Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 16.01.1996, Síða 27
ÞRIÐJUDAGUR 16. JANÚAR 1996 31 DV Ungur listhönnuöur smíðar verölaunagripi Menningarverðlauna DV 1996: Útskorin fjöl úr smjör- skrínu steypt í járn - skírskotun í menningararfleifðina, segir Tinna Gunnarsdóttir í Gallerí Greip Tinna Gunnarsdóttir, listhönnuður í Gallerí Greip, að störfum við gerð verðlaunagripa fyrir Menningarverðlaun DV 1996 sem afhent verða 22. febrúar nk. Tinna heldur einmitt á einum gripanna sem eru úr járni steyptir eftir tréfjöl úr smjörskrínu sem amma Tinnu fékk í arf frá langömmu sinni. DV-mynd GS Smíði verðlaunagripa vegna Menningarverðlauna DV 1996, sem afhent verða 22. febrúar næstkom- andi, er langt á veg komin. Það er Tinna Gunnarsdóttir, listhönnuður í Gallerí Greip, sem 'smíðar og hannar gripina. Um er að ræða gripi úr jámi, steypta eftir útskor- inni tréfjöl sem amma Tinnu fékk í arf frá langömmu sinni. Eftir- steypuna hefur Tinna síðan látið skera niður í 7 parta, jafn marga og listgreinarnar sem hljóta verðlaun. Eftir er að ganga endanlega frá grip- unum og verður þeim lýst nánar þegar nær dregur afhendingu verð- launanna. Tinna hefur unnið að gerð grip- anna frá því í desember. Hún segist hafa ákveðið strax að gripirnir yrðu að hafa notagildi um leið og þeir uppfylltu kröfur um listrænt gildi. Sökum þyngdar, um 2 kíló, geti þeir notast sem bókastoð eða blaða- pressa. Einnig geti þeir staðið sjálf- stæðir líkt og minnisvarðar. Nöfn verðlaunahafanna verða steypt í hvern grip. „Ég var að hugsa um þetta um jól- in og allt í einu mundi ég eftir fjór- um tréfjölum úr gamalli smjör- skrínu sem hangið hafa upp á vegg heima. Skrínuna fékk amma frá langömmu sinni sem var uppi á fyrri hluta 19. aldar í Fljótum í Skagafirði. Ég tók þá fjöl sem einna best var útskorin og lét gera prufu eftir henni í járn. Ég var mjög ánægð með útkomuna því munstrið sást alveg jafn vel og á upprunalegu fjölinni. Þar sem þetta eru menning- arverðlaun fannst mér tilvalið að láta útskurðinn, okkar menningar- arfleifð, fylgja. Síðan er hugmyndin unnin með nútíma tækni við frá- gang eftirsteypunnar," sagði Tinna um tilurð verðlaunagripanna. Lærði í Bretlandi Tinna er 27 ára, fædd og uppalin í Reykjavík. Hún lauk námi í Versl- unarskóla íslands vorið 1988 og fór veturinn eftir í nám til Bretlands. Fyrsta árið var hún í undirbúnings- námi fyrir list og hönnun í Eastbo- urne og næstu þrjú ár var hún við BA-nám í listhönnun í listaháskól- anum í Surrey. Þar lauk Tinna námi vorið 1992 eftir að hafa verið eina önn árið 1991 i skiptinámi í Dusseldorf í Þýskalandi. Að loknu námi kom hún til íslands, byrjaði á því að vinna í banka en árið 1993 stofnaði hún Gallerí Greip ásamt foður sín- um, Gunnari Magnússyni hús- gagnaarkitekt. Þar fór Tinna loks að vinna við það sem hún hafði numið. Hún hefur haldið þrjár einkasýning- ar og tekið þátt í nokkrum samsýn- ingum. Þess má geta að núna tekur hún þátt í samsýningu sem stendur yfir í Gallerí Greip og nefnist Greip- ar sópa. í náminu í Bretlandi lagði Tinna áherslu á vinnu við málma hvers konar. En hún hefur unnið með fleira og segist ekki vilja festast í ákveðinni efnistegund. Frelsi sé það sem hún óski sér í starfi sem list- hönnuður. f raun hafi hún viljað forðast málma eftir að námi lauk. í nánu samstarfi við iðngreinarnar Hún hefur verið í nánu samstarfi við fagfólk í iðngreinum sem full- gert hefur hugmyndir sem hún hef- ur sett fram. Tinna segir þetta hafa gefið sér mikið. Samstarf af þessu tagi hefur átt sér stað vegna verö- launagripa fyrir menningarverð- launin. Jámsteypan hf. hefur gert eftirsteypurnar eftir fjölinni góðu og segist hún vera mjög ánægð með það samstarf. „Það er ekki svo erfitt að starfa sem listhönnuður á íslandi, ég átti von á að þetta yrði erfíðara. Fyrst þurfti ég að leita að verkefnum sjálf en það hefur færst í vöxt að verkefn- in komi til mín. Þó vil ég hafa ákveð- ið frelsi, vil ekki vera undir pressu frá öðrum. Galleríið hefur sett mig í samband við marga listamenn og það hefur hjálpað mér að tengjast listinni," sagði Tinna sem einnig hef- ur starfað með föður sínum við nokkur verkefni í húsgagna- og inn- anhússarkitektúr. Þá hefur hún haldið fyrirlestra í Myndlista- og handíðaskóla íslands og staðið fyrir námskeiðum í Hafnarfirði. -bjb Úthlutað úr Listasjóði Pennans: Þrjár myndlístar- konur styrktar Árleg styrkveiting úr Listasjóði Pennans fór nýlega fram í fjórða sinn. Umsækjendur um styrk voru 41 talsins og ákvað stjóm sjóðsins að úthluta þremur listamönnum styrk. Markmið sjóðsins er að styrka unga og efnilega myndlistar- menn. Að þessu urðu þrjár konur fyrir valinu, þær Inga Svala Þórs- dóttir, Guðný Rósa Ingimarsdóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir. Inga Svala hlaut 300 þúsund krón- ur. Hún lauk námi frá MHÍ1991 og framhaldsnámi í Hamborg 1993. