Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Síða 19
18
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996
23
íþróttir
Iþróttir
DV
Besti árangur
Kristins í svigi
Kristinn Björnsson, skíðamaður
úr Leiftri á Ólafsfirði, náði sínum
besta árangri í svigi á FlS-móti sem
haldið var í St. Michael í Austurríki
um helgina. Kristinn fékk 17,06
punkta fyrir sigurinn. Alþjóða
skíðasambandið er nýlega búið að
núllstilla heimslistann þannig að
allir keppendur hækka í punktum
sem því nemur. Breytingin jafngild-
ir því að Kristinn hafi fengið 13,39
punkta fyrir núllstillingu listans.
Margir þekktir skíðamenn tóku
þátt í mótinu og má þar nefna Jap-
anann Hideaki Ito en hann lenti í
fimmta sæti. Ito á sæti í-heimsbik-
arliði Japans. Haukur Arnórsson,
Ármanni, tók þátt í sama móti og
varð í 15. sæti og fékk 38,88 punkta.
Arnór Gunnarsson, Skíðafélagi ísa-
fjarðar, keyrði út úr brautinni og
féll þar með úr keppni.
Eftir núllstillingu er punktastaða
íslensku skíðamannana þannig að
Kristinn Björnsson er efstur með
11,42 puhkta. Arnór Gunnarsson
kemur næstur með 58,94 punkta,
Haukur Arnórson 73,99 punkta og
Brynja Þorsteínsdóttir 133,80
punkta.
-JKS
David Ginola með
mikla heimþrá
Frakkinn David Ginola, sem leik-
ur með Newcastle í ensku knatt-
spyrnunni, er þjakaður af mikilli
heimþrá og ef marka má orð
kappans þá verður hann ekki mikið
lengur en til loka keppnistímabils-
ins hjá Newcastle.
Ginola segist sakna Frakklands.
Hann segist vera einmana tímunum
saman en aldrei líði honum þó
jafnilla en í þær fjörutíu mínútur
sem það tekur hann að aka á æfing-
ar. Þá leiti hugurinn til Frakklands
og til vinanna þar. Ginola segist oft
hringja úr bílasíma sínum til
Frakklands til að drepa tímann og
tali þá oft lengi í símann.
Ginola virðist ekki vera nema i
meðallagi ánægður með veru sína í
Englandi. „Ég veit að á mig er litið
sem útlending og ég er stöðugt
minntur á það að ég er ekki Eng-
lendingur. Þetta getur oft verið
mjög erfitt. Þegar ég var hjá Paris
SG sá ég hve erlendum leikmönn-
um leið oft illa og í hve miklum erf-
iðleikum þeir áttu meö aö aðlagast
nýjum aðstæðum,” segir Ginola.
-SK
Frjálsar íþróttir:
Vala setti
nýtt Norður-
landamet
Vala Flosadóttir, sem búsett er í
Svíþjóð, setti um síðustu helgi nýtt
Norðurlandamet í stangarstökki
innanhúss.
Vala stökk 3,82 metra en eldra
metið var 3,76 metrar. Metið setti
Vala á fyrsta innanhússmótinu á
keppnistímabilinu og lofar árangur
hennar mjög góðu hvað framhaldið
varðar.
Næsta verkefni Völu er Evrópu-
meistaramótið innahúss sem fram
fer í Stokkhólmi dagana 8.-10. mars.
Vala hefur stöðugt verið að bæta ár-
angur sinn en hún á einnig Norður-
landametið utanhúss en það er 3,81
metrar. Stökk Völu um síðustu
helgi var því hennar besti árangur
til þessa og verður fróðlegt að fylgj-
ast með henni í framtíðinni. -SK
Mannheim leigir
Bjarka á 1,4
milljónir króna
- skrifaði undir samninginn í gær
Þýska knattspyrnufélagið Wald-
hof Mannheim greiðir hollenska fé-
laginu Feyenoord 1,4 milljónir
króna í leigu fyrir Bjarka Gunn-
laugsson út þetta keppriistímabil.
Þetta kom fram í frétt hjá þýsku
sjónvarpsstöðinni SAT 1 í gær.
Bjarki gekkst i gær undir læknis-
skoðum hjá Mannheim, og stóðst
hana, og var gengið frá leigusamn-
ingnum í kjölfarið.
