Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Síða 21
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
ftéttir
Haldin verður siglingakeppni frá Plymouth í Bretlandi til íslands á næsta ári á vegum The Royal Western Yacht Club
í Bretlandi í samvinnu við Siglingaklúbb Reykjavíkur. Jón Skaptason formaður segir að bátarnir séu 35-45 fet og
veröi að hámarki 50 talsins. Hver þeirra er með tveggja manna áhöfn þannig að keppnin verður talsverö þolraun.
DV-mynd JAK
Gríðarstór siglingakeppni verður haldin frá Bretlandi til Islands næsta sumar:
Mikill hvalreki fvrir
ið,“ bætir hann við.
í keppninni verður siglt sam-
kvæmt forgjöf og er þá búið að
reikna út hvað bátarnir geta siglt
hratt. Spurningin er svo hvað
áhafnarmeðlimir nái að komast ná-
lægt þeim hámarkshraða, sem bát-
arnir geta náð, og hvort þeir geti
haldi honum út alla tíu dagana.
Panta legupláss
og hátíðarsal
Hámarksfjöldi er á bátunum, sem
sigla til íslands, og verða þeir því í
mesta lagi 50 talsins. Jón segir að
þetta hafi verið ákveðið þannig að
hægt yrði að gera ráðstafanir fyrir
fram, panta sali fyrir verðlaunaaf-
hendingu, pláss í höfnum enda sé
skipulagningin unnin í samvinnu
við Reykjavíkurhöfn.
„Við höfum haft áhuga á að halda
siglingamót kringum ísland og ver-
ið að vinna að því og það kom hing-
að blaðamaður á vegum Yachting
World, sem er eitt útbreiddasta sigl-
ingatímaritið, og birti grein um
hugmyndir okkar. Þessir menn í
Royal Westem hafa líklega séð þá
grein,“ segir hann. í greininni er
sagt frá því þegar Siglingaklúbbur-
inn Þytur í Hafnarfirði stóð fyrir
heimsmeistarakeppni í siglingu svo-
kallaðra Secret báta í fyrra.
Jón segir að íslenskir siglinga-
menn séu mjög spenntir fyrir
keppni hjá Western Royal enda
sjaldgæft að svona keppni reki á
fjörur íslenskra siglingaáhuga-
manna. Hann á þó ekki von á því að
siglingamenn hérlendis taki þátt i
keppninni, bátaflotinn sé það lítill
að líklega eigi íslendingar aðeins
einn bát, sem sé nógu stór til að
geta tekið þátt.
-GHS
Flug og hótel
kr. 24.930
London - vinsælasta borg Evrópu
Londonferðir Heimsferða hafa fengið ótrúlegar undirtektir og
hundruð sæta hafa nú selst til þessarar vinsælustu borgar Evrópu.
Nú eru fyrstu ferðirnar uppseldar. Glæsilegir gististaðir í boði
og íslenskir fararstjórar Heimsferða tryggja þér ánægjulega dvöl
í heimsborginni.
Verð frá kr. 19.930
Flugsæti til London með o°ð.s'verð
flugvallarsköttum.
Verð frá kr. 24.930,
M.v. 2 í herbergi, Butlins Grand,
3 nætur, 30. sept, 14/21 okt-
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2. hæð, sími 562 4600
Félavtttarf
Allir almennir dansar fyrir börn, unglinga
og fullorðna. Byrjendur og framhald.
tamkvæmHdamar ■ Rokk- Kántrij - Gömlu damarnir
Hópæf inyar með dan$ konnara
ffifinyaaðitaða
Skommtiloytfólk
Innritun og upplýsingar
1.-10. sept. kl. 10.00 - 23.00
ísíma 564 -1111
Ath. opið hús á
laugardagskvöldum
agMeAKStoa tfícjf-irrmi
DflnUKOLI
Sigurðar Hákonarsonar
Dansfélagið Hvönn
Auðbrekku 17 - Kópavogi
Úr umfjöllun Yachting World um ísland.
íslenska siglingamenn
- 35-45 feta bátar sigla hingað - manndrápsfleyturnar sigla til Bandaríkjanna
Einn þekktasti siglingaklúbbur í
heimi, The Royal Western Yacht
Club, stendur fyrir siglingakeppni
frá Plymouth í Englandi til íslands
næsta sumar í samstarfi við Sigl-
ingaklúbb Reykjavíkur, Brokey. Þar
er um þekkta keppni að ræða, sem
fram að þessu hefur falist í því að
sigla frá Bretlandi til Rhode Island 1
Bandaríkjunum. Ákveðið hefur ver-
ið að skipta keppninni í tvennt og
sigla minni bátamir, frá 35 upp í 45
fet, til íslands en hinir sigla til
Rhode Island.
„Þeir bátar sem taka þátt i keppn-
inni til Rhode Island eru svo miklu
hraðskreiðari en hinir - það eru
þessir tvíbolungar og þríbolungar,
sem sumir vilja kalla manndráps-
fleytur. Það var orðið svo langt milli
fyrsta báts og síðasta báts í keppn-
inni til Rhode Island að það var
ákveðið að skipta keppninni í tvo
flokka," segir Jón Skaptason, for-
maður Siglingaklúbbs Reykjavíkur,
Brokeyjar.
Erfið sjóleið
til Islands
„Þegar þeir voru að skipuleggja
keppnina til Rhode Island og höfðu
tekið ákvörðun um að skipta henni
tóku þeir ákvörðun um hvað þeir
vildu fara langt og hvort þeir vildu
fara norður eða suður. Þeir vildu
fara norður, ekki suður, og fóru svo
í sjókort og þá lá ísland vel við.
Þetta er erfið sjóleið þannig að hún
reynir jafnmikið á þolrifin og sigl-
ing til Nýfundnalands eða Rhode Is-
land. Það eina sem þeir sleppa við
er þokan við Norður-Ameríku," seg-
ir Jón.
Hann segir að sumir mannanna,
sem taki þátt í keppninni, séu ekki
atvinnusiglingamenn heldur sigli í
sumarleyfinu og því hafi siglingin
til Rhode Island þótt of löng. Margir
mannanna sigli á áfangastað í
keppninni, skipti þar um áhöfn og
þá komi vinir og vandamenn um
borð og sigli með þeim á svæðinu.
„Svo taka þeir kannski vikufrí á
íslandi og sigla kringum landið
áður en þeir fara út aftur. Það er
ekki lengur hægt með Rhode Island
þvi að sú keppni er orðin það löng
að menn eru búnir með fríið um
leið og þeir koma út og þurfa þá að
leggja af stað beint heim aftur. Þess
vegna var ákvörðun tekin um að
skipta keppninni í tvennt,“ segir
hann.
Þrekraun
Jón segir að siglingakeppni af
þessu tagi sé heilmikil þrekraun því
eitt af skilyrðunum í keppninni sé
að hafa aðeins tvo menn í áhöfn.
Rætt er um að keppnin hefjist í
Plymouth 7. júní á næsta ári og seg-
ist Jón búast við að siglingamenn-
irnir tínist hingað til lands kringum
þjóðhátíðardaginn 17. júní.
„Þetta er erfið sigling, sérstaklega
í ljósi þess að þeir eru bara tveir á.
Það þarf alltaf annar hvor að vera
vakandi. Ég held að menn séu
komnir niður i ansi stuttar vaktir
þegar þeir fara að nálgast islenska
landhelgi, kannski niður í hálftima
vaktir ef siglingin hefur verið erf-