Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Side 12
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
12 erlend bóksjá
I Metsölukiljur
1 ••••••••••••••*
Bretland
Skáldsögur:
1. Nlcholas Evans:
ÍThe Horse Whlsperer.
2. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
3. Patrlcla D. Cornwell:
From Potter’s Fleld.
4. Stephen Klng:
Nlght Journey.
5. Michael Crichton:
The Lost World.
6. Pat Barker:
The Ghost Road.
7. Nlck Hornby:
High Fldellty.
: 8. Josteln Gaarder:
Sophle's World.
9. Danlelle Steel:
Llghtnlng.
10. Tom Sharpe:
Grantchester Grind.
Rlt almenns eðlls:
1. Blll Bryson:
Notes from a Small Island.
2. Simon Nye & Paul Dorman:
A-Z of Behaving Badly.
; 3. Gltta Sereny:
Albert Speer: Hls Battle wlth Truth.
4. Margaret Forster:
Hidden Lives: A Famlly Memolr.
; 5. Gore Vldal:
Pallmpsest: A Memoir.
| 6. Lorenzo Carcaterra:
Sleepers.
7. Paul Theroux:
The Plllars of Hercules.
8. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
9. John Gray:
Men Are from Mars, Women Are
from Venus.
lO.Paul:
The Nemesis Flle.
Innbundnar skáidsögur:
1. Ben Elton:
Popcorn.
2. Chrls Ryan:
Stand By, Stand By.
3. John Grlsham:
The Runaway Jury.
4. Kevln J. Anderson:
X-Files 4: Ruins.
5. Danlelle Steel:
Mallce.
Innbundin rit almenns eölis:
1. Patrlck Cordingley:
In the Eye of the Storm.
: 2. Deepak Chopra:
Seven Spirltual Laws of Success.
3. Wendy Beckett:
The Story of Painting.
4. Richard Holmes:
War Walks.
5. R. Bauval & G. Hancock:
Keeper of Genesls.
(Byggt á Tho Sunday Tlmes)
íþróttir hollar
UnguJlWel i einasta
heilbrigðari á því að stunda lík-
amsrækt, heldur einnig ánægð-
ari með sjálfa sig. Það kom í ljós
þegar skoðuð voru svör flmm
þúsund 16 ára unglinga á Bret-
landi við spurningiun um þá
sjálfa.
Þeir sem sögðust stimda meiri
5 líkamsrækt, einkum þó þeir sem
voru í íþróttum, komu einnig
)) betur út á prófum þar sem til-
finningaleg vellíöan var mæld.
Frá þessu segja sálfræðingarnir
Andrew Steptoe og Neville Butler
í læknablaðinu Lancet.
• Líkamsræktin hafði einnig
“ áhrif á heilsufarið. Piltar stirnd-
| uðu íþróttir í meiri mæli en
| stúlkur og fleiri stúlkur til-
| kynntu veikindi.
Stöðuvatn
á suðurskauti
Rússneskir og breskir vísinda-
I menn skýrðu frá þvl í sumar að
þeir hefðu uppgötvað risastórt
I ferskvatnsstöðuvatn undir íshell-
1 unni á suðurskautinu.
Vatn þetta er allt að einnar
í milijónar ára gamalt og það kann
að geyma mikinn fjölda fomra
baktería og örvera.
Notuð var nýjasta tækni til að
mæla stöðuvatnið, sem er undir
* rannsóknarstöð Rússa, og reynd-
1 ist það vera 125 metra djúpt og
I ámóta stórt og Ontario-vatn í
Norður-Ameríku.
Umsjón
| —-------------------------
Guðlaugur Bergmundsson
Nóbelsskáldið T.S.
Eliot í nýju Ijósi
í ensku menningarlifi, og reyndar
líka vestan Atlantshafsins, var
ameríska nóbelsskáldið T.S. Eliot,
sem lengst af bjó og starfaði í
Englandi, tekinn nánast í guða tölu
fyrir mörgum áratugum vegna
þeirra djúpu spora sem hann mark-
aði í sögu nútímaljóðlistar, einkum
með frægu kvæði sínu, The
Wasteland (Eyðilandið). Umræður
um manninn og verk hans hafa ver-
ið mjög á eina leið, ef frá er skiliö
leikrit sem samið var um samskipti
hans við fyrri eiginkonuna sem end-
aði lif sitt á geðveikrahæli.
En nú hefur orðið nokkur breyt-
ing á þessari einhliða lofgjörð. Því
valda tvær nýjar bækar sem hafa
vakið umræður um neikvæða þætti
í lífi og starfi Eliots. Forvitnilegt er
að önnur þessara bóka, sem kemur
út eftir rúma viku (9. september), er
eftir Eliot sjálfan!
