Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Side 2
2 %éttir
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 JÉLP"V
íslenskir brotaþolar jafnt sem Víetnamar halda aö sér höndum í brotamálum:
Þora ekki að kæra
af ótta við hefndir
að þegja yfir afbrotum er aö stuðla að framgangi þeirra, segir lögregla
„Já, ég hef orðið vör við þetta. Eg
hef bæði séð þetta hjá íslendingum
og öðrum sem hér búa. Að undan-
fornu hefi ég hvatt þá sem orðið
hafa fyrir tjóni til að gefa skýrslu
og það hefur fólkið okkar gert i
auknum mæli. Það bar á þessu fyrst
en nú hefur þetta breyst,“ sagði
Hólmfríður Gísladóttir, deildar-
stjóri hjá Rauða krossi íslands, að-
spurð hvort borið hefði á því að Ví-
etnamar sem hafa orðið fyrir hót-
unum og skemmdarverkum undan-
farið hafi veigrað sér við að kæra af
ótta við hefndaraðgerðir.
Ómar Smári Ármannsson hjá lög-
reglunni í Reykjavík sagði að vart
hefði orðið við hliðstæðan hefnda-
rótta hjá íslendingum í óskyldum
málum.
„Þetta er ekki eingöngu bundið
við nýbúa,“ sagði Ómar Smári. ,Við
höfum líka orðið varir við þetta í
tengslum við mál þar sem íslend-
ingar hafa verið beittir hótunum
eða ógnunum. Þetta er ótti sem við
þekkjum á fólki úr fíkniefnaheimin-
um, málum tengdum bruggi og
vegna líkamsmeiðinga. Síðan þegar
atburðir hafa þróast telur fólk sig
knúið til að upplýsa um stöðu mála
og þá hægt að grípa inn í,“ sagði
Ómar Smári.
Ómar sagði að komið hefði fram
að undanförnu vegna kærumála á
hendur fjórum Asíubúum að sam-
landar þeirra hefðu ekki þorað að
kæra ógnanirnar til lögreglu.
„Af þessu tilefni er rétt að upp-
lýsa að með því að þegja yfir afbrot-
um í formi ógnana er fólk í raun að
stuðla að framgangi brotanna. Þess
vegna er svo mikilvægt að tilkynna
slíkar ógnanir eða hótanir til lög-
reglu. Gerist það ekki getur reynst
erfitt fyrir hlutaðeigandi aðila að
bregðast við sem skyldi, auk þess
sem erfiðara verður en ella að
koma lögum yfir viðkomandi aðila.
Ef fólk er meðvitað um hvernig það
á að bregðast við i hverju tilkviki
fyrir sig ætti að vera tiltölulega
auðvelt að uppræta slíkt hér á
landi.“
Ómar Smári sagði að veitinga-
menn í Reykjavík af asískum upp-
runa hefðu orðið fyrir svipuðum
hótunum fyrir um tveimur árum.
Þá hafi þeir látið lögreglu vita sem
gripið hafi til aðgerða sem fengu
viðkomandi til að láta af athæfi
sínu.
Rannsókn stendur yfir hjá RLR
vegna nýbúanna fjögurra sem grun-
aðir eru um að hafa krafist vemd-
arfjár með hótunum, ógnunum og
skemmdarverkum að undanfórnu.
Hin almenna lögregla hefur hins
vegar gripið til sérstakra eftirlitsað-
gerða. Þær urðu beinlínis til þess
að þrír af fjórmenningunum eru nú
grunaðir um þjófnaði í vikunni.
Einn þeirra var handtekinn við
þjófnað í Kringlunni á miðvikudag.
-Ótt
Internetið:
Aukið
framboð
barnakláms
„Framboð á barnaklámmyndum
hefur aukist mjög á Internetinu og
er ný hætta sem steðjar að í þessum
efnum. Það er búið að taka þetta
mjög fyrir hér á ráðstefnunni. Ég er
sannfærð um að þetta er eitthvað
sem mun aukast heima á Islandi á
næstunni ef ekki verður spomað
við því,“ sagði Kristín Jónasdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaheilla, við
DV í gærkvöld, en hún er stödd á al-
þjóðlegri ráðstefnu um barnaklám
sem nú stendur yfir í Stokkhólmi.
