Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Side 4
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
Forráðamenn Stöðvar 3 búnir að skipta um myndlykla:
Gáfust loksins upp á
bandaríska „ruglinu"
- hef aldrei kynnst öðrum eins svikum, segir stjórnarformaður Stöðvar 3
Þar kom að því, hefði einhver get-
að sagt í gær þegar frá þvi var
greint að Stöð 3 hefði ákveðið að
skipta um myndlykla og rifta samn-
ingi við bandaríska framleiðandann
Veltech Industries. Fjölrása mynd-
lyklar fyrirtækisins hafa ekki virk-
að hér á landi og haft það í för með
sér að Stöð 3 hefur ekki getað rukk-
að inn áskriftargjöld frá fyrsta út-
sendingardegi 24. nóvember 1995.
Að vísu er stöðin farin nú að rukka
þá sem vilja borga, þótt öll dagskrá-
in sé enn opin. Segja má að stöðin
standi því og falli með velvilja sjón-
varpsáhorfenda um sirin.
Forráðamenn Stöðvar 3 hafa
ákveðið að höfða mál gegn Veltech
vegna vanefnda á samningi. í stað-
inn hafa þeir snúið sér að framleið-
anda myndlykla í Evrópu og vonast
til að geta dreiít nýrri tegund í nóv-
ember nk. eða um það leyti þegar
Stöð 3 fagnar 1 árs afmæli sínu.
Jafnframt eru uppi áform um að
selja áskrift að einstökum dagskrár-
liðum, eða það sem kallast á ensku
„pay-perview“.
Segja má að Veltech Industries í
Flórída hafi farið heldur illa með
forráðamenn Stöðvar 3. Þeir héldu í
vonina um að tæknileg vandamál
leystust og voru reglulega með yfir-
lýsingar í fjölmiðlum, sér i lagi í
Morgunblaðinu, um að myndlyklum
yrði dreift innan tíðar og ráð fynd-
ust við vandanum. Það lenti einkum
á sjónvarpsstjóranum, Úlfari
Steindórssyni, að halda mönnum
góðum og víst er að hann kann Vel-
tech ekki bestu þakkir í dag fyrir aö
standa ekki við gefin loforð.
Viövörun í DV
í þessu sambandi er rétt að rifja
upp frétt sem birtist í DV 16. desem-
ber 1995. Þar var haft eftir sjón-
varpsstjóra bandarískrar stöðvar,
Belanger nokkrum hjá Pagoda
Wireless í Pensylvaníu, sem hafði
pantað sömu gerð myndlykla og
Stöð 3, að þeirra eintök heföu ekki
virkað. Jafnframt furðaði sjón-
landarísk sjónvarpsstöð bíður eftir myndlyklum sömu gerðar og Stöð 3:
éngum prufueintak
sem virkaöi ekki
- segir Cflfar Steindórwon
.Myndlyklar cru tll hjá c5cX-
ur en þaö haía englr verið »f«*
hentír áíkriíendum okkar. V|6
vUjura ekki þaö fyn- ea
viö höíum fcnstíi nógu raars*
tnyndlykia,- sagói Olíar Sitía*
dóruon. sjónvarpusOórf StööV-'
ar 3, vlö DV þcgar hann var
spuröur hvort stöðin \*ri yf-
Irtófuö búin aó fá rayndlyklt
aíhcnta frá Vtítek Industrks II
Flórlda.
Eíasemdir bafa vcriö Upþlí
um oö lyklaralr veru kmmntr:;
til landslns og þess vegn*
bcíðl Stöö 3 Akveölö aö hafj
dagakrána óru&Uöa i d«-
cmbcr. Olfrr sögöl þetu ekid
rttt. Hann vlldt engu að siður
okki gefa upp hvcrsu razrgir
Ij'klar heíöu komifi til landí|
ins. Þcgar CflCar var spurfiar'
hvc marjjir áskriíeDdur vjenÚ
*fi Stfiö 3 vildi hann ckkl bOM
Frétt DV frá 16. desember 1995 sýnir og sannar að tækjabúnaöur Veltech Industries var ekki allur þar sem hann var
séöur.
Fréttaljós
Björn Jóhann Bjömsson
Gunnar M. Hansson.
varpsstjórinn sig á því að Stöð 3
hefði valið afurð Veltech.
Forráðamenn stöðvarinnar hefðu
Úlfar Steindórsson.
betur tekið meira mark á þessari
frétt og sagt strax skiliö við Veltech.
En áfram héldu þeir að treysta fyr-
irtækinu. Þannig var blásiö í her-
lúðra fyrir páska og sagt að mynd-
lyklum yrði dreift eftir páska. Þeim
sem greiddu áskrift var lofað páska-
eggi í staðinn. Páskaeggin stóðust
en ekkert bólaði á myndlyklunum.
Það var ekki fyrr en nú í sumarlok
að þolinmæði Stöðvar 3-manna í
garð Veltech brást, níu mánuðum
eftir að fyrirtækið lofaði fyrst rugl-
unarbúnaði sem myndi virka.
Sviknir um heildarlausn
Gunnar M. Hansson er stjómar-
formaður íslensks sjónvarps hf. sem
rekur Stöð 3. Hann sagði í samtali
við DV að vissulega hefði Veltech
fari illa með Stöð 3.
„Maður hefur aldrei kynnst öðr-
um eins svikum, ósannindum og
blekkingum og hjá þessu fyrirtæki.
Reyndar fengum við lausn sem
gengur en hún gengur bara hjá
hluta af okkar útsendingarsvæði.
