Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 tónlist Íidents of The USA situr aðra vik- una i röð á toppi íslenska list- ans og gerir sig ekki líklegt til að vikja þaðan. Peaches velti lagi Cardigans, Sick and Tired, úr toppsætinu fyrir hálfum mánuði og hefur það hrapað um 14 sæti síðan þá. Hástökkið Hástökk vikunnar á sænska hljómsveitin Cardigans með lag sitt Rise & Shine. Það hefur að- eins verið tvær vikur á listan- um, var í 19. sæti í síðustu viku en er nú komið í það 11. Ekki er nema hálfur mánuður síöan þeir áttu topplag listans, Sick and Tired. Hæsta nýja lagið Hæsta nýja lag íslenska list- ans, Children með Robert Miles, kemst alia leið í 12. sætið á sinni fyrstu viku. Þetta lag hefur ver- ið að gera það gott á breska smá- skifulistanum að undanförnu og verið þar í baráttu um toppsæt- ið. Ekki gamlar lummur Breska útvarpsstöðin BBC Radio One og gömlu rokkhund- arnir í Status Quo eru komin í hár saman vegna þess að stöðin hefur neitað að leika nýja útgáfu þeirra á gamla Beach Boys lag- inu Fun Fun Fun. Francis Rossi og félagar eru vægast sagt óhressir með þessa ákvörðun og hafa höfðað mál á hendur stöð- inni. Bann stöðvarinnar er ekki siðferðilegs eðlis heldur segja menn þar á bæ einfaldlega að þeir hafi ekki áhuga á að leika gamlar þreyttar lummur þegar nóg er til af nýrri tónlist. Og í samræmi við þessa stefnu hefur stöðin líka ákveðið að nýja Bítlalagið Real Love verði ekki flutt í þáttum stöðvarinnar. Paul McCartney og félagar hafa ekki tjáð sig opinberlega um þá ákvörðun en garparnir í Status Quo krefjast um 25 milljóna króna í skaðabætur fyrir sinn snúð. Metallica efst á blaði Nú er verið að leggja línurn- ar fyrir Lollapalooza tónleika- röðina vestanhafs næsta sumar og er frágengið að Metallica verður þar efst á blaði. Lollapa- looza tónleikaröðin hefst í lok júní og meðal annarra stór- sveita og listamanna sem búið er að semja við eru Soundgard- íboði á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00 ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM T«i»l‘ 4® 1 1 3 4 ...2. VIKANR. 1... PEACHES THE PRESIDENTS OF THE USA 2 2 5 3 AEROPLANE RED HOT CHILI PEPPERS 3 7 9 4 1 WILL SURVIVE DIANA ROSS 4 4 4 9 ONE OF US JOAN OSBORNE 3 8 8 7 DON'T LOOK BACK IN ANGER OASIS 6 5 6 4 HOW DEEP IS YOUR LOVE TAKE THAT 3 9 - 2 CALIFORNIA LOVE 2 PAC 8. DR. DRE 8 3 2 8 SPACEMAN BABYLON ZOO 3 13 15 3 SLIGHT RETURN BLUETONES 10 10 26 4 IRONIC ALANIS MORISSETTE M. 19 2 ...hástSkk vikunnar ... RISH 8. SHINE CARDIGANS 3 1 ... NÝTTÁ USTA ... CHILDREN ROBERT MILES NÝTT 3 16 - 2 ÉG GEF ÞÉR ALLT MITT LÍF STJÓRNIN 14 15 16 4 OPEN ARMS MARIAH CAREY 15 6 1 8 SICK AND TIRED CARDIGANS 3 17 13 3 HYPERBALLAD BJÖRK 17 12 17 4 TWIGGY TWIGGY PIZZICATO FIVE 18 14 - 2 1 WISH SKEE LO 19 18 12 9 TIME HOOTIE 8< THE BLOWFISH 20 NÝTT 1 BIG ME FOO FIGHTERS 21 11 7 9 1979 SMASHING PUMPKINS 3 24 - 2 COUNT ON ME WHITNEY HOUSTON & CE CE WINANS 3 1 YOU LEARN ALANIS MORISSETTE 3 26 29 3 I JUST WANT TO MAKE LOVE TO YOU ETTA JAMES 3 28 35 3 JUNE AFTERNOON ROXETTE 3 EZl 1 STREET SPIRIT RADIOHEAD 27 21 14 6 HAPPY SAD PIZZICATO FIVE m NÝTT 1 FALLING INTO YOU CELINE DION I29 25 24 