Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 36
44
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 I>V
Nálastungulækningar standa á árþúsundagömlum kínverskum merg:
Reyni að skapa jafnvægi milli Yin
- segir Guðrún Kristín Einarsdóttir sem lært hefur nálastungulækningar
Það er eins og þungt slytti liggi á manni eftir fyrstu nálina og manni hitnar en eftir að Gunna Stína er búin að stinga
annarri nál í þriðja augað er maður vel afslappaður. DV-myndir GS
Maður finnur fyrir vægum sárs-
auka eða öllu heldur örlitlum óþæg-
indum þegar Gunna Stína stingur
nálinni í þindina til að auka
strauminn til orkustöðva likamans.
Hún hreyfir nálina til og það er líkt
og vægur rafstraumur fari um
mann. Nálin er komin á sinn staö
og Gunna Stína nuddar út frá blett-
inum þar sem nálin situr föst til að
jafna út sársaukann sem hverfur al-
veg. Það er eins og þungt slytti liggi
á manni og manni hitnar en eftir að
hún er búin að stinga annarri nál í
þriðja augað er maður vel afslapp-
aður.
Með nálina á lofti
Gunna Stína eða Guðrún Kristín
Einarsdóttir, sem lært hefur nála-
stungulækningar í Svíþjóð og Kína,
gaf sér tíma til að ræða við blaða-
mann um áhugamál sitt, nám og
nálastungulækningar í vikunni. Að
spjallinu loknu skellti blaðamaður
sér í líki nálapúða þar sem reynt
var að jafna streymið til orkustöðva
hans.
„Ég fór til Svlþjóðar árið 1985 og
lærði röntgentækni og i framhaldi
af því fór ég í skóla til að læra
nálastungulækningar. Þetta var
öðruvísi og ég hafði séð einhverja
smágrein í blaði um þetta í Svíþjóð.
Síðan kynntist ég þessu betur í
gegnum íslenska stelpu, sem var
hjúkrunarfræðingur og var að læra
þetta. Mér fannst þetta áhugavert og
fór eiginlega i þetta út af forvitni og
renndi blint í sjóinn enda er allt
önnur hugmyndafræði á bak við
þetta en vestrænar lækningar. Það
má segja að ég hafi heillast af
þessu.“
Gunna Stína segir nálastungu-
lækningar felast í því að vinna með
orku sem býr í líkamanum - orku-
flæði og orkusvið.
„í líkamanum eru 12 orkubrautir,
sem bera nafn eftir líffærum líkam-
ans, og á þeim eru 365 punktar en
þetta byggist allt á náttúrunni. Þetta
felst í því að jafna út orkuna og leita
að orsök vandans - leita að ástæðu
þess að þú ert með höfuðverk, bak-
verk, vöðvabólgu og svo framvegis.
Maður leitar sem sagt að misvægi
orkunnar og reynir að skapa jafn-
vægi - ná jafnvægi milli Yin og
Yang, eins og það er kallað. Þannig
getur orsökina fyrir höfuðverk ver-
ið að finna í fætinum. Þetta er ólíkt
vestrænum læknavísindum að því
leyti að maður er ekki að lækna ein-
kenni heldur að reyna að finna or-
sökina og lækna sjúkdóminn eða
það sem hrjáir viðkomandi. í vest-
rænum læknavísindum gengur
meðhöndlunin út á það að lækna
einkennin með lyfjameðferð, sem er
gott eins langt og það nær.“
Lánshæft en má ekki
stinga hár
Gunna Stína sótti nám í nála-
stungulækningum í skóla sem er
Gunna Stína lærði röntgentækni i
Svíþjóð og fór svo í skóla fyrir fólk
sem lokið hefur námi til starfa í heil-
brigðisgeiranum til að nema nála-
stungur í eitt ár. Að því loknu fór
hún á námskeið á háskólasjúkrahús
í Kína til að auka við þekkingu sína.
