Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1996, Qupperneq 30
Afmæli
MÁNUDAGUR 11. MARS 1996
DV
Svavar Árnason
Svavar Árnason vélstjóri, Hofs-
vallagötu 16, Reykjavík, er áttatíu
og fimm ára í dag.
Starfsferill
Svavar fæddist í Úraníu á Borg-
arfirði eystra og ólst þar upp í
foreldrahúsum. Hann fór ungur
til sjós og reri fjögur sumur á
opnum árabátum frá Borgarfírði
eystra. Hann flutti með fjölskyldu
sinni til Seyðisfjarðar 1929 þar
sem hann stundaði áfram sjó-
mennsku. Svavar lauk hinu
minna mótornámskeiði Fiskifé-
lagsins á Seyðisfirði' 1930 en lauk
hinu meira mótornámskeiði í
Reykjavík 1940.
Áuk þess að vera á bátum frá
Seyðisfirði var hann á bátum frá
Norðfirði og á vertíðum í Vest-
mannaeyjum og á Hornafirði.
Svavar flutti til Reykjavíkur
1939 og var þar vélstjóri á togur-
um og auk þess vélstjóri hjá
Landhelgisgæslunni í tvö ár og á
togara frá Bíldudal í eitt ár. Þá
var hann vélstjóri hjá Hraðfrysti-
stöð Reykjavíkur um skeið. Hann
starfaði einnig hjá Landssmiðj-
unni og Vélsmiðjunni Héðni í
Reykjavík.
Fjölskylda
Svavar kvæntist 19.2. 1944 Ástu
Þorláksdóttur, f. 2.3. 1909. Hún var
dóttir Þorláks Jónssonar, bónda
og verkamanns á Hvammstanga,
og k.h., Sæunnar Kristmundsdótt-
ur húsfreyju.
Dóttir Svavars og Ástu er
Ástríður Svala, f. 5.8.1944, fóstra í
Reykjavík, gift Sigurði Vilhjálms-
syni, bílstjóra og kafara, og eiga
þau tvær dætur.
Sonur Svavars frá því áður er
Ingvi, f. 23.1. 1934, járnsmiður á
Seyðisfirði og starfsmaður Síldar-
verksmiðju ríkisins, kvæntur
Huldu Gunnþórsdóttur húsmóður
og eiga fjögur börn.
Systur Svavars: Þuríður, f. 3.7.
1912, húsmóðir í Reykjavík; Mar-
grét Lilja, f. 24.2. 1918, lengst af
húsmóðir í Neskaupstað, nú ekkja
í Reykjavík; Anna Olafía, f. 4.4.
1924, nú látin, húsmóðir í Reykja-
vík.
Foreldrar Svavars voru Árni
Sigurðsson, f. á Eyvindará á Hér-
aði 14.8. 1886, d. 25.4. 1937, út-
vegsb. i Úraníu, og k.h., Lára Stef-
Svavar Árnason.
ánsdóttir, f. í Borgarfirði eystra
14.7. 1885, d. 1976, húsfreyja.
Til hamingju
með afmælið
11. mars
80 ára
Þorbjörg Eiríksdóttir,
Staffelli, Fellahreppi.
Ósk Ólafsdóttir,
Skipasundi 21, Reykjavík.
Óskar Helgason,
Lindasíðu 4, Akureyri.
70 ára
Kristján Júlíusson,
Búlandi 23, Reykjavík.
Páll Lúðvíksson,
Álfheimum 25, Reykjavík.
Ámi S. Ólason,
Víðifelli, Hálshreppi.
Kristín Marteinsdóttir,
Valsmýri 1, Neskaupstað.
60 ára_______________________
Jens Ólafsson,
Hlíðartúni 1, Höfn í Hornafirði.
Sigríður Siguröardóttir,
Gnúpum, Aðaldælahreppi.
Hildegard K. Frímannsson,
Efstahjalla 23, Kópavogi.
50 ára
Guðrún Sigurðardóttir,
Laugavöllum 11, Egilsstöðum.
Kristín Steinsdóttir,
Vesturgötu 160, Akranesi.
