Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Qupperneq 33
Jj V* LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
41
Unnur Bjarnadóttir, 15 mánaða gömul, er þegar byrjuð í söngnámi:
og dans fléttast
söngkennsluna
Ótrúlegt en satt! Unnur Bjarna-
dóttir er 15 mánaða gamall Reykvík-
ingur og strax byrjuð í söngnámi og
reyndar búin að vera í því í tvo
mánuði. Hún mætir í söngtíma einu
sinni í viku og syngur með kennar-
anum sínum, Helgu Björk Grétu-
dóttur, og mömmu sinni, Ragnheiði
Bragadóttur, í hálftíma í hverri
viku. Aðra hverja viku er hún líka í
hóptíma með börnum á aldrinum
eins árs til rúmlega þriggja ára og
þá syngja þau öll með kennaranum
sínum við undirleik á píanó. Unnur
sækir söngnám í Suzuki-skólanum.
„Það munar rosalega um hvern
mánuð, ekki síst í þroska," segir
Ragnheiður, móðir Unnar, þegar
hún er spurð hvort hún sjái ein-
hvern árangur eftir þessa tvo mán-
uði í söngnáminu. „Maður heyrir
alveg að hún hefur mjög gaman af
þessu. Hún kann nú þegar eitthvað
af þessum lögum og henni finnst
þetta mjög skemmtilegt. Hún syng-
ur mikið með,“ segir hún.
Og mikið rétt. Þegar blaðamaður
og ljósmyndari DV litu inn í einka-
tíma Unnar heyrðist sú litla taka
hátt og skýrt undir með kennaran-
um í söng um fuglana, bí bí. Hún
fylgdi laginu ótrúlega vel eftir.
Þrír nemendur eru eins árs
Suzuki-skólinn hefur verið með
tónlistarkennslu hér á landi um
nokkurra ára skeið en aðeins eru
um það bil tvö ár síðan skólinn fór
að bjóða upp á söngkennslu. Það er
Helga Björk Grétudóttir sem hefur
séð um söngkennsluna og hefur hún
aðeins þrjá nemendur um eins árs
aldur. Allir hinir eru eldri en flestir
nemendurnir í skólanum eru yfir
þriggja ára aldri. Helga Björk hefur
einnig boðið upp á söngkennslu fyr-
ir foreldra sem eiga von á barni, og
þá sérstaklega fyrir þungaðar kon-
ur.
Suzuki-skólinn starfar eftir kenn-
ingum Japanans Suzukis um móð-
urmálið og byggir á þeirri stað-
reynd að börn fari að heyra mál
þegar í móðurkviði og að þau læri
móðurmálið með því að hlusta, likja
eftir og síðan að endurtaka það sem
þau heyra. Þannig skiptir ekki máli
hvort börnin eru fædd meðal frum-
byggja í Ástralíu eða Afríku eða
uppi á íslandi. Börnin hafa inn-
byggða hæfileika til að læra móður-
mál, að minnsta kosti fram til fjög-
urra ára aldurs, og geta á þessum
árum tileinkað sér hvaða mál sem
Lærir á selló og píanó
Ragnheiður hefur töluverða
reynslu af tónlistarkennslu Suzuki-
skólans. Hún á tólf ára dóttur sem
er að læra á tvö hljóðfæri, selló og
píanó. Stelpan byrjaði sex ára göm-
ul að læra á píanó og sjö ára ákvað
hún að bæta sellóinu við. Helga
Björk segir að tónlistarkennslan
byggist á virkri þátttöku foreldra og
að þeir komi með i einkatíma. Ragn-
heiður segist alla tíð hafa fylgt dótt-
ur sinni í tónlistartímana og fylgt
náminu eftir heima þangað til í
fyrra. Núna fylgist hún auðvitað
með náminu en á annan hátt en
áður.
En hvers vegna ákvað hún að
senda þá stuttu svo snemma í söng-
nám?
Unnur Bjarnadóttir er rúmlega eins árs en þegar byrjuð í söngnámi í Suzuki-skólanum hjá Helgu Björk Grétudóttur.
