Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 DV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTl 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLT114, 105 RVIK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds.
r
Ovinir þjóðarinnar
Hér á landi hefur fólk á hverjum degi greiðan aðgang
að tugum dagblaða af margs konar gerðum. Ef það sætt-
ir sig ekki við verð eða gæði innlendra dagblaða, getur
það keypt útlend dagblöð í bókabúðum eða lesið úr þeim
á netinu. Markaður dagblaða er frjáls hér á landi.
Ríkið leggur ekki stein í götu innfluttra dagblaða. Það
skattleggur þau ekki umfram innlend dagblöð. Sami
virðisaukaskattur er á erlendum og innlendum dagblöð-
um. Þetta ástand er kallað frjáls markaður og er abnennt
talið vera hornsteinn ríkidæmis Vesturlanda.
Þegar markaður er frjáls, þurfum við enga reikni-
meistara til að segja okkur, hvort vara eða þjónusta sé
of dýr eða ekki. Sjálfvirkni markaðarins finnur jafn-
vægi, sem er nærtækara og sanngjarnara en ákvarðanir
þeirra, sem taka sér vald til að ákveða verðlag.
Um grænmeti eins og tómata og gúrkur gilda hins veg-
ar ekki markaðslögmál eins og um dagblöð og flestar
aðrar vörur. Tómatar og gúrkur njóta sérstakrar vernd-
ar ríkisvaldsins eins og aðrar garðyrkjuvörur sem og
raunar aðrar afurðir innlends landbúnaðar.
Við getum hvorki valið milli innlendra og erlendra
tómata né keypt innflutta tómata á tollfrjálsu verði eins
og innflutt dagblöð. Það eru voldugir aðilar í landbúnað-
arráðuneytinu og hagsmunastofnunum landbúnaðarins,
sem taka um þetta ákvarðanir fyrir okkur.
Ákveðið er að ofan, hvenær erlendir tómatar mega
fást á íslandi og hve miklir ofurtollar eru lagðir á þá.
Þetta er angi af þeim fjötrum, sem stjórnmálamenn og
aðrir hagsmunagæzlumenn landbúnaðarins hafa bundið
íslenzkum neytendum og skattgreiðendum.
Þessi glæpsamlega iðja er þjóðhættulegri í grænmetis-
verzlun en í öðrum þáttum landbúnaðarins, af því að
hún heldur niðri neyzlu á grænmeti, sem íslendingar
borða allt of lítið af samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum
stöðlum. Ríkið heldur þjóðinni frá neyzlu grænmetis.
Til að bæta gráu ofan á svart hindrar ríkið, að íslenzk-
ir neytendur geti utan innlenda uppskerutímans neytt
þess grænmetis, sem hollast er, það er lífrænt ræktaðs
grænmetis. Slíkt grænmeti er dýrt í innkaupi og marg-
faldast svo í verði vegna ofurtolla ríkisins.
Með innflutningshöftum og ofurtollum á grænmeti
spilla ráðamenn landsins heilsu landsmanna og magna
upp ýmsa sjúkdóma. Forustuna hefur Guðmundur
Bjarnason landbúnaðar- og umhverfisráðherra, sem hef-
ur reynzt óvenjulega forhertur hagsmunagæzlumaður.
Ríkið er þessa dagana að kikna undir kostnaði við
sjúkrahús og aðra þætti veikindageirans. Það ætti að
leggja áherzlu á forvarnir með því að tryggja algert
markaðsfrelsi þeirra matvæla, sem bezt áhrif hafa á
heilsuna, svo að ódýrt og gott grænmeti fáist allt árið.
íslenzk garðyrkjusamtök hafa heimtað innflutnings-
höft og ofurtolla ríkisins og bera á þeim fulla ábyrgð.
Þau bera jafnframt fulla ábyrgð á kostnaðaraukanum,
sem þetta hefur valdið íslenzkum heimilum, og heilsu-
tjóninu, sem stafað hefur af neyzlustýringu þessari.