„Bjarka líst vel á allar aðstæður
hjá félaginu. Hann kemur heim í
dag og fer aftur út á fimmtudag, og
maður vonar bara að hann spjari
sig, því það eru miklar kröfur gerð-
ar til hans,“ sagði Gunnlaugur
Sölvason, faðir Bjarka, í samtali við
DV í gærkveldi.
-VS/DÓ
Kærumál eftir íslandsmótið í innanhússknattspyrnu:
Lék með tveimur liðum - skráður í það þriðja
. - Leiknismenn kæra - fellur Höttur í 3. deild í stað þess að vinna sér 1. deildar sæti?
Leiknismenn úr Reykjavík hafa
ákveðið að kæra liö Hattar frá Egils-
stöðum fyrir að hafa notað ólöglegan
leikmann í íslandsmótinu í innanhús-
sknattspyrnu um síðustu helgi. Kær-
an verður lögð inn til KSÍ i dag, að
sögn Þórhalls Kristvinssonar, for-
manns knattspyrnudeildar Leiknis.
Leiknir og Höttur börðust um sæti
í 1. deildinni, Höttur hafði betur og
átti samkvæmt því að leika í 1. deild
á næsta ári. Verði Leikni dæmdur
sigur í leik liðanna, fer Breiðholtslið-
ið upp í staðinn.
„Við tókum eftir því að einn af leik-
mönnum Hattar, Kári Jónsson, hafði
spilað með Neista frá Djúpavogi í 4.
deild mótsins á föstudagskvöldið. Þeg-
ar við könnuðum málið hjá KSÍ í dag,
kom í ljós að Kári var hvorki skráður
í Neista né Hött, heldur í skoskt félag,
þannig að það virðist borðleggjandi
að hann hafi verið ólöglegur með
Hetti í mótinu," sagði Þórhallur.
Kári dvaldi hjá skosku félagi fyrr í
vetur og hafði félagaskipti þangað, en
að sögn Þórhalls hafði engin tilkynn-
ing borist KSÍ um skipti frá skoska fé-
laginu yfir i Hött á ný.
Telja má víst að hin liðin í riðlin-
um, Huginn og HK, fylgi í kjölfarið og
kæri Hött. Huginn myndi sleppa við
fall 3. deild ef Kári væri dæmdur ólög-
legur, og þá yrði HK líka að kæra til
að halda sæti sínu í 2. deildinni. Þar
með myndi Höttur falla í 3. deild, í
stað þess að komast í 1. deildina í
fyrsta skipti.
-VS
Michael Jordan skoraði 46 stig fyrir
Chicago í nótt.
“ NBA
Jordan
Michael Jordan fór á kostum meö
Chicago í Washington í nótt í
bandaríska körfuknattleiknum. Jor-
dan skoraði 46 stig í leiknum, þarf
19 stig í fjórða leikhluta. Chicago
var lengi vel í vandræðum með
Washington en stórleikur Jordans
kom sigrinum í örugga höfn. Scottie
Pippen skoraði 27 stig fyrir
Chicago. Bent Price skoraði 30 stig
fyrir Washington, hans mesta á ferl-
inum, og Rúmeninn Gheorghe
Muresan skoraði 27 stig og tók 11
fráköst.
í Houston lögðu heimamenn í
Rockets lið Utah Jazz í jöfnum og
skemmtilegum leik. Þar voru Hake-
em Olajuwon og Mario Elie allt í
öllu hjá Rockets. Olajuwon skoraði
28 stig og Elie 20 stig. Olajuwon
lenti snemma í villuvandræðum,
lék lítið í öðrum leikhluta en í síð-
asta leikhluta lék hann frábærlega.
Karl Malone skoraði 23 stig fyrir
Utah.
Dallas lék stórvel gegn hinu
sterka liði Orlando. Jim Jackson og
George McCloud fóru fyrir í liði
Dallas, Jackson með sín 29 stig og
McCloud 27. Shaquille O’Neal skor-
aði 33 stig fyrir Orlando og tók átta
fráköst og Penny Hardaway 21 stig.
Shaq sagði eftir leikinn ekki vera
búinn að ná sér af meiðslunum og
Vin Baker skoraði 30 stig fyrir Mil-
waukee gegn New York.
nótt:
í stuði
hann gæti lítið einbeitt sér á æfing-
um.
