Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Síða 27
LAUGARDAGUR 31. ÁGÚST 1996
mik»
w w
Miklar vonir eru bundnar við kraftlyftingamanninn Guðna Sigurjónsson þegar hann stígur í hringinn í fyrsta sinn f
byrjun september.
Guðni Sigurjónsson er fyrstur íslendinga til að keppa í boxi atvinnumanna í Las Vegas:
Guðni vinnur
fyrsta leikinn
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 569 1500
Umboðsmenn um land allt.
Verð frá:
1.890 kr
í stærðfræði
Mikið úrval
reiknivéla
„Guðni er hörkutól og fílhraust-
ur. Ég veit þó ekki mikið um hæfni
hans á tæknisviðinu," segir Guð-
mundur Arason, forstjóri og áhuga-
maður um boxíþróttina.
Kraftlyftingamaðurinn Guðni
Sigurjónsson hyggur á atvinnu-
mennsku i þungavigtarflokki í boxi
í Bandaríkjunum. Umboðsmaður-
inn John Black hefur tekið hann
upp á sína arma og ætlar að gera
boxara' úr honum. Black hefur
samið við Guðna um fæði, húsnæði,
vasapening og prósentur af leikjun-
um. Að sögn Ólafs Ásgeirssonar,
þjálfara Guðna, er ekki samið um
mikla peninga en þeir aukast eftir
því sem velgengnin eykst. Boxarar
þurfa að keppa í fimm til sex leikj-
um og helst vinna alla áður en pen-
ingamir fara að skila sér.
Guðni á að baki langa sögu í
íþróttum. Hann spilaði um tíma í
unglingalandsliðinu í fótbolta.
Einnig var hann íslandsmeistari í
sjómann. Hann hefur verið framar-
lega á kraftlyftingamótum auk þess
sem hann er heimsmeistari í dauða-
lyftu. Guðni er 31 árs og er kvæntur
oj; á tvö böm.
A tvo boxara
Black er sá sami og Hjalti Úrsus
og Andrés Guömundsson voru í
samningum við fyrir tveimur árum
en Black rekur líkamsræktarstöð
þar sem Tyson og gulldrengurinn,
Oscar de la Hoja, æfa í Las Vegas.
Black á tvo boxara og hann hefúr
verið mjög spenntur fyrir íslensk-
um kraftlyftingamönnum. Ef Guðna
gengur vel í fyrstu leikjunum á
hann sannarlega von á að græða
eitthvað á boxinu. Ekki hefur enn
þá verið ákveðið hvort og þá
hvenær fjölskyldan flytur til Guðna
en hann er um þessar mundir stadd-
ur við æfingar í San Diego þar sem
ekki reyndist unnt að ná sambandi
við hann. Það fer eftir því hvort
hann ílengist í Las Vegas, Mekka
boxins. Guðni slæst í fyrsta sinn í
hringnum i flokki atvinnumanna í
segir Olafur Asgeirsson þjálfari
Las Vegas um næstu helgi eða sömu
helgi og Tyson og Seldon eigast við.
„Það var ofsalega gott að þjálfa
Guðna því hann er atvinnumaður
fram í fingurgóma. John Black bauð
Guðna bestu aðstæðumar en hann
gat ekki haldið áfram hér á landi
þar sem boxíþróttin er bönnuð.
Guðni er fyrsti íslendingurinn sem
slæst í atvinniunannaleik en þeir
Hjalti Úrsus Ámason og Andrés
Guðmundsson hafa báðir slegist í
flokki áhugamanna," segir Ólafur
Andrés vann tvo áhugamanna-
leiki í Bandaríkjunum en varð að
hætta þegar hann sprengdi á sér
vöðva í keppni. Til stóð að hann
keppti tii úrslita í keppni fyrir
hnefaleikara sem keppt höfðu færri
en fimm leiki. Það varð ekki. Hjalti
Úrsus gerði samning við John Black
og stefndi á sínum tíma á atvinnu-
mennsku í boxi en eitthvað varð lít-
ið úr því hjá honum og hann hætti
efth: rothögg í leik.
Ólafur segir það kraftaverk að
Guðni skuli fá að keppa í flokki at-
vinnumanna áður en hann reynir
fyrir sér á sviði áhugamanna. Al-
gengt sé að boxarar leiki 40-50
áhugamannaleiki áður en þeir kom-
ist að sem atvinnumenn. Menn
þurfa oft að leika sem áhugamenn í
fjögur til fimm ár áður en þeir ná
þangað sem Guðni er kominn núna.
Tröllatrú á Guðna
„Guðni fékk tækifærið strax og
þurfti ekki að bíða en það er mjög
sérstakt. Líkast til hefúr John Black
tröllatrú á honum. Hann hefur svo
margt til að bera. Guðni var 124 kíló
þegar við byijuðum að æfa fyrir
tveimur árum en hann er orðinn 98
kíló núna. Ég er alveg viss um að
Guðni vinnur fyrsta leikinn þó svo
andstæðingurinn búi yfir miklu
meiri reynslu en hann,“ segir Ólaf-
ur.
Hugsanlegt er að Stöð 3 sýni frá
leik Guðna en Ólafúr lýsir leik Ty-
sons og Seldons á Stöð 2 þann 7.
september. Guðni keppir á móti
manni sem hefur töluvert fleiri leiki
heldur en hann á bak við sig en
Ólafur er ekki viss um hvað hann
heitir.
Að sögn Guðmundar Arasonar er
boxið að breytast og þungvigtin að
færast meira út í kraftamennsku og
höggþungastíl. „Mér finnst þessi
stíll leiðinlegur því ég vil hafa þetta
létt og leikandi," segir Guðmundur.
-em
ism staögreiöslu
og greiöslukortaafsláttur
og stighcekkandi
birtingarafsláttur
a»t mll» hlrrtir^
Smðauglýs)ngar
ssosooo
Blómatilboð
Fflcus
70-90 cm, kr. 590.
90-100 cm, kr. 990.
Drekatré
50 cm,
kr. 360.
Friðarlilja
50 cm,
kr. 440.
Schefflera
40 cm,
kr. 290.
Stofuaskur
20 cm,
kr. 160.
Krótoti, 50 cm, kr. 490.
Sólhlífarblóm, 50 cm, kr. 490.
Naglakaktus, kr. 390.
Fíkus (tvílitur), 50 cm, kr. 390.
Bergfléttubróðir, 50 cm, kr. 490.
Blómstrandi pottablóm, 20-50% afsl.
Gúmmítré, 50 cm, kr. 490.
(jarðshom
Meyjarkoss
kr. 390.
Aralía
60 cm,
kr. 980.
v/Fossvogskirkjugarð, sími 55 40 500.
Opið alla daga 10-22.