Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 31
JL>V LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
erlent fréttaljós »
54 meðlimir Hells Angels með með 16 morð og 828 dóma á bakinu:
Vopnað stríð ríkisstyrktra morðingja
- gapandi bil milli lifnaðarhátta og tekna
Pálmi Jónasson, DV, Kaupmannahöfn:_
Morðið á einum meðlima mótor-
hjólaklúbbsins Bandidos fyrir utan
Kastrup-flugvöll á sunnudagskvöld
hefur vakið mikia athygli og reiði.
Strið Bandidos og Hells Angels hef-
ur farið stigmagnandi síðustu miss-
eri og óttast margir að hefndardráp
muni ganga á víxl þar til ljóst verð-
ur hvort gengið stendur uppi sem
sigurvegari. Undirrót átakanna er
að Hells Angels hafa verið einráðir
á rokkaramarkaðnum í Danmörku
síðan þeir útrýmdu Bullshit-geng-
inu um miðjan níunda áratuginn.
Þeir hafa einnig haft yfirburðastöðu
annars staðar á Norðurlöndum en
þar er rokkaramenningin mun
yngri. Síðustu tvö árin hafa
Bandidos hins vegar haslað sér völl
á Norðurlöndunum og eru orðnir
töluverð ógn við veldi Hells Angels.
Margir fyrrum meðlimir Englanna
hafa gengið til liðs við Bandidos og
jafnhliða hefur félagaflöldi þeirra
margfaldast, stuðningsklúbbum
fjölgað og svæði sem Englarnir hafa
talið sín hafa komist undir stjórn
Bandidos. Hér skipta peningar og
völd miklu máli en ekki siður æra
rokkaranna og hefndarskylda. Með-
fylgjandi graf sýnir hvemig átökin
hafa magnast upp á síðkastið.
Tvö morð sama daginn
Það sem olli þvi að upp úr sauð
um helgina voru árekstrar
klúbbanna í Helsingfors í Finn-
landi. Bandidos höfðu verið að opna
nýjan klúbb í borginni og Hells
Angels voru á sama tima á tattóver-
ingarhátíð í sömu borg. Þar kom til
nokkurra átaka og það sem verra
var, stríðandi aðilar fóru með sömu
flugvél til Kaupmannahafnar. Báðir
klúbbarnir sendu fjölmennt mót-
tökulið á nokkrum bílum og mót-
tökunefndunum laust saman áður
en Finnlandsfararnir komust í
gegnum tollinn. Meðlimir Hells
Angels drápu einn Bandidos og
særðu þrjá alvarlega. Á sama tíma
var einn Bandidos drepinn á flug-
vellinum í Ósló. í gæsluvarðhaldi
situr meðlimur MC Norway sem er
tilvonandi meðlimur Hells Angels.
Fjórir eru grunaðir um morðið í
Kaupmannahöfn. Svend Sviná
Holst, Jorgen englahár Nielsen og
Benjamin hafa verið dæmdir í
gæsluvarðhald en fjórði aðilinn er
ófundinn. Talið er að hann hafi
særst í átökunum og sé einhvers
staðar undir læknishöndum. Einnig
hefur verið lagt hald á gríðarlegt
magn vopna.
