Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 2
2 LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 Deilurnar um aö færa Borgarfjarðarbraut blossa upp aftur: Það leggur jörðina í; eyði að færa veginn - illgirni og öfund manna í minn garö, segir Jón Kjartansson á Stóra-Kroppi „Þingmenn Vesturlands og tals- menn Vegagerðarinnar komust að samkomulagi þann 7. mars síðast- liðinn um að veglínan á Borg- arfjarðarbraut, frá Varmalæk að Kleppjárnsreykjum, yrði ekki færð yfir túnin mín eins og til stóð. Þess í stað verði núverandi vegur lag- færður og sparaðar með því allt að 70 milljónir króna miðaö við að færa hann. Þegar þessi niðurstaða lá fyrir urðu hér nokkrir aðilar til þess að fá Ingibjörgu Pálmadóttur, heil- brigðisráðherra og fyrsta þingmann Vesturlandskjördæmis, til að hætta við þessa lausn málsins sem samið var um 7. mars. Þess í stað skuli haldið áfram með og stefnt að því að færa veginn yfir túnin mín. Fyrir utan aö malbika þau þá mun vegur- inn klippa á milli túna og beitar- haga og húsanna á bænum. Þeir aðilar sem fengu heilbrigðis- ráðherra til að beita sér fyrir þessu hafa beitt sér fyrir því lengi að veg- urinn yrði lagður yflr túnin mín og þau malbikuð. Afstaða þeirra ræðst af illgimi og öfund í minn garð vegna velgengni og uppbyggingar hér,“ segir Jón Kjartansson, bóndi á Stóra- Kroppi, í samtali við DV. Hinar langvarandi deilur sem verið hafa um þessa vegalagningu og menn héldu að sátt hefði náðst um hafa nú blossað upp aftur. Þeir sem hafa viljaö færa veginn frá núverandi vegarstæði og yfir túnin á Stóra-Kroppi hafa nú hafíð undirskriftasöfnun í hreppnum til að fá úr því skorið hvort meirihluti hreppsbúa styður Jón Kjartansson í þessu máli eins og haldið er fram. Þorvaldur Pálmason i Árbergi hefur kært þessa undirskriftasöfn- un til sýslumanns og segir hana varöa við lög. Um sé að ræða fölsun í texta. Jón Kjartansson fullyrðir að ef vegurinn verði lagður yfir túnin á Stóra- Kroppi verði jörðin lögð í eyði, slík sé umferðin þama yfir sumarið. „Núverandi vegarstæði var valið af Vegagerðinni fyrir 50 árum. Öll uppbygging á Stóra-Kroppi, fram- ræsla, ræktun, girðingar og mann- virki, hefur miðast við núverandi veg og staðsett með það fyrir augum i að þarna væri framtíðarvegur. Þess vegna leggst jörðin í eyði verði veg- urinn lagður yfir túnin,“ sagði Jón ) Kjartansson. -S.dór Stuttar fréttir Aukið lánshæfi Bandaríska matsfyrirtækið Standard & Poors hefin; hækk- að mat sitt á lánshæfi íslands. Samkvæmt RÚV hækkar ein- kunn landsins á erlendum lang- tímaskuldbindingum úr A í A+. Rætt við Atlantsál Fulltrúar álfyrirtækjanna sem standa að Atlantsálhópn- um svokallaða; Alumax, Gránges og Hoogovens, áttu fund með fulltrúum stjórnvölda og Landsvirkjunar sl. fimmtu- dag um áætlanir hópsins um nýtt álver á Keilisnesi. Ákveðið var að endurskoða fyrri áform og endurmeta hagkvæmni nýs álvers. Skipulag samþykkt Skipulag ríkisins hefur fallist á gerð mislægra gatnamóta Reykjanesbrautar og Fífu- hvammsvegar í Kópavogi og tvöfoldun Reykjanesbrautar frá Nýbýlavegi suður fyrir Fífu- hvammsveg. Þetta kom fram á RÚV. Flugleiðir breyta til Viðamiklar skipulagsbreyt- ingar hafa verið geröar á yfir- stjóm Flugleiða. Samkvæmt þeim m.a. mun Einar Sigurðs- son gegna nýrri stöðu aðstoðar- manns forstjóra. ÍÁtak hjá Skeljungi Sérstakt umferðaröryggisá- tak verður í gangi á bensín- stöðvum Skeljungs um helgina. erður viö ljósaperu- og meö hverri jljósaperu fæst önn- styðja biskup konur hafa sent frá ngu þar sem lýst er ngi við Ólaf Skúla- og konu hans. Yfir- r gerð á fundi í safn- i Bústaðakirkju 11. -bjb tsmammmammmmmsmm Alltaf með fyrirvara - segir Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráöherra Jón Kjartansson segir að það sé Ingibjörgu Pálmadóttur, heilbrigðis- ráðherra og fyrsta þingmanni Vest- urlandskjördæmis, að kenna að nú sé aftur farið að tala um vegarlagn- ingu yfir túnið hans á Stóra- Kroppi, eftir að samkomulag hafði náðst á fundi þingmanna og Vega- gerðarinnar um að gera það ekki 7. mars síðastliðinn. „Við Magnús Stefánsson vorum með fyrirvara viö þá