Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 8
matgæðingur vikunnar
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
Salat fyrir vorið
með Ijúffengri sósu og hvítlauksbrauði
„Ég var að hugsa um að gefa uppskrift að köldu
kjúklingasalati með beikoni, pasta og hnetum, ljúf-
fengri sósu og brauði sem ég baka með. Þetta er
ofsalega fallegt salat, girnilegt og bragðgott og gott
núna þegar fer að vora. Það dugar fyrir fjóra," seg-
ir Erna Agnarsdóttir, deildarstjóri námsbrautar í
röntgentækni við Tækniskóla íslands, en hún er
matgæðingur vikunnar að þessu sinni.
Kjúklingasalat
1 grillaður eða steiktur kjúklingur
200 g. gráðostafyllt pasta
150 g. beikon
150 g. blá vínber
1 dl. saltaðar, þurrristaðar hnetur
Lítill Brie-ostur
Hálft iceberg-salat
y, dós ananas eða jafnmikið af ferskum
ananas
1 rauð paprika
Nýmalaður pipar
Ólívur
Kjúklingurinn er hlutaður í bita. Pastað er
keypt ferskt í bakka og soðið eftir leiðbeining-
unum. Beikonið er matreitt stökkt og skor-
ið í bita. Vínberin eru skorin í tvennt
og steinarnir teknir úr. Lítill Brie-ost-
ur er skorinn í sneiðar. Einnig má
nota einhvern annan góðan ost. Sal-
athöfuðið er þvegið og brytjað niður.
Ananasinn er skorinn niður.
Paprikan er skorin í strimla. Græn-
metinu er svo raðað fallega í víða
skál.
Erna segir að gott sé að kaupa
ólívur í kryddlegi til að nota í salat-
ið fyrir þá sem eru hrifnir af ólívum.
1 tsk. meðalsterkt karrí
ferskt estragon
1 tsk. dijon-sinnep
Worchester-sósa
Sýrður rjómi, gjarnan 18%, er settur í skál. An-
anassafa blandað saman við. Ferskt estragon er
saxað niður og rúmlega teskeið sett út í vökvann.
Dijon-sinnepi er bætt út í ásamt nokkrum drop-
um af worchestershire-sósu.
Ef salatið er hugsað fyrir
fjóra má má auka magnið í
sósunni. Gott er að gera
sósuna í tíma, jafnvel
kvöldið áður en salatið
er borið fram, því að
þá verður sósan ljúf-
fengari.
Hvítlauksbrauð
Ljúffeng sósa
1 dós sýrður rjómi
4 msk. ananassafi
15 g. ger eða 1 bréf
3 dl. vatn
1 tsk. salt -
1 msk. ólívuolía
2 pressaðir hvítlauksgeirar
1 dl. rifinn parmesanostur
8 dl. hveiti
Gerið er leyst upp í ylvolgu vatni. Salti, olíu,
pressuðum^hvítlauk og rifnum osti er blandað
saman ásamt 6 dl. af hveiti. Hnoðað vel, breitt
yfir skálina og látið hefast við stofuhita í allt að
2 klst. Hnoðað upp með afganginum af hveitinu
og 3-4 snittubrauð búin til, ekki mjög stór. Brauð-
in eru pensluð með vatni eða eggi og skáskorið í
þau. Gott er að láta brauðinu að hefast í 30 mín-
útur á plötu. Bakað í 15 mínútur í 225 stiga heit-
um ofni.
Erna segir að langsamlega best sé að kaupa
parmesanostinn
nýjan og raspa
hann niður.
Mjög gott sé að
nota hann út í
sósuna líka.
Byrjað á
brauðinu
Erna Agnarsdóttir er matgæðingur vikunnar að þessu sinni. Hún gefur upp-
skrift að sígildu kjúkiingasalati með sósu og hvítlauksbrauði sem er gott nú
þegar fer að vora. DV-mynd GVA
,Þetta er mjög fljótlegt.