54 meðlimir með 16
morð og 828 dóma
Þeir 54 sem voru fullgildir með-
limir Hells Angels í Danmörku í
janúar 1995 hafa ótrúlega oft komist
í kast við lögin. Þeir hafa samtals
verið dæmdir fyrir brot á 828 laga-
greinum og þar af eru 16 morð og 11
morðtiiraunir. Listinn nær þó ein-
ungis til septembermánaðar á síð-
asta ári. Langflestir dómarnir eru
fyrir ofbeldi ýmiss konar og hótan-
ir, ekki síst í tengslum við svokall-
aðar handrukkanir. Einnig eru 25
dómar fyrir sölu og innflutning
fíkniefna og 36 dómar fyrir með-
höndlun slíkra efna. Einnig eru inn-
brot og þjófnaðir af öllu tagi mjög
áberandi. Aðeins tveir dómar eru
fyrir nauðganir en 131 sinni gerast
þessir 54 meðlimir brotlegir við
vopnalögin. Bræðralagið skiptir
öllu í þessum félagsskap og mjög
erfitt er að komast inn í samtök eins
og Hells Angels eins og sjá má á
fjölda félaga. Þagnarskyldan er al-
gjör og það er vani þeirra að þegja
eins og steinn í yfirheyrslum og
dómsal. Hins vegar er mikill fjöldi
rokkaragengja sem ganga erinda
stóru samtakanna og eru þeir notað-
ir í skítverkin. Er því í raun furðu-
legt hvað Hells Angels bræður hafa
oft verið dæmdir. Æðsti draumur
rokkaranna er vitanlega að gerast
fullgildir meðlimir. Litið er á þá
sem konunga en einnig þar er
Fyrsta Hells
Angels gengið í
Danmörku fær
viöurkenningu
1980.
Þrjú gengi með
54 fullgildum
félögum. 23
stuöningsgengi
um allt land.
HELLS ANGELS
Eiga rætur að rekja til sprengjuflug-
sveitar í bandaríska hernum, Hells
Angels. Eftir seinni heimsstyrjöld
hópuðust flugmennirnir um
sameiginleg áhugamál, þ.á m.
mótorhjól af gerðinni Harley Davidson.
Bitrir út í samfélagiö stofnuðu þeir
fyrsta Hells Angels gengið T Kaliforníu
1948. Þeirra mottó var „Fuck the
World" sem gæti þýtt til fjandans með
allt.
ÁREKSTRAR GENGJANNA FRÁ 1994
Árekstrar hafa verið mestir í Finnlandi
og Svíþjóö en nú hefur ofbeldið færst
til Danmerkur og Noregs.
Varna
Ósló Helsingfors
a>
0 Markaryd
iHelsingjaborg
Kastrup
Fyrsta Banditos
gengið í
Danmörku
stofnaö
1993.
Þrjú gengi
meö 27
fullgildum
félögum.
7 stuöningsgengi
BANDITOS
Stofnað í Houston, Texas, áriö 1965
af rótlausum hermönnum úr Víetnam-
stríðinu. Höfðu Hells Angels að
fyrirmynd. Þriöja stærsta
mótorhjólagengi Bandarikjanna
T dag. Banditos hófp að færa út
kvíarnar 1983 og stofnuðu fyrstu
gengin T Evrópu 1989.
Ak Febr.'94: 23 ára stuöningsmaður
“ Hells Angels myrtur í skothríð á
næturklúbb. Þrír særast.
ÖApríl '95: Stuðningsmaður
Banditos skýtur og særir stuðn-
ingsmann HA á veitingahúsi.
017. júlí: Forseti Banditos í Svíþjóð
^myrtur þar sem hann ekur á
mótorhjóli sínu á þjóövegi.
0 26. júlí: Rakettu skotið á
þjálfunarstöð HA. Enginn
mannskaöi.
A 30. júlí: Rakettu skotiö á
Sf þjálfunarstöð HA T Helsingjaborg.
28 febr.'96: Félagi í HA í Svíþjóö
S# finnur sprengju í bíl sínum.
0 29. febr.: Tveir særast í skothrið
viö þjálfunarstöö Banditots
Ö5. mars: Reynt að myrða danskan
reynslufélaga hjá Banditos í
Svíþjóö. Slapp meö skotsár.
ÖIO. mars: Skotið á norskan
félaga í Banditos og hann
særður á Fornebu-flugvelli.
10. mars: Kortéri síöar verða
-•* Banditosfélagar fyrir skotárás á
Kastrup-flugvelli. Einn iætur lífið
og þrír særast.
