Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Qupperneq 23
23
;SUr LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996 'liPIIÍ
Blátt, svart, rautt og hvítt blandast þegar leikmenn íþróttaliðanna svíkja lit í hjónabandi:
Hafdís og Þorsteinn úr Fram
og Þrótti eru nýgift
og Guðmundur Benediktsson, KR, og Kristbjörg Ingadóttir, Val, eru í sambúð
Algengt er að ástir takist með
íþróttamönnum þó að hvor í sínu
liðinu sé og stundum fylgir gifting í
kjól og hvítu. Knattspymumaður-
inn þekkti í Þrótti, Þorsteinn Hall-
dórsson, og handknattleikskonan
Hafdís Guðjónsdóttir úr Fram, bæði
28 ára, eru einmitt dæmi um þetta
en þau létu pússa sig saman i Bú-
staðakirkju um síðustu helgi. Þor-
steinn og Hafdís hafa verið saman í
sex ár og eiga eina dóttur, Valgerði
Ýr, 4 ára. Það voru svo leikmenn úr
Þrótti sem stóðu fyrir utan kirkjuna
í fullum herklæðum og köstuðu
hrísgrjónum eftir athöfiiina.
„Við kynntumst fyrst fyrir utan
Hótel Borg eftir hall síðasta vetrar-
dag árið 1987. Sameiginlegir vinir
okkar, Heimir Guðjónsson og Sig-
urður Bjömsson, vora að stríða
okkur, kynntu okkur og hlupu svo
burt og við stóðum þama eins og
illa gerðir hlutir. En samband okk-
ar byrjaði reyndar ekki fyrr en
þremur árum seinna
á Laugarvatni,“
segir Þorsteinn
frá fyrstu
kynnum hinna
nýbökuðu
hjóna.
Hafdís
var
búin
með
eitt ár
í
Þorsteinn er hins vegar alinn upp í
Neskaupstað.
í sambúð í hálft ár
í hópi nýjustu kærustuparanna á
íþróttasviðinu eru Ásgerður Ingi-
bergsdóttir úr Val og Sævar Péturs-
son úr Breiðabliki og Brynjar
Gunnarsson og Olga Einarsdóttir úr
KR, svo að nokkur séu nefnd. Þess-
um hópi tilheyra einnig Guðmund-
ur Benediktsson, knattspymumað-
urinn frækni úr KR, 22 ára, og
Kristbjörg Ingadóttir, knattspyrnu-
maður í Val, 21 árs, en hún er dótt-
ir Inga Bjöms Albertssonar. Þau
kynntust og byrjuðu að vera saman
fyrir rúmu ári og em nú þegar búin
að búa saman í rúmlega hálft ár.
„Við erum búin að búa saman frá
þvi um áramótin þó að hún hafi ver-
ið búin að reyna að troða sér inn á
mig miklu fyrr. Það gekk bara ekki
fyrr en um áramótin," segir Guð-
mundur um sambúðina. Hann segir
að þau hafi þekkt mikið sama fólkið
úr íþróttunum og nú eigi þau að
sjálfsögðu enn fleiri sameiginlega
kunningja.
Alltaf að æfa
„Við þekktum sama
fólkið og vorum mikið á
sömu skemmtistöðunum.
Það er óhætt að segja að eitt
hafi leitt af
öðru,“
Guömundur Benediktsson, leikmaöur KR, og Kristbjörg Ingadóttir,
knattspyrnumaöur úr Val, hafa veriö saman í rúmlega ár og hafa þegar búið
saman í hálft ár. DV-mynd BG
íþróttakennaraskólanum þegar Þor-
iteinn kom í skólann. Hún starfar
sem íþróttakennari en Þorsteinn
íefur aldrei unnið við kennslu.
Lsmn hefur bara nýtt sér menntun-
na við að þjálfa og starfar nú í
aeildverslim.
segir Kristbjörg um það hvemig þau
hafi kynnst. Guðmundur bætir við
að þau hafi hist fyrst í janúar í fyrra
þegar hann hafi verið nýkominn
heim úr atvinnumennsku fi'á Belgíu
og hún frá Bandaríkjunum. Þau hafi
ekkert vitað hvort um annað þegar
Brúökaupiö fór fram í Bústaðakirkju og mættu leikmenn úr Þrótti aö kirkjudyrunum og köstuöu hrísgrjónum yfir
brúöhjónin.
þau hafi hist fyrst.
Guðmundur og Kristbjörg láta
ekkert uppi um það hvort brúðkaup
sé i vændum en Guðmundur segir
að þau séu að minnsta kosti ekki
búin að ákveða dag. Kristbjörg seg- „Við erum alltaf að æfa,“ segir
ir að þau séu ekki mikið að spá í Guðmundur og hlær.
þetta, „ekki giftingu". -GHS
- En ætli barneignir séu í vænd-
um?
Misstu ekki af besta tíma dagsins
Hringdu núna!
ASKRIFTARSIMINN E R
800 70 80
JDagur~®ímmtt
-besti tími dagsins!
Vinirnir eru
„antisportistar"
Hafdís segh' að fjölskyldulifið
gangi vel þó að þau séu bæði á kafi í
íþróttunum, þau láti það bara ganga
vel og taki tillit hvort til annars. Hún
segist oftast taka Valgerði með sér á
æflngar og í fyrra hafi stelpumar í
Fram fengið bamapíu á æfingar sem
hafi séð um bömin meðan á æfing-
um stóð. Því sé þó ekki að neita að
heimilislífið sé „rosalegt púsluspil,
sérstaklega eftir að hún fæddist",
segir hún. Það getur þó breyst því að
Hafdís neyðist til að leggja skóna á
hilluna samkvæmt læknisráði.
Vinahópurinn samanstendur ým-
ist af íþróttamönnum eða „anti-
sportistum" og segir Hafdís til dæm-
is að saumaklúbburinn tilheyri síð-
ari hópnum. Og ekki skortir um-
ræðueftiin í fjölskylduboðum því að
Hafdís er úr þekktri iþróttafjöl-
skyldu. Systir hennar er Guðríður
Guðjónsdóttir, handboltaþjálfari hjá
Fram, og foreldrar þeima, Sigríður
Sigurðardóttir og Guðjón Jónsson,
eru gamalkunn á íþróttasviðinu.
J±1L£Í Æ1_L
og miklu meira en pað f
Skóla-
taska
og
penna-
veski,
margir
litir.
Líttu við
hjá okkur
Tilboðsverð
kr. 498.-
Vasareiknir fyrir grunn-
skólanema
og lengra komna.
|S értili }
Ikr. 1995,* r
Gormastílabækur, línu-
strikaðar og gorma, A-4
m/rifgötun, 80 bls., 5 í pk.
Sértilboð
kr. 595,*
isrnmM'
LEIKBÆR
Miðbæ - Hafnarl'irði