Ef maður er að gera þetta
allt í einu þá byrjar maður á
brauðinu. Maður er ekki lengur
en 15--20 mínútur að útbúa salatið
þannig að það er mjög fljótlegt að
gera þetta og það er alltaf mjög vin-
sælt,“ segir Erna.
Hún ætlar að skora á vinkonu sína,
Ragnhildi Zoéga, deildarstjóri á
alþjóðaskrifstofu Háskóla
íslands. -GHS
(sælkerinn
\
É
r
Italskt er vinsælt meðal ungu kynslóðarinnar:
Lasagne með túnfiski
Gratíneraðar
pönnukökur
- fyrir fjóra
Matreiða má pönnukökur á ýmsan hátt og þær
eru mjög góðar í hádegismatinn eða kvöldmatinn.
Hér á sælkerasíðunni höfum við áöur verið með
svokallaðar kartöflupönnukökur en nú er komið
að gratíneruðum pönnukökum.
Uppskriftin
4 egg
8 dl. mjólk
2-3 dl. hveiti
Yz tsk. salt
skinkusneiðar
rifinn ostur
Hrærið saman öllu nema skinku og osti þar til
blandan er kekkjalaus og látið bíða í 15 minútur.
Steikið í þunnar kökur og leggið eina sneið af
skinku á hverja pönnuköku og þekið kökuna með
rifnum osti. Rúllið hverri pönnuköku saman og
raðið kökunum í form. Stráið osti yfir. Setjið inn i
250 gráða heitan ofn þar til osturinn hefur bráðn-
að. Borið fram með salati. -GHS
mmámmmmmmmmm
Lasagne er vinsæll
réttur, sérstaklega
meðal ungu kyn-
slóðarinnar þar sem
allt þetta ítalska er
í tísku núna, og
því er um að gera
að hafa hann sem
oftast á boðstól-
um. Hér á eftir
fylgir prýðisgóð
uppskrift að
lasagne og er ým-
ist hægt að nota
í hana túnfisk
eða nautahakk.
Uppskriftin hef-
ur gengið milli starfsmanna
í Landsbankanum og hafa
þeir lagað hana og
Frestast
Þegar auglýst var eftir
uppskriftum í uppskrifta-
samkeppni Vöku-Helga-
fells hér í blaðinu nýlega
var sagt að niðurstöð-
urnar yrðu kynntar í
þessu blaði. Þar sem mik-
ill fjöldi uppskrifta barst
hafði ekki tekist að vinna
úr uppskriftunum og
frestast því að tilkynna
um niðurstöðuna þar til í
næstu viku. í staðinn
verður reynt að gera
þeim ítarleg skil hér á
síðunni. -GHS
kryddi og hvítlauk. Vatninu
er hellt af tómötunum og
þeim bætt út í. Tómat
puré sett f sósuna. Ef
túnfiskur er notaður
er vatninu hellt af
en olían í þriðj-
unni dósinni not-
uð til að steikja
með.
Osta-
betrumbætt.
Og hér kem-
ur uppskrift-
in sem dugar fyrir sex:
Kjötsósa
500 gr. nautahakk
eða 3 dósir túnfiskur
(2 í vatni og 1 í olíu)
1 laukur
5-10 sveppir eða lítil dós
1 tsk. duft eða 1 msk.
gróft oregano
3-5 stór hvítlauksrif
V2 dós niðursoðnir tómatar
4 msk. tómat puré
Hakkið er steikt á pönnu
ásamt sveppum og lauk,
sosa
3 msk.
hveiti
1 msk.
smjörlíki
mjólk
V2 stk. rifinn ostur
y, tsk. rósmarín
V, tsk. múskat
Sósan er bökuð upp, ostur
og krydd eru sett síðast út í.
