Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 26.03.1996, Blaðsíða 33
ÞRIÐJUDAGUR 26. MARS 1996 DV Kór Vídalínskirkju ásamt ein- söngvurum, einleikara og stjórnanda. Föstutónleikar Kór Vídalínskirkju í Garðabæ undir stjórn Gunnsteins Ólafs- sonar gengst fyrir föstutónleik- um í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd í kvöld kl. 21 og í Garðakirkju á Álftanesi annað kvöld kl. 20.30. Flytjendur auk kórsins eru Marta Halldórs- dóttir, sópran, Guðrún Edda Gunnarsdóttir, mezzosópran, Einar Clausen, tenór, Eirikur Hreinn Helgason, bassi, Lenka Mátéova, organleikari, og Kammersveit Vídalínskirkju, sem skipuð er barokkhljóðfæra- leikurum. íslensk einsöngslög í kvöld verða tónleikar í Lisiasafni Kópavogs - Gerðar- safni. Sigrún Hjálmtýsdóttir og Jónas Ingimundarson munu flytja íjölþætta efnisskrá ís- lenskra einsöngslaga. Sýningar Skólakórar í Borgarleik- húsinu Þrír helstu barnakórar lands- ins koma saman í Borgarleik- húsinu í kvöld og halda tón- leika. Þetta eru Gradualekór Langholtskirkju, Kór Öldutúns- skóla og Skólakór Kársness. Kórarnir munu syngja hver fyr- ir sig en stærsti hluti tónleik- anna verður þegar kórarnir syngja saman, alls 120 börn. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30. Vortónleikar Skóla- hljómsveitar Kópavogs veröa haldnir í Digranes- kirkju í kvöld kl. 20. Fram koma liðlega 100 ungir hljóðfæraleik- arar í þremur hljómsveitum og flytja lög úr ýmsum áttum eftir höfunda á borð við George Gers- hwin, Andrew Lloyd-Webber og Georges Bizet. Stjórnandi er Össur Geirsson. Kirkjan og ríkið Opinn fundur um samband ríkis og kirkju verður haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag kl. 16.30. Framsögumenn eru: Bald- ur Kristjánsson, Kristín Ást- geirsdóttir, sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson og Eðvarð T. Jóns- son. Fundarstjóri er Mörður Ámason. ITC-deildin Harpa Fundur í kvöld kl. 20 að Sigt- úni 9. Samkomur Wagner og slensk fornrit í kvöld verður fundur um tengsl Richards Wagners og tón- smíða hans við íslenskar bók- menntir í Norræna húsinu kl. 20.30. Erindi halda Árni Björns- son, Þorsteinn Gylfason og Jó- hannes Jónasson. Milli erinda verða flutt tóndæmi. Tvímenningur verður í kvöld kl. 19 að Gjá- bakka, Fannborg 8. Kvenfélag Hreyfils Aðalfundur verður í Hreyfils- húsinu í kvöld kl. 20. Vortónleikar Fóstbræðra í Langholtskirkju: Þverskurður af íslenskri tónlist fyrir karlakóra Fóstbræöur verða með ferna tónleika f Langholtskirkju. í kvöld eru fyrstu vortónleik- ar Fóstbræðra í árlegri tónleika- röð sem nú er haldin í áttugasta skipti. Eins og undanfarin ár eru þeir haldnir í Langholts- kirkju. Á þessum tónleikum er laga- valið fjölbreytt og víða leitað fanga. Það einkennist þó fyrst og fremst af íslensku efni og segja má að það sé á vissan hátt þverskurður af íslenskri tónlist fyrir karlakóra, allt frá þjóðlög- um til tónverka eftir nútimahöf- Skemmtanir unda. Meðal íslensku laganna eru tvö lög sem markað hafa tímamót í sögu kórsins. Það fyrra er Skarphéðinn í brenn- unni eftir Helga Helgason, sem var fyrsta lag á fyrstu opinberu samsöngvum kórsins í Bárunni 25. mars 1917. Hið síðara er Kveöi, kveði eftir Jón Nordal úr lagaflokki hans Sjö lög við mið- aldakveöskap, sem hann samdi sérstaklega fyrir kórinn og var frumfluttur á afmælistónleikum 1956. Þá eru á efnisskránni amerísk- ir negrasálmar og lög úr söngleikj- um. Tónleikarnir verða í kvöld og næstu tvö kvöld kl. 20.30 og þeir síð- ustu laugardaginn, 30. mars kl. 15.30. Söngstjóri er Ámi Harðarson. Einsöngvarar eru allir úr kómum. Hálka á heiðum Það er góð færð á vegum og allir helstu þjóðvegir landsins færir en nokkur hálka