Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
Fréttir
Félagsmálastofnun Reykjavíkur:
Skerðir viðbótargreiðsl-
ur upp í jólabónus
- skýrar og sanngjarnar reglur, segir formaður félagsmálaráðs
Lífeyrisþegar Tryggingastofnun-
ar og atvinnuleysisbótaþegar, sem
fá viðbótargreiðslur hjá Félags-
málastofnun Reykjavikurborgar
þar til heildar mánaðartekjur
þeirra ná 53 þúsund krónum á mán-
uði, fengu mun lægri viðbótar-
greiðslu frá borginni um síðustu
áramót. Ástæðan er sú að Trygg-
ingastofnun og Atvinnuleysistrygg-
ingasjóður greiða jólabónus í sam-
ræmi við kjarasamninga og Reykja-
víkurborg skerðir greiðslur sínar
um upphæð sem nemur jólabónus-
inum.
„Ég fékk jólabónus greiddan hjá
Tryggingastofnun núna um mán-
aðamótin þannig að greiðslan þar
fór upp fyrir 53 þúsund krónumar.
í nóvembermánuði, eins og aðra
mánuði ársins, fékk ég viðbótar-
styrk hjá Félagsmálastofnun, 10
þúsund krónur, en núna í desember
fékk ég ekki krónu af þvi að ég fékk
jólabónusinn,“ segir einn skjólstæð-
inga Tryggingastofnunar og Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar
við DV sem vill ekki koma fram
undir nafni.
Viðmælandi DV, sem er öryrki,
segir að sú stefna Reykjavíkurborg-
ar að greiða engar aukagreiðslur í
desembermánuði sé makalaus og til
vitnis um harðýðgi gagnvart þeim
sem minnst mega sín.
„Samkvæmt reglum Félagsmála-
stofnunar fær fólk einungis greidd-
an mismun bóta og lágmarkslauna
upp að 53 þúsund krónum hjá okk-
ur,“ segir Guðrún Ögmundsdóttir,
formaður félagsmálaráðs Reykja-
víkurborgar. Hún segir að reglim
borgarinnar um þetta séu skýrar og
sanngjamar og meginmarkmiðið sé
að tryggja að fullt jafhræði ríki
meðal allra styrkþega borgarinnar.
„Við greiðum einungis þá milli-
greiðslu sem okkur ber samkvæmt
þessum reglum," sagði Guðrún Ög-
mundsdóttir. -SÁ
Fríöa Stefánsdóttir segir lítiö um aö vera fyrir ungt fóik á Sigló. Hér er hún
viö störf sín á Bíó Café. DV-mynd ÞÖK
SigluQöröur:
Fólk horfir bara á sjón-
varp og býr til börn
- segir Fríða Stefánsdóttir afgreiðslustúlka
DV, Siglufirði:
„Það er voðalega lítið um að vera
hérna fyrir ungt fólk. Ég held að
fólk sé mest í því að horfa á sjón-
varpið og búa tO böm. Það er ekk-
ert um að vera héma á virkum dög-
um,“ segir Fríða Stefánsdóttir, tví-
tug afgreiðslustúlka Bíó Café á
Siglufírði, í samtali við DV.
Fríða segir að unga fólkið sé flest
í burtu að vetrinum við framhalds-
nám og hún hafl orðið fyrir hálf-
gerðu áfalli að vera nánast ein eft-
ir af árganginum heima. „Það er
bara 10. bekkur hérna og fólk fer
þvi að heiman til að læra. Hún seg-
ist hafa tekið sér hlé frá námi einn
vetm- eftir stúdentspróf og ákveðið
að vera heima yfir veturinn og
vinna sér inn meiri peninga áður
en hún færi í frekara nám.
„Það er ekkert vit í að taka
námslán. Það er ekkert sniðugt að
steypa sér í skuldir og ég vil frekar
vinna mér inn peninga til að eiga
fyrir náminu,“ segir Fríða.
Davíö Oddsson forsætisráðherra:
Mál Evu Klonowsky er í skoðun
„Það eina sem ég gerði var að
senda heilbrigðisráðherra afrit af
bréfi Carls Bildt þar sem það
varðar þann vettvang. Heilbrigð-
isráðherra er því með málið til at-
hugunar," sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra um ósk sem
fram kom í bréfi Carls Bildt, full-
trúa SÞ í Bosníu, til Davíðs. Þar
fer hann fram á að Eva Klonow-
sky mannfræðingur fái leyfl til að
halda áfram starfi í Bosníu án
þess að missa starf sitt á íslandi.
Davíð Oddsson benti hins vegar
á að í miliitíðinni gerðist það
varðandi starf hennar hjá Ríkis-
spítulunum að það var lagt niður.
