Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1996, Síða 36
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Fíkniefni í Firðinum: Mikið magn í umferð - níu manns handteknir „Þetta er bara vísbending um að ...—~,mikið magn flkniefna sé í umferð og að aldur neytenda fari lækkandi," segir Gissur Guðmundsson, rann- sóknarlögreglumaður í Hafnarfirði. Lögreglan þar í bæ handtók alls níu menn um helgina vegna fíkniefna- mála. Fyrst var gerð leit í húsi við Hverfísgötu á föstudag og hald lagt á 50 lítra suðutæki og hasspípu. Ábending hafði borist um veru mjög ungra krakka í húsinu og gekkst húsráðandi við því að eiga hlutina. Lögreglan fór síðan í hús við Tjarnarbraut í Hafnarfirði í fyrra- kvöld og þar voru fjórir menn hand- teknir og hald lagt á 11-12 grömm af hassi, marijúana og afetamín, nokk- urt magn af sveppum og töluvert af s,—„áhöldum til flkniefnaneyslu. Að síðustu voru svo fjórir menn handteknir í gærmorgun. Bifreið þeirra var stöðvuð og í ljós kom að þeir voru með landa, amfetamín og hasspípu í bílnum. Allir mennirnir níu voru látnir lausir eftir skýrslu- töku._________'________-sv Bolungarvík: Þrír í gæslu- varðhaldi Þremur mönnum verður haldið í gæsluvarðhaldi að minnsta kosti fram tU þriðjudags á meðan lögregl- an í Bolungarvík og á ísafirði rann- sakar innbrot í Shell-skálann í Bol- ungarvík. Innbrotið var framið að- faranótt fostudags og þaðan m.a. stolið hundruðum þúsunda króna. Fjórir menn voru teknir í framhaldi af því grunaðir um innbrotið og hugsanlega jafnvel að hafa eitthvað meira á samviskunni. Fallið var frá kröfu um gæsluvarðhald á hendur einum mannanna en hinir þrír sitja inni. -sv Látinna Súðvík- ~ - inga minnst Súðvíkingar munu á morgun minnast þess að ár er liðið frá snjó- flóðinu þar. Safnast verður saman við kaupfélagið klukkan 17 og farin blysför að flóðasvæðinu og friðar- kerti lögð við húsgrunna þeirra húsa sem lentu í flóðinu. Þá verður haldið upp í brekkuna fyrir ofan flóðasvæðið og ljós tendruð á 14 kertum í minningu þeirra sem lét- ust og Magnús Erlingsson sóknar- prestur verður með bænastund. Klukkan 21 verður helgistund í kirkjunni. Sama dag verður einnig helgi- stund af sama tilefni í Dómkirkj- *rJnni í Reykjavík klukkan 20.30. -ÞK Átök í uppsiglingu um starfsfólk Neyðarlínunnar: Dagsbrún með málið fyr- ir dómstóla ef með þarf - semjum fyrir skrifstofufólk, segir formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur Átök eru í uppsiglingu mdli Verkamannafélagsins Dagsbrúnar og Verslunarmannafélags Reykja- víkur um það í hvoru félaginu starfsmenn Neyðarlínunnar 112 eiga að vera. „Að Verslunarmcmnafélagið skuli vera búið að taka starfsfólk Neyðarlínunnar í VR og semja um kjör þess er hreint út sagt yfir- gengilegt. Dagsbrún hefur gert kjarasamninga við Securitas síðan það fyrirtæki varð til en svo kem- ur VR og tekur yfir starfsmenn Neyðarlínunnar. Við skrifuðum Neyðarlínunni bréf og bentum á að þarna væri um okkar samn- ingsrétt að ræða. Við fengum svo svar þar sém sagði að þetta væru störf sem tilheyrðu VR og að búið væri að semja við VR. En þetta mál er sko ekki búið af okkar hálfu. Þó við þurfum að stefna Verslunarmannafélaginu þá ger- um við það,“ sagði HaUdór Björns- son, varaformaður Dagsbrúnar í samtali við DV. „Það er ekki hægt að bera sam- an störf hjá Securitas og Neyðar- línunni. Störfin á Neyðarlínunni eru bara skrifstofuvinna. Og