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýn- inga hér heima og erlendis við góð- an orðstír. Að mati dómnefndar sýnir Inga Svala óvenju mikla fjöl- hæfni í verkum sínum. Guðný Rósa fékk 200 þúsund króna vöruúttekt í Pennanum. Hún lauk námi frá MHÍ 1994 og stundar nú framhaldsnám í Belgíu. Guðný Rósa hefur að mati dómnefndar náð -að tileinka sér mikla færni í hefð- bundinni teikningu. Dómnefnd ákvað að veita Sigríði Sigurjónsdóttur hönnuði sérstaka viðurkenningu með 100 þúsund króna stýrk. Hún stundaði undir- búningsnám í list og hönnun í Eng- landi 1988 til 1989 og framhaldsnám í þrívíddarlisthönnun við West Sur- rey College of Art and Design 1989- 1992. Þaðan lauk hún BA-prófi 1992. Dómnefnd skipa Hringur Jóhann- esson listmálari, Gunnsteinn Gísla- son, skólastjóri MHÍ, og Gunnar B. Dungal, framkvæmdastjóri Penn- ans. -bjb Myndlistarkonurnar tvær sem hlutu styrki úr Listasjóði Pennans 1996 og fulltrúi þeirrar þriðju ásamt dómnefndarmönnum. Frá vinstri eru Gunnsteinn Gíslason, Sigríður Sigurjónsdóttir, Gunnar B. Dungal, Inga Svala Þórsdóttir, Sigrún Guönadóttir, móðir Guðnýjar Rósu Ingimarsdóttur, og Hringur Jó- hannesson. ___________Menning Giæsileg dagskrá á Lista- hátíð í Reykjavík Aðstandendur Listahátiðar í Reykjavík 1996, sem sett verður 31. maí nk„ hafa sent frá sér bráðabirgðadagskrá. Þar kennir margra grasa og óhætt að segja að hægt verði að bragða á hverju listakonfektinu á fætur öðru. Listahátíðin fer fram í 14. sinn. Hún verður sett í Lista- safni íslands á undan opnun sýningar á verkum Egon Schiele og Arnulf Rainer. Þar verða einnig kunngerð úrslit í Ljóö- asamkeppni Listahátíðar en í hana bárust 525 ljóð frá um 200 skáldum. Fjöldi þekktra listamanna, er- lendra sem innlendra, kemur fram í sumar. Má þar nefna óp- erusöngvarana Galinu Gorchakovu, Rannveigu Fríðu Bragadóttur, Dmitri Hvorostov- sky og Keith Ikaia-Purdy, The World Festival Choir, Sinfóníu- hljómsveit íslands, píanósnill- ingana Evgeny Kissin og András Schiff, fiðluleikarann Yuuko Shiokawa, dansarann Maureen Flemming, kvartett úr Filharm- oníuhljómsveit Berlínar, trompetleikarann Lester Bowie og hljómsveit hans Brass Fanta- sy, hljómsveitarstjórann Vlad- imir Ashkenazy ásamt Deutsches Symphonie Orchest- er-Berlin, Kammersveit Reykja- víkur og belgíska leikhússirkus- inn Circus Ronaldo. íslenska óperan setur upp nýja íslenska óperu, Galdra-Loft eftir Jón Ás- geirsson. Þá frumsýnir íslenski dansflokkurinn nýtt verk eftir Nönnu Ólafsdóttur og Sigurjón Jóhannsson. Ný islensk leikrit verða frumsýnd í Þjóðleikhús- inu og Borgarleikhúsinu og þannig mætti lengi telja. Nánar verður greint frá dagskrá Lista- hátíðar 1996 síðar í blaðinu. Saga Þinghóls í Kópa- vogi Sigurður Grétar Guðmunds- son, pípulagningameistari og fyrrum bæjarfulltrúi Alþýðu- bandalagsins í Kópavogi, hefur skrifað bók um sögu félagsheim- ilisins Þinghóls og þess félagslifs sem þar hefur fram farið. Þing- hóll er einmitt félagsheimili Al- þýðubandalagsins. Bókin er skrifuð í tilefni af 25 ára afmæli hlutafélagsins Þinghóls. Bókin er um leiö saga Kópa- vogs hin síðari ár og saga póli- tíkur í bænum í nærri hálfa öld. Sagt er frá mörgum hitamálum í bæjarpólitíkinni og hvernig Þinghóll og Alþýðubandalagið komu þar nærri. Bókin er 80 blaðsíður að stærð i kiljubroti og skiptist í 17 kafla. -bjb Verk- efna- styrkur Félagsstofnun stúdenta úthlutaði nýlega 150 þúsund króna verkefna- styrk til Valdimars Tr. Hafsteins, nýútskrifaðs þjóðfræðings. Styrk- inn hlaut Valdimar fyrir lokaverk- efni sitt, Hjólaskóflur og huldufólk - rannsókn á vegagerð við álaga- bletti á síðari hluta 20. aldar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.