Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Side 31
JL>V LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 erlent fréttaljós » 54 meðlimir Hells Angels með með 16 morð og 828 dóma á bakinu: Vopnað stríð ríkisstyrktra morðingja - gapandi bil milli lifnaðarhátta og tekna Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn:_ Morðið á einum meðlima mótor- hjólaklúbbsins Bandidos fyrir utan Kastrup-flugvöll á sunnudagskvöld hefur vakið mikia athygli og reiði. Strið Bandidos og Hells Angels hef- ur farið stigmagnandi síðustu miss- eri og óttast margir að hefndardráp muni ganga á víxl þar til ljóst verð- ur hvort gengið stendur uppi sem sigurvegari. Undirrót átakanna er að Hells Angels hafa verið einráðir á rokkaramarkaðnum í Danmörku síðan þeir útrýmdu Bullshit-geng- inu um miðjan níunda áratuginn. Þeir hafa einnig haft yfirburðastöðu annars staðar á Norðurlöndum en þar er rokkaramenningin mun yngri. Síðustu tvö árin hafa Bandidos hins vegar haslað sér völl á Norðurlöndunum og eru orðnir töluverð ógn við veldi Hells Angels. Margir fyrrum meðlimir Englanna hafa gengið til liðs við Bandidos og jafnhliða hefur félagaflöldi þeirra margfaldast, stuðningsklúbbum fjölgað og svæði sem Englarnir hafa talið sín hafa komist undir stjórn Bandidos. Hér skipta peningar og völd miklu máli en ekki siður æra rokkaranna og hefndarskylda. Með- fylgjandi graf sýnir hvemig átökin hafa magnast upp á síðkastið. Tvö morð sama daginn Það sem olli þvi að upp úr sauð um helgina voru árekstrar klúbbanna í Helsingfors í Finn- landi. Bandidos höfðu verið að opna nýjan klúbb í borginni og Hells Angels voru á sama tima á tattóver- ingarhátíð í sömu borg. Þar kom til nokkurra átaka og það sem verra var, stríðandi aðilar fóru með sömu flugvél til Kaupmannahafnar. Báðir klúbbarnir sendu fjölmennt mót- tökulið á nokkrum bílum og mót- tökunefndunum laust saman áður en Finnlandsfararnir komust í gegnum tollinn. Meðlimir Hells Angels drápu einn Bandidos og særðu þrjá alvarlega. Á sama tíma var einn Bandidos drepinn á flug- vellinum í Ósló. í gæsluvarðhaldi situr meðlimur MC Norway sem er tilvonandi meðlimur Hells Angels. Fjórir eru grunaðir um morðið í Kaupmannahöfn. Svend Sviná Holst, Jorgen englahár Nielsen og Benjamin hafa verið dæmdir í gæsluvarðhald en fjórði aðilinn er ófundinn. Talið er að hann hafi særst í átökunum og sé einhvers staðar undir læknishöndum. Einnig hefur verið lagt hald á gríðarlegt magn vopna. 54 meðlimir með 16 morð og 828 dóma Þeir 54 sem voru fullgildir með- limir Hells Angels í Danmörku í janúar 1995 hafa ótrúlega oft komist í kast við lögin. Þeir hafa samtals verið dæmdir fyrir brot á 828 laga- greinum og þar af eru 16 morð og 11 morðtiiraunir. Listinn nær þó ein- ungis til septembermánaðar á síð- asta ári. Langflestir dómarnir eru fyrir ofbeldi ýmiss konar og hótan- ir, ekki síst í tengslum við svokall- aðar handrukkanir. Einnig eru 25 dómar fyrir sölu og innflutning fíkniefna og 36 dómar fyrir með- höndlun slíkra efna. Einnig eru inn- brot og þjófnaðir af öllu tagi mjög áberandi. Aðeins tveir dómar eru fyrir nauðganir en 131 sinni gerast þessir 54 meðlimir brotlegir við vopnalögin. Bræðralagið skiptir öllu í þessum félagsskap og mjög erfitt er að komast inn í samtök eins og Hells Angels eins og sjá má á fjölda félaga. Þagnarskyldan er al- gjör og það er vani þeirra að þegja eins og steinn í yfirheyrslum og dómsal. Hins vegar er mikill fjöldi rokkaragengja sem ganga erinda stóru samtakanna og eru þeir notað- ir í skítverkin. Er því í raun furðu- legt hvað Hells Angels bræður hafa oft verið dæmdir. Æðsti draumur rokkaranna er vitanlega að gerast fullgildir meðlimir. Litið er á þá sem konunga en einnig þar er Fyrsta Hells Angels gengið í Danmörku fær viöurkenningu 1980. Þrjú gengi með 54 fullgildum félögum. 