Minnesota vann kærkominn sig-
ur á heimavelli eftir afleitt gengi
þar. Isaiah Rider skoraði 29 stig fyr-
ir Minnesota og Darrick Martin 20.
Brian Grant var stigahæstur hjá
Sacramento með 25 stig. Seattle hef-
ur unnið 10 af siðustu 12 leikjum
sínum. Gary Payton skoraði 23 stig
fyrir Seattle í Golden State í nótt en
hjá heimamönnum skoraði Latrell
Sprewell flest stig, alls 26.
New York tapaði óvænt á heima-
velli fyrir Milwaukee. Vin Baker
skoraði 30 stig hjá Bucks og tók 13
fráköst. Þetta var sjötti ósigur
Knicks í níu síðustu leikjum.
Lakers vann sinn þriðja sigur í
röð, lagði í nótt Miami í Forum.
Eddie Jones skoraði 20 stig og Vla-
de Divac 19 stig. Alonzo Mourning
skoraði 28 stig fyrir Miami.
Úrslit leikja í nótt:
Atlanta-Detroit 96-88
New York-Milwaukee 92-98
Washington-Chicago 109-116
Houston-Utah Jazz 107-99
Dallas-Orlando 119-104
Minnesota-Sacramento 103-94
Golden State-Seattle 95-104
LA Lakers-Miami Heat 96-88
New Jersey-Toronto 108-83
-JKS
Þýska handknattleiksliðið Lemgo, sem er íslend-
ingum að góðu kunnugt, hefur áhuga á að fá Viggó
Sigurðsson sem þjálfara fyrir næsta
keppnistímabil. Þetta kemur fram í nýjasta
hefti þýska handboltatímaritsins Handball Woche
en Ungverjinn Lajos Mazerik, sem stýrt hefur
Lemgo undanfarin 7 ár, hefur ákveðið að hætta eft-
ir þetta keppnistímabil.
í Handball Woche segir að Viggó hafi átt fund
með forráðamönnum Lemgo í Þýskalandi fyrir
skömmu til að ræða þessi mál en Viggó er einn
þriggja þjálfara sem þýska félagið hefur rætt við
varðandi þjálfarastöðuna. Með liði Lemgo leikur
einn besti handboltamaður heims, svissneska stór-
skyttan Marc Baumgartner, og á dögunum fram-
lengdi hannn samning sinn við félagið til tveggja
ára. Lemgo er ekki alveg ókunngt því að hafa ís-
lending innan sinna raða en Sigurður Sveinsson lék
með liðinu í nokkur ár við mjög góðan orðstír.
Bad Schwartau vildi fá Viggó fyrr í vetur
Samkvæmt heimildum DV þá höfðu forráðamenn
Bad Schwartau samband við Viggó fyrr í vetur og
vildu fá hann til að taka við liðinu en Viggó vildi
ekki slíta samningi sínum við Stjörnuna þrátt fyrir
að þýska félagið væri tilbúið að greiða upp samn-
inginn. Viggó gerði tveggja ára samning við Stjörn-
una og klárar hann þegar keppnistímabilinu lýkur
Kristján hættir
hjá Dormagen
- hættir í vor en framhaldið er óljóst
Á blaðamannafundi fyrir helgina gaf Krist-
ján Arason, þjálfari þýska
handknattleiksliðsins Bayer Dormagen, út
þá yfirlýsingu að hann myndi láta af
störfum hjá félaginu eftir keppnistíma-
bilið i vor. Kristján lýkur í vor því
tveggja ára samningi við Dor-
magen en margar ástæðúr liggja
að baki ákvörðun Kristjáns en
félagið vildi halda honum áfram.
„Þeir hjá Dormagen eru að
draga saman seglin og enn frem-
ur er ljóst að félagið mun missa
leikmenn. Einnig verður dregið
launum, bæði hjá þjálfara og
leikmönnum. Það eru nefnilega
að koma í ljós gamlar syndir.
Þeir buðu mér að vera áfram en
ég gaf yfirlýsingu á blaðamanna-
fundi hér fyrir helgina að ég yrði
ekki áfram. Ég veit ekki hvert framhaldið
verður hjá mér en ætla að athuga málin vel á
næstu mánuðum. Það er jafnvel inni í mynd-
inni að koma heim en tíminn verður að leiða
það í ljós. Ef til þess kæmi útiloka ég ekki
þjálfun,“ sagði Kristján Arason í samtali við
DV í gær.
