Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Qupperneq 26
26
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
tónlist
Íidents of The USA situr aðra vik-
una i röð á toppi íslenska list-
ans og gerir sig ekki líklegt til
að vikja þaðan. Peaches velti
lagi Cardigans, Sick and Tired,
úr toppsætinu fyrir hálfum
mánuði og hefur það hrapað um
14 sæti síðan þá.
Hástökkið
Hástökk vikunnar á sænska
hljómsveitin Cardigans með lag
sitt Rise & Shine. Það hefur að-
eins verið tvær vikur á listan-
um, var í 19. sæti í síðustu viku
en er nú komið í það 11. Ekki er
nema hálfur mánuður síöan
þeir áttu topplag listans, Sick
and Tired.
Hæsta nýja lagið
Hæsta nýja lag íslenska list-
ans, Children með Robert Miles,
kemst alia leið í 12. sætið á sinni
fyrstu viku. Þetta lag hefur ver-
ið að gera það gott á breska smá-
skifulistanum að undanförnu og
verið þar í baráttu um toppsæt-
ið.
Ekki gamlar
lummur
Breska útvarpsstöðin BBC
Radio One og gömlu rokkhund-
arnir í Status Quo eru komin í
hár saman vegna þess að stöðin
hefur neitað að leika nýja útgáfu
þeirra á gamla Beach Boys lag-
inu Fun Fun Fun. Francis Rossi
og félagar eru vægast sagt
óhressir með þessa ákvörðun og
hafa höfðað mál á hendur stöð-
inni. Bann stöðvarinnar er ekki
siðferðilegs eðlis heldur segja
menn þar á bæ einfaldlega að
þeir hafi ekki áhuga á að leika
gamlar þreyttar lummur þegar
nóg er til af nýrri tónlist. Og í
samræmi við þessa stefnu hefur
stöðin líka ákveðið að nýja
Bítlalagið Real Love verði ekki
flutt í þáttum stöðvarinnar.
Paul McCartney og félagar hafa
ekki tjáð sig opinberlega um þá
ákvörðun en garparnir í Status
Quo krefjast um 25 milljóna
króna í skaðabætur fyrir sinn
snúð.
Metallica efst á
blaði
Nú er verið að leggja línurn-
ar fyrir Lollapalooza tónleika-
röðina vestanhafs næsta sumar
og er frágengið að Metallica
verður þar efst á blaði. Lollapa-
looza tónleikaröðin hefst í lok
júní og meðal annarra stór-
sveita og listamanna sem búið
er að semja við eru Soundgard-
íboði
á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKURÁ LISTANUM T«i»l‘ 4®
1 1 3 4 ...2. VIKANR. 1... PEACHES THE PRESIDENTS OF THE USA
2 2 5 3 AEROPLANE RED HOT CHILI PEPPERS
3 7 9 4 1 WILL SURVIVE DIANA ROSS
4 4 4 9 ONE OF US JOAN OSBORNE
3 8 8 7 DON'T LOOK BACK IN ANGER OASIS
6 5 6 4 HOW DEEP IS YOUR LOVE TAKE THAT
3 9 - 2 CALIFORNIA LOVE 2 PAC 8. DR. DRE
8 3 2 8 SPACEMAN BABYLON ZOO
3 13 15 3 SLIGHT RETURN BLUETONES
10 10 26 4 IRONIC ALANIS MORISSETTE
M. 19 2 ...hástSkk vikunnar ... RISH 8. SHINE CARDIGANS
3 1 ... NÝTTÁ USTA ... CHILDREN ROBERT MILES
NÝTT
3 16 - 2 ÉG GEF ÞÉR ALLT MITT LÍF STJÓRNIN
14 15 16 4 OPEN ARMS MARIAH CAREY
15 6 1 8 SICK AND TIRED CARDIGANS
3 17 13 3 HYPERBALLAD BJÖRK
17 12 17 4 TWIGGY TWIGGY PIZZICATO FIVE
18 14 - 2 1 WISH SKEE LO
19 18 12 9 TIME HOOTIE 8< THE BLOWFISH
20 NÝTT 1 BIG ME FOO FIGHTERS
21 11 7 9 1979 SMASHING PUMPKINS
3 24 - 2 COUNT ON ME WHITNEY HOUSTON & CE CE WINANS
3 1 YOU LEARN ALANIS MORISSETTE
3 26 29 3 I JUST WANT TO MAKE LOVE TO YOU ETTA JAMES
3 28 35 3 JUNE AFTERNOON ROXETTE
3 EZl 1 STREET SPIRIT RADIOHEAD
27 21 14 6 HAPPY SAD PIZZICATO FIVE
m NÝTT 1 FALLING INTO YOU CELINE DION
I29 25 24 3 REAL LOVE THE BEATLES
