Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
fólk
Sigrún Edda Björnsdóttir ráðin hjá Þjóflleikhúsinu:
Sigrún Edda verður < a&alhlutverki í Þjóöleikhúsinu í vetur. Á mánudag
skýrist hvaöa leikrit þaö veröur.
DV-mynd Pjetur
Mörgum er í fersku minni þegar Sigrún Edda lék Snæfríöi íslandssól í Hinu Ijósa mani i vetur.
Skrifar handrit að þáttum fyrir sjónvarp
„Ég er ótrúleg tilfinningavera,
stundum óþolandi. Vinir mínir
segja mér að það sé vegna þess að ég
er meyja með rísandi sporðdreka og
í því sé vandinn fólginn. Ég tek oft
mikilvægar ákvarðanir eftir tilfinn-
ingu og eyði svo næstu vikum á eft-
ir í að setja þær í rökrænt sam-
hengi,“ segir Sigrún Edda Bjöms-
dóttir leikkona sem eftir tíu ára
starf hjá Leikfélagi Reykjavíkur hef-
ur sagt samningi sínum lausum.
„Eftir að ég sagði upp hjá Borgar-
leikhúsinu fór ég að skoða mögu-
leikana á því að vinna eftir eigin
höfði og nota eigið frumkvæði. Ég
hef skrifað handrit að þáttum um
Bólu fyrir Sjónvarpið undanfarin ár
og kem til með að halda því áfram í
vetur, auk þess sem ég reikna með
að talsetningar á bamaefni verði
stór hluti af mínu starfi í vetur. Ég
hef unnið að því í sumar að skrifa
handrit að fimm þátta röð fyrir
böm tengdri jólum sem ég er að
vonast til að verði sýnd á Stöð 2 í
desember, nú og svo hafa nokkrir
leikarar komið til mín og beðið mig
að leikstýra sér og það finnst mér
mjög spennandi, hvað svo sem úr
verður," segir hún.
Það leggst mjög vel í Sigrúnu að
starfa í Þjóðleikhúsinu. „Ég get ekki
sagt frá því á þessari stundu hvaða
verkefni það er sem ég leik í, þar
sem ég reikna með að þjóðleikhús-
stjóri vilji sjáifur segja frá verkefn-
um komandi leikárs.“
Sigrún er að vísu ekki alveg
ókunnug því að leika í Þjóðleikhús-
inu. Hún starfaði þar í fimm ár eft-
ir að hún útskrifaðist úr Leiklistar-
skólanum. Sigrún Edda er ein dáð-
asta leikkona landsins. Nokkur
leynd hefur hvílt yfir því hvað hún
muni taka sér fyrir hendur að lokn-
um störfum hjá LR. Sigrún segir að
deilumar í Borgarleikhúsinu hefðu
„Ég var mjög oft valin í stelpuhlutverk í byrjun leikferilsins," segir Sigrún
Edda sem hér er í hlutverki prakkarans Línu langsokks.
vissulega haft sitt að segja hvað
varðaði ákvörðun hennar og hún
hefði ekki verið sammála öllu því
sem þar fór fram. Þó væri aðalá-
stæðan kanski fyrst og fremst sú að
sér hefði fundist tími til kominn að
kíkja aðeins í kringum sig og
bjóða forlögunum birginn.
„Margir sögðu við mig aö
ég væri brjáluð, það yrði
enginn dans á rósum að
vera í lausamennsku í leik-
list. Það er örugglega rétt,
en ég hef verið þekkt fyrir
ýmislegt annað en skyn-
semi í gegnum tíðina."
Tvjsvar Snæfríð-
ur íslandssól
Sigrún er afar fjölhæf
leikkona og hefur sýnt
það og sannað alit frá því
hún útskrifaðist úr Leik-
listarskóla Islands 23 ára
gömul árið 1981. Eitt af
lokaverkefnum hennar
þar var í íslands-
klukku Halldórs Lax-
ness þar sem hún lék
Snæfríði íslandssól
unga. Hún fór síð-
an aftur með hlut-
verk Snæfríðar í
uppfærslu Leik-
felags Reykja- j
víkur á
Hinu Ijósa
mani í
Borgar-
léikhús-
inu á síð-
asta leik-
tímabili.
