Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Page 8
matgæðingur vikunnar LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 Salat fyrir vorið með Ijúffengri sósu og hvítlauksbrauði „Ég var að hugsa um að gefa uppskrift að köldu kjúklingasalati með beikoni, pasta og hnetum, ljúf- fengri sósu og brauði sem ég baka með. Þetta er ofsalega fallegt salat, girnilegt og bragðgott og gott núna þegar fer að vora. Það dugar fyrir fjóra," seg- ir Erna Agnarsdóttir, deildarstjóri námsbrautar í röntgentækni við Tækniskóla íslands, en hún er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Kjúklingasalat 1 grillaður eða steiktur kjúklingur 200 g. gráðostafyllt pasta 150 g. beikon 150 g. blá vínber 1 dl. saltaðar, þurrristaðar hnetur Lítill Brie-ostur Hálft iceberg-salat y, dós ananas eða jafnmikið af ferskum ananas 1 rauð paprika Nýmalaður pipar Ólívur Kjúklingurinn er hlutaður í bita. Pastað er keypt ferskt í bakka og soðið eftir leiðbeining- unum. Beikonið er matreitt stökkt og skor- ið í bita. Vínberin eru skorin í tvennt og steinarnir teknir úr. Lítill Brie-ost- ur er skorinn í sneiðar. Einnig má nota einhvern annan góðan ost. Sal- athöfuðið er þvegið og brytjað niður. Ananasinn er skorinn niður. Paprikan er skorin í strimla. Græn- metinu er svo raðað fallega í víða skál. Erna segir að gott sé að kaupa ólívur í kryddlegi til að nota í salat- ið fyrir þá sem eru hrifnir af ólívum. 1 tsk. meðalsterkt karrí ferskt estragon 1 tsk. dijon-sinnep Worchester-sósa Sýrður rjómi, gjarnan 18%, er settur í skál. An- anassafa blandað saman við. Ferskt estragon er saxað niður og rúmlega teskeið sett út í vökvann. Dijon-sinnepi er bætt út í ásamt nokkrum drop- um af worchestershire-sósu. Ef salatið er hugsað fyrir fjóra má má auka magnið í sósunni. Gott er að gera sósuna í tíma, jafnvel kvöldið áður en salatið er borið fram, því að þá verður sósan ljúf- fengari. Hvítlauksbrauð Ljúffeng sósa 1 dós sýrður rjómi 4 msk. ananassafi 15 g. ger eða 1 bréf 3 dl. vatn 1 tsk. salt - 1 msk. ólívuolía 2 pressaðir hvítlauksgeirar 1 dl. rifinn parmesanostur 8 dl. hveiti Gerið er leyst upp í ylvolgu vatni. Salti, olíu, pressuðum^hvítlauk og rifnum osti er blandað saman ásamt 6 dl. af hveiti. Hnoðað vel, breitt yfir skálina og látið hefast við stofuhita í allt að 2 klst. Hnoðað upp með afganginum af hveitinu og 3-4 snittubrauð búin til, ekki mjög stór. Brauð- in eru pensluð með vatni eða eggi og skáskorið í þau. Gott er að láta brauðinu að hefast í 30 mín- útur á plötu. Bakað í 15 mínútur í 225 stiga heit- um ofni. Erna segir að langsamlega best sé að kaupa parmesanostinn nýjan og raspa hann niður. Mjög gott sé að nota hann út í sósuna líka. Byrjað á brauðinu Erna Agnarsdóttir er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Hún gefur upp- skrift að sígildu kjúkiingasalati með sósu og hvítlauksbrauði sem er gott nú þegar fer að vora. DV-mynd GVA ,Þetta er mjög fljótlegt. Ef maður er að gera þetta allt í einu þá byrjar maður á brauðinu. Maður er ekki lengur en 15--20 mínútur að útbúa salatið þannig að það er mjög fljótlegt að gera þetta og það er alltaf mjög vin- sælt,“ segir Erna. Hún ætlar að skora á vinkonu sína, Ragnhildi Zoéga, deildarstjóri á alþjóðaskrifstofu Háskóla íslands. -GHS (sælkerinn \ É r Italskt er vinsælt meðal ungu kynslóðarinnar: Lasagne með túnfiski Gratíneraðar pönnukökur - fyrir fjóra Matreiða má pönnukökur á ýmsan hátt og þær eru mjög góðar í hádegismatinn eða kvöldmatinn. Hér á sælkerasíðunni höfum við áöur verið með svokallaðar kartöflupönnukökur en nú er komið að gratíneruðum pönnukökum. Uppskriftin 4 egg 8 dl. mjólk 2-3 dl. hveiti Yz tsk. salt skinkusneiðar rifinn ostur Hrærið saman öllu nema skinku og osti þar til blandan er kekkjalaus og látið bíða í 15 minútur. Steikið í þunnar kökur og leggið eina sneið af skinku á hverja pönnuköku og þekið kökuna með rifnum osti. Rúllið hverri pönnuköku saman og raðið kökunum í form. Stráið osti yfir. Setjið inn i 250 gráða heitan ofn þar til osturinn hefur bráðn- að. Borið fram með salati. -GHS mmámmmmmmmmm Lasagne er vinsæll réttur, sérstaklega meðal ungu kyn- slóðarinnar þar sem allt þetta ítalska er í tísku núna, og því er um að gera að hafa hann sem