Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1996, Síða 38
LAUGARDAGUR 16. MARS 1996
46 sviðsljós
A -k hr
Samantha Mathis var með River Phoenix er hann dó:
Mætti ótrú-
legu mót-
læti en sigr-
aðist á því
- leikur aðalhlutverkið í einni af toppmyndunum sem
verður brátt sýnd hár
Samantha Mathis hefur nýlokið
við að leika sitt stærsta hlutverk
sitt til þessa í kvikmyndinni Broken
Arrow sem tekin verður til sýninga
hér á landi innan skamms. Auk
Samönthu leika stórstjörnurnar
John Travolta og Christian Slater í
þessum spennutrylli Johns Woo.
Samantha, sem er 25 ára, hefur
leikið í nokkrum myndum til þessa.
Má þar nefna How to Make an
American Quilt, The Thing Called
Love, The American President og
Jack and Sara. I Broken Arrow sýn-
ir hún hins vegar á sér nýja hlið þar
sem hún fer með hlutverk kven-
hetju. Hún leikur skógarvörð í
Montana sem kemur orrustuflug-
manni, sem leikinn er af Christian
Slater og reyndar eitt sinn var kær-
asti hennar, til bjargar. Christian
var svikin af áhafnarfélaga sínum
sem komst yflr kjarnorkuvopn og
ætlar að selja þau.
„Þetta er eitt af þeim hlutverkum
sem skjóta manni upp á stjörnuhim-
ininn í Hollywood," segir Samantha
og hlær en henni og vinkonu henn-
ar, Söndru Bullock, finnst þessi um-
sögn um hlutverk hennar mjög
fyndin því það var einmitt hlutverk
sem þetta sem gerði Söndru fræga.
Samantha lék sjálf í flestum sín-
um áhættuatriðum. Mörgum kann
Samantha, sem er 25 ára, hefur leikið í nokkrum myndum til þessa. Má þar
nefna How to Make an American Quilt, The Thing Called Love, The Americ-
an President og Jack and Sara.
„í dag hef ég áttað mig á því hvað er mikilvægt í lífinu: fjölskyldan mín og
vinir- þeir sem elska mig. Ég held ég hafi reynt of mikið að sýnast óháð öðr-
um og sjálfri mér nóg en ég er hætt því öllu. Mér er sama hvað öðrum finnst
í dag,“ segir Samantha Mathis sem leikur í Broken Arrow.
að finnast mikið til um það en þeir
sem til þekkja segja það smámuni
miðað við það sem á undan er geng-
ið í lífi Samönthu. Hún var einmitt
með kærastanum sínum, River
Phoenix, þegar hann dó af völdum
eiturlyfja fyrir utan veitingastað í
Hollywood árið 1993. Pressan fór
einnig iila með Samönthu fyrstu
dagana á eftir og um svipað leyti
greindist móðir hennar með krabba-
mein og þurfti að ganga í gegnum
erfiða lyfjameðferð.
Sex myndir
á tveimur árum
„Ánægjulegasti dagur í lífl mínu
tU þessa var þegar læknar sögðu
mér að þeir höfðu komist fyrir
krabbameinið í rnörnmu," segir
Samantha.
Þrátt fyrir alla þessa erfiðleika í
lífi sínu tókst henni að ljúka sex
kvikmyndahlutverkum á seinustu
tveimur árum, þar á meðal í Amer-
ican President og Jack og Sara.
„Það yndislega með Sammy er að
hún hefur ekki gefist upp þótt á
móti hafl blásið undanfarin tvö ár.
Það sem hún hefur gengið í gegnum
án þess að bugast hefði beygt marg-
an annan í duftið,“ segir Sandra
Bullock, vinkona Samönthu.
Samantha er ekki ólík ballerínu
úr Kirov-balletinum í vextinum.
Eini þrýstni hluti hennar eru var-
irnar sem eru þykkar og blóðríkar.
Þrátt fyrir að vera ekki burðug seg-
ir Christian Slater, sem nú er góður
vinur hennar, að hún sé ótrúlega
sterk og heilsteypt manneskja.
