Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Síða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 JLlV Það var gott að vakna mánu- dagsmorguninn 1. apríl, fallegt veður og vorlykt í lofti. Við sem búum efst í Breiðholtinu fáum oft að sjá fallega morgna, með borgina alla að fótum og frjálsa náttúruna og fjallasýn í kringum okkur. Ég vaknaði því vel, átti góðan sunnudag að baki með tveimur íjölmennum fermingum og góðum stundum með skemmtilegu fólki og hafði því lagst þreyttur og sæll til svefns. Reyndar ætti mánudag- urinn að vera skilgreindur sem frí- dagur hjá presti en dymbilvikan fram undan með öllu sem þar fylg- ir. Það þýðir ekkert að tala um fri þá. Það var því ekki um annað að ræða en hafa sig snemma á vinnu- stað og á skrifstofuna í kirkjunni var ég kominn um kl. 8. Það er gott að koma snemma til þess að raða niður verkefnum dagsins, eins gott að hafa þar allt á sínum stað því stundum er kapphlaup við tímann. Við prestarnir komum líka að svo ólíkum hlutum. Kannski er ekkert starf jafn fjölbreytilegt og það sem við fáum að sinna, stundum það skemmtilegasta og yndislegasta, stundum það sem erfiðast er alls. Valgeir Ástráðsson, sóknarprestur í Seljasókn. DV-mynd BG Dagur í lífi Valgeirs Ástráðssonar, sóknarprests í Seljasókn: líka að undirbúa guðsþjónusturn- ar mörgu sem fram undan eru. Að- eins komst ég til að lesa. Það verða allir þeir að gera sem margar ræð- ur þurfa að semja. Það er oft mjög flókin vinna að semja einfalda ræðu. En þá var líka liðið á daginn. Á Rótarýfund fór ég. Venjulega borða ég þar en ekki þetta kvöld því meira stóð til. Það var von á góð- um gestum heima. En áður en þeir komu skrapp ég upp í hesthús. Við Heiða, konan mín, höfum alltaf átt hross og njót- um þess ómælt að ríða út bæði sumar og vetur. Landsvæðið fyrir ofan Reykjavík er líka þvílík úti- vistarparadís að þar er fátt líkt. Þetta kvöld hafði ég ekki ætlað mér að fara á bak. En þegar ég var kominn upp eftir stóðst ég það ekki. Er heim kom voru þar góðar vinkonur okkar hjónanna þær Margrét í Geldingaholti og Sigrún á Syðri- Grund. Þær áttu með okk- ur góða kvöldstund. Góða vini er gott að eiga. Rólegt kvöld og lang- ur dagur að baki. Reyndar hringdi góður vinur minn, enskur prestur, og þurfti Annir í starfi vegna paska Það beið mín líka þennan dag eins og flesta aðra, byrjaði á því að taka á móti manni sem ég hafði gefið tíma snemma dags. Viðtölum þarf oft að sinna á ótrúlegustu tímum. Stórt verkefni morgunsins var að leggja síðustu hönd á handrit safnaðarblaðs Seljakirkju þar sem finna má fréttir af safnaðarstarf- inu og guðsþjónustuhaldi og er það borið í hvert hús í sókninni fyrir hátíðina. Þar varð að hafa hraðan á. Prentsmiðjan beið en mín beið lika allt annað verk - verulegt til- hlökkunarefni. Klukkan 10 voru börnin úr leik- skólum hverfisins komin til kirkj- unnar, með fóstrunum öllum. Hjá okkur er mjög gott samstarf leik- skólanna og kirkjunnar. Og oft dá- ist ég að því þegar litlu angarnir koma, fóstrurnar klæða úr og í, eins og ekkert sé, oft á annað hundrað börn í einu. Þegar þau svo koma inn í kirkjuna þá er það frábært. Kjartan organisti var mættur. Ég talaði um skírdag, fóstudaginn langa og páskana og við sungum öll af hjartans ein- lægni þannig að kirkjan okkar dunaði af söng. Stundum spyrja krakkarnir: „Er gaman að vera prestur?" Eftir stundir eins og þessa er ékki erfitt að svara. Það er nefnilega oft óhemjugaman að vera prestur. En áfram hélt. Ég var ekki fyrr kominn fram á skrifstofu aftur en síminn tók við og fólk kom ýmissa erinda. Við störfum þrír prestar við kirkjuna og reynum að sinna þörfum allra. Rétt fyrir hádegið varð örlítið hlé. Ég minntist þess þá að það var 1. apríl og mundi líka eftir þvf að tvö krakkanna minna: Jóhanna og Hjörtur, voru heima, komin í páskafrí. Ég gat ekki stillt mig um að láta þau hlaupa svolítið í tilefni dagsins og náði því ágætlega í gegnum símann, en sem betur fer þannig að við gátum öll hlegið að því. Fyrsta mánudag mánaðarins hittast prestar Reykjavíkurpró- fastsdæma á óformlegum hádegis- fundi. Nokkrir fundir höfðu fallið úr hjá mér svo þar varð ekki und- an vikist. En mikið er gott að hitta góða starfsfélaga og vini, þótt stundin sé stutt. Enda mátti ég ekki stansa lengi. Andstæðurnar í starfinu kölluðu á. Næst beið að standa við hlið syrgjenda á ákaf- lega erfiðri stund þar sem látinn ættingi kom utan af landi. Það er sumt sem er erfiðara en annað. Þannig er lífið. Starf prestsins er að minna á hjálp Guðs og það er oft það eina sem dugir. Og aftur á skrifstofuna þar sem biðu mörg skilaboð. Við vorum mikið að spjalla og segja mér margt. Mikil blessun er síminn þótt hann sé oft þreytandi. Langur dagur var að kvöldi kominn og margt um að vera. Þó var líklega hápunkturinn eftir. Dóttursonur minn og nafni, sex ára, kom með pabba sínum og mömmu. Sá stutti kom afa sínum heldur á óvart. Gat bara lesið svo- lítið. Það mátti ekki á milli sjá hvor Valgeirinn var ánægðari. Ég var því sæll og glaður þegar ég lagðist til svefns seint, vitandi það líka að ég er alltaf hressari á morgnanna en kvöldin. Finnur þú fimm breytingar? 353 Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og fyrstu getraun reyndust vera: 1. Kristján Þórarinsson Grettisgötu 20 b 101 Reykjavík 2. Soffía Guðmundsdóttir Eyrarvegi 27 600 Akureyri Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þeg- ar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilis- fangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegaranna. 1. verðlaun: ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr. 4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág- múla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1.790. Vinningarnir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú flmm breytingar? 353 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.