Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Page 7
UV LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
Ekki bolmagn í einsetningu skólans í einum áfanga
- segir Jóhanna Reynisdóttir, sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps
DV. Suðumesjum:
„Það er ekki orðið ljóst hvað við-
byggingin verður stór. Það fer eftir
því hvað kemur út úr samningum
við ríkið varðandi einsetningu skól-
ans. Við höfum ekki bolmagn að
okkar mati tO að fara út í einsetn-
ingu í einum áfanga,“ sagði Jó-
hanna Reynisdóttir, sveitarstjóri
Vatnsleysustrandarhrepps, í sam-
tali við DV. Stefnt er að því að und-
irbúa viðbyggingu við grunnskól-
ann á þessu ári og byggja síðan
1997-1998.
Jóhanna segir að viðbyggingin sé
ákveðin og fyrirhugað er að stækka
skólann um helming. Hann verður
þá 1200 m2 eftir stækkunina. í skól-
anum eru hátt í 150 nemendur og
einsetning þýðir þúsund fermetra
stækkun.
„Skólinn er fyrir löngu orðinn of
lítill og sérstaklega eru skóla-
stofurnar vandamál. Ekki er nein
fullnægjandi aðstaða til að kenna á
tölvur - heldur ekki fyrir eðlisfræði-
kennslu, smíða-og myndlistar-
kennslu. Það vantar góðar stofur
fyrir þessa starfsemi og sama er að
segja um æskulýðsstarfíð.
Við förum ekki út í einsetning-
una nema til komi aukafjárveiting
frá ríkingu vegna lagaákvæðanna.
Ef við fáum ekki viðbótarframlög
stækkum við í mesta lagi um 600
fermetra, þorum ekki í stærri
áfanga í einu. Ríkið er alla vega
búið að gera Sambandi íslenskra
sveitarfélaga tilboð hvað varðar yf-
irfærsluna á grunnskólanum og þar
erum við inni með sérstaka greiðslu
vegna stofnkostnaðarins við ein-
setninguna," sagði Jóhanna. ÆMK
•étt/r
Jóhanna Reynisdóttir sveitarstjóri.
DV-mynd ÆMK
Nú fer hver að verða síðastur að
tryggja sérpakkaða kaupauka á
PAKKADÖGUM HYUNDAI sem
lýkur um helgina.
Hvorn pakkann má bjóða þér?
Pakka 1
1. Álfelgur
2. Vindskeið með bremsuljósi
3. Utvarp og segulband
4. Mottur
5. Vetrar- og sumardekk
6. Fullur bensíntankur ^
eða
Pakka 2
1. BOSCH-GSM sími
2. PANASONIC geislaspilari
3. Mottur
4. Vetrar- og sumardekk
5. Fullur bensíntankur
Reynsluakstur - pakkaferð!
Allir sem reynsluaka Hyundai á pakkadögunum velja sér glaðning
úr pakkahorninu. í hverjum pakka er smá gjöf frá B&L, en auk
þess höfum við laumað í þá happdrættismiðum sem dregið verður
úr í beinni útsendingu á útvarpsstöðinni FM, sunnudaginn
17. mars. Vinningar eru tvær pakkaferðir í Kerlingafjöll og ein
pakkaferð til Benidorm með Samvinnuferðum Landsýn.
Góða ferð!
Elantra
Straumlínulagað átlitið gerir hann sportlegan og fallegan,
innréttingin er þægileg og glæsileg og öryggisbúnaður
er ríflegur.
Elantra er einnig til sem skutbíll, forvitnilegur og
rennilegur bíll sem er nýr í flokki bíla frá Hyunaai.
Verð frá 1.465.000 kr.
LgSHFS3
Opið laugardagkl. 10-17
og sunnudag kl. 13-17.
1
< f<A/
Öllum finnst fengur í að fá pakka - það hefur
sýnt sig á pakkadögum Hyundai.
Bílar hlaðnir verðmætum frípökkum hafa
runnið út og smápakkarnir hafa heldur betur
fallið í góðan jarðveg hjá smáum sem stórum
éinstaklingum og fjölskyldum sem hafa farið
í reynslubíltúr á glænýjum Hyundai.
Og svo er það stóra spumingin, verður það
húfa eða baðföt, sól eða snjór, Kerlingafjöll
eða Benidorm? Allir sem reynsluaka Hyundai
eiga möguleika í þessu happdrætti sem er í senn
það heitasta og kaldasta sem er í boði.
Sonata
Draumabíllinn sem þú þarft ekki lengur að láta þig dreyma um.
Bíll sem ber öll merlu glæsibifreiðar án þess að verðið endurspegli
það.
ARGUS & ÖRKIN /SÍA BL117