Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 6
Viðskipti
Kerfisgerðin kynnir nýjung á tölvumarkaðnum á heimsvísu:
Fyrsta verslunin í
þrívídd á Internetinu
- vísir að nokkurs konar Kringlu í tölvutæku formi
Tölvufyrirtækiö Kerfisgerðin hef-
ur sett á Internetið fyrstu verslun-
ina í þrívídd sem íslenskir jafnt sem
erlendir tölvunotendur hafa aðgang
að. Boðið er upp á þrívíddarmyndir
í svonefndum sýndarveruleika af
verslunarhúsnæði þar sem við-
skiptavinir geta valið sér vörur af
handahófi. Til að byrja með býður
Kerfisgerðin upp á Álafosspeysur
frá ístex í Mosfellsbæ og hefur ver-
ið búin til eftirlíking af Álafosshús-
inu að inna. Ætlunin er að fjölga
verslunum, gera þetta að nokkurs
konar Kringlu á Internetinu.
Eyjólfur
K. Eyjólfs-
son, fram-
kvæmda-
stjóri Kerf-
isgerðar-
innar, sagði
í samtali
við DV að
sér vitan-
lega væri
hvergi í
heiminum
boðið upp á
verslun af þessu tagi á Internetinu.
Frá þvl verslunin, The City of Kerf-
isgerðin-Shop, setti heimasíðu í
gang hafa 11 þúsund manns skoðað
verslunina. Eyjólfur sagði að væri
þetta um eitt þúsund manns á dag
að meðaltali. Viðbrögðin lofuðu því
góðu. Rétt er að taka strax fram að
tölvunotendur þurfa að lágmarki að
hafa Windows95 eða Windows NT
til að komast inn.
„Undirbúningur hefur staðið yfir
bæ.
frá 1994 og við höfum yfirstigið
tæknilega erfiðleika. Þetta er sýnd-
arveruleiki á Interneti, fyrstur sinn-
ar tegundar í heiminum. Núna geta
menn skoðað Álafosshúsið sem
virkar eins og gallerí. Þú getur far-
ið uih húsið og skoðað myndir á
veggnum af Álafosspeysum. Hverri
mynd fylgja síðan upplýsingar um
verð og annað sem skiptir máli. Við
stefnum að því að geta sett inn hljóð
þannig að rödd þylji upp allar
helstu staðreyndir um vöruna. Auð-
vitað er markmiðið með þessu að
selja vöru og þjónustu en þar sem
þetta er nýjung eru menn aðallega
að forvitnast inn á Internetinu um
þetta,“ sagði Eyjólfur.
Að sögn Eyjólfs er Kerfisgerðin
að undirbúa annað hús í þrívídd á
Internetinu sem kallast Wild Thing.
Þar verður tækninni gefinn laus
taumur og boðið m.a. upp á bíó-
myndir með fullkomnu hljóði og
hreyfingu.
Vantar bara bragö og lykt
„Við ætlum okkur ekki bara að
bjóða upp á verslanir. Við getum
tekið dæmi af Kringlunni. Þar eru
leiktækjasalir og matsölustaðir og
stutt í skemmtistaði. Þetta er nokk-
uð sem auðveldlega er hægt að
bjóða á Internetinu. Eina sem vant-
ar í rauninni er bragð og lykt,“
sagði Eyjólfur.
Áhugi fyrir sýndarveruleika-
verslunum á Interneti hjá Kerfis-
gerðinni hefur breiðst út um heim.
Að sögn Eyjólfs hafa fyrirspurnir
borist frá Bandaríkjunum, Kanada,
Evrópu og Asíu um að senda út
sýndarveruleika á samtengda net-
þjóna fyrir nýjustu heimilistölvu-
forritin.
Verslunin á Internetinu hefur
tvær slóðir sem eru eftirfarandi:
http://www.ismennt.is/fyr-
stofn/kerfisg/welcome.html
eða
http://205.160.235.25/city.html
Undur og stórmerki á hlutabréfamarkaði:
Þingvísitalan lækkaði!
Þorsteinn í kókið
Þorsteinn M. Jónsson hagfræð-
ingur hefur hafið störf sem fram-
kvæmdastjóri Vífilfells. Hann tekur
við starfi sem hefur að formi til ver-
ið laust frá því Páll Kr. Pálsson fór
til Sólar. Þorsteinn lauk MA- prófi í
hagfræði áriö 1991 frá Northwestem
University í Bandaríkjunum. Frá
ársbyrjun 1994 starfaði hann hjá
Samtökum iðnaðarins. -bjb
Fundir og ráðstefiiur
Höíum
sali sem
henta
fyrir alla
fundi og ráðstefnur
5687111
Þau undur og stórmerki gerðust í
síðustu viku að hlutabréfaverð
lækkaði. Eftir stöðuga hækkun frá
áramótum lækkaði þingvísitala
hlutabréfa milli vikna. Vlsitalan
náði hæst 1747 stigum í byrjun síð-
ustu viku en á skömmum tíma
lækkaði hún niður í 1714 stig. Mestu
munar um lækkun hlutabréfa
stórra félaga á borð við Eimskip,
Flugleiðir, Granda, íslandsbanka og
Olís. Örlítið hækkun varð reyndar á
þingvísitölunni núna í byrjun
dymbilviku, þegar talan fór í 1716
stig, en viðskipti voru mjög óveru-
leg sl. mánudag.
Hlutabréfaviðskiptin í síðustu
viku námu 101 milljón króna. Af
einstökum félögum var mest keypt
af hlutabréfum Nýherja eða fyrir
tæpar 20 milljónir króna. Næst-
mestu kaupin voru með Flugleiða-
bréf, upp á tæpar 19 milljónir, og
þar á eftir kom SÍF með 11,6 millj-
óna viðskipti.
