Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 8
8 sælkerínn LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 Ráðstefnukvöldverður framtíðarinnar sækir efnivið í hreinleika íslensh Blámað vatn og skyr í sú Guöbjörg Pétursdóttir verkefnisstjóri sótti ráöstefnukvöldverö framtíöarinn- ar og segir aö hinir nýstárlegu réttir, sem þar var boöiö upp á, hafi veriö mjög Ijúffengir. DV-mynd Sveinn Ráðstefnugestir framtiðarinnar snæða rétti úr því besta sem fáan- legt er úr íslenskri náttúru. Drykkimir eru búnir til úr hreinu íslensku vatni og hráefnið er tekið úr íslenskri náttúru, það besta sem þjóðin á í dag. Réttim- ir em tengdir við nátt- úru og heilbrigði og hreinleika náttúrunn- ar eins og hægt er, að sögn Guðbjargar Pét- ursdóttur verkefnis- stjóra. Þetta er fram- tíðarsýnin hvað varð- ar kvöldverði á ráð- stefnum framtíðarinn- ar. Nýlega var haldin í Reykjavík fæðuráð- stefna að Hótel Loft- leiðum og var gestum meðal annars boðið til ráðstefnukvöldverðar framtíðarinnar árið 2020 í Perlunni. Þema kvöldverðarins var óður til náttúrunnar enda er það trú þeirra sem stóðu að ráðstefn- unni að í framtíðinni verði besta hráefnið sótt í íslenska náttúru og menn muni vilja varðveita hreinleika náttúrunnar og hreina íslenska vatnið. „Við vildum tengja niðurstöður úr rannsóknum og þróunum í mat- vælaiðnaði á undanfórnum árum því sem er að gerast i íslenskri mat- vælaframleiðslu og gerist í framtíð- inni. Við fengum siðasta árs nem- endur úr Hótel- og veitingaskólan- um til að taka þátt í hugmyndasam- keppni. Við notuðum hugmyndir þeirra við að setja saman þennan kvöld- verð,“ segir Guðbjörg Pétursdóttir verkefn- isstjóri. Ráðstefnukvöldverð- urinn í Perlunni samanstóð af hreinu íslensku vatni í kampavínsglasi, blámuðu með blá- berjasafa og skreyttu með bláberjagrein- um. í forrétt var reyksoðin bleikja og grásleppuhrogn með hunangs birkisósu, í aðalrétt var lamba- kjöt með jurtakrydd- aðri sósu og íslensku smælki með hýði, millirétturinn var fjallagrasaseyði og einnig agúrkusorbet. í eftirrétt var borið skyr í hátíðarbún- ingi, toppað með blá- berjasorbet og borið fram í súkkulaði- körfu með Ijúfiengri sósu. „Þetta var svolítið sérstakur og öðruvísi kvöldverður. Þetta var æð- ir hún. Jöklaskreytingar Þemað gekk sem rauður þráður gegnum kvöldverðinn, skemmtiat- riði og umhverfi ráðstefnugesta. Tekið var á móti fólkinu í anddyri Perlunnar með vatninu í fordrykk með gosbrunninn þar í bakgrunni. Þar voru útskomar skreytingar úr jökli. Þegar Karlakór Reykjavíkur var búinn að syngja nokkur lög um íslenska náttúru gengu ráðstefnu- gestir upp stigann við vatnsnið. í lok kvöldverðarins gengu þeir líka niður og aðeins blá ljós, sem tákn- uðu vatn, lýstu þeim. Skreytingar á borðum ráðstefnu- gesta voru hraunmolar skreyttir með lyngi og villijurtum úr náttúr- unni, allir fengu litla villiblóm- vendi. Guðbjörg segir að ráðstefnu- gestir hafi verið mjög ánægðir með kvöldverðinn, „fólk var alveg í skýj- unum með allt