Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Qupperneq 36
44 LAUGARDAGUR 16. MARS 1996 I>V Nálastungulækningar standa á árþúsundagömlum kínverskum merg: Reyni að skapa jafnvægi milli Yin - segir Guðrún Kristín Einarsdóttir sem lært hefur nálastungulækningar Það er eins og þungt slytti liggi á manni eftir fyrstu nálina og manni hitnar en eftir að Gunna Stína er búin að stinga annarri nál í þriðja augað er maður vel afslappaður. DV-myndir GS Maður finnur fyrir vægum sárs- auka eða öllu heldur örlitlum óþæg- indum þegar Gunna Stína stingur nálinni í þindina til að auka strauminn til orkustöðva likamans. Hún hreyfir nálina til og það er líkt og vægur rafstraumur fari um mann. Nálin er komin á sinn staö og Gunna Stína nuddar út frá blett- inum þar sem nálin situr föst til að jafna út sársaukann sem hverfur al- veg. Það er eins og þungt slytti liggi á manni og manni hitnar en eftir að hún er búin að stinga annarri nál í þriðja augað er maður vel afslapp- aður. Með nálina á lofti Gunna Stína eða Guðrún Kristín Einarsdóttir, sem lært hefur nála- stungulækningar í Svíþjóð og Kína, gaf sér tíma til að ræða við blaða- mann um áhugamál sitt, nám og nálastungulækningar í vikunni. Að spjallinu loknu skellti blaðamaður sér í líki nálapúða þar sem reynt var að jafna streymið til orkustöðva hans. „Ég fór til Svlþjóðar árið 1985 og lærði röntgentækni og i framhaldi af því fór ég í skóla til að læra nálastungulækningar. Þetta var öðruvísi og ég hafði séð einhverja smágrein í blaði um þetta í Svíþjóð. Síðan kynntist ég þessu betur í gegnum íslenska stelpu, sem var hjúkrunarfræðingur og var að læra þetta. Mér fannst þetta áhugavert og fór eiginlega i þetta út af forvitni og renndi blint í sjóinn enda er allt önnur hugmyndafræði á bak við þetta en vestrænar lækningar. Það má segja að ég hafi heillast af þessu.“ Gunna Stína segir nálastungu- lækningar felast í því að vinna með orku sem býr í líkamanum - orku- flæði og orkusvið. „í líkamanum eru 12 orkubrautir, sem bera nafn eftir líffærum líkam- ans, og á þeim eru 365 punktar en þetta byggist allt á náttúrunni. Þetta felst í því að jafna út orkuna og leita að orsök vandans - leita að ástæðu þess að þú ert með höfuðverk, bak- verk, vöðvabólgu og svo framvegis. Maður leitar sem sagt að misvægi orkunnar og reynir að skapa jafn- vægi - ná jafnvægi milli Yin og Yang, eins og það er kallað. Þannig getur orsökina fyrir höfuðverk ver- ið að finna í fætinum. Þetta er ólíkt vestrænum læknavísindum að því leyti að maður er ekki að lækna ein- kenni heldur að reyna að finna or- sökina og lækna sjúkdóminn eða það sem hrjáir viðkomandi. í vest- rænum læknavísindum gengur meðhöndlunin út á það að lækna einkennin með lyfjameðferð, sem er gott eins langt og það nær.“ Lánshæft en má ekki stinga hár Gunna Stína sótti nám í nála- stungulækningum í skóla sem er Gunna Stína lærði röntgentækni i Svíþjóð og fór svo í skóla fyrir fólk sem lokið hefur námi til starfa í heil- brigðisgeiranum til að nema nála- stungur í eitt ár. Að því loknu fór hún á námskeið á háskólasjúkrahús í Kína til að auka við þekkingu sína. viðurkenndur af sænska rikinu og fékk því íslensk námslán fyrir nám- inu sem tók eitt ár og er einungis fyrir þá sem lokið hafa námi innan heilbrigðisgeirans, sem Gunna Stína hefur gert. Að því loknu fór hún til Kína á framhaldsnámskeið á kínversku háskólasjúkrahúsi. Þótt