Samantha segir að sá dagur líði
ekki að hún hugsi ekki um River en
þau kynntust þegar hún var 19 ára
og þau léku saman í myndinni A
Thing Called Love. „Hann var uppá-
tektarsamur og hamingjusamur,"
segir hún en viðurkennir um leið að
hún hafi vitað um það flkniefna-
vandmál sem River átti við að etja.
„Ég gerði mitt besta til að hjálpa
honum," segir hún í sjálfsásökunar-
tón og bætir við að hún hugsi oft
hvað hún hefði getað gert annað til
að breyta því sem varð.
Samantha brást við dauða Rivers
með því að hella sér í vinnu og
hleypa þannig ekki tilfinningunum
upp á yfirborðið. „Þetta var mín leið
til að þurfa ekki að fást við vanda-
rnálið," segir hún en á sama tíma
stundaði hún samkvæmislíflð stíft,
eins og ekkert hefði í skorist, og
hitti flölda karlmanna. Á meðan á
tökum The American President stóð
brotnaði hún svo niður en náði sér
þó af sjálfsdáðum á ný.
Forgangsröðin á hreinu
„í dag hef ég áttað mig á því hvað
er mikilvægt í lífinu: fjölskyldan
mín og vinir - þeir sem elska mig.
Ég held ég hafi reynt of mikið að
sýnast óháð öðrum og sjálfri mér
nóg en ég er hætt því öllu. Mér er
sama hvað öðrum finnst í dag,“ seg-
ir hún.
Samantha fæddist í New York
árið 1970. Foreldrar hennar skildu
þegar hún var þriggja ára en móðir
hennar er leikkona og sömu sögu
var að segja af ömmu hennar. Sam-
antha, sem ólst upp á tökustað og í
leikhúsum, ætlaði sjálf að verða
slökkviliðs- eða körfuboltamaður.
„Það var ekki fyrr en nýlega sem ég
áttaði mig á því að ég gæti haft í
mig og á með þvi að leika.“
Bros-Bolir
Síðumúla 33 • S: 581 4141
Þú kemur með hugmynd - Við sjáum um afganginn - Snöggir & áreiðanlegir
Ólyginn sagði...
. . .að Dudley Moore hefði
verið hætt kominn um daginn
þegar hann keyrði út af ísuðum
vegi í Colorado. Bíllinn hrapaði
niður snarbratta hlíð en til allr-
ar hamingju var kranabíll rétt
á eftir Dudley. Hann sagði að
hann hefði frosið í hel ef hjálp-
in hefði ekki komið til því 20
stiga frost var úti.
. . .að Patsy Kensit hefði náð
sér í nýjan gaur og sagt skilið
við Jim Kerr eftir fjögurra ára
hjónaband og eitt barn. Sá nýi
heitir Liam Gallagher en hann
er í hljómsveitinni Oasis.
. . .að Tori Spelling, úr sjón-
varpsþáttunum Beverly Hills
90210, hefði einnig náð sér í nýj-
an stegg eftir að hún sparkaði
Jamie Walters sem leikur í
sömu þáttum. Tori heldur sig
við súkkulaðisætu sjónvarps-
þáttakappanna en sá nýi heitir
Patrick Muldoon og leikur í
Melrose Place.
. . .að Melanie Griffith hefði
miklar áhyggjur af manni sín-
um, Antonio Banderas. Karlinn
hennar leikur nú á móti
Madonnu í kvikmynd um Evitu
Peron en eins og kunnugt er
lýsti Madonna eitt sinn yfir op-
inberlega að hún vildi sænga
með Banderas. í ljósi þessa
reynir Melanie að eyða sem
mestum tíma á tökustað með
sínum heittelskaða.
. . .að Alicia Silverstone, sem
lék í Clueless, heföi nýverið
skrifað undir 600 milljón króna
kvikmyndasamning. í Clueless
leikur Alicia fata- og skemmt-
anasjúka ungpíu sem er akk-
úrat andstæða þess sem hún er
I eigin daglegu lifi.
- '■ .