Fiskur lækkar ytra
Þrátt fyrir fóstu og kúariðu lækk-
aði fiskverð að meðaltali milli vikna
í skipa- og gámasölu í Þýskalandi og
á Englandi. Yfirleitt hefur fiskverð
hækkað um þetta leyti vegna mikill-
ar eftirspurnar. Fjórir togarar lönd-
uðu afla sínum í Bremerhaven í síð-
ustu viku og núna á mánudaginn
seldi Skagfirðingur SK 186 tonn fyr-
ir 18,7 milljónir króna. Bestu söl-
unni í síðustu viku náði Hegranes
SK þegar 167 tonn seldust fyrir 24,4
milljónir. Viðey RE seldi 240 tonn
fyrir 23,9 milljónir, Dala- Rafn 147
tonn fyrir 19,2 milljónir og Björgúlf-
ur EA fékk 22,4 milljónir fyrir 157
tonn. Uppistaða aflans hjá öllum
togurunum var karfi. I gámasölu í
Englandi seldust 340 tonn fyrir 48
milljónir króna.
Staðgreiðsluverð áls á heims-
markaði hefur lækkað örlítið á síð-
ustu dögum en markaðssérfræðing-
ar spá stöðugu verði á næstunni.
Ekki er talið að tonnið fari undir
1.600 dollara í bráð.
Gengi helstu gjaldmiðla hefur
tekið óverulegum breytingum að
undanfórnu. Helst er að japanska
jenið heldur áfram að lækka, sölu-
gengið var 0,6197 krónur í gærmorg-
un.
-bjb
MIÐVIKUDAGUR 3 ' APRÍL1996
Grandi eykur
hlut I Þormóði
ramma
Hlutafjárútboði upp á 100 millj-
ónir króna í Þormóði ramma á
Siglufirði er nýlega lokið. Hluthaf-
ar nýttu sér forkaupsrétt til fulls
og því fara engin bréf á markaö.
Bréfin seldust á genginu 3,75 eða
fyrir 375 milljónir að söluvirði.
Hlutafé Þormóðs ramma eftir
hlutafjáraukninguna nemur nú
rúmum 600 milljónum króna. Mið-
að við núverandi gengi er verð-
mæti hlutabréfanna rúmir 2,2
milljarðar króna.
Af þessum 100 milljónum jók
Grandi hlut sinn mest í fyrirtæk-
inu og er nú með 23,1% hlut, var
áður með 22,1% hlut. Grandi er
áfram næststærsti hluthafinn en
bilið hefur minnkað á milli þess og
Marteins Haraldssonar og fjöl-
skyldu. Fyrir útboðið var hlutur
Marteins 28,5% en er nú 23,8%. í
hópi 25 stærstu hluthafa voru það
einkum hlutabréfa- og lífeyrissjóð-
ir sem tóku þátt í útboðinu og juku
sinn hlut.
Hraðfrystihús
Eskifjarðar
bætir afkomu
Hraðfrystihús Eskifjarðar jók
hagnað á síðasta ári um 22% mið-
að við árið 1994. Síðasta ár skilaði
181 milljónar króna hagnaði en
árið áður var hagnaðurinn 148
milljónir. Aukinn hagnað má fyrst
og fremst rekja til bættrar afkomu
nótaskipa félagsins og loðnuverk-
smiðju en afkoma í bolfiskvinnslu
versnaði verulega.
Hraðfrystihús Iiskifjarðar gerir
út 3 nótaskip og 2 ísfisktogara, ann-
an i félagi við Reyðfiröinga. í landi
rekur félagið frystihús, rækjuverk-
smiðju, loðnuverksmiðju og salt-
fiskverkun, ásamt ýmsum stoð-
deildum. Að meðaltali störfuðu 250
manns hjá félaginu í fyrra og
námu launagreiðslur 525 milljón-
um króna. Eiginíjárhlutfall i árs-
lok var 22% en 19% i ársbyijun í
fyrra. Arðsemi eigin fjár minnkaði
úr 38 i 31%. Aðalfundur félagsins
verður haldinn 23. maí nk. Af-
komuhorfúr á þessu ári eru sagöar
mjög góðar þar sem yfirstandandi
loðnuvertíð hefúr slegið öll met í
sögu félagsins hvað magn og tekjur
varðar.
123 milljóna
tap hjá Seóla-
bankanum
Á síðasta ári varð 123 milljóna
króna tap af rekstri Seðlabankans.
Þetta kom fram á ársfundi bankans
í síðustu viku. Afkoman versnaði
um 251 milljón þar sem 128 millj-
óna króna hagnaður varð árið 1994.
Fyrir skatta var 681 milljónar
hagnaður á síðasta ári samanborið
viö 1.325 milljóna hagnað árið 1994.
Skattgreiðslur til bankans námu
805 milljónu króna á síðasta ári en
1.197 milljónum árið áður. Rekstr-
arkostnaður bankans nam 651
milljón í fyrra sem er 1,5% aukn-
ing milli ára.
Varnir gegn
innbrotum á
Interneti
Tölvufyrir-
tækiö Tákn
og Securitas
hafa tekið
upp sam-
vinnu á sviði
tölvuörygg-
ismála. í
framhaldi af
því hefur
Securitasboðið viðskiptavinum sín-
um ókeypis úttekt á þeim þætti ör-
yggismála sem varðar tölvubúnað
og nýtur við það þjónustu Tákns
sem hefur sérhæft sig í uppsetningu
og þjónustu á öryggisbúnaði fyrir
tölvur. Hér eru forráðamenn fyrir-
tækjanna að staðfesta samstarfs-
samninginn.