonar, organistinn Kjartan Siguijónsson, Hljómskála-
kvintettinn, Skólakór Kársness undir stjóm Þórunn-
ar Bjömsdóttur og einsöngvaramir Sigrún Hjálmtýs-
dóttir og Anita Nardeau, auk Marti-
als Nardeau, sem að þessu sinni
kom fram sem stjórnandi.
Tónleikarnir hófust á því að
Samkór Kópavogs söng Vora raust
og tungu, Kyndilmessusálm úr
Grallaranum í einfaldri, en þokka-
legri útsetningu Glúms Gyífasonar, en síðan Ave
Maríu og Cantate Domino eftir Hans Nyberg, sem eru
fremur dauflegar, en þó ljúfar tónsmíðar, einkum
Ave Marían.
Hljómskálakvintettinn er málmblásarakvintett og
flutti hann fyrst Canzona Bergamasca eftir Samuel
Scheidt, en síðan Aríu úr óratoríunni Samson eftir
Handel, ásamt þeirri ágætu söngkonu, Sigrúnu
Hjálmtýsdóttur.
Skólakór Kársness flutti siðan sex valda kafla úr
Ceremony of Carols eftir breska tónskáldið Benjamin
Britten, í þýðingu Heimis Pálssonar.
Hljómburður kirkjunnar er afleitur fyrir tónlistar-
flutning og er erfitt að gera sér grein fyrir jafnvægi
tóns í rými hennar. Kom það niður á flytjendunum
sem engu að síður fluttu tónlistina yfirleitt á þokka-
legasta hátt. Sérstaklega var arían
fallega sungin hjá Sigrúnu og
trompetsóló Ásgeirs Steingrims-
sonar voru og fagurlega útfærð.
Aðalverk tónleikanna var Messa
fyrir barnakór, blandaðan kór, ein-
söngvara og málmblásarakvintett
eftir Martial Nardeáu, sem sjálfur stjómaði frum-
flutningi verksins. Þetta er metnaðarfullt verk hjá
Martial og vitnar oftsinnis um góða tónlistarhæfi-
leika hans. Díatónískir skalar málmblásaranna í
Credo-inu virka þó fremur einhæfir og bæði þar og
víðar næst tæplega nægileg undirbygging tónvefsins
svo hann virki fyllilega sannfærandi. Margt er þó fal-
lega gert í þessu verki og er Martial óskað til ham-
ingju með þessa frumraun sína í stærra formi.
Tónlist
Áskell Másson
Viðskipta- og tölvuskólinn
Nám sem skilar þér
árangri - núna!
Tölvunámskeið fyrir atvinnulífið
Góð tölvukunnátta eykur afköst. Starfsmenn sinna sínu starfi en ekki
tölvuvandamálum! Þeir geta sótt almenn námskeið eða pantað hóp-
námskeið sem hægt er að laga að þörfum fyrirtækja.
Tölvunámskeið fyrir heimilið
Heimilistöivur eru orðnar ótrúlega öflugar og það er synd að nota þær
aðeins fyrir leiki, þegar hægt er að nýta þær á svo margvíslegan hátt.
VTN býður upp á kvöld- og helgarnámskeið þar sem farið er á
hnitmiðaðan hátt í gegnum algengasta notendahugbúnað. VTN býður
einnig upp á mjög gagnleg námskeið fyrir börn og unglinga.
Rekstur smáfyrirtækja
Námskeiðið er fyrir þá sem standa í rekstri eða þá sem hyggja á rekstur.
Markviss kennsla í helstu þáttum sem snúa að daglegum rekstri
smáfyrirtækja eða einyrkja.
(160 kennslust. / 120 klst.)
Virk markaðssetning
Námskeið ætlað verslunareigendum, verslunarstjórum eða fólki með
annan rekstur. Þátttakendum er kennt að tileinka sér vinnubrögð
virkrar markaðssetningar og bæta þannig árangur sinn í viðskiptum.
(108 kennslust. / 81 ldst.)
Bókhaldsnám
Hefur þú áhuga á vinnu við bókhald eða kemstu ekki hjá því að færa
bókhald? Á þessu námskeiði eru kennd nauðsynleg atriði til að hand-
færa og tölvufæra bókhald, vinna afstemmingar og setja upp einfaldan
ársreikning fyrir minni fyrirtæki.
(156 kennslust. /117 klst.)
Tölvunotkun í fyrirtækjarekstri
Hér færðu heildaryfirsýn yfir möguleika einmenningstölvunnar í fyrir-
tækjum og alhliða þjálfun í notkun á algengasta búnaði.
(414 kennslust. / 23 vikur)
Almennt skrifstofunám
Ertu á leið út á vinnumarkaðinn? Eða viltu breyta til? Hnitmiðað
undirbúningsnám þar sem kennd eru þau atriði sem mestu máli skipta
við almenn skrifstofustörf. Námið er opið öllum 18 ára og eldri.
(486 kennslust. / 26 vikur)
Námskeið VTN:
Fjalla um aðalatriði “ kenna það sem skiptir máli
Eru hagnýt - skila árangri
Eru nátengd atvinnutifinu “ veita forskot á vinnumarkaði
<o>
NÝHERJI
VIÐSKIPTA- OG
TÖLVUSKÓLINN
Stj órnunarfélag
íslands
Ánanaustum 15.101 Reykjavík.
sími: 569 7640, símbréf: 552 8583. skoli@nyherji.is