Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 5
„...HVETJUM FULLORÐIMA TIL AÐ VELJA FITULITLAR MJÓLKURVÖRUR" Það er engin einhlít uppskrift til að heilsusamlegu matarœði. Fœðuval erbundið staðháttum og menningu ólíkra þjóða og þörfum hvers og eins. í fœði flestra íslendinga gegna mjólk og mjólkurvörur mikilvœgu hlutverki. Þœr eru þó aðeins hluti af stœrri heild, því engin fœðutegund er í rauninni holl sé hennar neytt eingöngu eða í óhófi. Leiðin til heilsusamlegs matarœðis er alla jafna fólgin í fjölbreytni ogjafnvœgi ífœðuvali fremur en ofuráherslu á einstakar fœðutegundir eða flokka þeirra. íslensk manneldismarkmið Manneldismarkmið eru sett af Manneldisráði íslands sem er opinber stofnun á vegum heilbrigðisráðuneytisins. Pau eru ábendingar um heilsusamlegt mataræði þar sem tekið er mið af nýjustu rannsóknum í næringarfræði, heilsufari þjóðarinnar og innlendum framleiðsluháttum. Markmiðin eru sett í þeim tilgangi að efla heilbrigði almennings og miðast við venjulegar þarfir heilbrigðra einstaklinga frá tveggja ára aldri. Orkuþörf Orkuþörf einstaklinga er mismikil og ræðst m.a. af aldri, kyni, líkamsþyngd og líkamshreyfingu. Með þessum fyrirvara má áætla að meðalorkuþörf 5 ára barns sé um 1700 hitaeiningar (Kkal) á dag, stúlkur og konur á aldrinum 11 -60 ára þurfa nálega 2000, en drengir og karlar á sama aldri þurfa 2300-2800 hitaeiningar á dag. Mikilvægt er að heildarneysla einstaklingsins sé í samræmi við orkuþörf hans, því annars er hætta á offitu og tilheyrandi heilsufarsvandamálum. Prótein fæst m.a. úr fiski, kjöti, eggjum og mjólkurvörum en einnig baunum, ertum og kornvörum. í ávöxtum, grænmeti, kornvörum, grjónum og baunum er mikið af kolvetnum en lítið af fitu. Fínunninn sykur telst til kolvetna en er snauður af bætiefnum og slæmur fyrir tennurnar og ætti ekki að veita nema í mesta lagi 10% orkunnar. Hæfileg fita fæst með því að nota fituskertar mjólkurvörur og stilla notkun viðbits, feitrar kjötvöru og fitu við matargerð nokkuð í hóf. Hörð fita hækkar kólesteról og eykur þar með hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum. Því er ekki æskilegt að meira en 15% daglegrar orkuþarfar sé fullnægt með orku úr harðri fitu. Trefjar og salt Æskilegt er að neysla fæðutrefja sé að minnsta kosti 25 grömm á dag miðað við 2500 hitaeininga fæði. Treflarfást einkum úr kornvörum, grænmeti og ávöxtum. íslendingar borða talsvert minna en æskilegt getur talist af grænmeti og ávöxtum. Neysla á matarsalti ætti ekki að vera yfir 8 grömmum á dag fyrir fullorðna. Mikil saltneysla getur átt þátt í að hækka blóðþrýsting, því ætti að stilla neyslu á saltmeti í hóf og takmarka notkun salts við matreiðslu og borðhald. Fjölbreytni Engin ein fæðutegund, hversu holl sem hún er talin, inniheldur öll nauðsynleg næringarefni í hæfilegum hlutföllum. Fjölbreytni í fæðuvali og ferskt og gott hráefni minnka líkurnar á því að einhver fæðuefni skorti í daglegt mataræði okkar. f'teyt spetulýr þurj'ti C-vítatníu Vítamín eru lífrœn efni sem erit nauðsynleg dýrum í litlum mœli en myndast ekki í líkama þeirra. Þess vegna verða vítamínin að kotna úr fœðunni. Vítamínskortur veldur hörgulsjúkdómum og eru sumir þeirra mjög alvarlegir. Flestir munu kannast við C-vítamín en skortur á því veldur skyrbjúg og öðrutn kvillum. Fœrri vita að maðurinn er einn örfárra lífvera sem þurfa C-vítamín úr fœðunni. Af öðrum spendýrum þurfa aðeins apar og naggrísir C-vítamín og einungis er vitað um örfáar tegundir vatnafiska og skordýra sem ekki framleiða sitt eigið C-vítamín. Aðrar lífverur þurfa einfaldlega ekki C-vítamín úr fœðunni. Afþessum sökum er mun meira C-vítamín í móðurmjólk en kúamjólk! Konur og kalkneysla Kannanir hafa sýnt að margar unglingsstúlkur og konur drekka litla mjólk. Þannig fær fjórða hver unglingsstúlka minna en ráðlagðan dagskammt af kalki daglega og ástandið er lítið betra hjá þeim konum sem náð hafa fullorðinsaldri. Konum um og eftir tíðahvörf er þó sérlega mikilvægt að auka kalkneyslu sína, þar sem minnkuð framleiðsla estrógens dregur úr nýtingu kalksins í fæðunni. Á þessu æviskeiði hefst beinþynning sem getur valdið verulegum heilsufarsvanda síðar á ævinni. Hér ráða áhyggjur af aukakílóum líklega miklu. Því er rétt að minna á að fitulitlar mjólkurvörur innihalda sama magn af kalki og aðrar mjólkurvörur. Með því að velja fitulitlar mjólkurvörur er því hægur vandi að fá ráðlagðan dagskammt af kalki án óþarfrar þyngdaraukningar. Æskilegt fœði á hverjum degi: Samsetning fœðunnar Orkan sem við þurfum kemur úr kolvetni, próteini og fitu. Hæfilegt er talið að samsetning fæðunnar sé þannig að prótein veiti a.m.k. 10% af heildar- orku dagsins, kolvetni 50-60% og fita 25-35%. HLUTFÖLL ORKUEFNA ÍSUiNSKT I'AtDI MANNKI.DISMAHKMID INiðurstööur rannsúkna 1990) Til almennrar viðmiðunar má segja að nægileg járnupptaka verði varla tryggð nema kjöt, fiskur eða önnur járnrík matvæli séu hluti af daglegri fæðu. Illmögulegt er að fá æskilegt magn trefja án þess að borða grænmeti, ávexti og gróft brauð á hverjum degi, auk kartaflna. Og erfitt mun V reynast að fá ráð- . ‘ 7/\>' lagðan dagskammt V "' \\ af kalki úr fæðunni án þess að drekka __ ®f/f tvö til þrjú glös af mjólk á dag eða sambærilegt magn mjólkurmatar. ___ BRAUO 06 /* fj> Tvö til þrjú glös af mjólk eða sambærilegt magn mjólkurmatar. A.m.k. 100 g af grænmeti auk kartaflna. Einn til tveir ávextir - Fiskur, kjöt, egg eða baunir. Gróf brauð eða annar kornmatur. Helstu heimildir: Laufey Steinarlmsdóttir o.fl.: Könnun á mataræði íslendinga 1990 (Manneldisráð Islands, 1991 -’92); Hvað borðar íslensk æska? (Manneldisráð íslands, 1993). Manneldisráð íslands: Manneldismarkmið. 1994. MJÓLK ER GÓÐ ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR HVÍTA HÚSIÐ / SÍA GSP ALMANNATENGSL LJÓSM : LÁRUS KARL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.