Fríða Guðjónsdóttir,
Réttarholti H, Borgarbyggð.
Þórunn Ásgeirsdóttir,
Hnotubergi 29, Hafnarfirði.
Magnús Bergmann Jónasson,
Engjaseli 69, Reykjavík.
40 ára__________________________
Katrín Helga Ándrésdóttir,
Reykjahlíö, Skeiðahreppi.
Brynja K. Kristjánsdóttir,
Kambaseli 46, Reykjavík.
Þórmar Ragnarsson,
Ljósheimum 12A, Reykjavik.
Karitas Sigurlaugsdóttir,
Njörvasundi 22, Reykjavík.
Sigurást Aðalheiður
Baldursdóttir,
írabakka 12, Reykjavik.
Inga Brynjólfsdóttir,
Hlégerði 25, Kópavogi.
Bjöm Emil Traustason,
Kirkjubraut 59, Höfn í Homafirði:
Ása Ólafsdóttir,
Skógarási 6, Reykjavík.
UPPBOÐ
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Skógarhlíö 6,
Reykjavík, sem hér segir, á eft-
_______irfarandi eignum:______
Fálkagata 34, íbúð á 1. hæð, merkt
0101, þingl. eig. db. Hafsteinn B. Hall-
dórss., gerðarbeiðandi Byggingar-
sjóður ríkisins, föstudaginn 15. mars
1996 kl. 10.00.______________
Hamraberg 38, þingl. eig. Gunnlaug-
ur Valtýsson, gerðarbeiðandi Lands-
banki Islands, föstudaginn 15. mars
1996 kl. 10.00._______________
Hellusund 6a, þingl. eig. Vilhjálmur
Knudsen Ósvaldsson, gerðarbeið-
endur fjármálaráðuneyti, Gjaldheimt-
an í Reykjavík, Landsbanki íslands,
Bankastræti, Manni hf.- Myndbanda-
vinnslan og Samvinnusjóður íslands
hf., föstudaginn 15. mars 1996 kl.
10.00.________________________
Hjallasel 43, þingl. eig. db. Áslaug
Benjamínsd., gerðarbeiðandi Víðir
Þorgrímsson, föstudaginn 15. mars
1996 kl. 10.00._______________
Kringlan 41, þingl. eig. Helga Bjarna-
dóttir og Tómas Andrés Tómasson,
gerðarbeiðandi Byggingarsjóður rík-
isins, föstudaginn 15. mars 1996 kl.
10.00.
Skildinganes 18, þingl. eig. Þórunn
Halldórsdóttir, gerðarbeiðandi Gjald-
heimtan í Reykjavík, föstudaginn 15.
mars 1996 kl. 10.00.__________
Skólavörðustígur 14, 2. hæð, merkt
0201, þingl. eig. Þorsteinn Kristjáns-
son, gerðarbeiðandi Kjartan Reynir
Ólafsson, föstudaginn 15. mars 1996
kl. 10.00.____________________
Vífilsgata 15, íbúð á 2. hæð, geymsla í
kjallara og ris m.m., þingl. eig. Mar-
rét Hákonardóttir og Eyjólfur Jó-
annsson, gerðarbeiðendur Húsa-
smiðjan hf., Landsbanki fslands,
Austurbæjar, og Tollstjóraskrifstofa,
föstudaginn 15. mars 1996 kl. 10.00.
Þingholtsstræti 4, ásamt tilheyrandi
eignarlóð, þingl. eig. Hellisheiði hf.,
gerðarbeiðandi Marksjóðurinn hf.,
föstudaginn 15. mars 1996 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
UPPBOÐ
Framhald uppboðs á eftirfarandi
eign verður háð á henni sjálfri
________sem hér segir:________
Hólmgarður 39, neðri hæð, þingl.
eig. Guðni S. Þórisson, gerðarbeið-
andi L.í. eignarleiga, föstudaginn 15.
mars 1996 kl. 15.30.__________
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Fréttir
Sjónvarpsstöðvarnar rugla hver aðra:
Ástæðan rakin til
magnara í heimahúsum
Nokkuð hefur verið um að fólk
hafí kvartað vegna þess að það
nær ekki sendingu Stöðvar 3
óbrenglaðri og sjái stillimynd i
gegnum myndina hjá sér. Þegar
haft var samband við Þórarin
Ágústsson hjá Stöð 3 sagðist hann
kannast við vandamálið.