Kristján sagði að nokkur lið í Þýskalandi
hefðu verið í sambandi við sig um þjálfun en
þau mál væru skammt á veg komin. „Það er
aldrei vita hvað gerist ef eitthvað spennandi
boð kæmi upp á borðið, sagði Kristján.
Dormagen er í 12. sæti af 16 liðum í úrvals-
deildinni. Liðið byrjaði illa á tímabUinu en
hefur smám saman verið að rétta úr kútnum.
Átta leikmenn voru í upphafi með lausa
samninga og sömuleiðis voru önnur innan-
búðar vandamál til staðar. Þetta ástand kom
að sjálfsögðu niður á liðinu.
-JKS
Golf:
Liselotte vann
stórmótið
Sænska stúlkan Liselotte Neu-
man sigraði á stórmóti atvinnu-
kvenna í golfi sem lauk í Flórída
í fyrradag.
Liselotte lék frábært golf og
hafði mikla yfirburði gegn and-
stæðingum sínum. Hún lauk
keppni með 11 högga forskoti og
lék hringina þrjá á 275 höggum
eða 11 höggum undir pari.
Karrie Webb varö í ööru sæti á
286 höggum og Laura Davis og
Missie McGeorge urðu í þriðja
sæti á 287 höggum.
Fæðingin
hefur forgang
Breski kylfingurinn Colin
Montgomerie verður frá keppni
fyrstu sjö vikur keppnistímabils-
ins hjá atvinnumönnum Evrópu
í golfi.
Eiginkona Montgomeries á
von á sér í næstu viku og
kylfmgurinn snjalli tekur fæð-
ingu barnsins fram yfir næstu
golfmót atvinnumanna á Evr-
óputúmum.
Montgomerie hefúr verið besti
kylfingur Evrópu síðustu þrjú
keppnistímabil.
Ruðningur:
Indianapolis
og Dallas leika
til úrslita
Það verða Indianapolis og
Dallas Cowboys sem leika Super-
bowl úrslitaleikinn í ameríska
ruðningnum þann 28. janúar nk.'
í undanúrslitunum, sem ffarn
fóru í fyrrinótt, vann Indianapol-
is sigur á Pittsburgh, 20-16, og
Dallas lagði Green Bay, 38-27.
Lið Dallas leikur til úrslita í
þriðja skiptið á síðustu fjórum
árum og þykir líklegt til að
vinna titilinn.
Knattspyrna:
Liverpool og
Everton í
heiðursflokk
Þann 1. febrúar munu stjórn-
endur Liverpoolborgar heiðra
knattspyrnulið borgarinnar sér-
staklega.
Everton og Liverpool náðu
bæði góöum árangri á síðasta
leiktímabili. Everton varð bikar-
meistari og Liverpool deildarbik-
armeistari. Nú fá félögin bæði
sérstök heiðursverðlaun en um
er að ræða helstu heiðursverð-
laun sem veitt eru í bítlaborg-
inni og jafnan er úthlutað til ein-
staklinga.
Egyptar og Sierra
Leone sigruðu
Tveir leikir fóru fram í Afr-
íkukeppni landsliða í knatt-
spyrnu í gær, en hún hófst í Suð-
ur-Afríku um helgina. Egyptar
unnu Angóla, 2-1, og Sierra Leo-
ne sigraði Burkina Faso.
Leikbönn í
Evrópukeppni
Allmargir leikmenn voru í
gær úrskurðaðir í leikbönn í
Evrópumótum félagsliða í knatt-
spymu. í þeim hópi vorú þrír
Bretar, Paul Gascoigne hjá
Rangers og Blackburn-mennirn-
ir Colin Hendry og Paul War-
hurst. Allir fengu þeir tveggja
leikja bann.
Enska knattspyrnan:
Jess og Boban
Eins og DV hefur greint frá þá
hefur Alex Ferguson, stjóri
Manchester United, mikinn
áhuga á að fá Króatann Znonam-
ir Boban til liðs við sig. United
þarf að greiða 250 milljónir fyrir
kappann en hann hefur ekki ver-
ið í náðinni hjá Fabio Capello,
þjálfara AC Milan. Þá herma
heimildir frá Old Trafford að
Ferguson vilji einnig kaupa Ioan
Jess frá Aberdeen.