skrif- stofufólk á Reykjavíkursvæðinu tilheyrir VR. Þama er um að ræða fólk sem vinnur við síma og tölv- ur. Ég vil benda á að hjá Vara er þetta tvískipt. Þeir sem vinna við síma og tölvur eru í VR en þeir sem fara út í öryggisgæsluna eru í Dagsbrún. Hjá Securitas hafa menn blandað saman störfum og allir verið í öllu og þeir eru í Dags- brún þótt deila hafi mátt um í hvoru félaginu þeir eigi að vera,“ sagði Magnús L. Sveinsson, for- maður VR. Hann sagði að Vinnuveitenda- samband íslands hefði haft frum- kvæði að því að kalla eftir viðræð- um við VR um gerð kjarasamn- inga. „Við áttum ekkert frumkvæði þar um. Við lyftum ekki upp litla fingri í þessu máli. En við töldum okkur skylt að ganga til samninga. Skárra væri það að neita að taka við skrifstofufólki í VR. Það er hlutverk VR en ekki Dagsbrúnar að sjá um samninga skrifstofu- fólks,“ sagði Magnús L. Sveinsson. -S.dór „Það fylgir þessu tvöföld ánægja en líka tvöfalt erfiði," sagði Sigríður Kjart- ansdóttir, tvíburamamma á Kópaskeri, sem var úti að ganga í góða veðrinu ásamt dætrunum Auði og Guðrúnu sem eru tveggja ára. DV-mynd gk Bergmálsmælingar á Fimmtán tonn af Vestfjarðamiðum: þúsund þorski - segir Sigfús Schopka fiskifræðingur „Við fórum á Bjama Sæmunds- syni í leiðangur fyrir viku norður fyrir Horn, i Þverál. Þorskurinn stóð þétt sunnan við Hala og áætluð- um við að um væri að ræða um 15 þúsund tonn. Þetta er í fyrsta sinn sem við notum bergmálsmælingar og til að þær virki þarf fiskurinn að vera þétt,“ sagði Sigfús Schopka fiskifræðingur í samtali við DV í gær. Mjög góð veiði hefur verið á þessu svæði undanfarið og sagði Sigfús að ástæðan væri hversu þétt fiskurinn væri. Þetta væri 4-6 ára þorskur en minna af 5 ára fiski þar sem sá árgangur væri lakur. „Það er mjög ánægjulegt að fiski- fræðingarnir skyldu koma á svæðið og sjá að sjómenn hafa rétt fyrir sér. Það er líka merkilegt að fiskifræð- ingarnir náðu að fá út þessi gildi með bergmálsmælingum. Það eru þrír mánuðir síðan tilkynnt var um þessa fiskgengd þarna. Á því tíma- bili er trúlega búið að veiða 5-10 þúsund tonn, fiskurinn er orðinn kynþroska og þá fer hann af svæð- inu,“ sagði Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimanna- sambands íslands, sem var með í leiðangrinum. „Rannsóknarmenn þurfa að vera fljótari að koma þegar þeim er bent á hvar fiskur er. Þeir þurfa að breyta vinnubrögðunum." -ÞK Ellert B. Schram: Alvarlega að íhuga framboð „Eg get staðfest að ég er alvarlega að íhuga framboð. Það er hins veg- ar í mörg horn að líta áður en svo stór ákvörðun er tekin. Kosninga- barátta hefur áhrif á fjárhag, fjöl- skyldu og vinnu. Það eru sex mán- uðir til kosninga og því nægur tími til stefnu," sagði Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, við DV, aðspurður hvort hann hygðist gefa kost á sér í emb- ætti forseta íslands. -bjb ÞETTA ER HÁLF NEYÐAR- LEG BARÁTTA! Veðriö á morgun: Hvasst og rigning í dag verður allhvöss sunn- an- og suðaustanátt með rign- ingu um sunnanvert landið og á Austurlandi en úrkomulítið norðanlands, hiti 5 til 6 stig. Þegar líður á daginn snýst í suðvestanátt með slydduéljum um vestanvert landið og kólnar dálítið. Veðrið á morgun er á bls. 44 ggs^ gfcjg brothec tölvu límmiða prentari Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 .i y k lll'Vi ■ * . LfTTO alltaf á Miðvikudögnm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.