hugmynd að byggja upp núverandi veg og mal- bika hann. Við vildum ekki sam- þykkja það nema fyrir lægi vilji meirihluta heimamanna. Um þenn- an fyrirvara getur Vegagerðin vitn- að. Síðan hefur samgöngunefnd Vesturlands, sem er skipuð fulltrú- um alls staðar úr kjördæminu, sam- þykkt einróma að mótmæla þeirri leið að malbika núverandi veg. Og samkvæmt mínum heimildum er ekki vilji meirihluta heimamanna fyrir því. Ég veit að Jón á Stóra- Kroppi er ekki ánægður með þetta en þetta eru bara staðreyndir máls- ins,“ sagöi Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra og fyrsti þing- maður Vesturlandskjördæmis. Hún segir að það hafi verið gert umhverfísmat þarna í fyrra og þá hafi þessi svokallaða neðri leið, sem Jón Kjartansson er að mótmæla, verið staðsett. „Síðan það gerðist hafa komiö fram margar mótmælaraddir. Fyrir utan Jón Kjartansson hafa Flókdæl- ingar mótmælt þessu. Frá því að umhverfismatið var gert hefur þetta mál verið í hálfgerðu uppnámi. En nú er búið að staðfesta þetta mat,“ sagði Ingibjörg. Þarna hefur ekki verið fram- kvæmt neitt enn þá. Og Ingibjörg bendir á að það séu engir peningar til á þessu ári til að fara í þessa vegagerð. Menn ætli því að einbeita sér að því að smíða brú yfir Flóka- dalsá og um það séu allir sammála. „Það má einnig benda á að ef sú leið að malbika núverandi veg yrði farin þá stöndum við frammi fyrir því að það væri alveg sama hvaða smábreytingar ætti að gera á þeim vegakafla, það yrðu alltaf uppi mót- mæli og ekki leyfðar neinar breyt- ingar," sagði Ingibjörg Pálmadóttir. -S.dór IMARK-verðlaunin íslenski markaðsklúbburinn, ÍMARK, afhenti í Borgarleikhúsinu í gær verölaun fyrir athyglisverðustu auglýsingar ársins 1995. Auglýsingasamkeppnin var haldin í 10. sinn. Keppt var í níu flokkum og hér sést Páll Stefánsson, aug- lýsingastjóri DV, afhenda verðlaun í flokknum Auglýsingaherferðir. Herferð íslandsbanka um Heimabankann var verðlaunuð en framleiðandi hennar var Hvíta húsið. Fulltrúar íslandsbanka, Birna Einarsdóttir markaðsstjóri, og Hvíta hússins, Sverrir Björnsson hönnunarstjóri, taka hér við verðlaununum úr hendi Páls. DV-mynd GS Tekinn með amfetamín Lögreglumenn á eftirlitsferð í Kópavogi tóku karlmann í nótt og í fórum hans fannst nokkuð af am- fetamíni. Hann gekkst við því að eiga efnið og á honum fundust tæki og tól til neyslu þess. Lögreglan tók síma og bókhald sem maðurinn mun eiga og er hann grunaður um að hafa selt fikniefni. -sv A baðkari milli Húsavikur og Lauga DV, Laugum: Nemendur á 3.og 4. ári 1 Fram- haldsskólanum á Laúgum í S- Þing- eyjarsýslu efna til nýstárlegrar fjár- öflunarleiðar. Þeir ætla á baðkari milli Húsavikur og Lauga. Hafa safn- að áheitum í ferðasjóð og hefur það gengið vel. Það verður kl. 10 á sunnu- dagsmorgun sem þeir leggja af stað í baðkarinu frá Húsavík. Hjól hafa ver- ið sett undir það og skiptast nemend- ur á að ýta því. Alltaf verða þó ein- hverjir um borð. -JSS ,r ö d d FOLKSINS 904-1600 Finnst þér Spaugstofan klámfengin? Þú getur svaraö þessari spumingu meö því 3Ö hringja í síma 904-1600. 39,90 kr. mínútan. Já Jj Nel 2] Verðmæti útfluttra iðnaðarvara: Jókst um 4 milljarða í fyrra Verðmæti útfluttra iðnaðarvara jókst um tæpa 4 milljarða króna á síðasta ári. Það svarar til um 19% aukningar. Þetta er meðal þess sem kom fram í ræðu Haraldar Sum- arliðasonar, formanns Samtaka iðn- aðarins, á Iðnþingi í gær. „Sé litið til útflutnings á afurðum stóriðju þá eykst verðmætið um 14,7 prósent eða 2 milljarða. Aðrar iðn- aðarvörur hafa heldur betur sótt í sig veðrið og nemur verðmætis- aukningin 26,4 prósentum, sem einnig jafngildir um 2 milljörðum. Athygli vekur að verðmætisaukn- ingin í útflutningi á afurðum stór- iðju skýrist eingöngu af hækkuðu verði en aukningin í öðrum iðnað- arvörum er aðallega til komin af auknu magni. Þessi mikla sókn ís- lensks iðnaðar á erlenda markaði gerir það að verkum að hlutdeild iðnaðarvara í vöruútflutningi á ár- inu 1995 í samanburði við árið á undan jókst úr 18,6 prósent í 21,4 prósent," sagði Haraldur ennfrem- ur. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.