Bould frá í 5 vikur
Arsenal varð fyrir miklu áfalli
um helgina en þá kom í ljós að
Steve Bould, várnarmaðurinn
sterki, leikur ekki með liðinu
næstu 5 vikurnar vegna meiðsla.
Fær Hughes 6 leiki?
Líkur eru á að Mark Hughes,
sóknarmaður Chelsea, verði úr-
skurðaður í sex leikja bann af
aganefnd enska knattspyrnu-
sambandins. Hughes var rekinn
af leikvelli fyrir að stíga ofan á
David Unsworth í leiknum gegn
Everton um helgina og er þetta i
annað sinn á tímabilinu sem
Hughes er rekinn af leikvelli.
Blackburn leitar
Ensku meistaramir í Black-
bum Rovers eru enn að leita að
leikmönnum til aö styrkja lið
sitt. Nú hefur liðið augastað á
Justin Edinburgh, varnarmanni
Tottenham.
Anderton af staö
Darren Anderton, sóknarmað-
urinn snjalli sem leikur með
Tottenham, mætti á sína fyrstu
æfingu í langan tíma en hann
hefur ekkert leikið frá því 25.
september í haust. Anderton
ætti að geta orðið leikfær eftir
2-3 vikur en víst er að hann
labbar ekki í liðiö eins og Totten-
ham hefur verið að leika þessa
dagana.
Rússi til Everton?
Svo gæti farið að ' Everton
fengi annan Rússa til liðs við sig
en fyrir er Andrei Kanchelkis.
Igor Dobrowolski verður hjá Ev-
erton í tvær vikur til reynslu og
er talið líklegt aö Joe Royle
kaupi hann á 100 milljónir.
Dobrowolski hefur leikið með
Marseille, Genúa og Atletico Ma-
drid og á að baki 50 landsleiki
fyrir Rússa.
Coton til Leeds?
Tony Coton, varamarkvörður
Manchester City, hefur verið
orðaður við Leeds. Forráðamenn
Leeds eru tUbúnir að borga 40
milljónir fyrir Coton og er það 15
milljónum meira en Sunderland
er tilbúið að borga.
Suker til Real
Real Madrid keypti í gær hinn
snjalla króatíska knattspyrnú-
mann, Davor Suker, frá Sevilla.
Real greiðir Sevilla alls um 350
milljónir króna fyrir Suker, en
lánar Sevilla fimm leikmenn
sem hluta af greiðslunni.
^ Körfubolti kvenna:
Ovæntur sigur
Vals á KR
Valur vann mjög óvæntan sigur á KR,
53-50, í gærkvöldi þégar liðin mættust
að Hlíðarenda. KR er í öðru sæti og hafði
aðeins tapað einum leik í vetur en Valur
aðeins unnið tvo leiki af níu. KR var yfir
nær allan timann, 29-33, en Valur komst
yfir í fyrsta skipti þegar 4 mínútur voru
eftir, 48-47.
Alda Leif Jónsdóttir skoraði 17 stig
fyrir Val og Kristjana Magnúsdóttir 8, og
þá varði hin 16 ára gamla Signý
Hermannsdóttir 11 skot. Guðbjörg Norð-
fjörð skoraði 14 stig fyrir KR og Kristín
Jónsdóttir 13. Staðan í deildinni:
Breiðablik 10 10 0 790-527 20
KR 10 8 2 715-554 16
Keflavík 9 7 2 721-469 14
Grindavík 9 7 2 620-487 14
ÍR 10 5 5 688-625 10
Njarðvík 10 4 6 587-627 8
Tindastóll 10 4 6 620-653 8
Valur 10 3 7 499-660 6
Is 10 1 9 437-758 2
Akranes 10 0 10 455-772 0
-VS
ÍBV kærir ÍR-leikinn
Eyjamenn hafa ákveðið aö kæra leik sinn gegn ÍR í 1. deild karla í
handknattleik sem fram fór í Seljaskóla í fyrrakvöld og endaði með sigri
ÍR, 27-23. Fram kom á upptöku Ríkissjónvarpsins af leiknum að ÍR-ingar
voru komnir með fullskipað lið aðeins 40 sekúndum eftir að þeirra
maður -var rekinn af velli í fyrri hálíleiknum, og skoruðu mark í
kjölfarið. -VS
Viggó ti I Lemgo?
- Viggó Sigurösson er einn þriggja þjálfara sem þýska félagið hefur rætt við