23 stuöningsgengi um allt land. HELLS ANGELS Eiga rætur að rekja til sprengjuflug- sveitar í bandaríska hernum, Hells Angels. Eftir seinni heimsstyrjöld hópuðust flugmennirnir um sameiginleg áhugamál, þ.á m. mótorhjól af gerðinni Harley Davidson. Bitrir út í samfélagiö stofnuðu þeir fyrsta Hells Angels gengið T Kaliforníu 1948. Þeirra mottó var „Fuck the World" sem gæti þýtt til fjandans með allt. ÁREKSTRAR GENGJANNA FRÁ 1994 Árekstrar hafa verið mestir í Finnlandi og Svíþjóö en nú hefur ofbeldið færst til Danmerkur og Noregs. Varna Ósló Helsingfors a> 0 Markaryd iHelsingjaborg Kastrup Fyrsta Banditos gengið í Danmörku stofnaö 1993. Þrjú gengi meö 27 fullgildum félögum. 7 stuöningsgengi BANDITOS Stofnað í Houston, Texas, áriö 1965 af rótlausum hermönnum úr Víetnam- stríðinu. Höfðu Hells Angels að fyrirmynd. Þriöja stærsta mótorhjólagengi Bandarikjanna T dag. Banditos hófp að færa út kvíarnar 1983 og stofnuðu fyrstu gengin T Evrópu 1989. Ak Febr.'94: 23 ára stuöningsmaður “ Hells Angels myrtur í skothríð á næturklúbb. Þrír særast. ÖApríl '95: Stuðningsmaður Banditos skýtur og særir stuðn- ingsmann HA á veitingahúsi. 017. júlí: Forseti Banditos í Svíþjóð ^myrtur þar sem hann ekur á mótorhjóli sínu á þjóövegi. 0 26. júlí: Rakettu skotið á þjálfunarstöð HA. Enginn mannskaöi. A 30. júlí: Rakettu skotiö á Sf þjálfunarstöð HA T Helsingjaborg. 28 febr.'96: Félagi í HA í Svíþjóö S# finnur sprengju í bíl sínum. 0 29. febr.: Tveir særast í skothrið viö þjálfunarstöö Banditots Ö5. mars: Reynt að myrða danskan reynslufélaga hjá Banditos í Svíþjóö. Slapp meö skotsár. ÖIO. mars: Skotið á norskan félaga í Banditos og hann særður á Fornebu-flugvelli. 10. mars: Kortéri síöar verða -•* Banditosfélagar fyrir skotárás á Kastrup-flugvelli. Einn iætur lífið og þrír særast. © DV Fullgildir meðlimir Hells Angels T Danmörku hafa ótrúlega oft komist í kast við lögin. Þeir hafa verið dæmdir fyrir brot á 828 lagagreinum. Þar á meðal eru 16 morð og 11 morðtilraunir. stéttaskiptingin mikil. Mestrar virð- ingar njóta þeir sem geta látið tattó- vera „Filthy few“ á handlegginn. Það eru aðeins þeir sem hafa drepið fyrir bræðurna og samtökin. Fálagsleg aðstoð, eitur- lyf og goðgerðarstarf Félagsleg aðstoð, venjuleg launa- vinna og sjálfstæður atvinnurekst- ur. Þannig svara meðlimir Hells Angels og Bandidos þegar þeir eru spurðir að því á hverju þeir lifi. Lögreglan og tjölmiðlar þykjast þó sjá ótrúlegan mun á sjáanlegum tekjum þeirra og lífsstíl. Eins og upptalningin á dómum meðlima Hells Angels að ofan sýnir hafa þeir æði oft verið í ólöglegum atvinnu- rekstri, ekki síst innbrotum, fikni- efnasölu, smygli og ofbeldisglæpum. Mestu tekjurnar eru í eiturlyfjun- um en margir telja að Hells Angels hafi um langt skeið stjórnað hass- markaðnum í Danmörku. Aðeins sá innflutningur sem þeir hafa verið dæmdir fyrir skiptir tugum tonna. Mjög margir þeirra hafa einnig ver- ið í innheimtubransanum og hafa margir þeirra verið dæmdir fyrir að innheimta skuldir með baseball- kylfum. Þekkt eru skráð fyrirtæki þeirra eins og Alfa Incasso og Gold Incasso. Bæði hafa þau verið notuð þegar aðrir en bræður reyna að selja Harley-Davidson mótorhjól og fylgihluti en sjálfir reka þeir Amer- ican MC Shop í Kaupmannahöfn og Árósum. Samkeppni í þeim inn- flutningi er ekki vel liðin. Tulela Bodyguard Service er fyrirtæki í þeirra eigu sem leigir út lifverði og dyraverði með heimilisfang í höfuð- stöðvum Hells Angels. Þar má einnig finna fyrirtæki eins og Det Danske Vagtselskab, Dansk Chauffer Udlejning og AMC Market- ing. Árið 