Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 50
æ \kvikmyndir LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 Stjörnubíó - Multiplicity Smiður í fjórriti Það er ekkert nýmæli að sami leikarinn leiki tvíbura eða tvær per- sónur sem eru nákvæmlega eins og má finna slík dæmi allt frá því þöglu kvikmyndirnar voru við lýði. Og eitt af fyrstu tækniundrun kvik- myndanna var einmitt að skeyta saman fllmuna þannig að leikarinn sæist samtimis í báðum hlutverkun- um. Með aukinni þróun hefur þessi tækni verið fullkomnuð og með tölvutækninni er þetta ekkert mál lengur. Tölvusnillingarnir sem unn- ið hafa við Multiplicity hafa svo sannarlega unnið fyrir kaupinu sínu því Michael Keaton leikur fjórar persónur sem allar eru meira og minna saman í mynd og er útkoman svo trúverðug að það er ekki fyrr en eftir að myndinni lýkur að maður fer að velta því fyrir sér hvemig þetta var í rauninni hægt. Michael Keaton hjálpar einnig mikið upp á trúverðugleikann; hann er frábær í öllum hlutverkunum og samtöl hans viö „sjálfan sig“ era með ólíkindum sannfærandi. Keaton leikur byggingaverkstjórann Doug Kinney sem hefur engan tíma til aö gera annað en að vinna. Álagið er mikið og hann getur ekki sinnt fjölskyldunni sem skyldi. Þegar hann er við vinnu á spítala fer allt úrskeiðis og hann bugast. Bjargvætturinn birtist í líki dr. Owens Leeds sem segist skulu skapa eftirmynd Dougs sem megi nota í vinn- una. Doug geti þá sinnt fjölskyldunni á meðan eftirmyndin puðar. Allt gengur að óskum en heimilislífið er strembið. Hvers vegna ekki að fá annað afrit í heimilisstörfin svo hægt sé að stunda golf og siglingar? Það reynist leikur einn en málið versnar þegar eftirmyndunum fmnst þær hafa of mikið að gera og næla sér í fjórða afritið. En þar sem þeir eru ekki hinn upprunalegi Doug Kinney verður númer Qögur aðeins hálfviti. Harold Ramis hefur sannað sig sem einn besti leikstjóri gaman- mynda í Hollywood og er skemmst að minnast hinnar ágætu Ground- hog Day. Honum bregst ekki bogalistin hér frekar en áður og hefur gert gamanmynd sem kemur verulega á óvart - er skemmtileg og fyndin en um leið mannleg. Multiplicity er þó fyrst og fremst kvikmynd Michaels Keatons. Hann nær einstaklega góðum tökum á fjórmenningunum því þótt þeir séu eins í útliti hafa þeir ólíka skapgerð og era misvitrir. Keaton rennir sér auðveldlega í gegnum allar persónumar eins og stór- leikurum er einum lagið og gerir Multiplicity að einni af skemmtilegri myndum sumarsins. Leikstjóri: Harold Ramis. Handrít: Chrís Miller & Harry Hale, Lowell Ganz og Babaloo Mandel. Kvlkmyndataka: Laszlo Kovacs. Tónlist: George Fenton. Aðallelkarar: Michael Keaton, Andle MacDowell, Harris Yulln og Rlchard Masur. Hilmar Karlsson Sam-bíóin - Eraser Klæðskerasaumuð fyrir Arnold Amold Schwarzenegger er eigin- lega búinn að moka flórinn í leit að nýjum hetjum. Hann er búinn aö leika fornaldarkappa, framtíðar- kappa, vélmenni og allar gerðir af löggum og njósnurum þannig að það er erfitt að finna nýtt hlutverk fyrir hann. í Eraser er þó komin ný út- gáfa af lögreglumanni sem örugg- lega á sér enga stoð í veruleikanum, lögreglumanni sem er síöasti hlekk- urinn í þeirri viðleitni FBI að verja vitni sem eiga að vitna gegn hátt settum glæpamönnum. Schwarzenegger er sem sagt John Krager sem starfar einn. Þegar allt annað bregst er leitað til hans og að sjálfsögðu sér hann um að vitnin mæti fyrir rétt þegar þeirra er þörf. í byrjun myndarinnar sjáum viö vinnuaöferðir Krugers sem eru nokkuð grófar, allavega fyrir þá sem verða á vegi hans og eru ekki réttu megin við lögin. Krager afgreiðir málið í byrjun með glæsibrag, skilur eftir brunnar rústir og nokkur lík. Það reynist honum erfíðara að vemda næsta vitni sem er ung stúlka sem sá margt sem hún átti ekki að sjá á vinnustað sínum og lætur FBI vita. Það kemur í ljós að hún býr yfir vitneskju sem geta reynst stóram glæpasamtökum illa, samtökum sem teygja sig inn í æðstu embætti í hemum og lögreglunni. Eraser er klæðskerasaumuð fyrir Amold Schwarzenegger og hann gerir vel það sem hann kann best, það er að vera yfirburðamaður í ná- vígi sem og í meðferð vopna, sannkallaður töffari sem hræðist ekki neitt, ekki einu sinni það að stökkva úr flugvél í mikilli hæð út í tómið og treysta á að hann nái til fallhlífar sem er ein og yfirgefin á sömu leið, niður. Eraser er akkúrat það sem maður býst við, heilmikil skemmtun með frábæram áhættuatriðum og tæknimönnum í miklu stuði. Á móti kem- ur að hún býður ekki upp á neitt nýtt, allt er samkvæmt bókinni og fátt sem kemur á óvart og Schwarzenegger hefur ekkert breyst, betri eftir því sem