Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 46
54 afmæli
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 T*V\7*
Ólafur Ingvarsson, fyrrv. sjómað-
ur og bóndi, Vindási í Kjós, nú bú-
settur á Elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund, Hringbraut 50, Reykjavík, er
níræður þann 2.9. nk.
Starfsferill
Ólafur er fæddur á Kálfholtshjá-
leigu, Holtum. Þegar hann var ellefu
ára að aldri fór hann til vandalausra
að Bjólu og var þar til sextán ára
aldurs. Þaðan fór hann að Austvaðs-
holti og síðan að Snjallsteinshöfða-
hjáleigu.
Ólafur byrjaði til sjós árið 1924, á
Svani, opnum árabáti sem reri frá
Báruskeri, sunnan Sandgerðis. Skip-
stjóri var Guðjón frá Syðstakoti.
Árið 1926 fer Ólafur á togara, fyrst á
Gulltopp en þar var Ágúst Bjama-
son skipstjóri. Árið 1930 fer Ólafur á
Belgum, til Aðalsteins Pálssonar
skipstjóra.
Ólafur fór að búa í Litlutungu,
Holtum, árið 1931 en var til sjós á
vetuma. Hann fluttist aö Stærribæ,
Grímsnesi, árið 1935 og var þar í eitt
ár áður en hann flutti til Reykjavík-
ur árið 1936 og fór að vinna á togur-
um. Lengst af var Ólafur með Krist-
jáni Kristjánss skipstjóra. Ólafur
var á togaranum Arinbimi Hersi
árið 1939 þegar Þjóðverjar gerðu
árás á skipið og allmargir særðust
af sprengjubrotum, þ.á m. Ólafur.
Skipstjóri í þeirri ferð
var Steindór Ámason.
Árið 1953 fer Ólafur í
land og vinnur við al-
menna byggingavinnu í
tvö ár, en árið 1955 fer
hann að búa á Vindási í
Kjós og býr þar til ársins
1978 en þá flyst hann aft-
ur til Reykjavíkur og
vinnur í 14 ár í Kassa-
gerð Reykjavíkur, eða til
ársins 1989.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist fyrri konu sinni
árið 1935. Hún hét Ólöf G. Jakobs-
dóttir, f. 28.7. 1908, d. 13.4. 1995, hús-
móðir og saumakona. Foreldrar
hennar vora Jakob Bjömsson, smið-
ur og sjómaður í Vík í Mýrdal, og
Guðriður Pétursdóttir. Ólafur og Ól-
öf slitu samvistum.
Ólafur kvæntist seinni konu sinni
árið 1957. Hún hét Kristín Jónsdótt-
ir, f. 14.10. 1907, d. 14.4. 1993, hús-
móðir. Foreldrar hennar voru Jón
Bjamason, Sandi i Kjós, og Guðrún
Guðnadóttir frá Eyjum í Kjós.
Böm: Sljúpdóttir Ólafs frá fyrra
hjónabandi er Jakobína G. Finn-
bogadóttir, f. 6.12. 1928. Fyrri maður
hennar var Bjöm Sveinbjömsson, f.
30.12.1925, d. 23.7.1985, verkfræðing-
ur en seinni maður hennar var Þór-
ir Kr. Þórðarson, f. 9.6.
1924, d. 26.2. 1995, pró-
fessor. Jakobína á fimm
börn.
Stjúpbörn Ólafs frá
seinna hjónabandi em
Elín Jónsdóttir, f. 31.3.
1946, gift Jóhanni Guð-
mundssyni, fangaverði
og eiga þau þrjú böm;
Guðni Jónsson, f. 13.10.
1942, bifvélavirki á Akra-
nesi, kvæntur Ingveldi
Sveinsdóttur og á Guðni
þrjú böm.
Alsystkini Ólafs: Kári, f. 1898, d.
1905; Guðrún, f. 1901, d. 1981, hús-
móðir, Markarskarði, Holtum; Jósef-
ina, f. 1904, d. 1904; Magnea, f. 1907,
húsmóðir í Reykjavík; Sigurður, f.