oftast á boðstól- um. Hér á eftir fylgir prýðisgóð uppskrift að lasagne og er ým- ist hægt að nota í hana túnfisk eða nautahakk. Uppskriftin hef- ur gengið milli starfsmanna í Landsbankanum og hafa þeir lagað hana og Frestast Þegar auglýst var eftir uppskriftum í uppskrifta- samkeppni Vöku-Helga- fells hér í blaðinu nýlega var sagt að niðurstöð- urnar yrðu kynntar í þessu blaði. Þar sem mik- ill fjöldi uppskrifta barst hafði ekki tekist að vinna úr uppskriftunum og frestast því að tilkynna um niðurstöðuna þar til í næstu viku. í staðinn verður reynt að gera þeim ítarleg skil hér á síðunni. -GHS kryddi og hvítlauk. Vatninu er hellt af tómötunum og þeim bætt út í. Tómat puré sett f sósuna. Ef túnfiskur er notaður er vatninu hellt af en olían í þriðj- unni dósinni not- uð til að steikja með. Osta- betrumbætt. Og hér kem- ur uppskrift- in sem dugar fyrir sex: Kjötsósa 500 gr. nautahakk eða 3 dósir túnfiskur (2 í vatni og 1 í olíu) 1 laukur 5-10 sveppir eða lítil dós 1 tsk. duft eða 1 msk. gróft oregano 3-5 stór hvítlauksrif V2 dós niðursoðnir tómatar 4 msk. tómat puré Hakkið er steikt á pönnu ásamt sveppum og lauk, sosa 3 msk. hveiti 1 msk. smjörlíki mjólk V2 stk. rifinn ostur y, tsk. rósmarín V, tsk. múskat Sósan er bökuð upp, ostur og krydd eru sett síðast út í. Lasagne-rétturinn er settur í eldfast mót. Fyrst er eitt lag sósa, síðan lasagneplötur, til dæmis ferskar, svo kjötsósa, ostasósa, lasagneplötur, kjöt- sósa, ostasósa, lasagneplötur og svo framvegis. Rétturinn er bakaður í miðjum ofni við 200 gráður í 20 mínútur eða þangað til osturinn er orðinn ljósbrúnn. Rétturinn er gjarnan bor- inn fram með fersku salati. -GHS Best að borða ávexti fimm sinnum á dag Mataræði er mikilvægur þátt- ur i lífinu og gott mataræði verð- ur aldrei ofmetið, sérstaklega með tilliti tU áhrifa matarins á heUsuna. Talið er að ávextir og grænmeti geti veitt góða hjálp við að koma í veg fyrir krabba- mein og hjartasjúkdóma. Heyrst hefur að það sé allra meina bót að boröa grænmeti og ávexti fimm sinnum á dag - þá fái mað- ur þau steinefni og vítamín sem þarf - og því er um að gera að borða sem mest af þessari fæðu- tegund. Úrvalið af ávöxtum hefur farið mjög vaxandi hér á landi á síð- ustu árum en auðvitað eru til miklu fleiri ávextir en fást hér. Að þessu sinni verða teknir fyrir tveir ávextir, melónur og avóka- dó, en auðvelt er að fá þá báða hér á landi. Forréttur eða eftirréttur Melónur eru góðar í morgun- verðinn, sem biti mUli mála eða í forrétt eða eftirrétt á hátíðar- stundu. Best er melónan þegar hún hefur náð fullum þroska og er köld. Ágætt getur verið að stinga henni inn í ísskáp rétt áður en á að bera hana fram en ekki er gott að geyma hana þar lengi. Melónu má gjarnan skera í báta og bátana má krydda með salti, pipar eða sítrónusafa. í for- rétt getur verið sniðugt að bera fram eina sneið af reyktri skinku og í eftirrétt er gott að fylla hana með berjum eða öðrum smátt skomum ávöxtum. Melónur eru líka góðar í ávaxtasalöt. Fyllt hunangsmelóna Kljúfið melónuna og takiö stein- ana burt. Búið til holu í bátinn með skeið eða skerið ávaxtakjötið í litla ten- inga. Fyllið melónuna meö mandarínubitum, niður- skornum vínberjum, hindberjum eða öðrum berjum. Kryddið með sítrónusafa. Feitur en góður Avókadó, sem verður að vera vel þroskað, er klofið til helm- inga og steinninn fjarlægður. Hægt er að borða ávöxtinn beint, og þá gjarnan kryddaðan með salti, sítrónusafa eða einhverri sósu, eöa nota hann smátt skor- inn í salat. Einnig er hægt að stappa ávaxtakjötið í mús og nota í matinn. Óvenjumikil fita er í avókadó af ávexti að vera eða um 20 gr. á hver 100 gr. og því mikið af kaloríum. Gott er að vita af þessu og taka tillit til þess við matreiðsluna en engin ástæða til að hætta alveg að borða þennan ávöxt. Avokadósúpa 2 stórir avokadó-ávextir 5 dl. grænmetiskraftur 2 dl. ijómi V2 tsk. salt Vt-Vi tsk. pipar 1-2 msk. sítrónusafi Skerið avokadó- ávextina i tvennt og takið stein- ana burt. Skafið kjötið úr ávextinum og stappið. Látið kraft- inn og avokadóið sjóða og bætið rjóma og kryddi út í. Berið súp- una fram heita eða kalda og skreytiö gjarnan með avokadó- ræmum. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.