Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 15 Fréttir Stjórnskipuð nefnd um bætta samkeppnisstöðu Islands: Samkeppni er lausnarorðið - þriðjungur atvinnustarfsemi samkeppnislaus Katrín Ólafsdóttir, hagfræðingur í son, aðstoðarmaður fjármálaráð- íjármálaráðuneyti, og Þór Sigfús- herra. -SÁ Stjórnskipuð framkvæmdanefnd um bætta samkeppnisstöðu íslands gagnvart öðrum löndum hefur skil- að niðurstöðum og tillögum sínum. Nefndin telur að efla þurfi verulega samkeppni og frelsi í viðskiptum og á vinnumarkaði til þess að íslend- ingar dragist ekki fremur aftur úr öðrum þjóðum á þeim sviðum en orðið er. Gerð hefur verið fram- kvæmdaáætlun þar sem tilgreint er á hvaða sviðum og hvernig þurfi að gera breytingar í þjóðlífmu til að markmiðin náist. Nefndin telur að um þriðjungur atvinnustarfseminnar í landinu sé rekinn án þess að um nokkra sam- keppni sé að ræða. Það sé því höfuð- nauðsyn aö xoma henni á og efla í hvívetna og á öllum sviðum, ekki síst á fjármálamarkaði, í samgöng- um og fjarskiptum og í heilbrigðis- kerfinu. Auka verði einnig við- skiptafrelsi og markaðssókn á sem flestum sviðum. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði í gær að nauðsynlegt væri að styrkja samkeppnisstöðu ís- lands í alþjóðaviðskiptum og fleiri og fleiri væru að vakna til vitundar um það. Landamæri okkar væru nú opin og ekki gengi að íslendingar sætu eftir þegar lífskjör þjóðanna 1 kring færu batnandi. Nauðsynlegt væri að horfa tO framtíðar í þessum efnum og móta stefnu til næstu tveggja áratuga og hefði tilgangur- inn með starfi nefndarinnar einmitt verið að hjálpa til við að móta fram- tíðarsýn og nýja stefnu. Þá væri nú f fjármálaráðuneytinu unnið að gerð fjárlaga til lengri tfma en eins árs sem væri bæði nauðsynlegt og sjálfsagt þegar verðlag er orðið stöðugt. Framkvæmdanefnd um bætta samkeppnisstöðu íslands skipa Sig- urður Helgason, forstjóri Flugleiða, tilnefndur af fjármálaráðherra, Geir Magnússon, forstjóri Olíufélagsins hf., tilnefndur af iðnaðarráðherra, Guðmundur Magnússon, tilnefndur af menntamálaráðherra, og Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri KS á Sauðárkróki, tilnefndur af utanrík- isráðherra. Með nefndinni störfuðu Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri, Framkvæmdanefnd um bætta samkeppnisstöðu íslands og aðstoðarfólk ásamt fjármálaráðherra á Kaffivagninum í gær. Friðrik Sophusson fjármála- ráðherra, Sigurður Helgason kynna niðurstöður nefndarinnar.DV-mynd ÞÖK Allir Æskulínufélagar fá bol og veggspjald eftir páska! Það er skemmtilegt að spara í Æskulínu Búnaðarbankans. Þar fá allir félagar bæði vexti og verðlaun. Strax eftir páska fá allir Æskulínufélagar bol og veggspjald með myndum af „leikurum" úr Leikfangasögu (Toy Story) í sínu útibúi. NÝIR FÉLAGAR ERU VELKOMNIR Þeir sem vilja gerast félagar geta komið í næsta Búnaðar- banka og gengið í Æskulínuna með 1000 króna innleggi. Þá fá þeir afhentan bol og veggspjald - og að auki spari- bauk með Snæfinni eða Snædísi. SPARAÐU FYRIR VIÐBÓTARVERÐLAUNUM Þeir sem eru duglegir að spara í Æskulínunni eiga líka möguleika á ennþá fleiri glæsilegum verðlaunum. í hvert sinn sem spari- baukurinn er tæmdur BUNAÐARBANKINN Traustur banki og lagt er inn á Stjörnu- bók Æskulínu (lágmark 300 krónur í hvert skipti) fá krakkar flottan límmiða sem þeir safna. Þeir sem hafa lagt inn fimm sinnum hljóta óvænt og glæsileg verðlaun. Svo þú sérð að það er leikur að spara í Æskulínu Búnaðarbankans Foreldrafélög leikskóla: Börnum sé ekki misboðið Landssamtök foreldrafélaga leikskóla hafa sent fjölmiðlum bréf þar sem stjórnendur mynd- miðla eru hvattir til að misbjóða ekki börnum með því að birta ofbeldismengað myndefni. Samökin telja að foreldrar beri fyrst og síðast ábyrgð á upp- eldi barna sinna og beri að verja börn sín fyrir ofbeldi, þar með talið er ofbeldi sem myndmiðlar bera á borð. Þótt ógerlegt sé að sanna eöa afsanna skaðleg áhrif ofheldisefnis, þá sé víst að það sé óheillavænlegur uppeldisþáttur og eigendum og stjórnendum myndmiðla beri að láta börnin njóta vafans. Gera verði þá kröfu á hendur stjómendanna að þeir hafi skilning á misgóð- um aðstæðum foreldra til að vemda börn sín fyrir ofbeldis- efni og taki tíllit til þess og þar með til barna almennt þegar þeir raða niður efni á dagskrá miðlanna. -SÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.