„Málið er þvi til skoðunar hjá
heilbrigðisráðherra,“ sagði Davíð
Oddsson.
-S.dór
Dagfari
Reykvisk verðbolga
Fjárlagagerðinni er um það bil
að ljúka. Ekki er annað að heyra
hjá hinum ábyrgu og ábyggilegu
talsmönnum fjálaganefndar en það
stefni í góð fjárlög. Hallalaus að
mestu og viðráðanlegar skuldir og
í raun og veru er ekkert eftir nema
smá niðurskurður upp á nokkra
milljarða sem afgreiddur verður
við þriðju umræðu.
Satt að segja hafa alþingismenn
og aðrir máttarstólpar ríkisvalds-
ins ekki verulegar áhyggjur af fjár-
lögunum. Þingið mun skera niður
fjárveitingar til heilbrigðismála,
sjúkrahúsa, vegamála og fram-
haldsskóla, enda getur þetta allt
saman beðið, og þá munu fjárlög
verða afgreidd meö tekjuafgangi og
ríkisfjármálin í góðum málum.
Það sem máttarstólparnir á Al-
þingi hafa hins vegar áhyggjur af
eru fjárfestingar og framkvæmdir
á vegum sveitarfélaganna og þá
einkum Reykjavíkur. Þeir segja að
ástæða sé til aö óttast þenslu og
verðbólgu ef ekkert verður að gert.
Mikið stendur til hjá ríkinu, eins
og allir vita. Álver er á næsta leiti
og vöxtur hefur verið í atvinnulíf-
inu og ríkið verður auðvitaö að
sinna sínu, og allt gerir þetta það
að verkum að sveitarfélögin bregð-
ist rétt við og komi til móts við rík-
ið með því að draga úr fram-
kvæmdum, sem ella munu valda
óþarfa þenslu sem ríkið ræður
ekki við ef sveitarfélögin sýna ekki
lit.
Borgarstjórinn í Reykjavík skil-
ur ekki ábyrgð sína. Ingibjörg Sól-
rún hefur engan skilning á því þeg-
ar þingmenn Vesturlands og Aust-
urlands eru með tilmæli til borgar-
stjórnar um að draga úr fram-
kvæmdum. Ingibjörg segir það
jafnvel of seint hjá þessum góðum
mönnum að hafa skoðanir á því
hvað Reykjavík ætlar að aðhafast á
næsta ári. Borgarstjórinn í Reykja-
vík heldur sem sagt að utanbæjar-
þingmenn séu með afskiptasemi
um málefni borgarinnar, sem þeim
komi ekki við.
Þetta sýnir hins vegar hvaö Ingi-
björg borgarstjóri er ábyrgðarlaus.
Hún lætur sér í léttu rúmi liggja
þótt ábyrgir máttarstólpar og val-
inkunnir heiðursmenn á Alþingi
beri fram tillögur og tilmæli um að
borgin fari sér að engu óðslega.
Hún virðist ekki skilja að stöðug-
leikinn í efnahagslífinu er undir
því kominn að borgin fresti fram-
kvæmdum og njörvi niður mátu-
legt atvinnuleysi til að halda verð-
bólgunni í skefjum.
Talsmenn fjárlaganefndar hafa
sem betur fer ekki tekið mark á
Ingibjörgu. Þeir ætla að skera nið-
ur vegagerð í Ártúnsbrekkunum
og brúargerð yfir Elliðaámar og
tvöföldun á Reykjanesbrautinni.
Allt í þágu stöðugleikans, enda
verður enginn stöðugleiki í efna-
hagsmálum ef menn geta ekið
hraðar niður Ártúnsbrekkumar
eða suður Reykjanesið. Hér er um
það að ræða að hægja á ferðinni í
verðbólgunni eða umferðinni.
Hvort vill borgarstjórinn?
Það er auðvitað illt til þess að
vita, þegar góðir og gegnir lands-
byggðarþingmenn em um það bil
að afgreiða hallalaus fjárlög og nið-
urskurð í framkvæmdum, að borg-
arstjórinn í Reykjavík skuli leyfa
sér að taka fram fyrir hendur
þeirra í málefnum Reykjavíkur og
hundsa vinsamleg tilmæli lands-
byggðarmanna um aðhald í rekstri.
Ætlar borgarstjórinn að standa fyr-
ir verðbólguholskeflu?
Þetta mál sýnir auðvitað í hnot-
skum hvað R-listinn og Ingibjörg
Sólrún eru vitlaus að halda aö þau
eigi að fá að ráða einhverju um
framkvæmdar- og umferðarhraða í
Reykjavík. Það er kominn timi til
að fjárlaganefnd sýni þeim hvar
Davið keypti ölið.
Dagfari