Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1996, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.1996, Síða 16
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 jLlV ».*( fólk_________________________________ Ungfrú Evrópa valin í Albaníu í kvöld: Við erum allar jafn fallegar - og eigum jafna möguleika, segir ungfrú Island „Ég held að við séum allar jafn faUegar og eigum jafn mikla mögu- leika. Ég mun gera eins vel og ég get og reyna að standa mig vel fyrir ís- lands hönd,“ sagði Sólveig Lilja Guðmundsdóttir, feg- urðardrottning íslands, þegar DV sló á þráðinn til hennar í Albaníu. Sólveig Lilja hefur síðustu tvær yikur verið í Albaníu við undirbúning keppn- innar um ungfrú Evrópu sem haldin verður í kvöld í Tirana í Albaníu. „Þetta hefur ver- ið mjög gaman. Það er tals- vert mikill „glamor" í kringum keppnina en það er mjög skemmti- legt. Það er tilbreyting að vera dúkkulísa í smá- tíma. Ég hef verið hérna í tvær vik- ur við stífar æf- ingar alla daga. Við hefjum æfingarnar á morgnana og æfum Sólveig Lilja Guö- mundsdóttir keppir í kvöld um titilinn ungfrú Evrópa. Sól- veig Lilja fagnar sigri í keppninni um ungfrú ísland. okkur í því að koma fram í þjóðbúningi, kvöldkjólum og sundbol- um. Við þurfum aö end- urtaka æfingamar mjög oft þvi hópurinn er all- ur inni á sviðinu í einu, alls 35 stelpur," segir Sólveig Lilja. Úr sjö systkina hópi Sólveig Lilja er nítján ára Njarðvík- urmær, dóttir Pálínu Ágústsdóttur, starfs- manns Suðurnesja hf., og Guðmundar Snorra Garðarsson- ar flugumferðar- stjóra. Hún á sex systkini, Snædísi, Hörpu Rós, Kjartan Pál, Garðar Snorra, Bertu Gerði Guðmundar- bóm og Ágúst Þór Sigurðsson. Kærastinn hennar til átta mánaða heitir Kristján Ásgeirsson. Fagurt landslag Á miðvikudagskvöldið hittu stúlkumar forseta Albaniu. Stúlk- umar gáfu forsetanum gjöf og kynntu sig fyrir honum. Á fimmtu- dag og fóstudag var endahnúturinn rekinn á að flnpússa sýninguna en það er ekki seinna vænna þar sem keppnin er í kvöld. Að sögn Sólveig- ar Lilju hefur hún ekki séð nægi- lega mikið af Albaníu en það sem hún hefur séð af landslagi líst henni vel á. Borgin Tirana er þó frekar hrörleg og illa hirt á að líta. Stúlk- umar fara yfirleitt saman í skoðun- arferðir í stórri rútu, uppstrílaðar og flnar, þannig að íbúarnir komast ekki hjá því að vita hverjir em á ferð. Verðir gæta stúlknanna hvert sem þær fara og einnig er hótelherbergja þeirra vel gsett. Hrörlegar rústir „Mér hefur liðið ágæt- lega héma en til að byrja með var ég með svolitla heimþrá. Það breyttist þó mikið eftir að ég kynntist stelpunum meira. Það er mjög mikil tilbreyting að koma hingað. Umhverfið er allt öðruvísi heldur en heima. Mér brá samt svo- lítið fyrst þegar ég kom hing- að en allt hérna minnir á sögu. Blokkimar og bygging- amar em afar hrörleg- ar og þeim hefur ekki ver- ið haldið við. Þetta minnir helst á rúst- ir og er mjög sóðalegt. Viö yfir landið með þyrlu til þess að skoða landslagið sem er mjög fallegt. Við megum ekki fara út aö ganga einar og ef við yfirgefum hótelið einar verður okkur vísað úr keppninni," Sólveig Lilja. segir Pabbi skoðar aðstæður Sólveigu