Lasagne-rétturinn er settur
í eldfast mót. Fyrst er eitt lag
sósa, síðan lasagneplötur, til
dæmis ferskar, svo kjötsósa,
ostasósa, lasagneplötur, kjöt-
sósa, ostasósa, lasagneplötur
og svo framvegis. Rétturinn
er bakaður í miðjum ofni við
200 gráður í 20 mínútur eða
þangað til osturinn er orðinn
ljósbrúnn.
Rétturinn er gjarnan bor-
inn fram með fersku salati.
-GHS
Best að borða
ávexti fimm
sinnum á dag
Mataræði er mikilvægur þátt-
ur i lífinu og gott mataræði verð-
ur aldrei ofmetið, sérstaklega
með tilliti tU áhrifa matarins á
heUsuna. Talið er að ávextir og
grænmeti geti veitt góða hjálp
við að koma í veg fyrir krabba-
mein og hjartasjúkdóma. Heyrst
hefur að það sé allra meina bót
að boröa grænmeti og ávexti
fimm sinnum á dag - þá fái mað-
ur þau steinefni og vítamín sem
þarf - og því er um að gera að
borða sem mest af þessari fæðu-
tegund.
Úrvalið af ávöxtum hefur farið
mjög vaxandi hér á landi á síð-
ustu árum en auðvitað eru til
miklu fleiri ávextir en fást hér.
Að þessu sinni verða teknir fyrir
tveir ávextir, melónur og avóka-
dó, en auðvelt er að fá þá báða
hér á landi.
Forréttur eða
eftirréttur
Melónur eru góðar í morgun-
verðinn, sem biti mUli mála eða
í forrétt eða eftirrétt á hátíðar-
stundu. Best er melónan þegar
hún hefur náð fullum þroska og
er köld. Ágætt getur verið að
stinga henni inn í ísskáp rétt
áður en á að bera hana fram en
ekki er gott að geyma hana þar
lengi.
Melónu má gjarnan skera í
báta og bátana má krydda með
salti, pipar eða sítrónusafa. í for-
rétt getur verið sniðugt að bera
fram eina sneið af reyktri skinku
og í eftirrétt er gott að fylla hana
með berjum eða öðrum smátt
skomum ávöxtum. Melónur eru
líka góðar í ávaxtasalöt.
Fyllt hunangsmelóna
Kljúfið melónuna og
takiö stein-
ana burt.
Búið til
holu í bátinn
með skeið eða skerið
ávaxtakjötið í litla ten-
inga. Fyllið melónuna
meö mandarínubitum, niður-
skornum vínberjum, hindberjum
eða öðrum berjum. Kryddið með
sítrónusafa.
Feitur en góður
Avókadó, sem verður að vera
vel þroskað, er klofið til helm-
inga og steinninn fjarlægður.
Hægt er að borða ávöxtinn beint,
og þá gjarnan kryddaðan með
salti, sítrónusafa eða einhverri
sósu, eöa nota hann smátt skor-
inn í salat. Einnig er hægt að
stappa ávaxtakjötið í mús og
nota í matinn.
Óvenjumikil fita er í avókadó
af ávexti að vera eða um 20 gr. á
hver 100 gr. og því mikið af
kaloríum. Gott er að vita af
þessu og taka tillit til þess við
matreiðsluna en engin ástæða til
að hætta alveg að borða þennan
ávöxt.
Avokadósúpa
2 stórir avokadó-ávextir
5 dl. grænmetiskraftur
2 dl. ijómi
V2 tsk. salt
Vt-Vi tsk. pipar
1-2 msk. sítrónusafi
Skerið avokadó-
ávextina i tvennt
og takið stein-
ana burt.
Skafið
kjötið úr
ávextinum og
stappið. Látið kraft-
inn og avokadóið sjóða og bætið
rjóma og kryddi út í. Berið súp-
una fram heita eða kalda og
skreytiö gjarnan með avokadó-
ræmum.
-GHS