námið í Svíþjóð sé lánshæft hjá LÍN þá er henni ekki heimilt að starfa við nálastungulækningar hér á landi. Samkvæmt lækningalögum, segir hún, er lærðum læknum ein- um heimilt að meðhöndla fólk. Hún má því hvorki auglýsa starfsemi sina né reka stofu samkvæmt lögum og stundar því einungis lækningar á vinum, kunningjum og skyld- mennum. í Svíþjóö hefði hún getað fengið löggildingu og starfað með tryggingastofnun þar í landi. Hún segist hafa reynt að tala máli sínu og nokkurra annarra hér á landi, sem lært hafa nálastungulækning- ar, en það hafi verið fyrir daufum eyrum. Hér á landi stunda hins veg- ar nokkrir nálastungulækningar „löglega". Það eru menn sem lokið hafa prófi í læknisfræði en jafnvel tekið bara stutt námskeið í nála- stungulækningum. Streitusjúkdómar lækn- aðir Gunna Stína segir að þeir sem hafi leitað hjálpar hennar - vinir og kunningjar - séu ósköp venjulegt fólk. En flestir eigi það sammerkt að og Yang hafa reynt flestar leiðir úrlausna vestrænnar læknisfræði en án ár- angurs. Hjá henni og hennar líkum fái það oft bót meina sinna en nauð- synlegt sé þó að koma oftar en einu sinni til að árangur komi í ljós. Mest er um að fólk með það sem hún kallar starfræna- eða streitu-. sjúkdóma, eins og vöðvabólgu, mígren, bakverki og einnig húð- sjúkdóma, leiti til hennar. Þö sé hægt að nota nálastungu á ýmsa aðra og alvarlegri sjúkdóma en þá aðallega sem sársaukadeyfandi en ekki til lækninga. Það sé líka stað- fest með rannsóknum að nála- stunguaðferðin geti aukið endorfin- framleiðslu líkamans en endorfín er í hópi morfínlyfja. „Það tíðkast ekki á íslandi að fólk leiti til nálastungulækna áður en það er búið að prófa hefðbundnar lækningar. í Kína er þessu á hinn veginn farið. Þar er nálastungudeild á sjúkrahúsum eins og röntgen- og lyflækningadeild og líklega er hefð- in fyrir nálastungum þar meira en 2000 ára. Mér skilst að fólki sem hafi verið að vinna á ökrum hafi orðið illt og þá hafi einhverjir tekið að nudda ákveðna punkta á líkama þess. Þetta þróaðist svo í það sem það er í dag og einhvern tíma á ferl- inu kortlagði einhver alla þessa punkta sem við þekkjum nú. Forvitið fólk Gunna Stína segir fólk ekki hrætt við nálastungulækningar'þeg- ar það kemur í fyrsta skipti til hennar. Það sé frekar forvitið. Því finnist stungan kannski sársauka- full en svo verði það hissa þegar það áttar sig á að meðferðin sé búin - þetta hafi nú ekki verið neitt neitt þegar upp sé staðið. Þetta getur blaðamaður staðfest. Gunna Stína segist ekki skilja í tregðu stjórnvalda hér á landi að viðurkenna nálastungulækningar og breyta gömlum lækningalögum. Helst segist hún vilja sjá nálas- tungulækningar stundaðar hér sam- kvæmt tilvísunum frá starfandi læknum og í samráði við þá, líkt og framkvæmdin er með sjúkranudd og annað slíkt. Nauðsynlegt segir hún vera að breyta lögunum áður en fúskarar, sem hljóti að komast inn í þessa grein eins og aðrar, vinni skaða á sjúklingum og grein- inni sjálfri, vegna takmarkaðrar þekkingar og geti starfað til hliðar við lögin þar sem ekkert eftirlit er haft með greininni. -PP Gunna Stína segir fólk ekki hrætt við nálastungulækningar þegar það kemur í fyrsta skipti til hennar. Það sé frekar forvitið. Því finnist stung- an kannski sársaukafull en svo verði það hissa þegar það áttar sig á að meðferðin sé búin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.