©
DV
Fullgildir meðlimir Hells Angels T Danmörku hafa ótrúlega oft komist í kast
við lögin. Þeir hafa verið dæmdir fyrir brot á 828 lagagreinum. Þar á meðal
eru 16 morð og 11 morðtilraunir.
stéttaskiptingin mikil. Mestrar virð-
ingar njóta þeir sem geta látið tattó-
vera „Filthy few“ á handlegginn.
Það eru aðeins þeir sem hafa drepið
fyrir bræðurna og samtökin.
Fálagsleg aðstoð, eitur-
lyf og goðgerðarstarf
Félagsleg aðstoð, venjuleg launa-
vinna og sjálfstæður atvinnurekst-
ur. Þannig svara meðlimir Hells
Angels og Bandidos þegar þeir eru
spurðir að því á hverju þeir lifi.
Lögreglan og tjölmiðlar þykjast þó
sjá ótrúlegan mun á sjáanlegum
tekjum þeirra og lífsstíl. Eins og
upptalningin á dómum meðlima
Hells Angels að ofan sýnir hafa þeir
æði oft verið í ólöglegum atvinnu-
rekstri, ekki síst innbrotum, fikni-
efnasölu, smygli og ofbeldisglæpum.
Mestu tekjurnar eru í eiturlyfjun-
um en margir telja að Hells Angels
hafi um langt skeið stjórnað hass-
markaðnum í Danmörku. Aðeins sá
innflutningur sem þeir hafa verið
dæmdir fyrir skiptir tugum tonna.
Mjög margir þeirra hafa einnig ver-
ið í innheimtubransanum og hafa
margir þeirra verið dæmdir fyrir að
innheimta skuldir með baseball-
kylfum. Þekkt eru skráð fyrirtæki
þeirra eins og Alfa Incasso og Gold
Incasso. Bæði hafa þau verið notuð
þegar aðrir en bræður reyna að
selja Harley-Davidson mótorhjól og
fylgihluti en sjálfir reka þeir Amer-
ican MC Shop í Kaupmannahöfn og
Árósum. Samkeppni í þeim inn-
flutningi er ekki vel liðin. Tulela
Bodyguard Service er fyrirtæki í
þeirra eigu sem leigir út lifverði og
dyraverði með heimilisfang í höfuð-
stöðvum Hells Angels. Þar má
einnig finna fyrirtæki eins og Det
Danske Vagtselskab, Dansk
Chauffer Udlejning og AMC Market-
ing. Árið 1988 stofnuðu þeir svo eitt
sitt þekktasta fyrirtæki, Defense
Fund Denmark. Markmið þess er að
styðja tjárhagslega bræður í fang-
elsi, konur þeirra, kærustur og
börn. Tekjurnar koma frá minja-
gripum, sölu á fylgihlutum mótor-
hjóla, frjálsum framlögum og pen-
ingum frá stuðningshópum Hells
Angels sem eru fjölmargir. Fræg
eru kaup samtakanna á færanlegri
sundlaug sem þeir sendu félögunum
í Vridslose fangelsi. Bókhald þess
góðgerðarfélags var rannsakað og
þótti vægast sagt ófullkomið. Mótor-
hjólasýningar, t.d. á Hróarskelduhá-
tíð og víðar, ásamt fjölskyldudögum
sem klúbburinn heldur reglulega
skila einnig nokkrum peningum.