viðurkenndur af sænska rikinu og
fékk því íslensk námslán fyrir nám-
inu sem tók eitt ár og er einungis
fyrir þá sem lokið hafa námi innan
heilbrigðisgeirans, sem Gunna
Stína hefur gert. Að því loknu fór
hún til Kína á framhaldsnámskeið á
kínversku háskólasjúkrahúsi. Þótt
námið í Svíþjóð sé lánshæft hjá LÍN
þá er henni ekki heimilt að starfa
við nálastungulækningar hér á
landi. Samkvæmt lækningalögum,
segir hún, er lærðum læknum ein-
um heimilt að meðhöndla fólk. Hún
má því hvorki auglýsa starfsemi
sina né reka stofu samkvæmt lögum
og stundar því einungis lækningar
á vinum, kunningjum og skyld-
mennum. í Svíþjóö hefði hún getað
fengið löggildingu og starfað með
tryggingastofnun þar í landi. Hún
segist hafa reynt að tala máli sínu
og nokkurra annarra hér á landi,
sem lært hafa nálastungulækning-
ar, en það hafi verið fyrir daufum
eyrum. Hér á landi stunda hins veg-
ar nokkrir nálastungulækningar
„löglega". Það eru menn sem lokið
hafa prófi í læknisfræði en jafnvel
tekið bara stutt námskeið í nála-
stungulækningum.
Streitusjúkdómar lækn-
aðir
Gunna Stína segir að þeir sem
hafi leitað hjálpar hennar - vinir og
kunningjar - séu ósköp venjulegt
fólk. En flestir eigi það sammerkt að
og Yang
hafa reynt flestar leiðir úrlausna
vestrænnar læknisfræði en án ár-
angurs. Hjá henni og hennar líkum
fái það oft bót meina sinna en nauð-
synlegt sé þó að koma oftar en einu
sinni til að árangur komi í ljós.
Mest er um að fólk með það sem
hún kallar starfræna- eða streitu-.
sjúkdóma, eins og vöðvabólgu,
mígren, bakverki og einnig húð-
sjúkdóma, leiti til hennar. Þö sé
hægt að nota nálastungu á ýmsa
aðra og alvarlegri sjúkdóma en þá
aðallega sem sársaukadeyfandi en
ekki til lækninga. Það sé líka stað-
fest með rannsóknum að nála-
stunguaðferðin geti aukið endorfin-
framleiðslu líkamans en endorfín er
í hópi morfínlyfja.
„Það tíðkast ekki á íslandi að fólk
leiti til nálastungulækna áður en
það er búið að prófa hefðbundnar
lækningar. í Kína er þessu á hinn
veginn farið. Þar er nálastungudeild
á sjúkrahúsum eins og röntgen- og
lyflækningadeild og líklega er hefð-
in fyrir nálastungum þar meira en
2000 ára. Mér skilst að fólki sem
hafi verið að vinna á ökrum hafi
orðið illt og þá hafi einhverjir tekið
að nudda ákveðna punkta á líkama
þess. Þetta þróaðist svo í það sem
það er í dag og einhvern tíma á ferl-
inu kortlagði einhver alla þessa
punkta sem við þekkjum nú.
Forvitið fólk
Gunna Stína segir fólk ekki
hrætt við nálastungulækningar'þeg-
ar það kemur í fyrsta skipti til
hennar. Það sé frekar forvitið. Því
finnist stungan kannski sársauka-
full en svo verði það hissa þegar það
áttar sig á að meðferðin sé búin -
þetta hafi nú ekki verið neitt neitt
þegar upp sé staðið. Þetta getur
blaðamaður staðfest.
Gunna Stína segist ekki skilja í
tregðu stjórnvalda hér á landi að
viðurkenna nálastungulækningar
og breyta gömlum lækningalögum.
Helst segist hún vilja sjá nálas-
tungulækningar stundaðar hér sam-
kvæmt tilvísunum frá starfandi
læknum og í samráði við þá, líkt og
framkvæmdin er með sjúkranudd
og annað slíkt. Nauðsynlegt segir
hún vera að breyta lögunum áður
en fúskarar, sem hljóti að komast
inn í þessa grein eins og aðrar,
vinni skaða á sjúklingum og grein-
inni sjálfri, vegna takmarkaðrar
þekkingar og geti starfað til hliðar
við lögin þar sem ekkert eftirlit er
haft með greininni.
-PP
Gunna Stína segir fólk ekki hrætt
við nálastungulækningar þegar það
kemur í fyrsta skipti til hennar. Það
sé frekar forvitið. Því finnist stung-
an kannski sársaukafull en svo
verði það hissa þegar það áttar sig
á að meðferðin sé búin.