„Ætli
Sriæfríður
sé „ ekki
eitt
uppá:
haldshlutverkið mitt. Einhveijum
reiknaðist svo til að Snæfríður í
Hinu ljósa mani væri stærsta kven-
hlutverk sem hefur verið leikið á ís-
lensku leiksviði og er það ekki ótrú-
legt. Ég stóð á leiksviðinu í þrjá
klukkutíma, þetta var toppurinn á
tilverunni og ég gat með góðri sam-
visku farið í tveggja mánaða sum-
arfrí upp til heiða sem ég hef ekki
gert i mörg ár,“ segir Sigrún Edda.
Valdist í stelpuhlutverk
Sigrún Edda lék sitt fyrsta hlut-
verk eftir útskrift hjá Leikfélaginu í
Iðnó þar sem hún hljóp inn í hlut-
verk Elskunnar í Ofvitanum eftir
Þórberg Þórðarson, í leikgerð Kjart-
ans Ragnarssonar. Á sama tíma var
hún ráðin við Þjóðleikhúsið þar
sem hún starfaði í fimm ár. Sigrún
hefur leikið fjölmörg minnisstæð
hlutverk á leikferlinum og má þar
nefna túlkun hennar á Steinunni í
Galdra-Lofti, Línu langsokk, Ronju
ræningjadóttur, Sonju í Vanja
frænda, Aldinblóð í Atómstöðinni,
Elínu Helenu og Valentínu í sam-
nefndum leikritum, Báru í Land
míns föður og Ófelíu, svo eitthvað
sé nefnt.
„Ég var mjög oft valin í stelpu-
hlutverk í byrjun leikferilsins enda
var ég mjög ung þegar ég hyrjaði að
leika. Ég hélt því reyndar áfram
fram eftir öllum aldri. Ronju ræn-
ingjadóttur lék ég 34 áia en hún var
ellefu ára í upphafi leikritsins. Hver
veit nema
maður
haldi
áfram
að
leika stelpur þangað til það verður
orðið verulega pínlegt," segir Sig-
rún Edda og glottir.
Lýsir eftir lengri sólar-
hring
„Því er oft þannig farið með leik-
ara eins og aðra að sjálfsvirðing
þeirra er fólgin í starfinu. Þar er ég
engin undantekning. Það er náttúr-
lega alveg afleitt aö vera svona. M.a.
þess vegna vil ég hafa svolítið um
það að segja hvað ég tek mér fyrir
hendur og í hvers konar umhverfi
ég starfa. Það getur aftur á móti ver-
ið talsvert flókið að koma hlutunum
heim og saman þegar maður er
lausráðinn. Við íslendingar erum
því marki brenndir að allar ákvarð-
anir eru teknar á síðustu stundu og
þar er skemmtanabransinn engin
undantekning. Það er nauðsynlegt
að hafa mörg jám í eldinum, því
blessuð gluggabréfin halda áfram að
koma inn um lúguna hvort sem
manni líkar betur eða verr. Ég hef
að undanfornu farið hamfórum í að
leggja drög að verkefnum og nú er
svo komið að mig vantar 24 tíma til
viðbótar við sólarhringinn til að
koma öllu heim og saman því flest
virðist ætla að ganga eftir sem ég
hef undirbúið. Það er ljúfur vandi
fyrir vinnufikil eins og mig. Ég tek
það fram aö ég ber engan kala til
Leikfélags Reykjavíkur, þvert á
móti. Ég á því félagi margt að þakka
og þar á ég góða vini og sem leik-
maður í lausamennsku býð ég mig
fram til starfa í öllum leikhúsum.
hverju nafni sem þau nefnast, og
þar er Borgarleikhúsið engin und-
antekning. Því, eins og skáldið
sagði: Ég vil vinna og vinna, æfa og
æfa, vera í þrotlausi vinnu frá
morgni til kvölds!“ segir Sigrún
Edda sem ætlar að hasla sér völl
sem lausráðin leikkona, handrits-
höfundur og hugsanlega leikstjóri í
vetur. Lesendur eiga áreiðanlega
eftir að fá að sjá meira af henni
þó hún hafi yfirgefið fjalir Borg-
arleikhússins að sinni.
-em
■
'
■
> -
i
i
<
I
*,
4
4
I
i
I
9
-m
i
4