Unnur kemur ásamt mömmu sinni, Ragnheiði Bragadóttur, í einkatíma aðra hverja viku. Hina vikuna sækir hún hóp-
tíma ásamt öðrum börnum undir þriggja ára aldri. Inn í söngkennsluna fléttast leikur og dans og grípur kennarinn
til ýmissa leikfanga til að halda áhuga nemandans vakandi. DV-mynd BG
Syngur á söngmottu
Þegar Unnur kemur með mömmu
sinni í vikulegan söngtíma er hún
látin byrja tímann á því að standa
andspænis kennaranum á svokall-
aðri söngmottu, sem bæði Unnur og
kennarinn hafa, og svo taka þær lít-
ið lag. Unnur er það litil að lögin
eru tiltölulega einföld og inn í
kennsluna fléttast leikur, bæði með
handbrúðum, bílum og dýrum í
formi fingurbrúða og kennarinn
hefur alltaf bangsa til að syngja
með. Leikurinn er ríkur þáttur í
kennslunni þvi að halda verður at-
hygli barnanna vakandi og auka
einbeitinguna. Þegar börnin eru
jafnlítfl og Unnur eru lögin stutt til
að þau missi ekki áhugann.
Helga Björk segir að mestu máli
skipti að börnin læri að hlusta en
einnig séu ýmsar æfingar gerðar.
Þannig standa þær, kennarinn og
Unnur, á mottunni og þykjast vera
tré með ræturnar djúpt niðri í mold-
inni. Tréð sveigist svo og beygist í
vindinum eins og í dansi. í önd-
unaræfingum fær Unnur að blása á
fjöður og logandi eldspýtu og að
sjálfsögðu er klappað á eftir fyrir
góða frammistöðu. Unnur fær líka
að syngja í sérstaka flautu, kazoo.
Það er svipað og að syngja í greiðu
og það er greinilegt að Unnur nýtur
þess og sparar ekki kraftana.
Um næstu helgi nær fyrsti söng-
nemandinn í Suzuki-skólanum þeim
áfanga að útskrifast úr fyrstu bók-
inni. Það er Erla Rut Káradóttir og
má hún þá byrja á bók númer tvö.
-GHS
„Ég hafði reynslu af þessu kerfi
og svo fylgdist ég með því þegar
Helga fór af stað með söngkennsl-
una. Þá fannst mér það spennandi,"
segir Ragnheiður en systir hennar
er einmitt píanókennari við Suzuki-
skólann. Ragnheiður bætir við að
hugmyndafræði Suzukis byggist á
því að öll börn geti lært tónlist al-
veg eins og móðurmálið, það sé bara
spurning um rétt umhverfi og að-
stæður. Hún segir að markmiðið sé
ekki aö gera Unni að söngkonu
heldur sé það hluti af uppeldisað-
ferð að láta hana sækja þessa tíma.
í þessu námi læri börnin að hlusta
og einbeita sér. Það sé grunnurinn.
Eiga að hlusta
á snældu daglega
Það er heilmikil vinna að eiga lít-
ið barn i tónlistarnámi í Suzuki-
skólanum enda segir Helga Björk að
hún sé í raun bara leiðbeinandi, það
sé foreldrið sem sé hinn raunveru-
legi kennari og kenni baminu und-
ir sinni handleiðslu. Allir krakkarn-
ir fái hljóðsnældu, sem hún hafi
sjálf sungið inn á, áður en þau byrji
að sækja tímana og svo fái þau líka
bók með 22 lögum. Börnin útskrif-
ast svo þegar þau eru búin með
fyrstu bók og þá tekur næsta bók
við. Snældan er hins vegar sígild og
hana eiga þau að hlusta á daglega.
„Á hverjum degi syngjum við
fyrst og gerum æfmgarnar, eða
reynum það, og síðan fyllum við út
sérstakt eyðublað og skráum á það
hvað við höfum hlustað á, bæði
söngspóluna og líka ef við höfum
hlustað á aðra tónlist,“ segir Ragn-
heiður.