Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Blaðsíða 48
72 MIÐVIKUDAGUR 3. APRÍL 1996 Afmæli Davíd Kr. Jensson Davíð Kr. Jensson bygginga- meistari, Langagerði 60, Reykja- vík, verður sjötugur annan í pásk- um. Starfsferill Davíð fæddist í Selárdal í Arn- arflrði og ólst upp við öll almenn sveitastörf og sjósókn þess tíma. Hann stundaði nám við Núps- skóla 1942-44, hóf síðan nám í húsasmíði hjá Ásgeiri Guðmunds- syni, húsasmíðameistara í Reykja- vík, lauk prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík og sveinsprófl 1948 og öðlaðist meistararéttindi 1951. Davíð vann hjá Magnúsi Odds- syni byggingameistara í þrjú ár að loknu sveinsprófi en starfaði síðan sjálfstætt sem bygginga- meistari frá 1951. Hann hefur ver- ið byggingameistari fjölda þekktra bygginga víða um land, s.s. Bú- staðakirkju, Langholtskirkju og endurbyggingar Selárdalskirkju. Davíð varð byggingareftirlits- maður Pósts og síma 1973 og hef- ur starfað við það síðan. Hann hefur útskrifað sex sveina í húsa- smíði. Davíð tók virkan þátt í safnað- arstarfi Bústaðasóknar, var for- maður Bræðrafélagsins í níu ár og hefur m.a. setið í stjórn Styrkt- arfélags vangeflnna í tuttugu ár. Fjölskylda Davíð kvæntist 30.12. 1950 Jennýju Haraldsdóttur húsmóður. Hún er dóttir Haralds Jónssonar, prófasts á Kolfreyjustað í Fá- skrúðsfirði, og k.h., Valborgar Haraldsdóttur húsfreyju. Dætur Davíðs og Jennýjar eru Valborg, f. 3.6. 1952, hárgreiðslu- meistari á Akureyri, gift Ragnari B. Ragnarssyni vélstjóra, og eru börn þeirra íris, f. 14.9. 1976, og Fannar Jens, f. 14.4.1984, en son- ur Valborgar frá því áður er Dav- íð Kr. Hreiðarsson og er sonur hans Aron Bjarni, f. 3.9. 1994; Kristrún, f. 8.5. 1954, lyfjafræðing- ur i Mosfellsbæ, gift Ásgeiri Ei- ríkssyni bæjarritara, og eru synir þeirra Eiríkur Stefán, f. 16.7. 1977, og Davíð, f. 6.9. 1983; Inga, f. 17.2. 1959, búsett í Sonderborg á Jót- landi, gift Haraldi Eggertssyni tæknifræðingi og er dóttir þeirra Jenný, f. 13.6. 1984; Jenný, f. 10.2. 1962, tölvunarfræðingur hjá DV, en dóttir hennar og Ómars Ing- ólfssonar framkvæmdastjóra er Dagný Fjóla, f. 11.6. 1989; Hildur, f. 2.9. 1967; Elsa María, f. 25.5. 1971, nemi í rekstrarfræði. Systkini Davíðs: Sigurfljóð, f. 10.8. 1919, gift Jóni Kristóferssyni trésmið; Gísli, f. 12.9. 1921, versl- unarmaður, kvæntur Ingu Hjart- ardóttur; Benedikta, f. 16.1. 1923, fórst með vs. Þormóði 18.2. 1943; Teitur, f. 9.5. 1929, skrifstofumað- ur, kvæntur Elsie Sigurðardóttur; Ólafla, f. 28.11. 1937, húsmóðir, var gift Gústaf Kristjánssyni sem lést 14.2. 