Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1996, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.1996, Síða 20
20 fréttir LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 Hér fagna leiötogar R-listans sigri á kosninganótt. Nú er aö hefjast samstarf A-flokkanna sem gæti leitt til R-lista samstarf félagshyggjuaflanna um allt land. DV-mynd GVA Grasrótin hefur hafist handa við samvinnu og sameiningu félagshyggjuaflanna: Forystumönnum flokkanna boðið far með vagninum - en þeir eiga ekki að standa þar við stýrið, segir Kristján Gunnarsson í Keflavík I fréttaljósi í DV, fyrr i sumar, um hugsanlega sameiningu A-flokk- anna og annarra félagshyggjuafla í landinu var því haldið fram að ef flokksforingjarnir ættu að standa að henni myndi hún ekki takast nú frekar en áður þegar um hana hefur verið rætt. Hins vegar var því hald- ið fram, og það hafa fleiri gert og fyrr, að ef grasrótin tæki sig til og hæfist handa við að sameina félags- hyggjuöflin í landinu væru miklar líkur á að dæmið gangi upp. í þessu sambandi vitna menn gjarnan í R-lista framboðið í Reykja- vík. Bent er á að það hafi ekki ver- ið foringjar flokkanna sem komu því á koppinn, enda þótt þeir hafi átt frumhugmyndina. Grasrótin byrjuð að starfa Nú virðist það vera að gerast að grasrótin í A-flokkunum er að ná saman víða um land, bæði í sveitar- stjómarmálum og í verkalýðshreyf- ingunni. Innganga íjögurra þingmanna Þjóðvaka yfir til Alþýðuflokksins kemur þessu ekki við. Þjóðvaki er samkvæmt skoðanakönnunum án fylgis og er því ekki orðinn annað en þessi fjórir þingmenn og hefur ekkert að sameina öðrum flokkum nema þá. Það sem hefur gerst er að Alþýðu- flokkur og Alþýðubandalag, sem eru í minnihluta í Reykjanesbæ, hafa tekið upp samstarf i bæjarmál- unum. Fulltrúar þeirra hittast fyrir bæjarstjómarfundi til þess að und- irbúa sig fyrir þá, rétt eins og um meirihlutasamstarf væri að ræða. Þetta samstarf hefur vakiö mikla athygli um allt land. Þeir sem mest- an áhuga hafa haft á R-Iista sam- vinnu á landsvísu telja að þetta sé upphaf að því. Enginn málefnalegur ágreiningur „Við Jóhann Geirdal, bæjarfull- trúi Alþýðubandalagsins, höfum verið að vinna saman í verkalýðs- málum auk þess að vera bæjarfull- trúar sinn fyrir hvom flokkinn. Við höfum náð afar vel saman í verka- lýðsmálunum og höfum oft kastað því á mifli okkar og spurt, hvers vegna við séum ekki í sama stjóm- málaflokki? Málefnalegur ágrein- ingur er enginn. Það er enginn mál- efnalegur ágreiningur milli fólksins í grasrót A-flokkanna. Umbúðirnar eru sínar með hvorri áferðinni en innihaldið er það sama. Það er aðal- atriði málsins. Þaö er alltaf hægt að skipta um umbúðir, segir Kristján Gunnarsson, bæjarfulltrúi Alþýðu- flokksins i Reykjanesbæ og formað- ur Verkalýðs og sjómannafélags Keflavíkur. Vagninn farinn af stað Kristján sagðist bjartsýnn á að þetta gæti tekist og að ferðin sé haf- in. „Ég hef trú á því að vagninn sé að leggja af stað. Og þegar hann er lagður af stað með grasrótin innan- borðs, ákveðna í að vinna saman, þá kemur hún til flokksforingjanna og segir: „Vagninn er lagður af stað, ætli þið að vera með?“ En þeir verða ekki við stýrið. Ég geri mér alveg grein fyrir því að eftir munu sitja einhverjir gaml- ir kommar og kratar í sínu hug- myndafangelsi segjandi að þeir geti ekki og muni aldrei vinna saman. Við því er ekkert að gera. Mitt álit er að það séu ekki bara A-flokkarnir tveir sem eigi samleið á hinum pólitíska vettvangi. Ég horfi til og veit um marga fram- sóknarmenn sem vilja koma inn og hafa opnað sig fyrir manni um það. Og raunar líka fólk sem hefur ekki staðsett sig í stjómmálaflokkum hingað til. Jafnvel fólk sem hefur kosið Sjálfstæðisflokkinn vill vera með,“ segir.Kristján. Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og varaformaður Al- þýðubandalagsins, sagði um sam- starfið við Alþýðuflokkinn að það hefði að sínum dómi tekist mjög vel og að hann væri afar ánægður með það. Líka Hafnarfjörður Þá hefur það líka gerst að stjóm- ir Alþýðuflokksfélags og Alþýðu- bandalagfélags Hafnarfjarðar hafa haldið með sér sameinginlegan fund. Þar var því lýst yfir að vilji sé fyrir því hjá báðum félögunum að taka upp náið samstarf. Það sem er athyglisverðast við þetta er að þessir tveir kaupstaðir em án nokkurs vafa höfuð vigi Al- þýðuflokksins um þessar mundir. Að frumkvæðið skuli koma þaðan vekur athygli. Guðmundur Ámi Stefánsson, varaformaður Alþýðuflokksins, seg- ir það rétt að þessi áhugi sé fyrir hendi í Hafnarfirði. Hann sagðist Opið um helgina Sfmi 511B000 FÍBVtsfa Vátryggt af IBEX MOTOR POLICIES at LLOYD'S Klapparstíg 28 • 101 Reykjavík • Fax 511-6001 líka hafa orðið var við mikinn áhuga hjá Alþýðuflokksfólki á Vest- fjöröum fyrir A-flokkasamstarfi. Þetta hafi komið skýrt fram þegar hann ræddi fólk á kjördæmisráðs- fund flokksins þar á dögunum. Verkalýðshreyfingin Það hefur ekki alltaf verið kært með verkalýðsforingjum A- flokk- anna. Þeir hafa ætíð verið einskon- ar endurómur af flokksforingjnum sjálfum. Þetta er að breytast. Jón Karlsson, formaður Fram á Sauðárkróki og varaformaður VMSÍ, sagði það sem hefur verið að gerast í Keflavík og í Hafharfirði væri nákvæmlega það sem hann vildi sjá eiga sér stað. Ekki bara í sveitarstjórnarmálum heldur líka í landsmálapólitíkinni og ekki síst í verkalýðshreyfingunni. Hann segist þess fullviss að ef grasrótin í A- flokkunum ræður ferðinni geti sam- eining félagshyggjuaflanna tekist. Fram undan eru ef til vill erfið- ustu kjarasamningar sem gerðir hafa verið síðan þjóðarsáttasamn- ingamir voru undirritaðiur 1990. Það gefur augaleið að samstarfsfús- ir A-flokkar munu gera verkalýðs- hreyfinguna mun öflugri en hún hefur verið til þessa. Forsetakosningarnar eiga sinn þátt Um það erú viðmælendur blaðs- ins sammála að R-listinn í Reykja- vík og árangur hans í borgarstjóm- arkosningunum hafi rutt brautina. En það er líka annar atburður sem menn segja að ráði mestu um að þessi samvinna félagshyggjuaflanna um land er nú farin af stað. Það eru forsetakosningamar. Sighvatur Björgvinsson alþingis- maður hefur sagt að allar forseta- Jóhann Geirdal, Kristján Gunnars- varaformaöur Al- son, formaöur þýöubandalagsins, Verkalýös- og sjó- formaöur Verslun- mannafélags Kefla- armannafélags víkur og bæjarfull- Suöurnesja og bæj- trúi krata ( Reykja- arfulitrúi i Reykja- nesbæ. nesbæ. kosningar síðan Ásgeir Ásgeirsson var kjörinn forseti íslands hafi haft afgerandi áhrif á landsmálapólitik- ina. Hann benti á afleiðingar kjörs Ásgeir á fylgi Sjálfstæðisflokksins. Hann nefndi félagshyggjusveiflu sem varð í kjölfar kjörs Kristjáns Eldjáms og kvennabylgju og stofn- un Samtaka um kvennalista í kjöl- far sigurs Vigdísar Finnbogadóttur 1980. Og hann spáði því að kjör Ólafs Ragnars Grimssonar sem for- seta íslands í sumar hefði mikil áhrif. < „Það er ljóst að forsetakosn- Fréttaljós á laugardegi Sigurdór Sigurdórsson ingarnar í sumar eiga hér stóran þátt. Fólkið sem vann fyrir Ólaf Ragnar Grímsson kom mest úr A- flokkunum og Framsóknarflokkn- um. Vissulega kom fleira fólk þar að en fólk úr þessum þremur stjóm- málaflokkum var mest áberandi. Þegar menn unnu að því að afla Ólafi fylgis sýndu menn hver öðmm á sín pólitísku spil. Þá kom í ljós að við áttum svo miklu meira sameig- inlegt en það sem hefur sundrað til þessa. Það kom fyrir þegar fólk úr þessum þremur flokkum ræddi saman um stjómmál að það skildi ekki hver ágreiningurinn væri. Hvað það væri sem myndaði gjá á milli forystufólks flokkanna. Þess vegna gengur grasrótinni nú svona vel að vinna saman,“ segir Kristján Gunnarsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.