er á heiðum á Vest- fjörðum og Austfjöröum. Nokkur snjór er á vegum sem liggja hátt. Fyrir vestan er Eyrarfjall ófært Færð á vegum vegna snjóa og einnig Dynjandis- heiði. Á leiðinni Kollafjörð- ur-Flókalundur er þungfært og há- marksþungi 2 tonn á hluta leiðar- innar og verið er að vinna við að lagfæra Flateyrarveg. Á Suðurlandi er snjór á leiðunum Suðurlandsveg- ur-Galtalækur og Galtalækur-Sult- artangi. Verið er að vinna við Skál- holtsveg og ættu bflstjórar sem þar fara um að sýna aðgát. Ástand vega E3 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát 0 Öxulþungatakmarkanir Q} LokaörStÓðU ® Þungfært 0 Fært fjallabílum Dóttir Sigríðar og Dariuz Litla telpan sem á myndinni sef- ur vært fæddist á fæðingardeild Landspítalans 18. mars kl. 1 eftir Barn dagsins miðnætti. Hún var 2810 grömm að þyngd þegar hún var vigtuð og 50 sentímetra löng. Foreldrar hennar em Sigríður Anný Axelsdóttir og Dariuz Jaquseak. Baltasar Kormákur leikur heildsalann Gunnar sem sést hér virða fyrir sér vörur sínar. Draumadísir Nýjasta íslenska kvikmyndin Draumadísir, sem Ásdís Thor- oddsen leikstýrir, var frumsýnd í Stjörnubíói í síðustu viku. Draumadísir er gamansöm Reykjavíkursaga um tvær tví- tugar vinkonur sem takast á við drauma sína í viðsjárverðu um- hverfi íslensks hversdagslífs og nútímalegra viðskiptahátta. Áuk þess að leikstýra myndinni skrif- aði Ásdís Thoroddsen handritið. Stöllurnar Steina og Styrja eru leiknar af Silju Hauksdóttur og Ragnheiði Axel. Baltasar Kor- mákur leikur heildsalann Gunn- ar, sem þær báðar verða hrifnar af. Hann er þeirra draumaprins sem þær setja ofar öllum öðrum, en reynist svo aðeins venjulegur Kvikmyndir braskari með allt niðri um sig. Margrét Ákadóttir leikur móður Steinu, drykkjumanneskju sem ekki er fær um að sjá um heim- ilið, Bergþóra Aradóttir leikur systur hennar, sem býr sér til eigin veröld eins og systir henn- ar, Ragnhildur Rúriksdóttir leik- ur Völu, bókara Gunnars sem reynir að ná undir sig fyrirtæk- inu og Magnús Ólafsson er við- skiptafélagi hans. Nýjar myndir Háskólabíó:Skrýtnir dagar Háskólabíó: Dauðamaður nálgast Laugarásbíó: Nixon Saga-bíó: Babe Bíóhöllin: Faðir brúðarinnar II Bíóborgin: Cobycat Regnboginn: Á förum frá Vegas Stjörnubíó: Draumadísir Gengið Almennt gengi LÍ 26. mars 1996 kl. 9.15 Eininq Kaup Sala Tollnenqi Dollar 66,080 66,420 65,900 Pund 100,530 101,040 101,370 Kan. dollar 48,500 48,800 47,990 Dönsk kr. 11,5820 11,6430 11,7210 Norsk kr. 10,2850 10,3410 10,3910 Sænsk kr. 9,9890 10,0440 9,9070 Fi. mark 14,3630 14,4480 14,6760 Fra. franki 13,0610 13,1350 13,2110 Belg. franki 2,1759 2,1889 2,2035 Sviss. franki 55,4200 55,7300 55,6300 Holl. gyllini 39,9600 40,2000 40,4700 Þýskt mark 44,7300 44,9500 45,3000 ít. líra 0,04236 0,04262 0,04275 Aust. sch. 6,3570 6,3960 6,4450 Port. escudo 0,4327 0,4353 0,4364 Spá. peseti 0,5317 0,5350 0,5384 Jap. yen 0,62280 0,62650 0,63330 jrskt pund 103,600 104,240 104,520 SDR 96,44000 97,02000 97,18000 ECU 83,0000 83,5000 Simsvari vegna gengisskráningar 5623270 Krossgátan i r~ r H- lo 7- 8 10 ii 'tr IT" rr J W J * 17- 1 * 20 Lárétt: 1 hissa, 7 mælir, 8 kantur, 10 skömm, 11 starf, 13 al, 14 gauðið, 16 fisk, 17 gruna, 18 hviða, 20 heilagfiskið. Lóðrétt: 1 viljugir, 2 maðk, 3 fiktar, 4 venja, 5 ötull, 6 rykkom, 12 skartgrip- urinn, 13 úrgangur, 15 fæða, 17 mynni, 19 klafi. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 spjót, 6 ól, 8 kaupið, 9 árla, 10 fas, 12 kolla, 14 gá, 15 æru, 16 skot, 18 skrölta, 20 tafl, 21 ógn. Lóðrétt: 1 skák, 2 par, 3 jullur, 4 óp- als, 5 tifa, 6 óðagot, 7 læ, 11 sátan, 13 orka, 15 æst, 17 kló, 19 öl.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.