1909, jámsmiður í Reykjavik; Guð-
mundur, f. 1913, iðnverkamaðm- í
Reykjavík, og Kári ísleifur, f. 1915,
húsasmíðameistari í Reykjavík.
Hálfsystkini Ólafs frá fyrra hjóna-
bandi foður hans: Sigurður, f. 1892,
nú látinn, áöur vörabifreiðarstjóri á
Eyrarbakka, og Jón, f. 1892, nú lát-
inn, vegaverkstjóri á Selfossi.
Foreldrar Ólafs vora Ingvar Pétur
Jónsson, f. 21.6. 1862, d. 31.3. 1940,
trésmiður og bóndi, og Katrín Jós-
efsdóttir frá Ásmundarstöðum í
Holtum, f. 23.5. 1872, d. 23.10. 1938,
húsfreyja.
Ætt
Ingvar var sonur Jóns, b. í Aust-
vaðsholti í Landsveit, Þorsteinsson-
ar, b. í Austvaðsholti, Grímssonar, b.
í Austvaðsholti, Þorsteinssonar.
Móðir Jóns var Guðrún Runólfsdótt-
ir, prests í Krókstúni, Jónssonar.
Móðir Ingvars var Vigdís Guð-
mundsdóttir, b. á Haugum í Staf-
holtstungum og síöar á Stokkalæk,
Ólafssonar, b. á Hamri i Borgar-
hreppi, Sveinssonar. Móðir Guð-
mundar var Guðlaug Oddsdóttir.
Móðir Vigdísar var Ragnhildur
Brandsdóttir, b. í Sólheimatungu,
Sigmundssonar og Vigdísar Ólafs-
dóttur.
Katrín var dóttir Jósefs, b. á Ás-
mundarstööum í Holtum, bróður
Ingveldar, móður Einars í Búðar-
koti, langafa Ingvars í ísbiminum,
föður Jóns, stjómarformanns SH.
Bróðir Einars var ísleifur, afi Gunn-
ars M. Magnús rithöfundar. Systir
Einars var Ragnhildur, langamma
Halls söngvara, föður Kristins óp-
erasöngvara. Jósef var sonur ísleifs,
b. á Ásmundarstöðum, Haf- liðason-
ar ríka á Syðstubrekku, Þórðarsonar
Skálholtsráðsmanns, Þórðarsonar.
Ólafúr býður frændum og vinum
til kaffi- og samverastundar í fond-
ursal Litlu-Grundar sunnudaginn
1.9. eftir kl. 15.00.
Ólafur Ingvarsson.
Björn Ingi Gíslason
Bjöm Ingi Gíslason
hárskerameistari, Gras-
haga 17, Selfossi, er
fimmtugur þann 2.9. nk.
Starfsferill
Bjöm Ingi er fæddur í
Reykjavík en fluttist á
Selfoss tveggja ára gam-
all ásamt foreldrum sín-
um þar sem faðir hans
stofnaði eigin rakar-
stofú. Síðan hefur Bjöm
Ingi verið búsettur á Sel-
fossi.
Bjöm vann við ýmis störf þar til
hann hóf nám i hárskurði hjá fóður
sínum að Kirkjuvegi 17 þar sem
Gísli faðir hans átti og rak stofu.
Björn lauk námi 1970 en opnaði eig-
in stofu, Rakarastofu Bjöms Gísla-
sonar, að Eyrarvegi 5 þann 4.12.1971.
Björn hefur alla tíð
verið virkur í félagsmál-
um. Hann hóf fyrst af-
skipti af knattspyrnu-
málum á Selfossi en var
formaður knattspyrnu-
deildarinnar í 13 ár.
Hann var formaður UMF
Selfoss í sex ár; sat í
stjóm JC Selfoss og Sjálf-
stæðisfélagsins Óðins á
Selfossi í nokkur ár.
Björn á sæti í bæjar-
stjóm Selfoss fýrir Sjálf-
stæðisflokkinn síðan
1990; hann er formaður skólanefnd-
ar Tónlistarskóla Árnesinga; for-
maður íþrótta og tómstundaráðs Sel-
fossbæjar og hefur verið formaður
Meistarafélags hárskera sl. 3 ár.