„Eitt af því sem komið hefur fram
á ráðstefnunni hér í Stokkhólmi er
að meirihluti klámmyndanna á Int-
ernetinu eru ekki raunverulegur.
Það eru teknar myndir af nöktum
konum úr klámblöðum og svo er
konulíkamanum skeytt við höfuð af
barni. Síðan er brjóstunum breytt
og þannig litur þessi tölvumynd út
eins og bam með þroskaðan líkama.
Það er virkilega óhugnanlegt að sjá
þessar myndir en lögregluménn,
sem em staddir hér, em sammála
um að erfitt sé að koma upp um þá
sem gera svona myndir á netinu,“
sagði Kristín. -RR
Læknadeilan:
Ekki árás á neina
launastefnu
Það er óhætt að segja að sumariö sé endanlega úti þegar skólarnir hefjast. Menntaskólinn við Sund var settur í gær
og þær Birta og Erla, nemendur í öðrum bekk C, fengu afhentar stundaskrár fyrir veturinn. Ekki er annaö að sjá en
þær séu tilbúnar í slaginn og staöráönar í að standast prófin. DV-mynd BG
„Það er alls ekki hugmynd okkar
að brjóta niður launastefnu ríkisins
heldur eram við að tala um leiðrétt-
ingu á málum sem ríkið hefur ekki
sinnt sem skyldi," segir Atli Áma-
son, í samninganefnd Læknafélags
íslands, um ummæli Friðriks Soph-
ussonar fjármálaráðherra í DV i
gær. „Þetta virðist snúast núna um
það að Friðrik sé að brjóta niður
heilbrigðisþjónustuna í landinu og
færa ástand þeirra mála aftur til
ársins 1973 þegar ekki var til nein
heilsugæsla og það er ekki að sjá að
heilbrigðisráðherra geri neitt til að
stöðva þessa framgöngu fjármála-
ráðherrans.“ -saa
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra um læknadeiluna:
Mjög þungt en reynt að
byggja brú milli aðila
„Þetta er auövitað mjög þungt en
það leggja sig allir fram um að
halda uppi lágmarkslæknisþjón-
ustu. Læknafélagið og héraðslækn-
ar styðja okkur í þvi. Við héldum
sameiginlegan fund með fulltrúum
heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis-
Jnsjog^nenn^erumú^aö^^reyna^að
Þó getur svarað þessari
spurningu með því að
hringja í síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Já
Nel 2
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Á að bjóða út
rekstur fangelsa?
byggja brú milli aðila. Fjármálaráð-
herra sendi Læknafélaginu bréf þar
sem verið er að kanna að gera einn
heildstæðan kjarasamning vegna
starfa lækna í þágu ríkisins,“ sagði
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðis-
ráðherra um hvernig hún meti þær
aðgerðir sem gripið var til í kjara-
deilu lækna í gær.
Ingibjörg sagði að Læknafélagið
hefði fallist á að gera undanþágu
með að koma á neyðarþjónustu á
Vopnaflröi og Djúpavogi þar sem
þörfln hafi verið brýn. Síðan verði
samkvæmt ákvæði í lögum sett á
stofn störf 8-9 héraðshjúkmnar-
fræðinga til að létta undir með
hjúkmnarfræðingum. Héraðslækn-
ar muni síðan halda áfram störfum
í sínum kjördæmum.
„Síðan verður reynt að þétta ör-
yggisnetið enn frekar í samvinnu
við Læknafélagið. Einnig þarf að
styrkja starfsemi sjúkrahúsanna úti
á landi,“ sagði heilbrigðisráðherra.