1988 stofnuðu þeir svo eitt sitt þekktasta fyrirtæki, Defense Fund Denmark. Markmið þess er að styðja tjárhagslega bræður í fang- elsi, konur þeirra, kærustur og börn. Tekjurnar koma frá minja- gripum, sölu á fylgihlutum mótor- hjóla, frjálsum framlögum og pen- ingum frá stuðningshópum Hells Angels sem eru fjölmargir. Fræg eru kaup samtakanna á færanlegri sundlaug sem þeir sendu félögunum í Vridslose fangelsi. Bókhald þess góðgerðarfélags var rannsakað og þótti vægast sagt ófullkomið. Mótor- hjólasýningar, t.d. á Hróarskelduhá- tíð og víðar, ásamt fjölskyldudögum sem klúbburinn heldur reglulega skila einnig nokkrum peningum. Vilja banna ríkisstyrkt morð Eitt af því sem hvað mest hefur verið deilt um á undanförnum árum er hvort rétt sé að mótorhjólaklúbb- ar fái ríkisstyrki. Stórir klúbbar eins og Bandidos og Hells Angels fá hund- ruð þúsunda árlega á grundvelli þess að um félagasamtök sé að ræða. Ný- lega neitaði sveitarfélag að greiða rokkurunum styrk, þeir fóru í mál en töpuðu því í héraði. Nú hafa rokk- ararnir farið með málið til Hæsta- réttar enda hart vegið að æru þeirra og pyngju. Eftir morð helgarinnar er nú svo komið að fjölrnargir vilja banna þessi samtök með öllu. Bjorn Elmquist, formaður dómsffiálanefnd- ar þingsins, bendir á að banna megi samtök ef þau reyna að ná markmið- um sínum með valdi. Fjölmargir hafa tekið í sama streng en aðrir benda á að það sé erfitt í framkvæmd og þá væri vegið að mannréttindum. Þá hefur lögreglan krafist aukinna heimilda til símhlerana, vitnavernd- ar, notkunar á tálbeitum og jafnvel öfugrar sönnunarbyrði þegar auðæfi eru talin tilkomin af eiturlyfjasölu. Rokkarar á eftirlaunum Bæði Bandidos og Hells Angels eru útibú frá samtökunum í Banda- ríkjunum. Hells Angels voru upphaf- lega stofnaðir af hermönnum úr heimsstyrjöldinni síðari, einkum flugmönnum, en Bandidos af her- mönnum úr Víetnamstríðinu. Höfuð- stöðvar Englanna eru í San Fran- cisco en leiðtoginn, Sunny Barger, hefur verið í fangelsi síðustu tvö ár- in. Rætur Bandidos eru í bænum Corpus Christi í suðurhluta Texas, við landamæri Mexíkó. Stofnandi þeirra, Grandpa Boþ, dó fyrir 3 árum og fylgdu 350 mótorhjólakappar hon- um til grafar. Eftir hans daga hefur samtökunum hnignað og þau hafa verið hrakin vestur á bóginn. Talið er að meðlimafjöldi þeirra sé í hæsta lagi 4-5 hundruð. Sérfræðingar í Ameríku segja að Hells Angels og Bandidos séu eiginlega orðnir að samtökum rokkara á ellilifeyri þar sem tekjur samtakanna minnki í samræmi við hækkandi aldur bræð- ranna. Þetta séu samtök miðaldra ævintýramanna og starfsemi þeirra sé að mestu fyrir utan Bandaríkin. Þeir selji reyndar töluvert af amfet- amíni og marijúana en séu ekki leng- ur stórir í fíkniefnaviðskiptum. Nú fer mestur tími þeirra í að stýra að- gerðum bræðrasamtakanna í Evrópu þar sem völd þeirra og áhrif eru enn mikil. mn m UGGUft ILOFTINU Ul,c fEÁEÆRU RAKA- OG# JÓNATÆKIN FRÁ BIONAIRE GETA KOMIÐ í VEG FYRIR 4. * HÖFUÐVERK * ÞURRK í HÚÐ * ÞURRK í AUGUM * ÞURRK í HÁLSI * STÖÐURAFMAGN * RYKMYNDUN HUSASMIÐJAN 16. MARS FRÁ KL. 11 >v_ _ uisom/m Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni, Húsasmiðjan Skútuvogi 3, Glóey, Armúla 19, Bílanaust, Borganúni 26. Rafsól Skipholti 33. Kópavogur: Festa, Hamraborg 14. Hafnarfjörður: Rafbúðin, Álfaskeiði 31. Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6. Selfoss: Árvirkinn, Eyrarvegi 29. Akureyri: Hljómver, Glerárgötu 32, Raflagnadeild KEA, Óseyri 2. ísafjörður: Straumur, Silfurgötu 5. Húsavík: Smiðjan Valholtsvegi. Keflavík: Ljósboginn Hafnargötu 25. BIONAIRE - FYRIR ÞINA HEILSU Vöhitci<fi 3, Mosfcllsbæ. Sími 566-8300

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.