1986 en sambýlismaður hennar er Hreggviður Guðgeirs- son. Foreldrar Davíðs voru Jens Gíslason, útvegsb. á Króki í Selár- dal, og k.h., Ingveldur Benedikts- dóttir. Ætt Föðurbróðir Davíðs var Einar, faðir Sigurjóns prests á Kirkjubæ. Föðursystir Davíðs er Ragnhildur, móðir Kristjáns Bersa Ólafssonar skólameistara. Jens var sonur Gísla, b. á Króki í Selárdal, Árna- sonar, b. á Öskubrekku, Árnason- ar, b. á Neðri-Bæ, Gíslasonar, prests í Selárdal, Einarssonar, Skálholtsrektors, Jónssonar, langafa Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness. Móðir Árna í Neðri-Bæ var Ragnheiður Bogadóttir, b. í Hrappsey, Benediktssonar, ættföð- ur Hrappseyjarættarinnar, langafa Sigurðar Breiðíjörð. Móð- ir Gísla á Króki var Jóhanna Ein- arsdóttir, prests í Selárdal, Gísla- sonar, bróður Árna í Neðri-Bæ. Davíð Kr. Jensson. Móðir Jens var Ragnhildur Jens- dóttir, b. I Feigsdal, Gíslasonar. Ingveldur var dóttir Benedikts, b. og hreppstjóra í Selárdal, Krist- jánssonar, b. i Holti á Barða- strönd, Þórðarsonar. Móðir Ing- veldar var Ragnhildur Þórðardótt- ir, b. á Neðri-Bæ, Einarssonar, bróður Árna á Neðri- Bæ. Móðir Ragnhildar var Þuríður Árnadótt- ir, systir Árna á Öskubrekku. Davíð og Jenný taka á móti gestum að Gullhömrum, sal iðnað- armanna við Hallveigarstíg, ann- Agnar Kofoed-Hansen Agnar Kofoed-Hansen, fram- kvæmdastjóri Upplýsingaþjónust- unnar ehf., Asparlundi 3, Garða- bæ, verður fertugur á páskadag. Starfsferill Agnar fæddist I Hafnarfirði en ólst upp í Laugarásnum í Reykja- vík. Hann lauk stúdentsprófl frá MH um jól árið 1975 og lokaprófi í vélaverkfræði (nú iðnaðar- og vélaverkfræði) í júní 1981. Árið 1983 lauk hann M.Sc. (Civilin- geniör) frá Danmarks tekniske Universitet, rekstrarverkfr., og starfaði sem verkfræðingur hjá Þróun hf. og sumarið 1981 hjá Til hamingju með afmælið 8. apríl 85 ára Kristín Grímsdóttir, Skúlagötu 40a, Reykjavík. 80 ára Ástríður Kr. Ákadóttir, Sunnuvegi 19, Reykjavík. Ársæll Ársælsson, Brekkulandi 1, Mosfellsbæ. Bergljót Jörgensdóttir, Austurvegi 9, Reyðarflrði. Aðalbjörg Sigurðardóttir húsmóðir, Víðilundi 24, Akureyri. Hún tekur á móti gestum I sal Kiwanisklúbbsins Kaldbaks, í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð, á afmælisdaginn, annan í páskum, milli kl. 15.00 og 17.00. Alda H.S. Einarsson, Hagamel 28, Reykjavík. Oddný Egilsdóttir, Garðakoti I, Hólahreppi. Sæmundur Bjarnason, Einholti 14b, Akureyri. 50 ára Einar Oddur Garðarsson, Álakvísl 60, Reykjavík. Viggó Emil Magnússon, Heiðarási 4, Reykjavík. Ágústa Inga Pétursdóttir, Hjarðarlandi 3, Mosfellsbæ. Halldór Jónasson, Ytri-Hofdölum, Viðvíkurhreppi. Guðlaug Magnúsdóttir, Álfheimum 31, Reykjavík. Bjöm Olsen, Brekkubyggð 71, Garðabæ. 75 ára 40 ára Óskar Þórormsson, fyrrv. flskmats- maður, Búðavegi 39a, Fáskrúðsfirði. Eiginkona hans er Helga María Snædal húsmóð- ir. Óskar og fjöl- skylda hans taka á móti gestum í félagsheimilinu Skrúð, Fáksrúðs- firði, á afmælisdaginn, annan í páskum, frá kl. 15.30-19.00. Kristinn Guðjónsson, Skúlagötu 40b, Reykjavík. Guðriður Guðmundsdóttir, Arnarsíðu 6b, Akureyri. Guðríður er að heiman. Svavar Jónatan . Hjaltason tamningamað- Æííjk ur, Dofrabergi 9, | m Hafnarfirði. .t Eiginkona hans 'r J. er Anna Guðlaug Jg ÆTa\l. •w Gunnarsdóttir, ~ iP'k fliy. • táknmálskenn- ari og þroska- ..*r.