Þeim hæfir vel að nota hluta af illa fengnum gróða til
að framleiða nafnlausa auglýsingu, sem kastar ríkis-
reknum tómötum í þá framleiðendur, sem keppa við er-
lenda framleiðslu án nokkurra innflutningshafta eða
tolla af hálfu ríkisins, það er að segja innlend dagblöð.
Ekki verður dregin fjöður yfir svívirðilegt ástand í
vöruúrvali og verðlagi grænmetis af völdum samsæris
stjórnmálamanna og garðyrkjusamtaka gegn þjóðinni.
Jónas Kristjánsson
Sigurreifur forseti
missir aðalráðgjafa
Að afstöðnum þingum beggja
stóru flokkanna í Bandaríkjunum
er ekki um að villast að Bill Clint-
on forseti og merkisberi
demókrata stendur mun betur að
vígi en keppinautur hans, Bob
Dole, úr Repúblikanaflokknum í
viðureigninni um forsetaembætt-
ið í kosningum í nóvemberbyrjun.
Skoðanakannanir sýna að meðal
þeirra sem líklegir eru til að
greiða atkvæði eru yfirburðir
Clintons fram yfír Dole frá 13 til
15 af hundraði.
Sama er uppi á teningnum þeg-
ar leitað er álits Bandaríkja-
manna á persónulegri afstöðu
þeirra til forsetaefnanna. Um eða
yfir helmingur svarenda hefur já-
kvæða afstöðu til Clintons en um
eða innan við fjörutíu af
hundraði hafa samsvarandi álit á
Dole. Á flokksþingi demókrata í
Chicago kom í ljós að í kjarna
flokksins ríkir bjartsýni á að
takast muni að hnekkja meiri-
hluta repúblikana í annarri ef
ekki báðum deildum Bandaríkja-
þings í kosningum.
En svo bar það næstum upp á
sömu stundu að Clinton hélt
stefnuræðu sína í lok flokksþings-
ins í Chicago og það fregnaðist að
nánasti stjómmálaráðgjafi hans
hefði sagt af sér vegna kynlífs-
hneykslis með pólitísku ívafi.
Þegar forsetaferill Clintons
stóð lægst í almenningsáliti og
pólitískum áhrifum, eftir að
repúblikanar unnu meirihluta í
báðum þingdeildum fyrir tveim
árum, sneri hann sér til gamals
kunningja frá ríkisstjóraferlinum
í Arkansas og gerði Dick Morris
að helsta stjórnmálaráðgjafa sín-
um.
Meðal flokkssystkina forsetans
mæltist valið á stjórnmálaráðu-
naut miðlungi vel fyrir. Bæði
kom til að hann hafði undanfarið
unnið fyrir repúblikana og var
kunnur fyrir að vera lengra til
hægri í stjórnmálalitrófinu en
meginhluti áhrifamanna í
Demókrataflokknum.
En eins og oftar reyndist Clint-
on hafa sýnt pólitíska þefvísi.
Með afstöðu sem Morris átti rík-
an þátt í að móta tókst forsetan-
um að færa ímynd sína nær hinni
breiðu miðju bandarísks kjós-
endahóps. Hann hélt þannig á
málum í viðureigninni við meiri-
hluta repúblikana á þingi að al-
menningur kenndi þingliðinu um
allt sem miður fór, þar á meðal ít-
rekaða stöðvun opinberrar þjón-
ustu vegna togstreitu um fjárlög,
og Newt Gingrich, forseti full-
trúadeildarinnar og hugmynda-
fræðingur meirihluta repúblik-
ana, er orðinn óvinsælasti stjórn-
málamaður í Bandaríkjunum.
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Úlafsson
Hámarki náði þessi miðleitni-
stefna Clintons nú nýverið þegar
hann ákvað að undirrita frum-
varp frá þinginu um að færa fá-
tækraframfæri í Bandaríkjunum
frá alríkisstjóminni til ríkjanna
og þrengja um leið aðgang að því
til muna. Þessi nýja lagasetning
er eitur í beinum demðkrata af
gamla skólanum sem stæra sig af
að bandarískt velferðarkerfi sé
verk þeirra flokks.