m NÝTT 1 Ó LJÚFA LÍF VINIR VORS OG BLÓMA
3 33 40 3 ANYTHING 3T
32 20 11 7 LET ME LIVE QUEEN
3 39 - 2 LET YOUR SOUL BE YOUR PILOT STING
34 34 - 2 GIVE ME A LITTLE MORE TIME CABRIELLE
35 32 - 2 ALL I NEED IS A MIRACLE '96 MIKE & THE MECHANICS
36 29 - 2 ONE BY ONE CHER
37 35 36 4 FOLLOW YOU DOWN GIN BLOSSOMS
38 27 19 6 GOT MY SELF TOGETHER BUCKETHEADS
39 36 - 2 MR. FRIDAY NIGHT LISA MOORISH
40 23 18 5 CUMBERSOME SEVEN MARY THREE
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DVog Coca-Co/a á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmd af markaðsdeild DVI hverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið af spilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum í sumar. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnai. Islenski
listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiadur er af Radio Exprcss í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón með skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og Ivar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar Olafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
en, Ramones og Rancid. Þá hefur
verið tilkynnt að tónleikaferðin
verði svanasöngur hinnar gamal-
kunnu sveitar The Ramones.
Aðrir listamenn sem að öllum lík-
indum verða með á Lollapalooza
eru kántríjöfrarnir Waylon Jenn-
ings og Johnny Cash, Patti Smith,
The Sex Pistols, A1 Green,
Ornette'Coleman, Dr. Dre, Bob
Dylan, Lou Reed, Neil Young og
Elvis Costello. Sannarlega safa-
ríkir bitar.
Voodooið
virkar ekki
lengur
Hin magnaða tónleikaheims-
reisa The Rolling Stones, Voodoo
Lounge ferðin er komin í ógöng-
ur og búist við því að Rollingarn-
ir láti gott heita. Dvínandi aðsókn
hefur verið að tónleikunum og
fyrir vikið hafa tónleikahaldarar
neyðst til að hækka miðaverð
sem aftur hefur leitt til minnk-
andi miðasölu. Þá kenna tón-
leikahaldarar rándýrum útbún-
aði um hvernig farið hefur en það
kostar litlar 130 milljónir króna
að flytja sviðsmyndina milli
staða! Það var í Hong Kong sem
blaðran sprakk en þaöan átti leið-
in að liggja til Suður-Ameríku.
Þrátt fyrir endaslepp ferðalok
þurfa Jagger og félagar ekki að
kvarta því talið er að þeir hafi
haft rúma tvo milljarða króna
upp úr krafsinu síðan Voodoo Lo-
unge ferðin hófst í lok árs 1994.
Plötufréttir
Loksins hillir undir aðra plötu
hljómsveitarinnar Rage Against
Machine en nú eru nærri fjögur
ár síðan fyrsta platan kom út.
Nýja platan hefur fengið nafnið
Evil Empire og fullyrt er að hún
komi út í næsta mánuði... Gömlu
brýnin í*hljómsveitnni J. Geils
Band, sem lifði sitt blómaskeið
fyrir tuttugu árum eða svo, eru
komin á kreik á ný og stefna að
því að gefa út plötu í maí ... Á
næstunni kemur út safnplata
sem heitir Songs in the Key of X
og stendur X-ið fyrir X-Files-sjón-
varpsþáttinn; sem sagt eitthvað
dularfullt á ferð. Á plötunni kem-
ur íjöldi heimsþekktra lista-
manna fram og má meðal þeirra
nefna Franck Black, Elvis
Costello og Brian Eno, Foo Fig-
hters, William Burroughs, Sheryl
Crow og Screaming Jay Hawkins
... Aðdáendur Metallica geta nú
farið að telja dagana þangað til
nýja platan kemur út en sveitin
er um þessar mundir að hljóð-
blanda gripinn í New York.
mmmmm