Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 trimm « i I t t-. V ) ) > > i? Kópavogssundið um næstu helgi: Kepptu við sjálfan þig og sigraðu - margir synda mun lengra en þeir hafa fyrirfram hugmynd um að þeir geti „Með þvl að standa fyrir árlegu Kópavogssundi erum við meðal annars að reyna að aðstoða sundá- hugafólk við að setja sér eitthvert markmið eða takmark til aö stefna að,“ sagði Guðmundur Þ. Harðar- son, forstöðumaður Sundlaugar Kópavogs, í viðtali við DV. „Við höfum þá í huga markmið eins og til dæmis skokkarar og hlauparar hafa með Reykjavíkurmaraþon- inu.“ Kópavogssundið fer fram í þriðja sinn sunnudaginn 8. september nk. í Sundlaug Kópavogs. Fyrirkomu- lagið er þannig að þátttakendur skrá sig í Kópavogssundið og fá í hendur talningarkort. Talið er fyrir alla þátttakendur en hver og einn ákveður sjálfur hve langa vega- lengd hann syndir. Engin tímamörk eru sett keppendum önnur en tíma- mörk keppninnar en hún stendur frá kl. 7 til klukkan 22. Keppendur fá verðlaun í samræmi við þá vega- lengd sem þeir synda. Fyrir 500 m sund er veittur bronspeningur, fyr- ir 1000 m silfur og fyrir 1500 m er veittur gullpeningur. „Það skemmtilega við þetta,“ seg- ir Guðmundur, „er kannski að fólk syndir gjarnan mun lengra en það vissi að það gæti. í fyrri Kópavogs- sundum hefur þetta gerst hvað eftir annað og auk þess eru líka margir farnir að stefna að því að bæta fyrri árangur sinn. Líka má segja með sanni að keppnin felist aðallega í því að keppa við sjálfan sig. í fyrra tóku 650 manns þátt í sundinu og syntu auðvitað misjafn- lega langt en enginn þó minna en 500 metra. Sá sem lengst synti var Ingólfur Steinar Margeirsson en hann fór 25 km. Bæjarstjórinn í Kópavogi, Sigurður Geirdal, lét sig hafa það að synda rúmlega 9 km. Guðmundur Þ. Harðarson benti að lokum á að nú væru fjölmargir skokkarar í „toppformi" eftir að hafa tekið þátt í Reykjavíkurmara- þoninu. Tilvalið væri því fyrir þá og auðvitað aðra að reyna sig í Kópavogssundinu til tilbreytingar frá skokki og götuhlaupum. Kópa- vogssundið er eina sundkeppnin fyrir almenning um þessar mundir hér á landi. Sippið bætir svefn og eyðir appelsínuhúð Á síðustu Trimmsíðu bentum við á sippið sem einhveija bestu, einfóldustu, ódýrustu og jafnframt árangiu-sríkustu æfingu fyrir nær alla sem vilja auka líkamlegt þrek sitt. Samkvæmt ábendingu kom- um við nú með eina sippæfingu sem að vísu er sögð nokkuð erfið en jafhframt árangursrík: Um leið og hoppað er á hægri fæti er vinstri fótur í sama mund látinn snerta jörðina mjög lauslega en haldið þétt við hægri fót. Þvínæst er hoppað á vinstri fæti og tiplað á sama hátt meö þeim hægri og þannig koll af kolli. Byijið á því að hoppa í tvær mínútur, hvíla í eina mínútu og hoppa síðan aftur í tvær mínútur. Þetta er endurtekið þrisvar sinn- um. Með tímanum er hvíldartím- inn á milli æfmga styttur, fyrst niður í 30 sekúndur og síðan í 15 sekúndur. Þeir sem komnir eru í þjálfún og sippa hratt þrisvar til fjórum sinn- um í viku í sex mínútur í senn án nokkurrar hvíldar eru komnir í mjög gott líkamlegt ástand og eiga hvorki að þurfa að óttast svefn- leysi, offitu né appelsínuhúð, sem svo margar konur beijast stöðugt við. Þeir sem lengra eru komnir í sippæfmgum ættu helst að sippa jafnfætis. Byrjendmn er hins vegar ráðlagt að „hlaupa" yfir sippu- bandið, fyrst með hægri fæti og þegar hann hefúr numið við jörð- ina þá með vinstri fæti, án þess að hoppa á milli. Best er að sippa með jöfhum hraða og láta úlnliðina snúast með sippubandinu. Þannig þjálfast handleggir, bijóst- og bak- vöðvar. ■f. Fjórheilagt á Esjunni Þær Berglind Bjarnadóttir og Ásta Gunna Kristjánsdóttir eiga sama afmælisdag, þó nokkur ár séu á milli þeirra. Fyrr í vetur gáfu þær út þá yfirlýsingu að næsti afmælis- dagur yrði haldinn hátíðlegur meö því