En fátæklingar skiia sér illa á
kjörstaði í bandarískum kosning-
um þar sem skattgreiðendur sem
sjá ofsjónir yfir háum framlögum
til fátækraframfærslu láta sig
miklu síður vanta. Með því að
undirrita lagasetningu repúlik-
ana um þetta efni firrti Clinton
sig árásarefni af þeirra hálfu í
kosningabaráttunni. Hann losn-
aði líka við meiri háttar gagnrýni
eigin manna á flokksþinginu, þótt
óánægðir væru, af því að við
hann eru bundnar sigurvonir
flokksins í nóvember.
Uppljóstrun slúðurblaðs um
samband Dicks Morris við dýr-
selda skækju í Washington, sem á
að hafa fengið að hlýða á símtöl
hans við forsetann og heyrt hann
hafa persónur forsetahjónanna í
flimtingum, er kærkomin viðbót í
vopnabúr áróðursvélar repúblik-
ana. í þeim herbúðum hefur lengi
verið leitast við að útmála núver-
andi Bandaríkjaforseta sem
glaumgosa af kynslóð blóma-
barna og konu hans sem valda-
fíkna misindismanneskju, sér í
lagi í fjármálum.
En eftir er að sjá hvort fall
Dicks Morris hrín á Clintonhjón-
unum. Þótt maðurinn sé víðkunn-
ur meðal þeirra sem lifa og hrær-
ast í bandarískum stjórnmálum
og fréttamennsku hefur hann
haldið sig bak við tjöldin og utan
sviðsljóssins, eins og ráðgjafa
valdhafa ber.
Bandarískur almenningur
fréttir því ekki af tilveru hans
fyrr en við þennan atburð.
Bill og Hilary Clinton veifa til þingheims í lok flokksþingsins í Chicago.
Símamynd Reuter
oðanir annarra
Konunglegar endurbætur
„Georg sjötti, faðir Elísabetar Englandsdrottningar,
sagði eitt sinn að konungsfjölskyldan væri eins og fyr-
irtæki. Líkt og hver annar framkvæmdastjóri undir
gagnrýni hefur Elisabet brugðist við og skipað fjöl-
skyldumeðlimi í framtíðarnefnd sem endurskoða á
markmið fyrirtækisins á leið þess inn í nýja öld og
finna nýjar leiðir til tekjuöflunar. Líkurnar á að kon-
ungdæmið lifi áfram eru sterkar en sagan hefur sýnt
fram á aðlögunarhæfni þess. Almenningur virðist og
styðja konungdæmið. Venjan er áhrifarík og kann að
verða sterkasti bandamaður konungdæmisins á erfið-
um tímum.“
Úr forustugrein New York Times 26. ágúst.
Styrkjabrjálæði
„Evrópusambandið líður fyrir gríðarlegt styrkja- og
niðurgreiðslubrjálæði sem hvorki kemur atvinnulíf-
inu né neytendum til góða en kannski stjórnmála-
mönnunum sem veita þá og skrifstofubákninu sem
annast veitingu þeirra. Því miður halda margir
stjómmálamenn enn að ríkisstyrkir skapi atvinnu.
Það er reginfirra. Afnám ríkisstyrkja og niður-
greiðslna ætti að vera efst á dagskrá ríkjaráðstefnunn-
ar í stað framtíðarsýnar þar sem evrópskt atvinnulíf
og milljónir manna lifa á framfæri hins opinbera."
Úr forustugrein Jyllands Posten 26. ágúst.
Ríkisheróín
„Ef tilraun með dreifingu ókeypis heróíns getur átt
sér stað undir nauðsynlegu eftirliti og án þess að
virkja hvetjandi á veikar sálir tii að gerast fikniefna-
neytendur á reikning ríkisins getur það komið samfé-
laginu og fikniefnaneytendunum til góða. Hin dapra
þróun sl. ára hefur því miður veitt okkur meiri vit-
neskju um hvaða ráð duga ekki gegn neyslu og sölu
fikniefna en hvaða ráð duga. Þess vegna eru nýjar
hugmyndir nauðsynlegar."
Úr forustugrein Jyllands Posten 27. ágúst.