-Ótt
Óprúttnir þjófar:
Stálu frá sjóndapurri konu
Tveir menn bönkuðu upp hjá full-
orðinni sjóndapurri konu í Hamra-
hlíð á flmmtudagskvöldið. Annar
mannanna spjallaði við konuna í
anddyri hússins meðan hinn fór inn
fyrir og komst í veski hennar. Talið
er að hann hafi tekið 20-30 þúsund
krónur úr veskinu. Mennimir
hurfu síðan á braut og eru enn
ófundnir. -RR
Þórshöfn:
Völlurinn
vígður þótt
tækin vantaði
Þann 26. júlí síðastliðinn var nýr
flugvöllur vígður á Þórshöfn á
Langanesi. Það var í tengslum við
verslunarafmæli Þórshafnar að
flugvöllurinn var vígður. í tilefni
hátíðahaldanna mætti Vigdís Finn-
bogadóttir á staðinn og var sú heim-
sókn síðasta opinbera heimsókn
hennar sem forseti íslands.
Enda þótt mánuður sé liðinn síð-
an flugvöllurinn var vígur er hann
sáralítið notaður vegna þess að tæki
vantar í flugtuminn. Þegar spurt
var um ástæðuna fyrir norðan urðu
allir afar sposkir, slógu úr og í en
bentu að lokum á Flugmálastjóm.
„Það er veðurmælir sem enn vant-
ar. Ég á von á að hann verði kominn
eftir hálfan mánuð. Það var nú bara
vegna þessa afmælis og heimsóknar
Vigdísar sem ákveðið var að vígja
völlinn þótt tækin vantaði," sagði Jó-
hann H. Jónsson hjá Flugmálastjóm
í samtali við DV. -S.dór
Enn kraumar
í Borgarleik-
húsinu
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikhús-
stjóri í Borgarleikhúsinu, hefur sagt
upp starfsfólki í markaðs- og kynn-
ingardeild leikhússins, alls 5
manns, og ákveðið að auglýsa í stöð-
urnar. Óánægja er með tímasetning-
ar á þessum uppsögnum þar sem
markaðsstarf er komið á fullt fyrir
komandi leikár. Þórhildur hefur
jafnframt sagt að hún útiloki ekki
uppsagnir á leikurum, einkum þeim
af yngri kynslóðinni. Þessi ummæli
hafa valdið ólgu og óvissu innan
leikhússins, samkvæmt heimildum
DV, og jafnframt vonbrigðum þar
sem menn töldu að ró kæmist á eft-
ir átök síðasta leikárs. -bjb
Krabbameinssjúk
börn
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
bama heldur upp á 5 ára afmæli sitt
mánudaginn. Af því tilefni eru vel-
unnarar félagsins, hvattir til að líta
inn á skrifstofu SKB aö Suðurlands-
braut 6 á milli klukkan 10 og 18 nk.
mánudag.
Stuttar fréttir
Fleiri læknar segja upp
Þrjátíu heimilislæknar, sem
unnið hafa í hlutastörfum á
landsbyggðinni, hafa sagt upp
störfúm vegna þeirrar stöðu sem
komin er upp í samningaviðræð-
um ríkis og Læknafélags íslands.
Aöstoð bæjarfélaga
Bæjarfélög hér á landi vörðu
um 900 milljónum króna í fjár-
hagsaðstoð til íbúanna í fyrra.
Aðstoð Reykjavíkurborgar á
hvem íbúa er þrefalt hærri en
þess bæjarfélags er næst kemur.
RÚV greindi frá þessu.
Samkeppnisstofnun
Kvörttm hefur borist til Sam-
keppnisstofnunar þess efiiis að
sveitarfélög brjóti samkeppnis-
lög með því að hvetja sauðfjár-
bændur til að kaupa kvóta. RÚV
greindi frá þessu.
Kanaríeyjaferöir
Mikil sala hefur veriö undan-
farið á ferðum til Kanaríeyja og
hafa Flugleiðir selt tæp 40% af
sætaframboði vetrarins á einni
viku en félagið býður um 3600
sæti alls.
Ályktun frá Kvennalista
Þingflokkur Kvennalistans
sendi frá sér álykttm í gær þar
sem lýst er yfir þungum áhyggj-
um af ástandinu í samningavið-
ræðum vegna kjaradeilu heilsu-
gæslulækna og rikisins. Flokk-
urinn skorar á deiluaðila að