Bjöm hefur alla tíð verið áhuga-
maður um tónlist en hann lék i eina
tíð í nokkram hljómsveitum á Suö-
urlandi, s.s. Limbó Kvartett og Mán-
um.
Fjölskylda
Björn Ingi er kvæntur Hólmfríði
Kjartansdóttur, f. 6.1. 1948, af-
greiðslufulltrúa. Hún er dóttir
Kjartans Einarssonar trésmíða-
meistara og Katrínar Aðalbjöms-
dóttur verkakonu.
Bjöm og Hólmfríður eiga tjóra
syni. Þeir eru: Kjartan, f. 4.9. 1965,
hárskeri, kvæntur Ásdísi Hrönn
Viðarsdóttur og eiga þau þrjú böm,
Hólmfríði Emu, Viðar Örn og Katr-
ínu Örnu.
Gísli, f. 4.11. 1969, kaupmaður og
á hann einn son, Bjöm Frey.
Einar, f. 26.7. 1974, hljóðmaður,
sambýliskona hans er Þorbjörg
Tryggvadóttir.
Bjöm Daði, f. 2.5. 1980, nemi.
Björn á einn albróður, Gylfa Þór
Gislason, f. 20.12. 1949, íþróttakenn-
ara á Selfossi.
Þrjú hálfsystkini Björns, sam-
feðra, eru á lifi. Þau eru Ámundi
Reynir Gíslason, f. 6.7. 1924, búsett-
ur i Kópavogi; Ingigerður Lillý
Gísladóttir, f. 11.1. 1928, búsett í
Reykjavík, og Regína Hanna Gísla-
dóttir, f. 17.11. 1932, búsett í Garða-
bæ.
Foreldrar Björns voru Gísli Sig-
urðsson, f. 24.12. 1896, d. 6.6. 1970,
hárskerameistari, og Rannveig Sig-
urbjömsdóttir, f. 1.12. 1918, d. 1.4.
1983, húsmóðir. Þau vora lengst af
búsett á Selfossi.
Björn tekur á móti ættingjum og
vinum ásamt fjölskyldu sinni í Hót-
el Selfossi laugardaginn 21.8. kl.
20.00- 23.00.
Björn Ingi Gíslason.
Tómas Magnússon
Tómas Magnússon húsasmíða-
meistari, Stóra-Sandvík, Flóa, Ár-
nessýslu, starfsmaður hjá Alpan á
Eyrarbakka, er sjötugur á morgun.
Fjölskylda
Tómas kvæntist 1.12. 1950 Sigríði
Kristinu Pálsdóttur, f. 5.2. 1930 í
Stóra-Sandvík. Foreldrar hennar
vora Ari Páll Hannesson bóndi,
Stóra-Sandvík, og Rannveig Sigríð-
ur Bjarnadóttir.
Böm Tómasar og Sigríðar Krist-
ínar: Ari Páll, f. 30.9. 1951, húsa-
smíðameistari og sölumaður, kvænt-
ur Guðrúnu Guðfmnsdóttiu:, starfs-
manni Mjólkursamsölunnar. Þau
era búsett á Álftanesi og
eiga saman þrjú böm. Ari
Páll átti áður einn son
meö Svanhildi Sverris-
dóttur. Ari Páll á tvö
barnaböm.
Rannveig, f. 7.9. 1957,
dagmóðir, gift Viðari
Ólafssyni rafvirkja. Þau
era búsett í Kópavogi og
eiga tvo syni.
Magnús, f. 11.8. 1962,
verslunarmaður, kvæntur
Líneyju Tómasdóttur
verslunarmanni. Þau era búsett á
Selfossi og eiga þrjár dætur.
Systkini Tómasar: Matthías, f.
26.6. 1930, vélfræðing-
ur, kvæntur Jónu Lár-
usdóttur og eiga þau
fjögur börn.
Þuríður Jenný, f.
24.6. 1933, starfsmaður
Sjúkrahúss Suður-
lands, gift Ragnari
Hermannssyni og eiga
þau tvær dætur.
Þórhallur, f. 11.9.
1941, flugstjóri, kvænt-
ur Hafdísi Guðbergs-
dóttur og eiga þau tvö
böm.