3 REAL LOVE THE BEATLES m NÝTT 1 Ó LJÚFA LÍF VINIR VORS OG BLÓMA 3 33 40 3 ANYTHING 3T 32 20 11 7 LET ME LIVE QUEEN 3 39 - 2 LET YOUR SOUL BE YOUR PILOT STING 34 34 - 2 GIVE ME A LITTLE MORE TIME CABRIELLE 35 32 - 2 ALL I NEED IS A MIRACLE '96 MIKE & THE MECHANICS 36 29 - 2 ONE BY ONE CHER 37 35 36 4 FOLLOW YOU DOWN GIN BLOSSOMS 38 27 19 6 GOT MY SELF TOGETHER BUCKETHEADS 39 36 - 2 MR. FRIDAY NIGHT LISA MOORISH 40 23 18 5 CUMBERSOME SEVEN MARY THREE Kynnir: Jón Axel Ólafsson Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Co/a á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVI hverri viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum í sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnai. Islenski listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiadur er af Radio Exprcss í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard. Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman og Jóhann Garðar Olafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson en, Ramones og Rancid. Þá hefur verið tilkynnt að tónleikaferðin verði svanasöngur hinnar gamal- kunnu sveitar The Ramones. Aðrir listamenn sem að öllum lík- indum verða með á Lollapalooza eru kántríjöfrarnir Waylon Jenn- ings og Johnny Cash, Patti Smith, The Sex Pistols, A1 Green, Ornette'Coleman, Dr. Dre, Bob Dylan, Lou Reed, Neil Young og Elvis Costello. Sannarlega safa- ríkir bitar. Voodooið virkar ekki lengur Hin magnaða tónleikaheims- reisa The Rolling Stones, Voodoo Lounge ferðin er komin í ógöng- ur og búist við því að Rollingarn- ir láti gott heita. Dvínandi aðsókn hefur verið að tónleikunum og fyrir vikið hafa tónleikahaldarar neyðst til að hækka miðaverð sem aftur hefur leitt til minnk- andi miðasölu. Þá kenna tón- leikahaldarar rándýrum útbún- aði um hvernig farið hefur en það kostar litlar 130 milljónir króna að flytja sviðsmyndina milli staða! Það var í Hong Kong sem blaðran sprakk en þaöan átti leið- in að liggja til Suður-Ameríku. Þrátt fyrir endaslepp ferðalok þurfa Jagger og félagar ekki að kvarta því talið er að þeir hafi haft rúma tvo milljarða króna upp úr krafsinu síðan Voodoo Lo- unge ferðin hófst í lok árs 1994. Plötufréttir Loksins hillir undir aðra plötu hljómsveitarinnar Rage Against Machine en nú eru nærri fjögur ár síðan fyrsta platan kom út. Nýja platan hefur fengið nafnið Evil Empire og fullyrt er að hún komi út í næsta mánuði... Gömlu brýnin í*hljómsveitnni J. Geils Band, sem lifði sitt blómaskeið fyrir tuttugu árum eða svo, eru komin á kreik á ný og stefna að því að gefa út plötu í maí ... Á næstunni kemur út safnplata sem heitir Songs in the Key of X og stendur X-ið fyrir X-Files-sjón- varpsþáttinn; sem sagt eitthvað dularfullt á ferð. Á plötunni kem- ur íjöldi heimsþekktra lista- manna fram og má meðal þeirra nefna Franck Black, Elvis Costello og Brian Eno, Foo Fig- hters, William Burroughs, Sheryl Crow og Screaming Jay Hawkins ... Aðdáendur Metallica geta nú farið að telja dagana þangað til nýja platan kemur út en sveitin er um þessar mundir að hljóð- blanda gripinn í New York. mmmmm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.