É 70 ára Þorsteinn Geirsson hreppstjóri, Reyðará, Bæjarhreppi. Þorteinn er að heiman. Jón Kristinsson, Karfavogi 27, Reykjavík. Svavar Magnússon, Skörðum, Haukadalshreppi. Narfi Sigurður Kristjánsson, Hoftúni, Ólafsvik. Halldóra Víglundsdóttir, Furugrund 71, Kópavogi. 60 ára Þuríður Magnúsdóttir, Grænumörk 5, Selfossi. Ævar Hreinn Þórðarson, Garðabraut 35, Akranesi. þjálfanemi. Þau eru að heiman á afmælisdag- inn. . Ómar Arinbjörn Sigfússon, Flétturima 15, Reykjavík. Stefán Sigurðsson, Tjaldanesi, Mosfellsbæ. Þorgeir Sigurðsson, Heiðvangi 13, Hellu. Sigurður Sveinsson, Fagrahjalla 24, Vopnafirði. Ragna Valborg Sveinsdóttir, Borgarsíðu 7, Akureyri. Elfa Heiðrún Matthíasdóttir, Dalbraut 8, Dalvík. Jón Gunnar Gíslason, Hrísholti 1, Garðabæ. Kolbrún Rósa Jónsdóttir, Þangbakka 8, Reykjavík. Einarína Sigurjónsdóttir, Ásabraut 4, Keflavík. Ólöf Auður Böðvarsdóttir, Einigrund 1-1, Akranesi. Sigrún Bjarnadóttir, Grænumörk 1, Hveragerði. Friðrik Steinn Kristjánsson, Vesturgötu 54a, Reykjavík. Anna Dóra Lúthersdóttir, Brekkubraut 7, Keflavík. Fjarhitun hf. Agnar stundaði framhaldsnám við MIT (Massachusetts Institute of Technology) í Cambridge, Massachusetts, við fjármál, frum- kvöðlafræði og upplýsingakerfi stjórnenda. Hann var markaðs- stjóri hjá Þróun hf. til ársins 1987, forstöðumaður lánasviðs Iðnaðar- banka íslands hf. til 1989, deildar- stjóri verðbréfadeildar Kaupþings hf. til 1991, framkvæmdastjóri Greiðslumats hf. til 1994, forstöðu- maður upplýsingaskrifstofu Versl- unarráðs Islands til 1995 er hann tók við sem framkvæmdastjóri Upplýsingaþjónustunnar ehf. en það félag tók við rekstri Upplýs- ingaskrifstofu Verslunarráðsins. Agnar sat í stjórn Gæðastjórn- unarfélags íslands 1989-1994 og hefur verið í Húsráði Verkfræð- ingafélags íslands frá árinu 1986. Hann var við nám í fjármála- stjórn og greiningu á lánshæfi fyr- irtækja við Manufacturers Hannover Trust bankann í New York árið 1988 og lauk prófl til að öðlast réttindi sem löggiltur verð- bréfamiðlari árið 1991. Agnar hef- ur ritað greinar í blöð og haldið fyrirlestra um mat á lánshæfi fyr- irtækja. Hann hefur enn fremur stundað kennslustörf við Endur- menntunarstofnun HÍ og í hag- verkfræði við HÍ. Fjölskylda Agnar kvæntist 18.4. 1981 Guð- rúnu Elíasdóttur, f. 8.3. 1954, sjúkraliða. Hún er dóttir Elíasar Arnlaugssonar bifvélavirkja og kennara og Gyðu Guðnadóttur. Þau búa í Reykjavík. Börn Agnars og Guðrúnar eru: Agnar Eldberg Kofoed-Hansen, f. 29.12. 1980, nemi; Emilía Björg Kofoed-Hansen, f. 30.1. 1985, nemi, og Elías Helgi Kofoed-Háhsen, f. 8.5. 1991. Systkini Agnars eru: Astrid Björg Kofoed-Hansen, f. 4.12. 1939, húsmóðir í Garðabæ; Hólmfríður Sólveig Kofoed-Hansen, f. 20.6. 1941, húsmóðir í Brussel, Belgíu; Emilía Kristín Kofoed-Hansen, f. 1.5. 1943, vararæðismaður í Grikk- landi; Sophie Isabella Kofoed-Han- sen, f. 6.10. 1945, sérkennari í Reykjavík; og Björg Sigríður Anna Kofoed-Hansen, f. 18.7. 1948, Agnar Kofoed-Hansen. kennari og skrifstofumaður í Reykjavík. Faðir Agnars var Agnar Eld- berg Kofoed-Hansen, f. 3.8.1915, d. 23.12. 