að ganga á Esju. Hvorug þeirra hafði klifið það fjall áður. Ekki fer neinum sögum af hvort þær stöllur sáu síðar eftir þessari yfirlýsingu en að morgni afmælisdagsins fyrir nokkru leit ekki vel út með veður svo ákveðiö var að hætta við allt saman. Veðrið skánaði þegar líða tók á daginn og þær voru hvattar Umsjón Ólafur Geirsson óspart til að skella sér á Esjuna. Vinir og kunningjar voru líka bún- ir að ákveða að færa afmælisböm- unum stóra rjómatertu þegar á toppinn væri komið. Um það vissu þær Berglind og Ásta hins vegar ekki neitt. Veislan var reyndar ekki aðeins vegna þeirra tveggja því Ásta og eiginmaður hennar, Steinarr, fognuðu sama dag 18 ára hjúskap- arafmæli og fyrirtæki eiginmanns- ins hafði þá starfað í 5 ár. Sem sagt fjórheilagt á Þverfellshomi á Esj- unni. En upp fór hópurinn að lok- um og myndin sýnir hvar afmælis- böm og gestir þeirra eru rétt í þann mund að klára tertuna. Einhver hafði á orði að tertan hefði séð til þess að það sem tapast hefði af kíló- um við gönguna upp heföi bæst við í þessari óvæntu afmælisveislu. - engin álagsmeiðsl og umhverfisins verður best notið á göngu Maður er eiginlega ekkert inni í þessu trimmi nema maður sé á fullri ferð á hlaupum og mér fmnst við bara vera fyrir á göngunni, heyrðist ein göngukonan segja við vinkonu sína á dögunum. Vinkonan sat reyndar í bíl og sú gangandi sagði þetta um leið og hópur skokk- ara fór hjá rétt við Ægisíðuna í Reykjavík. Rétt er það - gangan er ekki fyrirferðarmest í umræðunni um líkamsrækt og hreyfingu og fljótt á litið mætti halda að ganga væri almennt ekki mikið stunduð af fólki í dag. Ljóst er þó að göngufólk- ið leynir á sér og fjöldinn er líklega meiri en margan grunar. Rannsóknir hafa einnig sýnt að röskleg ganga hefur margt fram yfír aðrar greinar líkamsræktar fyrir venjulegt fólk. Fyrst má kannski telja það sem ekki kemur líkams- rækt beint við. En það er að á göngu er betra tækifæri til að njóta um- hverfisins en til dæmis við skokk eða hjólreiðar. Á göngu er hægt að virða fyrir sér náttúruna ef verið er utan þéttbýlis og í þéttbýli sér mað- ur betur lífið í kringum sig, það fólk sem maöur mætir o.s.frv. Álags- meiðsli eru auk þess lítil sem engin við göngu. Þeir sem ekki vilja skokka, hjóla leika tennis eða sinna öörum íþróttagreinum en vilja gjaman stunda líkamsrækt ættu að huga að gönguferðum. Einn af kostum göng- unnar fram yfir aðrar íþróttir er að fólk af öllu tagi, ungir og gamlir, getur iðkað göngu hvar sem er og hvenær sem er. Rannsóknir í Bendaríkjunum hafa sýnt að aöeins þarf að ganga 500 til 1000 metra til þess að hjartað komist upp í 70% af fullri starfsemi. En hve fljótt það gerist er háð aldri viðkomandi og líkamlegu ástandi hans. Fjöldi hitaeininga sem brennt er á göngu er annar en við hlaup. Gangi maður 6 km á klukkustund (rösk ganga) brennir maður 130 hitaeiningum en hlaupi maður 11 km á klukkustund brennir maður u.þ.b. 230 hitaeiningum eða helm- ingi meira. Þetta þýöir að meö því að ganga helmingi lengur á sama hraða brennið þið jafnmörgum hita- einingum og meö því að hlaupa. Reglubundin ganga, til dæmis 3-4 sinnum í viku, bætir starfsemi blóð- rásarkerflsins og gerir hjartanu kleift að dæla meira blóði við hvert slag. Þegar þið gangið krefst líkam- inn aukins súrefnis og þess vegna andið þið dýpra og kröftugar. Jafn- framt eykst hjartsláttur svo að meira hlóð berst til ganglimanna. Rétt er að taka fram að ef gengið er hægt og með hléum, svo sem til að skoða i búðarglugga, verður örvun á blóðrennsli og aukning á hjartslætti óveruleg. Á myndinni eru, frá hægri: Berglind Bjarnadóttir, Steinarr Steinarsson, Ásta Gunna Kristjánsdóttir, Lára Jóhannsdóttir, Grétar Guóni Guömundsson, Guörún Sigurgeirsdóttir og Eiríkur Eiösson. DV-mynd Svanur Eiríksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.