Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 35
13 "\F LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 43 Draumurinn að keppa á heimsmeistaramótinu - segir Steinar Fjeidsted hjólabrettakappi Steinar Fjeldsted á fullri ferð á hjólabrettinu en hann sigraöi á mótinu sem fram fór á dögunum. „Það hefur orðið gífurlegur áhugi á hjólabrettaíþróttinni undanfarin ár og iðkendum fer mjög fjölgandi. Ég man að fyrst þegar við vorum að byrja vorum við um 10 sem stun- duðum þetta að ráði en nú eru mörg hundruð iðkendur. Það kom berlega í ljós á mótinu um daginn en þá var mjög fjölmennt og góð keppni,“ sagði Steinar Fjeldsted hjólabretta- kappi, en hann sigraði á stærsta hjólabrettamóti sumarsins sem fram fór á dögunum. Steinar, sem er tvítugur, hefur verið á hjólabrettum síðan hann var 9 ára en segist hafa tekið þetta.af alvöru þegar hann 13 ára. „Þetta er mjög skemmtileg íþrótt og maður verður algjörlega háður henni. Það er hraðinn, tæknin og spennan sem gerir þetta svo æsandi og það þarf oft að hugsa um marga hluti á sama augnabliki. Þetta er ekkert hættulegra en aðrar íþróttir. Það er erfitt að byrja og það tekur nokkurn tíma að ná tökum á þessu en þetta kemur allt með tímanum. Helsti iðkendahópurinn er frá 13 ára og upp í 25 ára,“ sagði Steinar. Keppti í Bandaríkjunum Líf Steinars snýst um hjólabretti því hann vinnur hjá Brettafélagi Dagur í lífi Valgeirs Skagfjörð: w ik hi hliðin W W Mamma er fallegust Valgeir Skagfjörð er þekktur sem leikari, leiksfjóri og leikskáld. Þessa dagana leikstýrir hann söngleiknum Sumar á Sýrlandi sem sýndur er í Loftkastalanum. Fullt nafn: Valgeir Skagfjörð. Fæðingardagur og ár: 8. maí 1956. Maki: Guðrún Gunnarsdóttir. Böm: Lilja Ólöf, Jara, Anna Hjör- dís og Elísabet. Bifreið: Volvo. Starf: Leikari, leikstjóri og leik- skáld. Laun: 120 þús. á mánuði. Áhugamál: Stangaveiði og útivist. Hefur þú unnið i happdrætti eða lottói? Nei. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Mér finnst skemmtileg- ast að vera með fjölskyldunni og eiga frí. Hvað finnst þér leiðinlegast aö gera? Leiðinlegast að hugsa um peningamál. Uppáhaldsmatur: Önd. Uppáhaldsdrykkur: íslenskt bergvatn. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag? Amerísku hlaupakonurnar eru svakalega öfl- ugar. Uppáhaldstfmarit: Leikhúsmál, Leiklistarblaðið, Menningarhand- bókin og Sportveiðiblaðið. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Mamma mín þegar hún var ung Ertu hlynntur eða andvígur rík- isstjóminni? Ég er hálfandvígur henni. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Nelson Mandela. Uppáhaldsleikari: Robert De Niro. Uppáhaldsleikkona: Marilyn Monroe. Uppáhaldssöngvari: Nat King Cole. Uppáhaldsstjómmálamaður: Svavar Gestsson. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Hómer Simpson. Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir og fréttatengt efni, fótbolti og handbolti. Uppáhaldsmatsölustaður/veit- ingahús: Amigos. Hvaða bók langar þig mest til að lesa? Mig langar til að lesa Fighting the Dragons. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Mér finnst Gufan best. Uppáhaldsútvarpsmað- ur: Þeir eru allir eins. Hvaða sjónvarps- stöð horfir þú mest á? RUV hefur vinninginn. Uppáhaldssjón- varpsmaður: Eng- inn. Uppáhalds- skemmtistað- ur/krá: Ég fer ekki á skemmti- staði nema ég nauðsynlega þurfi. Uppáhaldsfélag í íþróttum? Ég held með KR í fótbolta. Stefnir þú að einhverju sér- stöku í framtíðinni? Ég stefni að því að þroskast andlega. Hvað gerðir þú í sumarfríinu (Ætlar þú að gera í sumarfrí- inu?) Ég fór nokkra daga í veiði og vonast til að komast nokkra daga i viðbót. Valgeir Skagfjörö stefn- ir aö því aö þroskast andlega. mmmmmmmmmmmmmammtmmmmamammmam pmm Hér er einn keppandi aö sýna listir sínar. Reykjavíkur sem er eina félag hjóla- brettamanna á íslandi. Steinar segir að nú sé á döfinni að reyna að fá innanhússaðstöðu fyrir veturinn og er hann bjartsýnn á að það náist á næstunni. Steinar hefur undanfarið ár dvalið i Bandaríkjunum og keppt þar á sterkum mótum. Hann segist hafa fengið mikla reynslu þar og nú sé hann í betri æfingu fyrir mótin hér heima og afslappaðri. „Það eru margir góðir hjóla- brettastrákar hér heima og breiddin er alltaf að verða meiri. Það er draumurinn að komast á heims- meistaramótið og ég er staðráðinn að láta þann draum verða að veru- leika einhvem tímann. Núverandi heimsmeistari er rúmlega þrítugur þannig að maður hefur enn nógan tíma,“ sagði Steinar að lokum. -RR < Þessi tók sig léttilega til flugs af stökkbrettinu. Áhorfendur voru fjölmennir á Ingólfstorgi þar sem mótiö fór fram. Einbeitingin leynir sér ekki hjá þessum unga hjólabrettakappa. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.