Klám og klúryrði
Thomas Steams Eliot fæddist
árið 1888 í St. Louis í Bandaríkjun-
um og ólst þar upp til sextán ára
aldurs. Hann hlaut menntun í
Harvard-háskólanum, hélt síðan til
Parísar, staðnæmdist á Englandi
árið 1914, komst í kynni Ezra Pound
og væntanlega eiginkonu sína,
Vivien, og átti upp frá því aðsetur í
Bretlandi.
Þegar á skólaárunum fór Eliot að
yrkja. Árið 1910 ákvað hann aö
safna ljóðum sínum saman, keypti
minnisbók, skrifaði nafn utan á
hana - Inventions of the March
Hare - og færði þar inn æskuljóð
sín allt til ársins 1914. Átta árum
síðar, 1922, reif hann nokkuð blöð
úr minnisbókinni - en þau höfðu að
Málverk af Thomas Stearns Eliot.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
geyma klámfengin og klúr kvæði
sem hann sendi vini sínum Ezra
Pound. Minnisbókina seldi hann
lögfræðingi sínum í New York,
John Quinn, fyrir 140 dali en sama
manni gaf hann reyndar handritið
að Eyðilandinu í þakklætisskyni
fyrir veittan stuðning.
í bréfi, sem fylgdi minnisbókinni,
sagðist Eliot telja ljóðin óprenthæf.
„Ég bið þig að hafa þau fýrir sjálfan
sig og sjá til þess að þau verði aldrei
prentuð," segir Eliot í bréfinu til
Quinn.
Þrátt fyrir þetta eru ljóðin í minn-
isbókinni, og líka þau sem skáldið
reif úr og sendi Pound, að koma út
í Bretlandi, og þá undir því nafni
sem Eliot ritaði á kápusíðuna. Þótt
ekkja Eliots hafi samþykkt fyrir-
hugaða útgáfu hafa margir orðið til
að gagnrýna að ljóð sem höfundur-
inn hafði sjálfur lýst sem óprent-
hæfum skuli geftn út að honum
látnum.
Gyðingahatur
Aðrir hafa bent á að í þessum
æskuljóðum komi fram áberandi
neikvæðir þættir í fari Eliots sem
aðdáendur hans hafi reynt að líta
fram hjá en geti ekki lengur. Hann
hafi verið haldinn sterkum fordóm-
um sem komi fram í þessum og
reyndar fleiri verkum hans. Þar er
ásökunin um gyðingahatur einna
alvarlegust.
Breskur lögmaður, Anthony Jul-
ius, sendi fyrir nokkrum mánuðum
frá sér bókina T.S. Eliot: Anti-
Semitism and Literary Form. Hún
hefur orðið tilefni mikilla skrifa í
þekkt bókmenntatímarit, svo sem
The New York Review of Books.
Skáldið James Fenton, sem er pró-
fessor í bókmenntum í Oxford, efndi
til sérstaks fyrirlesturs um málið
þar sem hann tók sterklega undir
áscikanimar á hendur Eliot um gyð-
ingahatur. Fleiri hafa lagst á sömu
sveif opinberlega, en ýmsir aðdá-
endur Eliots snúist til vamar.
Flestir sem tjáð hafa sig um mál-
ið virðast sammála um að þessar
tvær bækur, og umræðurnar um
þær, hafi þegar skaðað nokkuð þá
helgimynd sem búin var til um T.S.
Eliot.
Bóluefnið til barnanna
gegnum legköku móður
I framtíðinni
verðxn- kannski
óþarfi að bólusetja
ung börn með hefð-
bundnum hætti
gegn öllum sjúk-
dómum af þeirri
einfoldu ástæðu að
þau fá bóluefnin
gegnum móður
sína, á meðgöngu-
tímanum. Þannig
má segja að slegnar
verði tvær flugur í
einu höggi. Barnið
losnar við spraut-
umar og strax við
fæðingu er það
vemdað gegn smiti.
Þetta er að
minnsta kosti von
hóps vísindamanna
sem hafa verið að
gera tilraunir með
þessa nýju tækni
gegn lifshættulegri
bakteríusýkingu.
Bóluefiiið fer frá
móður til bams
gegnum legkökuna. Frá þessu var
sagt í læknablaðinu Lancet.
í fyrstu umferð hafa vísinda-
mennimir gert tilraunir með bólu-
efni gegn hinum hættulega lungna-
bólgusýkli, sem getur valdið lifs-
hættulegum sýkingum í öndunar-
vegi og heilahimnubólgu. Baktería
þessi gerir ekki síst mikinn usla í
þróunarlöndunum og talið er að
hún verði 1,6 milljónum ungbarna
aö bana á ári hverju.
Hópur vanfærra kvenna var bólu-
settur í kringum 34. viku meðgöng-
unnar. Bólusetningin varð þess
valdandi aö ónæmiskerfi ófrísku
konunnar myndaði vemdandi mót-
efni gegn lungnabólgusýklinum.