1982, lögreglustjóri og síðar flugmálastjóri, og Björg Sigríður Anna Kofoed-Hansen (fædd Axels- dóttir), f. 24.7. 1918, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af í Reykjavík. Björg Sigríður Anna er dóttir Axels, kaupmanns á Akureyri, Kristjánssonar, kaupmanns á Sauðárkróki, Gíslasonar, b. Ey- vindarstöðum í Blöndudal. Axel var kvæntur Hólmfríði Jónsdótt- ur, systur Jóns, b. á Hofi, sem var faðir Pálma heitins í Hagkaupi. Magnús Gestsson Magnús Gestsson rithöfund- ur/sagnfræðistúdent, Kötlufelli 7, Reykjavík, verður fertugur á páskadag. Starfsferill Magnús fæddist í Reykjavík og ólst upp í miðbæ Reykjavíkur og í Kleppsholtinu. Hann lauk stúd- entsprófi frá KHÍ árið 1977 og hef- ur stundað sagnfræðinám við HÍ frá árinu 1991. Magnús var bókavörður við Borgarbókasafnið 1977-1981 og á Bókasafni Kópavogs á árunum 1981-1983. Hann vann við ritstörf á árunum 1983-1985, var kennari við Egilsstaðaskóla 1985-1986, var við ritstörf og starfaði á skjala- safni Reykjavíkurborgar á árun- um 1986-1987. Frá árinu 1988 hef- ur Magnús verið í lausamennsku, m.a. skrifað greinar og viðtöl í Þjóðlíf, ritdóma um ljóðabækur í Þjóðviljann, unnið við sölustörf o.fl. Samhliða námi hefur hann stundað ritstörf og verkamanna- vinnu í Reykjavík. Magnús hefur verið félagi í Rit- höfundasambandi íslands frá ár- inu 1986, sat í inntökunefnd rit- höfundasambandsins 1991-1993, hefur verið félagi í Stómasamtök- unum frá árinu 1989 og lagt bar- áttumálum þeirra lið. Helstu rit: Vasabók, 1979, Samlyndi baðvörð- urinn (ástarljóð), 1983, Laug að bláum straumi, 1986, Ljóð, 1988, Syngjandi sólkerfi, 1995 og auk þess ljóð, sögur og þýðingar úr dönsku í samvinnu við aðra höf- unda. Jafnframt hafa ljóð og sögur eftir Magnús birst í blöðum og tímaritum. Fjölskylda Magnús Kvæntist 1986 Þorgerði Sigurðardóttur, f. 25.10. 1967. Hún er dóttir Sigurðar Hjartarsonar sagnfræðings, kennara, forseta Hins íslenska tófuvinafélags og forstöðumanns Reðurstofu íslands, og Jónu Sigurðardóttur leikskóla- leiðbeinanda. Þau búa í Reykja- vík. Börn Magnúsar og Þorgerðar eru Melkorka, f. 22.10. 1986; og Embla, f. 14.6. 1991. Systkini Magnúsar eru: Bene- dikt, f. 29.12.1957, bókmenntafræð- ingur í Reykjavík; Hulda Ragna, f. 20.12. 1959, húsmóðir í Reykjavík; og Hallgerður Inga, f. 21.2. 1963, nemi I Reykjavík. Hálfsystkini, sammæðra, eru: William S. Tracey, f. 28.7. 1941, bifreiðastjóri í Mosfellsbæ; og Anna F. Birgisdótt- ir, f. 1.6. 1947, bankamaður í Reykjavík. Foreldrar Magnúsar eru Gestur Magnús Gestsson. Hallgrímsson, f. 20.9. 1929, prent- ari og forstöðumaður Hins ís- lenska póstgönguminjasafns, og Gyða Magnúsdóttir, f. 31.8. 1926, húsmóðir. Þau búa I Reykjavík. Hallgrímur, faðir Gests, var prentari, sonur Benedikts Ás- grímssonar skálds og gullsmiðs. Magnús, faðir Gyðu, var Jónsson, verkamaður frá Snjallsteinshöfða í Landssveit, og kona hans var Sigurjóna S. Sigurjónsdóttir, hús- móðir frá Saltvík á Kjalarnesi. Magnús verður að heiman á af- mælisdaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.