Fyrirtækið sveik það að geta fundið
heildarlausn. Við héldum lengi í
vonina en vorum komnir með hinn
framleiðandann í sigtið strax f vor,“
sagði Gunnar.
Gunnar sagði aðspurður að auð-
vitað mætti deila um hvort ekki
hefði átt að slíta samningum fyrr
viö Veltech en málið væri ekki svo
einfalt. Sá aðili í Evrópu sem þeir
hefðu snúið sér aö hefði ekki verið
tilbúinn fyrr en nú með þessa gerð
myndlykla til fjöldaframleiðslu.
Gunnar vildi ekki gefa upp hvaða
framleiðandi þetta væri, hann væri
þó ekki kunnur hér á landi.
Enginn lifir án tekna
„Vandinn hefur að sjálfsögðu ver-
ið sá að við höfum verið tekjulaus-
ir. Það er ekki til fyrirtæki sem get-
ur lifað þannig. Viö erum bjartsýn-
ir á aö okkur takist að safna auknu
hlutafé. Við erum með góðan og
tryggan áskrifendahóp sem hefur
staðið vel við bakið á okkur. Við
höfum komið upp öflugu dreifikerfl,
fólk þekkir dagskrána okkar og
starfsfólkið hefur fengið góða þjálf-
un þannig aö viö erum ekki á byrj-
unarreit. Sömuleiðis erum við
ánægðir með þennan nýja framleið-
anda og treystum því að hann skili
okkur myndlyklum á réttum tíma.
Þvi getum við farið að horfa fram á
veginn," sagði Gunnar M. Hansson.
Þess má að lokum geta að nýráð-
inn sjónvarpsstjóri Stöðvar 3, Heim-
ir Karlsson, tekur formlega við af
Úlfari þann 15. september næstkom-
andi. Heimir kemur án efa ferskur
inn en líklega er þungu fargi létt af
Úifari. Hann snýr sér nú að fisksölu
á Spáni fyrir SÍF, reynslunni ríkari
úr sjónvarpsheiminum og þarf
væntanlega ekki að hafa afskipti af
Veltech þar.
-bjb
Keflavíkurflugvöllur:
Nýr flugaðili, Suðurflug, að hasla sér völl
- Flugleiðir gerðu tilboð í byggingu félagsins
Ingimar Örn við flugskýli Suöurflugs. DV-mynd
DV, Suðurnesjum.
„Það má segja að þetta sé í fyrsta
skipti sem annar flugaðili en Flug-
leiðir sé að ná fótfestu á Keflavík-
urflugvelli. Við erum að vonast eft-
ir því að þjónusturýmið verði til-
búið fyrir áramót. Eldsneytisaf-
greiðslan verður einnig tilbúin á
svipuðum tíma. Óhætt er að segja
að þetta sé í fyrsta skipti sem elds-
neyti fyrir minni vélar verði í boði
hér á vellinum," sagði Ingimar Öm
Pétursson, framkvæmdastjóri Suð-
urflugs hf. á Keflavíkurflugvelli.
Ingimar segir að þeir hjá Suður-
flugi séu langt komnir með að
ljúka byggingu flugskýlis á Kefla-
víkurflugvelli. Það er nánast við
hliðina á viðhaldsskýli Flugleiða.
Áætlaður kostnaður er um 85 millj-
ónir en verkið er vel innan áætl-
ana. Búiö er aö kaupa nánast allt í
húsið og á næstunni á að raða því
saman með útboðum sem hafa ver-
ið send til fyrirtækja.
Húsið er 1700 m2 að stærð, skýlið
sjálft er um 800 m2 og þjónusturým-
ið er um 450 m2 á tveimur hæðum.
Suöurflug á tvær flugvélar af
smærri geröinni og ekki er ætlun-
in að fjölga í flugflotanum. Helsta
tekjulind félagsins verður aö sögn
Ingimars í flugskýlinu og þjónustu
við flugvélar þar. Það verði nóg
fyrir svona lítið félag að koma
þessu af staö í rekstri.
„Takmarkið er að fá þjónustu
fyrir smærri flugvélar sem á Kefla-
víkurflugvelli lenda. Hins vegar er
það svolítið örðugt vegna einka-
réttar Flugleiða á allri þjónustu við
flugvélar á Keflavíkurflugvelli.
Samningurinn er ekki í samræmi
við viðskiptahætti í heiminum nú
því viðskiptamúrar eru að falla alls
staðar og það er ekkert sem ætti að
verða öðruvísi hér með þjónustu
við þessar vélar. Samningur Flug-
leiða rennur út 15. des. 1997 og það
er von okkar að þeim samningi
verði breytt þannig að við getum
farið að þjóna þeim flugvélum sem
ekki er vel þjónað í dag.
Suöurflug hefur farið út í hiuta-
fjárauknitigu sem gengur vel.
Markaðs- og atvinnumálaskrifstofa
Reykjanesbæjar hefur reynst Suð-
urflugi í þeim efnum mjög vel.
Sandgerðisbær og Eignarhaidsfélag
Suðumesja hf. hafa þegar keypt
hluti og er mikill áhugi nærliggj-
andi bæjarfélaga að taka þátt í
verkefhunum með okkur.
Flugleiðir sendu inn formlegt
kauptilboð i húsið og höfðu áhuga á
að kaupa alla bygginguna sem og
byggingarrétt sem fýlgir. En það er
ekki stefna Suðurflugs að svo fari
heldur að veita þá þjónustu sem upp-
runalega var farið af stað með þann-
ig að tilboðinu var hafnað," sagði
Ingimar Örn Pétursson.
-ÆMK