Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.1996, Síða 56
I
KÍN
♦i
I.
Vertu víðhúin(n) vúmingi
í
s
o
FRETTASKOTI0
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
HB og Miönes:
í eina sæng
Undirrituð hefur verið viljayfir-
lýsing um sameiningu Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akranesi og
Miðness hf. i Sandgerði undir nafni
—-xsr fyrrnefnda fyrirtækisins. Gert er
ráð fyrir að sameiningin taki gildi
um næstu áramót en fram að þeim
tíma verður samvinna í rekstri fyr-
irtækjanna aukin.
Hlutafé hins sameinaða félags
verður 1,1 milljarður króna. Hlutur
Haraldar Böðvarssonar í fyrirtæk-
inu er rúm 72%. Aflaheimildir
verða rúmlega 21 þúsund tonn í
þorskígildum talið. -bjb
Veiðimenn:
Fengu flugu í
hálsinn sama
kvöldið
„Ég var að veiða í Elliðaánum og
hafði ekkert fengið þetta kvöld. Ég
ætlaði að taka eitt kast enn og sveifl-
aði flugunni aftur fyrir mig og hún
festist í hálsinum á mér og læstist á
bólakaf þegar ég henti fram. Þegar ég
kom niður á slysadeild þá var mér
tjáð að ég væri annar sem kæmi
þangað sama kvöld með flugu i háls-
inum og það er ansi skondið að tveir
lendi í svona sama kvöldið," sagði
Steinar Friðriksson fluguveiðimaður
við DV. „Ég verð að viðurkenna að
_ -s þetta var spaugileg uppákoma. Þegar
ég kom niður á slysadeild með flug-
una hangandi í hálsinum gláptu allir
á mig og kona sem þar var stödd fór
að skellihlæja og kannski skiljanlega.
Ég fann ekki mikið fyrir þessu.
Læknir deyfði mig og náði flugunni
síðan út. Flugan var samt erfið og
lækninum tókst að stinga sig á
henni. Ég er byrjaður að veiða aftur
enda óforbetranlegur. Ég hef passað
mig betur nú síðustu daga enda hef
ég lítinn hug á að lenda í þessu aft-
ur,“ sagði Steinar.
-RR
4x4 árprfl 1997
er komin!
Ingvar
Helgason hf.
SavarhöfHa 2
Sími 525 8000
L O K I
Afleiðingar læknadeilunnar aö veröa alvarlegri:
Fólk dregur of lengi
að leita til læknis
- vegna deilunnar, segir Matthías Halldórsson aöstoöarlandlæknir
„Það er ákaflega erfitt að segja
til um hvað megi rekja beinlínis til
læknadeilunnar. Það má ef til viil
segja að í sumum tilfellum megi
segja að deilan eigi þátt í því að
sjúklingur hegðaði sér á annað hátt
en hann hefði annars gert. En það
er ekkert dauðsfail sem við getum
rakið beinlínis til deilunnar, það
væri allt of sterkt til orða tekið.
Það eru dæmi af fólki með
kransæðastíflu sem hefur beðið
lengur með að fara til læknis en
þaö hefði annars gert vegna deil-
unnar,“ sagði Matthías Halldórs-
son aðstoðarlandlæknir í samtali
við DV i gær.
Hann sagði að á fundi fjármála-
ráðherra, heilbrigðisráðherra og
landlæknis um læknadeiluna í gær
hefði verið ákveðið að reyna að
skipuleggja neyðarþjónustu enn
frekar í samráði við Læknafélagið.
í bréfi, sem félagið hefur sent til
landlæknis, kemur fram að það er
tilbúið til að vinna að því.
„Þá er í bígerð að skipa héraðs-
hjúkrunarfræðinga í öllum 8 lækn-
ishéruðunum, en þær stöður eru til
samkvæmt lögum um heilbrigðis-
þjónustu, en hafa ekki verið starf-
andi áður,“ sagði Matthías
í gær ritaði fjármálaráðherra
bréf til Læknafélagsins þar sem
hann segist hafa tilnefht menn í
nefhd til að endurskoða allt skipu-
lag á störfum heilsugæslulækna og
óskar eftir því að Læknafélagið
skipi líka í nefndina.
„Hann óskaði eftir þessari nefnd-
arskipan fyrir nokkru, en við telj-
um að nefhdarstörfin muni taka
lengri tima en svo að það geti
tengst lausn deilunnar. sagði
Sverrir Bergmann, formaður
Læknafélags íslands.
Hann segir að það ekki geti ann-
að verið en læknadeilan leysist á
næstunni.
„Það þarf að hækka föstu launin
og það má gera í áfongum. Á sama
tíma verður að taka á því hvemig
laun heimilislækna verða til að
öðru leyti, þannig að þetta verði
ekki hrein hækkun. Þetta hefur
alltaf verið vitað og ef menn vilja
bara setjast niður og horfast í augu
við þessa staðreynd þá leysist deil-
an mjög fljótt," sagði Sverrir Berg-
mann. -S.dór
Ólafur Ragnar Grímsson forseti ásamt Guðrúnu Katrínu og Matthíasi Bjarnasyni, fyrrum ráðherra. DV-mynd Hlynur
Forsetaheimsókn:
Helgur
staður í
hjörtum
okkar
DV, Þingeyri:
Herra Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti íslands, fór í sína fyrstu op-
inberu heimsókn, eftir að hann tók
við forsetaembættinu, í gær. Vest-
firðir, æskuslóðir forsetans, urðu
fyrir valinu. Hann hóf heimsóknina
að Hrafnseyri þar sem hann lagði
blómsveig að minnisvarða Jóns Sig-
urðssonar. Við það tækifæri sagði
forsetinn að „Hrafnseyri væri helg-
ur staður í hjörtum okkar“. Á eftir
afhenti hann Hrafnseyramefnd að
gjöf mynd af Sveini Björnssyni,
fyrsta forseta lýðsveldisins. Matthí-
as Bjarnason, fyrrum ráðherra og
formaður Hrafnseyramefndar, tók
við gjöfinni. -HA
Sunnudagur
Mánudagur
Veðrið á morgun:
Votviðri
Á morgun er búist við suðvestlægri átt og víða allhvössu, einkum um
landið sunnan- og austanvert. í flestum landshlutum verður votviðri. Hiti
á bilinu 10 til 16 stig, hlýjast austanlands.
Veðrið á mánudag:
Norðvestanátt
Á mánudag er búist við að vindur snúist í skammvinna en allsnarpa
norðan- og norðvestanátt með kólnandi veðri, rigningu norðan- og norð-
austanlands en annars staðar ætti að verða þurrt.