saman, umgjörðina og skemmtiatriðin," segir hún. „Það voru allir ofsalega jákvæðir," segir hún. Emilíana Torrini söng ásamt karlakómum og Össur Skarphéð- insson þingmaður var veislustjóri í þessum nýstárlega kvöldverði. Salat og fiskur í stað krabbans Krabbi er sjaldgæfur matur á | íslenskui | enda alls j| sem þo | vilja krabba einhverj- um ástæð- um og | telja hann lítt seðj- andi þó ljúffengur sé. Mörgum þykir heldur óspennandi að : borða krabba á hefðbundinn hátt með ristuðu brauði, smjöri og osti. Hér koma því uppskriftir að réttum fyrir þá sem alls ekki ■ vilja láta krabbakjöt inn fyrir | sínar varir. Rækjur með krabbabragði | - fyrir Qóra til sex | iy2 kg stórar rækjur 2 1 vatn I % dl salt 1 sykurmoli ferskt dillknippi (1 tsk. anis) Náð er upp suðu á vatni, salti, sykri og dillknippi og hugsan- lega anis og látið sjóða í nokkrar mín. Látið kólna og dillið tekið. Þíðið rækjumar í skál með ; dillknippinu. Þegar þær hafa verið þíddar er vökvanum hellt yfir og rækjumar látnar standa í ísskáp í um 12 klst. Ýsa eða þorskur - fyrir fjóra 600 fiskflök, ýsa eða þorskur 2 msk. sítrónusafi y2 dl vatn 1 fiskteningur y2 tsk. basilíkum 3 msk. dillknippi 3 msk. graslaukur 500 g rækjur 2 msk. smjör eða smjörlíki 2 msk. hveiti 1 y2 dl rjómi Fiskfiökin eru lögð á fat. Sítrónu, vatni, tening og kryddi er blandað saman, hellt yfir fisk- inn og látið standa. Fiskinum er snúið einu sinni. Skerið niður og blandið saman dilli og graslauki og skolið rækj- urnar. Blandið smjöri eða smjör- líki saman við, deilið yfir fiskinn og leggið flökin saman. Suðunni er náð upp í vökvan- um, sem fiskflökin hafa legið í, fiskurinn er settur út í og látinn : sjóða í 8-10 mín. Fiskurinn er ; tekinn varlega upp úr og haldið I heitum. Hveiti er hrært saman við rjómann og þeytt. Látið sjóða í nokkrar mínútur. Sósunni er svo hellt yfir fiskinn og afganginum af rækjunum, dillinu og graslauk er stráö yfir. Borið fram með j! kartöflum. I Melónusalat Gott er að raða saman á disk melónubitum, ferskum skræld- um kartöflum og beikoni og hafa í forrétt. Þessi réttur er sérlega sniðugur fyrir þá sem hvorki borða krabba né fisk. -GHS 1 Mei»BSBíaaaa6SM:ranBWir"','',r':i;!a'i;.v7,mwi Létt ostakaka Ostakökur þykja alltaf gómsætar með kaffinu og ekki spillir fyrir ef þær eru af léttara taginu. Hér kemur uppskrift að slíkri köku fyrir þá sem hugsa um línumar. 50 g smjör eða smjörlíki 1!4 dl hveiti V2 dl hafragrjón 1 dl sykur 500 kotasæla 2 egg rifið hýði af 1 sítrónu 1 tsk. vanillusykur 4 msk. jógúrt ber eða ávextir flórsykur Bökunarform með laus- um botni er smurt og ofn- inn er stilltur á 175 gráö- ur. Smjör eða smjörlíki er brætt í potti. Hveiti, hafragrjónum og 2 msk. sykri er blandað saman Íog sett í miðjan ofninn í 10 mín. Kotasælunni er þrýst í gegnum síu eða músuð í : matvinnsluvél. Eggin eru Iþeytt saman og blandað saman við kotasæluna, sítrónuhýðið, vanillusyk- ur og afganginn af sykrin- I um. Hræran er sett í formin og sett í ofninn í 20 mín., tekin