Enn þá mikilvægara var að mótefn-
in fluttust yfir í fóstrið gegnum leg-
kökuna og bömin
fæddust því með
mótstöðukraft
gegn þessum
hættulega sýkli.
Mótstöðukraftur-
inn hélst fyrstu
fimm til sex mán-
uðina af lífi barn-
anna en það er sá
tími þegar bakter-
íusýkingin er
hvað hættulegust.
Þessi nýja bólu-
setningaraðferð er
sérlega heppileg
þegar lungna-
bólgubakterían er
annars vegar. Það
er nefnilega svo að
fyrst eftir fæðing-
una þolir barnið
ekki að vera bólu-
sett gegn bakteríu
þessari þar sem
ónæmiskerfi þess
er ekki nægilega
þroskað.
Hvað framtíðin
ber í skauti sér í þessum efnum er
óvíst en það verður spennandi að
sjá hvort hægt verður að beita þess-
ari nýju aðferð við aö bólusetja gegn
öðrnm bakteríum og veimm. Allar
vilja jú losna við að láta sprauta sig,
ef hægt er að fá bóluefnin á annan
hátt og einfaldari.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Patrlcia Cornwell:
From Potter’s Fleld.
2. Stephen King:
The Green Mlle: The Bad Death of
Eduard Delacroiz.
3. Pat Conroy:
Beach Muslc.
4. Danielle Steel:
Llghtnlng.
5. Davld Guterson:
Snow Falling on Cedars.
7. Rosamunde Pllcher:
Coming Home.
6. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
8. Nora Roberts:
Daring to Dream.
10. Dean Koontz:
Strange Highways.
11. Stephen Klng:
The Green Mile: Coffey’s Hands.
6. Ken Follett:
A Place Called Freedom.
12. Stephen Klng:
The Green Mile: The Two Dead
Glrls.
13. Stephen King:
The Green Mile: The Mouse on the
Mlle.
14. John Grisham:
The Ralnmaker.
15. Joseph R. Garber:
Vertlcal Run.
Rit almenns eðlis:
1. Mary Pipher:
Revivlng Ophella.
2. Mary Karr:
The Llar’s Club.
3. Colln L. Powell:
My American Journey.
4. Thomas Cahill:
IHow the Irlsh Saved Clvlllzatlon.
5. John Feinstein:
A Good Walk Spoiled.
16. J. Douglas & M. Olshaker:
Mlndhunter.
7. Jack Miles:
God: A Biography.
8. J.M. Masson & S. McCarthy:
When Elephants Weep.
9. Isabel Allende:
Paula.
10. Helen Prejean:
Dead Man Walklng.
11. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Ught.
12. Maya Angelou:
I Know Why the Caged Blrd Slngs.
13. M. Scott Peck:
The Road Less Traveled.
: 14. Andrew Well:
Spontaneous Healing.
15. D. Hays & D. Hays:
My Old Man and the Sea.
(Byggt á New York Tlmes Book Review)
__________
Fædmg
stjarnanna
Bandarískir stjamvísinda-
menn hafa, með aðstoð Hubble
geimsjónaukans, séð það sem
• þeir telja að sé fæðing allra
> fyrstu stjamanna í alheiminum.
„Við fúndum hluti sem eru
j mjög langt í burtu og þess vegna
j mjög fjarlægir í tíma, hugsanlega
| fyrsta kynslóð sfjama að fæð-
i ast,“ segir Kenneth Lanzetta,
■ stjamfræðingur við háskólann í
^ Stony Brook.
Vísindamennirnir segja að
; ljósið frá hlutum þessum sé bjag-
! að yfir í rauða hluta litrófs hins
sýnilega ljóss. Það hljóti því að
hafa ferðast um langan veg.
Lanzetta segir að hlutimir gefi
! hugmynd um hvemig umheim-
urinn var þegar hann var aðeins
fimm prósent af þeim aldri sem
hann hefúr nú náð, sem er milli
9 og 17 milljarðar ára.
Gjaldeyrir
og iðuköst
Gjaldeyrismarkaðir haga sér
• eins og straumhart vatn og hægt
; er að reikna út hreyfingar þeirra,
upp að vissu marki, að sögn
þýskra og svissneskra eðlisfræð-
inga sem rannsökuðu málið. Þeir
segja að niðurstöður þeirra geti
veitt innsýn 1 verðmyndun.
Þeir tóku jöfnur sem notaðar
eru til að reikna út vatnssvelgi
yfir lengri tíma og beittu þeim á
upplýsingar frá mörkuðunum.
Eðlisfræðingarnir segja svo frá
því í tímaritinu Nature að aðferð
þessi hafi passað ótrúlega vel,
betur en aðrar tilraunir.