Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 23
Ö"V MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996
23
hgjenning
Páskahret í
Hrafntinnuskeri
kraftur, gceði, ending
Eg get alveg tekið undir það, sem
ég heyrði einhvers staðar, að það
flokkist einna helst undir lífsstíl að
sækja sýningar Hugleiks og vera
áhangandi þessa sérstæða fyrirbær-
is í höfuðborgarmenningunni
En ef svo er, hvað þarf þá til að
taka þátt í sjálfri starfseminni?
Jú, það er náttúrlega best að vera
úr Svarfaðardalnum, en annars
skiptir hugarfarið
mestu máli, alveg
eins og hjá áhorf-
endum.
Og Hugleikarar
bregðast ekki
fremur en fyrri
daginn, því að nú er skollið á Páska-
hret í Tjamarbíói. Verkið mundi
einna helst flokkast undir spennu-
leikrit, en svo má líka tala um sér-
staka grein leikbókmenntanna þar
sem Hugleiksverk eru.
Hópurinn hefur frá upphafi til-
veru sinnar aðeins flutt frumsamin
verk, „sprottin beint úr íslenskum
veruleika", og það er óhætt að segja
að skríbentum hópsins og hirð-
skáldum er fátt heilagt.
Þau hafa skeiðað út um víðan völl
bókmennta og sögu, tekið fyrir forn-
ar hetjur og nútímafólk, en alltaf þó
með þessum galsafengna fjallakofa-
húmor, sem passar einkar vel við
umfjöllunarefni Páskahrets.
Nú var sumsé komið að því að
setja upp almennilegan rammís-
lenskan krimma og hvað er þá nær-
tækara en sviðsetja hann uppi á reg-
inöræfum á meðan stórviðri geisar?
Hópur ferðalanga kemst i skálann
í Hraftinnuskeri við illan leik og
ekki líður á löngu áður en vofveif-
legir atburðir gerast.
Þarna er i fararbroddi fararstjóri
(eða harðstjóri) sem allir hata og
með honum samansafn þeirra
furðufugla sem nenna að leggja það
á sig að þramma um fjöll og fimindi
þegar allra veðra er von.
Árni Hjartarson setur saman
skemmtilega persónuflóru og í út-
færslunni er óspart skopast að kyrr-
setuliðinu sem dröslar fullum bak-
pokum af ólíklegasta dóti með sér
um öræfin.
Hópnum tekst að koma út neyðar-
kalli og þá hefst mikið kapphlaup
hjálparsveita, björgunasveita og
víkingasveita um hver verður fyrst
á staðinn. En ekki vill betur til en
svo að sveitirnar
týnast sitt á hvað
á leiðinni og þetta
endar með því að
allir leita að öll-
um.
Sá hjálpar-
sveitahúmor sem þarna birtist er á
köflum alveg óborganlegur, ekki
hvað sist framganga þeirra Her-
manns víkingasveitarformanns og
Þuríðar, formanns hjálparsveitar-
innar.
Að venju er ómögulegt að hafa
orð um frammistöðu leikaranna,
sem enn þá halda að nokkru leyti í
þennan sérkennilega Hugleiksstíl.
Honum má einna helst líkja við
það að áhugaleikarar séu að skop-
stæla leiksýningu áhugaleikara. En
eins og sagði hér í upphafi er það
hugarfarið sem gildir, ásamt ríku-
legum húmor og þó undarlegt megi
virðast - rótgróinni þekkingu á við-
fangsefninu.
Nokkrir í hópnum mega fara að
vara sig því að þeir eru orðnir svo
„prófessíónaT eftir að hafa tekið
þátt í fjölda sýninga. En eigum við
ekki samt að segja að þetta sleppi
allt saman fyrir hom undir góðri
handleiðslu leikstjórans, Hávars
Sigurjónssonar, sem gefur liðinu
hæfilega frítt spil.
Leikmyndin er skemmtilega út-
færð og veðragnýrinn sannfærandi.
Skopskyn þátttakenda birtist með
ýmsu móti í ótal smáatriðum og
senuskipti em útfærð af töluverðu
hugmyndaflugi.
Sem sagt: Alíslenskur fjalla-
Leiklist
Auður Eydal
Úr sakamálaleikritinu Páskahreti sem Hugleikur sýnir í Tjarnarbíói.
DV-mynd GS
krimmi sem engan svíkur.
Hugleikur sýnir í Tjarnarbíói:
Páskahret
eftir Árna Hjartarson, sem einnig
samdi lög og söngtexta
Leikstjóri: Hávar Sigurjónsson
Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir
Tónlistarstjórn: Þorgeir Tryggvason
Hönnun leikmyndar: Unnur Sveins-
dóttir
Lýsing: Árni Baldvinsson
Ármúla 17, Reykjavík, sími 568-8840
I ■
mwr'
Því miður verður nýi Páskaisinn frá Kjörís aðeips seldur uin pásltana.
Viljir þú njóta lians lengur og kynnast .innihaldinu betur, skaltu
tryggja jxir nóg af hoiuun strax.
SýitingÍRi
er epin
daglega frá
kl. 15-20
og um
helgar frá
kl. 11-18
Sfór-
Fróðleg«
íslensk/dönsku b
Leyndardómar ís
Kvikmyndasýning frá Grænlandi á klukkutíma fresti.
MIÐAVERÐ: 200 KR. ÓKEYPIS FYRIR BÖRN UNDIR 12 ÁRA ALDRI