svo út og jógúrt smurt á yfirborðiö. Bakað áfram í 20 mín. Kakan er látin kólna og standa í forminu í nokkrar klst. Kakan er skreytt með berjum, til dæmis jarðar- beijum eða melónubitum og flórsykri dreift yfir. -GHS matgæðingur vikunnar Elín Jóhannsdóttir, matgæðingur vikunnar: Grænmetislasagna og frosin bananaterta „Öllum, sem ég hef boðið í mat, hefur þótt þessi grænmetisréttur góð- ur alveg sama á hvaða aldri gestimir eru. Það er mjög gott að gera tvær til þrjár uppskriftir og frysta þær til að eiga því að það er svolítið mál að gera þetta,“ segir Elín Jóhannsdóttir, matgæðingur vikunnar. Elin gefur hér uppskrift að græn- metislasagna og frosinni banana- tertu. Grænmetislasagna 1 bolli sveppir 1 bolli spergilkál 1 bolli laukur 1 bolli púrrulaukur 2 bollar gulrætur 2 bollar kínakál 1 dós niðursoðnir tómatar y2 dós tómatþykkni 50 g rjómaostur 2 grænmetisteningar 1-2 bollar vatn 1-2 dl mjólk/rjómi 100 g smjörllki 5 skeiðar hveiti 11 mjólk 1 dós parmesan 1 egg Sveppir eru steiktir og brokkolí er léttsoðið. Laukur, púrrulaukur, gul- rætur og kínakál er saxað niður og brúnað í olíu á pönnu. Tómatar og rjómaostur er hitað og rauð sósa jönuð á pönnu og svo er öllu grænmetinu nema sveppum og spergilkáli bætt út í. Búinn er til jafningur úr niðursoðnum tómöt- um, tómatpúrru, rjómaosti, græn- metisteningum, vatni og mjólk eða rjóma og parmesanosti og eggi bætt út í. Hvit sósa er sett á botninn á eld- fostu móti, græn lasagneblöð ofan á, tómatjafningurinn, lasagneblöð, hvít sósa og svo koll af kolli. Efst er látið brokkolí og sveppir, ostasósa og svo osti stráð yfir. Bakað í ofni við 180 gráður í 30 mín. Hvít- lauksbrauð og hrásal- at er borið fram með ém réttinum. Frosin banana- terta 200 g HomeBlest kex 3-4 bananar 2 1 vanilluís 2 dl saxaðar heslihnetur 100 g suðusúkkulaði 75 g smjör 2 dl flórsykur 1 dl rjómi 1 tsk. vanilludropar l'/2 dl þeyttur rjómi 1 dl saxaðar heslihnetur til skrauts Kexið er mulið í botn á fati. Banan- ar eru skomir í sneiðar og raðað ofan á, ís er jafnað yfir, hnetum er dreift yfir, svo súkkulaðisós- unni (sjá hér að neðan) og að lokum er kakan skreytt með rjóma og hnetum. Súkkulaði og smjör er brætt í potti við vægan hita. Flór- sykri og 1 dl rjóma er bætt í blönduna og soðið við meðalhita í 5-10 mín. Kælt. Kakan er látin þiðna til hálfs áður en hún er borin fram. Elín skorar á vin- konu sína, Aðal- heiði Ásgeirsdóttur snyrtifræðing. -GHS Elín Jóhannsdóttir gefur uppskrift aö Ijúffengu grænmet- islasagna og frosinni bananatertu í eftir- rétt. DV-mynd Sigrún Lovísa islega gott. Létt að flestu leyti,“ seg- -GHS Ráðstefnukrölílverður .framtíðarífinar ° Blámað vatn skreytt með bláherjagreinum. Forréttur Roýlísoðin bleikjá og grásleppuhrogn með Iiunangsbirkisósu Adalréttur Lamhakjöt ineð jurtakryddaðri sósu og íslensku smælki % ■ MilliréttUr FjaUagrasaseyði og agúrusorbet Eftirréttur Skyr í hálíðarbúningi raeð bláberjasorbet í súkkulaðikörfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.