„Við höfum fengið kvartanir frá
fólki í Kópavogi og fórum og
mældum á tveimur stöðum þar
sem sannað þótti að þessi tvö
merki blönduðust, okkar mynd og
nýja stillimynd fjölvarpsins hjá
Stöð 2, og komumst að því að
ástæðan liggur í tækjabúnaði
fólksins sjálfs. Þetta er vandamál
með magnara og menn þurfa að
stilla þá upp á nýtt. Þessi rás hef-
ur ekki verið í notkun og nú er
búið að setja magnarakerfi víða í
bænum og stilla þannig að menn
séu með þokkaleg merki á öllum
stöðvum. Þegar aukarás kemur
síðan inn þarf væntanlega að stilla
magnarana upp á nýtt,“ segir Þór-
inn. Hann segir enga ástæðu til
þess að ætla að sendir Stöðvar 3 sé
rangt staðsettur og orsaki þessa
truflun. -sv
Vestmannaeyjar:
Veiðar-
færi
seld
til
írlands
DV, Vestmannaeyjum:
Þrjú tonn af veiðarfærum voru
send til írlands frá Netagerðinni
Ingólfí í Eyjum í síðustu viku. Það
er fyrsti útflutningur fyrirtækisins
sem eitthvað kveður að og er árang-
ur af samstarfi netagerðarinnar við
Swan Net á írlandi. Er vonast til að
þetta sé aðeins upphafið.
Birkir Agnarsson framkvæmda-
stjóri segir að í þessari sendingu
hafi veriö belgir og pokar á flottroll
sem fara í þýskan togara á írlandi.
„Við komum td með að framleiða
alla poka og belgi á flottroll til
karfaveiða sem Swan Net selur í
framtíðinni. Menn gera sér vonir
um að þarna verði mikill vaxtar-
broddur í rekstri fyrirtækisins og
verður því mætt með fjölgun starfs-
manna. I dag vinna hér 22 menn en
ætlunin er að fiölga þeim í 30 og við
höfum m.a. auglýst eftir nemum,"
sagði Birkir.
Landsliðsmarkvörðurinn í handboltanum, Sigmar Þröstur, vinnur í neta-
gerðinni. DV-mynd ÓG
Greining á salmonellu:
Greinist á sólarhring með fljótvirkari búnaði
„Öryggi í matvælaiðnaði er
stööugt vaxandi áhyggjuefni. Til
að tryggja nægjanlegt öryggi í mat-
vælaiðnaði, sérstaklega nú þegar
öll matvælafyrirtæki eru farin að
vinna eftir viðurkenndum gæða-
kerfum, er þörf á hraðvirkum
mæliaðferðum á salmonellu og
fleiri örverum mun brýnni en
áður,“ segir í fréttatilkynningu frá
FTC á íslandi.
Fyrirtækið flytur inn frá Vicam
í Bandaríkjunum tæki og búnað
fyrir rannsóknarstofur. Þar á með-
al er búnaður til að greina salmon-
ellu á skemmri tíma en áður hefur
verið hægt, eða minna en einum
sólarhring.
Vicam-aðferðin við að greina
salmonellu er tiltölulega einföld,
en sérstakar segulagnir þaktar
mótefnum bindast salmonellubakt-
eríum úr sýninu. Segulagnirnar
eru síðan greindar frá og settar í
ræktun í sérstakri skál með æti
fyrir salmonelluna. Greiningin
tekur öll innan við sólarhring. Þau
fyrirtæki sem hafa aðstöðu til
rannsókna geta sjálf greint
salmonellu með búnaðinum en
auk þess geta rannsóknarstofur
sem ráða yfir þessum búnaði boð-
ið upp á mjög skjóta þjónustu. Með
hefðbundnum aðferðum og búnaöi
fást niðurstööur eftir mun lengri
tíma. -SÁ