orðin eru færri. Lelkstjóri: Charies Russell. Handrit: Tony Puryear og Walon Green. Kvikmyndataka: Adan Greenberg. Tónllst: Alan Sllvestri. Aóalleikarar Amold Schwarzenegger, James Caan, Vanessa Wllliams, James Coburn og Robert Pastorelli. Hilmar Karlsson Háskólabíó: flugurnar Hunangsflugurnar skarta miklum fjölda framúrskarandi leikara. Þær Anne Bancroft, Ellen Burstyn, Alfre Woodard og Kate Neliigan eru allar í hlutverki kvenna sem gefa Finn (Winonu Ryder) ráö varöandi ástamálin og miöla henni af reynslu sinni. Hunangsflugurnar eru tilfinn- ingaþrangin mynd með hárfínan húmor. Viðfangsefni myndarinnar er á hvaða hátt konur elska karl- menn. Leikstjórinn er kona, Ástral- inn Jocelyn Moorhouse sem fram að þessu hefur mest fengist við kvik- myndaframleiðslu. Handritið er byggt á skáldsögu konunnar Whit- ney Otto. Er þetta ekki dæmigerð kvennamynd sem engum karlmanni dytti í hug að fara á? Slíkar spurn- ingar hljóta að vakna í huga sumra karlmanna þegar þeir kynna sér hvað kvikmyndin Hunangsflugurn- ar (How to Make an American Quilt) hefur upp á að bjóða. En staðreyndin er sú að þessi mynd hefur ekki síður vakið áhuga karlmanna en kvenna á þeim vik- um sem hún hefur verið sýnd í kvikmyndahúsum vestanhafs. Mik- ill fjöldi úrvalsleikara kemur fram í myndinni. Hver kannast ekki við nöfn eins og Anne Bancroft, Winona Ryder, Kate Nelligan, Alfre Wood- ard, Dermot Mulroney, Ellen Burstyn, Samantha Mathis og Maya Angelou? Þrátt fyrir að margar persónur komi við sögu þá er það Winona Ryder sem er þungamiðja myndar- innar. Hún leikur stúlkuna Finn sem er nýútskrifuð úr háskóla í Berkeley. Hjá henni blasir við að taka ákvörðun um hvort hún stofni til varanlegs sambands með kærast- anum sínum, Sam (Mulroney). Finn ákveður að skreppa í heim- sókn til ömmu sinnar og frænku sem búa á friðsælum stað í Kali- fomíu. Þar kynnist Finn fiölda kvenna sem miðla henni af reynslu sinni í ástamálunum og breyta að mörgu leyti viðhorfi hennar tÚ þess- ara mála. Hún heyrir tilfinninga- þrungnar reynslusögur 8 kvenna á öllum aldri og spanna þær allt aftur til ársins 1860 og í nútíðina. Að því leytinu til er myndin Hunangsflug- urnar ekki ósvipuð annarri kvik- mynd, Fried Green Tomatoes sem er einnig byggð á frásögn aðalper- sónanna á gamalli og liðinni tíö. Eftir þvi var tekið hve samvinna þessara frægu leikkvenna gekk vel og þær hlóðu reyndar allar lofi hver á aðra að lokinni myndatökunni. Höfundur bókarinnar, Whitney Otto, var viðstödd mestallan tímann á meðan tökur fóru fram. Hún var mjög ánægð með meðferð Moorho- use á handritinu og fannst það ævintýri líkast að fá að vera áhorf- andi. „Þegar ég samdi bókina hafði ég engar sérstakar persónur í huga og heldur ekki neinar fyrirmyndir. Þess vegna var það mér svo mikið ævintýri að sjá allan persónurnar í bókinni og umhverfið spretta upp ljóslifandi fyrir mér,“ sagði Otto. -ÍS Winona Ryder Einstakur ferill Þær eru ekki margar leikkonurnar á 24. aldursári sem geta skartað tveimur tilnefningum til óskarsverð- launa og sömuleiðis tveimur tilnefningum til Golden Globe verðlaunanna. Winona Ryder getur þó státað af því afreki, enda skín frægðarsól hennar afar skært á hvíta tjaldinu og hún hefur áunnið sér nafn sem ein af hæfileikaríkustu leikkonum vestanhafs. Ekki spillir útlitið fyrir þessari smávöxnu leikkonu, en Ryder hefur passað sig á því að festast ekki í hlut- verkum sem gera mest út á útlitið. Kvikmyndin Hun- angsflugurnar er en ein rósin í hnappagat hennar, en hún hefur það mikið fyrir stafni, að hún hefur þegar lokið við leik í tveimur kvikmyndum til viðbótar sem enn eru ekki komnar til sýninga hér á landi. Það eru myndimar Boys með Lukas Haas (Vitness) og The Cracible þar sem meðleikari hennar er sjálfur Daniel Day Lewis. Winona þykir vera allra kvenna snjöllust að bregða sér í ólík hlutverk. Af upptalningu mynda hennar sjá menn glögglega að þær eiga litið sameiginlegt annað en þaö að skarta henni í aðalhlutverkum. Fyrir mynd- imar Age of Innocence og Little Woman fékk hún óskarsverðlaunatilnefningar, en margir muna eftir henni úr myndum eins og Bram Stoker’s Dracula, Edward Scissorhands, The House of the Spirits, Great Balls of Fire og Beetlejuice. Winona Ryder er fædd og uppalin í Minnesota. Hún fæddist i bænum Winona í Petaluma héraði í Kalifomíu og var skírð eftir heimabæ sínum. Umboðsmaður í kvikmyndum tók eftir henni þegar hún var 13 ára, á leiksviði i San Fransisco. Hún fékk fljótlega eftir það hlutverk í fyrstu mynd sinni, Lucas og síðan hef- ur leiðin legið upp á við. Framtíöin er björt hjá Winonu Ryder.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.