þykir fólkið i Albaníu mjög vingjamlegt. Pabbi gamli var þó ekki á því að senda stelpuna sína eina til svo fjarlægs lands. Hann fylgdi henni á staðinn en fór heim eftir að hafa skoðað aðstæður og fullvissað sig um að hennar yrði vel gætt. Guðmundur Snorri og Sólveig Lilja lentu í peningakröggum þar sem þau tóku með sér of lítið lausa- fé en treystu á að geta notað greiðslukort. Því var ekki að heilsa þar sem hvergi var hægt að nota greiðslukort í landinu. Pabbi fór því heim og Sólveig Lilja beið eftir pen- ingasendingu að heiman þegar DV heyrði í henni. Kokkteilar og kvöldverðir spænskri stelpu í herbergi og hún er mjög skemmtileg. Hún er með orðabók við hliðina á sér og lærir ensku af mér jafn óðum,“ segir Sól- veig Lilja. Draumur um fyrirsætuferil Sólveig Lilja hefur ekki reynt fyr- ir sér sem fyrirsæta á erlendri grnnd en er mjög spennt fyrir því bjóðist henni einhver tækifæri. Hún reiknar ekki með að þessi keppni færi henni samning á silfurfati en þó er aldrei að vita. Stúlkumar em myndaðar í bak og fyrir vegna keppninnar og aldrei að vita hvort einhverjir sem hagsmuna eiga að gæta sjái áhugaverðar myndir. „Sumar stelpumar hafa fengið í magann út af matnum hérna en ég er heppin að hafa losnað við það. Maturinn er þó ágætur en hann er ekki eins góður og heima. Ég sakna þess alltaf að fá ekki fisk þó svo þetta séu bara tvær vikur. Þessar vikur hafa verið þó nokkuð lengi að líða þó mikið hafi verið að gera,“ segir Sólveig Lilja. Stúlkurnar fara út að borða á hverju kvöldi og em aldrei komnar heim fyrr en klukkan ellefu á kvöld- in. Stundum byrja þær ekki að borða fyrr en kl. 21 á kvöldin sem aldrei hefúr verið talið sérstaklega hollt. Líkamsrækt hafa þær ekki stundað frá því þær komu til Alban- íu en Sólveig Lilja segir það ekki koma að sök. „Við borðum þrisvar á dag og erum á æfingu allan daginn. Við verðum því mjög svangar. Ég hef engar áhyggjur af því að fitna héma á tveimur vikum þó við borðum þessa kvöldverði. Ég borða bara mátulega og ég er í ágætu formi þar sem ég stundaði líkamsrækt áður en ég fór út,“ segir Sólveig Lilja. Stelpumar skemmta sér mjög vel í kvöldverðarboðunum en þær em talsvert heftar þar sem þær fá ekk- ert að fara án fylgdarliðs. Hörð samkeppni „Ég þori ekkert að spá um úrslitin í keppninni. Stelpumar era allar ofsalega fal- legar og mjög finar stelp- ur líka. Sam- keppnin veröur ör- ugglega hörð. Ég hef náttúr- lega kynnst best þeim sem em ensku- mæl- andi. Ég er með Sólveig hlakkar til þess að koma aftur heim á mánudag en hún flýg- ur til Zúrich á sunnudag og þaðan til Lúxemborgar þar sem hún gistir eina nótt. Þegar heim kemur tekur við nám í Fjölbrautaskóla Suður- nesja eða vinna í Suðumesjum hf. í Njarðvík. Sólveig Lilja myndi helst vilja búa í Keflavík eða Reykjavík ef hún mætti velja. Hún hefur ekki hugsað sér að eignast sjö böm eins og móðir hennar en láta þrjú nægja. Sólveig Lilja og Kristján hafa veriö saman í átta mánuði og hún segir að giftingarhugleiðingar séu ekki tímabærar. Hún er alveg sátt við að kærastinn og fjölskyldan horfi á keppnina í sjónvarpinu. -em

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.