Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1996, Side 56
rrm
*
ttí mkih oð yjnflö
\ *
Þriðjudagur
3.4/96
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjalst,óháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 3. APRIL 1996
Biskup:
Sendi ekki
trúnaðarupp-
lýsingar
Ólafur Skúlason biskup segir i yf-
irlýsingu vegna úrskuröar siða-
nefndar Prestafélagsins um trúnað-
arbrot hans að hann hafi engar
trúnaðarupplýsingar sent til fjöl-
miðla. Siðanefnd hefur komist að
því að brot biskups hafi verið alvar-
legt þegar hann sendi út yfirlýsingu
um að Sigrún Pálína hefði átt fund
með séra Flóka Kristinssyni í Lang-
holtskirkju.
Biskup segir í yflrlýsingu sinni í
gær að honum hafi „á erfiðri stundu
orðið það á að senda yfirlýsinguna
án nokkurra skýringa til fjölmiðla".
Á þessu hafi hann beðist fyrirgefn-
inar en tekur fram að „þetta voru
engar trúnaðarupplýsingar". -GK
Teknir í kirkju-
garðinum
Fjórir mnbrotsþjófar á fermingar-
aldri voru í nótt gripnir í kirkju-
garðinum við Suðurgötu eftir mis-
heppnaða tilraun til að brjótast inn
í sjoppu við Bræðraborgarstíg.
-GK
V 2“ s V'v J
VMur annan < páakum
Rússneskur togaraskipstjóri viðurkennir landhelgisbrot á Reykjaneshrygg:
Færum togar-
ann til hafnar
- segir Helgi Hallvarðsson en skipstjóri togarans neitar varðskipsmönnum uppgöngu
„Við forum um borð í togarann
og færum hann til hafnar. Ná-
kvæmlega núna eru skipstjórinn
og skipherrann á Ægi að ræða
möguleikana í stöðunni,“ sagði
Helgi Hallvarðsson, skipherra hjá
Landhelgisgæslunni, skömmu
áður en DV fór í prentun í morg-
un.
Varðskipið Ægir er nú við rúss-
neska togarann Dimitríj Ramovít-
sj, 3000 tonna skip frá Múrmansk,
við landhelgismörkin á Reykjanes-
hrygg. Togarinn var í gær staðinn
þar að óiöglegum veiðum.
Gæsluflugvélin Sýn kom að tog-
aranum um klukkan fjögur í gær.
Hann var þá að mati Landhelgis-
gæslunnar staddur 2,5 sjómílur
innan landhelginnar og var að
toga.
Skipstjórinn viðurkenndi þá
þegar að hann væri í landhelgi og
bar við vélarbilun. Skipstjóri lét
þá hífa upp trollið og sigldi út fyr-
ir línuna og var ekki að sjá að vél-
arbilunin væri alvarleg. Jafnframt
rauf hann allt fjarskiptasamband.
Togarinn var vaktaður af flug-
vélum Gæslunnar og Flugmála-
stjórnar í nótt eða þar til varðskip-
ið Ægir kom á staðinn um klukk-
an 6 í morgun.
Samband náðist aftur við togar-
ann þegar varðskipið var komiö
og þá neitaði skipstjórinn að hafa
veitt í íslenskri landhelgi. Samn-
ingaviðræður hófust og var gerð
sú krafa af hálfu skipherra á Ægi
að varðskipsmenn fengju að fara
um borð og að togarinn kæmi til
hafnar á íslandi.
Jv
Hér var rússneski togarinn
DIMITRIJ POKRAMOVITSJ
staöinn að ólöglegri veiöi
Rússamir hafa þráast við og
leitað ráða hjá útgerð sinni í
Múrmansk. Þegar DV fór í prent-
un neitaði skipstjóri togarans að
hleypa varðskipsmönnum um
borð.
„Það er erfitt að fara um borð í
svo stórt skip án þess að þeir um
borð heimili það. Við bíðum þvi
átekta enn um sinn og ráðfærum
okkur við dómsmálaráðuneytið
um til hvaða ráða veröi gripið
næst gangi þetta ekki með góðu,“
sagði Helgi.
Aðspurður hvort varðskips-
menn á Ægi væm þess albúnir að
beita vopnavaldi sagði Helgi að of
snemmt væri að gera slíku skóna.
Fyrst verði að reyna samninga
áður en gripið sé til róttækari að-
gerða. Komi til sliks ræður dóms-
málaráðuneytið ferðinni um að-
gerðir. -GK
Nú er spennan í hámarki hjá stúlkunum í Elite-keppninni þar sem úrslitin verða Ijós í kvöld á Hótel íslandi. Það er
álit aðstandenda keppninnar að val á sigurvegara verði erfitt þar sem stúlkurnar séu óvanalega fagrar í ár. Þátttak-
endur í keppninni hafa aldrei verið fleiri en nú eða 110. í úrslit komust 20 stúlkur.
Sjá nánar á bls. 51 DV-mynd ÞÖK
Manns leitað
Lögregla og björgunarsveitar-
menn hafa frá því í gær leitað
Hjalta Guðjónssonar, 21 ára manns
sem hvarf um helgina. Hann er 170
sentímetrar á hæð með stutt, skoll-
itað hár.
Smáauglýsingadeild DV er opin
í dag, 3. apríl, til kl. 18. Lokað verð-
ur á sklrdag, fóstudaginn langa,
laugardaginn 6. apríl og páskadag.
Opið verður mánudaginn, 8. apr-
O, annan í páskum, frá kl. 16-22.
Blaðaafgreiðsla DV er opin frá
kl. 8-20 í dag. Lokað verður á skír-
dag, fostudaginn langa, laugardag-
inn 6. apríl, páskadag og annan í
páskum. Opið verður þriðjudaginn
9. apríl frá kl. 6-20.
Fyrsta blað eftir páska kemur eld-
snemma að morgni þriðjudagsins 9.
apríl.
Gleðilega páska!
L O K I
Veörið á morgun:
Skýjað
suðvestan-
lands
Á morgun verður norðaustan
strekkingur og snjókoma um
landið austanvert, él norðvest-
an til en skýjað að mestu suð-
vestanlands.
Hiti verður á bilinu 0 til 3
stig allra syðst en annars verð-
ur frost á bilinu 1 til 6 stig.
Veðrið í dag
er á bls. 76
ver> kr.
1325.000.-
Bílheimar ehf.
Sœvarhöföa 2a Sími: 525 9000