Foreldrar Tómasar voru Guð-
mimdur Magnús Tómasson, f. 13.5.
1897, a. 27.9.1991, og Anna Brynjolt:
dóttir, f. 30.6. 1900, d. 2.7. 1986.
Magnússon.
Ætt
Föðurforeldrar Tómasar voru
Tómas Þóroddsson, byggingamaður
í Miðkrika og Þóra Eiriksdóttir í
Eystri-Garðsauka, Rangárvalla-
sýslu.
Móðurforeldrar Tómasar voru
Brynjólfur Tómasson og Halldóra
Jónsdóttir, Syðri-Úlfstaðahjáleigu,
Rangárvallasýslu.
Tómas og Sigríður Kristín taka á
móti ættingjum og vinum á afmælis-
daginn, sunnudaginn 1.9., í Inghóli,
Selfossi, kl. 15.00-18.00.
111 hamingju með
afmælið 31. ágúst
85 ára
Andrés Pétursson
Njörvasundi 29, Reykjavík.
Unnur Jóhannsdóttir,
Engjabakka, Eskifiröi.
Sigríður Sigurðardóttir,
Austurvegi 5, Grindavík.
80 ára
Karl Bjamason,
Hofsstaðarseli,
Viðvíkurhreppi.
75 ára____________________
Ágúst Þorsteinsson,
Bergþóragötu 2, Reykjavík.
Ingólfur Amarson,
Blikahólum 10, Reykjavík.
Ólafur Jónsson,
Ránargötu 6, Reykjavik.
70 ára
Bjami Krist-
inn Bjamason,
Einimel 18,
Reykjavík.
Bjarni Kristinn
Bjarnason,
fyrrv. hæstaréttardómari, og
eiginkona hans, Ólöf Pálsdótt-
ir, verða að heiman á afinælis-
daginn.
Gyða Magnúsdóttir,
Starrahólum 4, Reykjavík.
Ólöf Ragnhildur Guðmunds-
dóttir,
Sogavegi 118, Reykjavík.
Auður Sigurbjömsdóttir,
Kambahrauni 5, Hveragerði.
Guðriður Einarsdóttir,
Trönuhólum 14, Reykjavík.
60 áza
Jóhann Þorgeirsson,
Álfheimum 25, Reykjavík.
Emil Valtýsson,
Túngötu 13, Reykjanesbæ.
50 ára
Jóhanna Borg-
hildur Magnús-
dóttir,
Klausturhólum
2, Skaftárhreppi.
Á afmælisdag-
inn verður opið
hús hjá Jóhönnu Borghildi í
Hólaskjóli á Fjallabaksleið
nyrðri.
Halldór Lárusson,
Grænahjalla 21, Kópavogi.
Halldór verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Guðrún Jóna Knútsdóttir,
Suðurvangi 10, Hafnarfirði.
Pétur Jónsson,
Hávarðsstöðum, Leirár- og
Melahreppi.
Mattea Mohamed Abdel
Kawy,
Vallarhúsum 61, Reykjavík.
Hörður Siguijónsson,
Hnotubergi 7, Hafnarfirði.
40 ára
Skúli Aðalsteinsson,
Nesbakka 19, Neskaupstað.
Helga Kjartansdóttir,
Ranavaði 3, Egilsstöðum.
Guðrún Elin Gunnarsdóttir,
Ránargötu 30, Akureyri.
Lilja Eiríksdóttir,
Brautarási 6, Reykjavík.
Halla Hjartardóttir,
Fremri-Hvestu, Vesturbyggð.
Guttormur Bjöm Þórarins-
son,
Flókagötu 49a, Reykjavík.
Eyjólfur Sigurðsson,
Orrahólum 3, Reykjavík.
Jóhann Hannes Jónsson,
Suöurengi 6, Selfossi.
Guðmundur Ólafúr Heiðars-
son,
Álfhólsvegi 26, Kópavogi.
Jónína Auður Sigurðardótt-
ir,
Garðavegi 30, Hvammstanga.
Björk Aradóttir,
Heiðarhvammi lc, Reykjanes-
bæ.