Vilja banna ríkisstyrkt
morð
Eitt af því sem hvað mest hefur
verið deilt um á undanförnum árum
er hvort rétt sé að mótorhjólaklúbb-
ar fái ríkisstyrki. Stórir klúbbar eins
og Bandidos og Hells Angels fá hund-
ruð þúsunda árlega á grundvelli þess
að um félagasamtök sé að ræða. Ný-
lega neitaði sveitarfélag að greiða
rokkurunum styrk, þeir fóru í mál
en töpuðu því í héraði. Nú hafa rokk-
ararnir farið með málið til Hæsta-
réttar enda hart vegið að æru þeirra
og pyngju. Eftir morð helgarinnar er
nú svo komið að fjölrnargir vilja
banna þessi samtök með öllu. Bjorn
Elmquist, formaður dómsffiálanefnd-
ar þingsins, bendir á að banna megi
samtök ef þau reyna að ná markmið-
um sínum með valdi. Fjölmargir
hafa tekið í sama streng en aðrir
benda á að það sé erfitt í framkvæmd
og þá væri vegið að mannréttindum.
Þá hefur lögreglan krafist aukinna
heimilda til símhlerana, vitnavernd-
ar, notkunar á tálbeitum og jafnvel
öfugrar sönnunarbyrði þegar auðæfi
eru talin tilkomin af eiturlyfjasölu.
Rokkarar á eftirlaunum
Bæði Bandidos og Hells Angels
eru útibú frá samtökunum í Banda-
ríkjunum. Hells Angels voru upphaf-
lega stofnaðir af hermönnum úr
heimsstyrjöldinni síðari, einkum
flugmönnum, en Bandidos af her-
mönnum úr Víetnamstríðinu. Höfuð-
stöðvar Englanna eru í San Fran-
cisco en leiðtoginn, Sunny Barger,
hefur verið í fangelsi síðustu tvö ár-
in. Rætur Bandidos eru í bænum
Corpus Christi í suðurhluta Texas,
við landamæri Mexíkó. Stofnandi
þeirra, Grandpa Boþ, dó fyrir 3 árum
og fylgdu 350 mótorhjólakappar hon-
um til grafar. Eftir hans daga hefur
samtökunum hnignað og þau hafa
verið hrakin vestur á bóginn. Talið
er að meðlimafjöldi þeirra sé í hæsta
lagi 4-5 hundruð. Sérfræðingar í
Ameríku segja að Hells Angels og
Bandidos séu eiginlega orðnir að
samtökum rokkara á ellilifeyri þar
sem tekjur samtakanna minnki í
samræmi við hækkandi aldur bræð-
ranna. Þetta séu samtök miðaldra
ævintýramanna og starfsemi þeirra
sé að mestu fyrir utan Bandaríkin.
Þeir selji reyndar töluvert af amfet-
amíni og marijúana en séu ekki leng-
ur stórir í fíkniefnaviðskiptum. Nú
fer mestur tími þeirra í að stýra að-
gerðum bræðrasamtakanna í Evrópu
þar sem völd þeirra og áhrif eru enn
mikil.
mn m UGGUft ILOFTINU
Ul,c
fEÁEÆRU RAKA- OG#
JÓNATÆKIN FRÁ BIONAIRE
GETA KOMIÐ í VEG FYRIR
4.
* HÖFUÐVERK
* ÞURRK í HÚÐ
* ÞURRK í AUGUM
* ÞURRK í HÁLSI
* STÖÐURAFMAGN
* RYKMYNDUN
HUSASMIÐJAN
16. MARS FRÁ KL. 11
>v_ _
uisom/m
Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni, Húsasmiðjan
Skútuvogi 3, Glóey, Armúla 19, Bílanaust, Borganúni
26. Rafsól Skipholti 33. Kópavogur: Festa,
Hamraborg 14. Hafnarfjörður: Rafbúðin, Álfaskeiði
31. Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs, Skagabraut 6.
Selfoss: Árvirkinn, Eyrarvegi 29. Akureyri: Hljómver,
Glerárgötu 32, Raflagnadeild KEA, Óseyri 2.
ísafjörður: Straumur, Silfurgötu 5. Húsavík: Smiðjan
Valholtsvegi. Keflavík: Ljósboginn Hafnargötu 25.
BIONAIRE - FYRIR ÞINA HEILSU
Vöhitci<fi 3, Mosfcllsbæ. Sími 566-8300