Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996 13 Jólaljósasveiflan „Eins og tildæmis að það er ekki fyrr en ég er innaní ástinni að ég finn að ástin er hlý, mjúk og kitlandi." ar eitthvað að sveiflast. Og sveifl- ar manni inní annan heim sem er svo eftirsóknarverður. Á leiðinni kom ég við á Mokka þar sem myndlistarmaður hefur klætt glugga, veggi og bekki og borð kaffihússins kálfskinnum en það gerði hann í minningu afa sins frá Síberíu sem vafði korna- bamið dóttur sína innani holdrosa þegar hún fékk húðsjúkdóm af kuldunum þar norður frá og þannig batnaði henni. Mér fannst á kaffihúsinu ég vera viðkvæm sál sem nú væri búið að vefja inní holdrosann. Og sveiflaðist. Kannski er maðurinn svona við- kvæmur, þráir það eitt að vera vafinn innaní eitthvað alveg svo hann geti sveiflast. Eins og til- dæmis að það er ekki fyrr en ég er innaní ástinni að ég finn að ástin er hlý, mjúk og kitlandi. Elísabet Jökulsdóttir Ég sem ætlaði aldrei aftur í lífinu að skrifa blaða- grein brenn nú 1 skinninu að skrifa það sem mér ligg- ur á hjarta um jólaskraut. Einsog ég hef nú annars skoðanir á fáu hef ég komið mér upp afskaplega afdrátt- arlausum skoðun- um á jólaskrauti eða öllu heldur hvenær byrjað skuli að skreyta bæinn. Það hefur farið í taugarnar á mér undanfarin ár, hvað jólaskrautið er sett upp snemma, jafnvel í end- aðan október og iðulega í byrjun nóvember, nema í fyrra seinkaði þessu öllu. En ég vil nefnilega hafa nóvember út af fyrir mig, hann er einn uppáhaldsmánuðurinn minn, dimmur og seiðandi og ég fer inní dimman seiðinn og sæki þangað góss og glingur. , Alveg eftir mínu höföi Nóvember er endalok haustsins, byrjun á vetrinum þegar maður leggst í dvala og úrvinnsla á sér stað og myrkrið vefúr sig utan um mig einsog sæng. Það er út af þessu myrkri sem ég splundrast á hinu björtu sumarnóttum. Kannski er þetta löngun til að sveiflast, sveiflast með árstíðun- um, sveiflast með ljósinu í öllum þess litbrigðum. Og svo sveiflast ég. Og það er þegar maður er um- vafinn sem eitthvað verður til en í sveiflunni fer það af stað. í ár var tímasetningin alveg eftir mínu höfði þvi að byrjað var að hengja upp jólaskraut um mánaðamótin, og þá á ég auðvitað við allt þetta dúUerídúll og krullerikrull sem hangir uppi í ljósaformi um all- an bæ, glitrandi jólatré uppá húsveggjum, jóla- seríuvafðar trjágreinar eftir húsmænum, blikk- andi seríur í gluggum, dinglandi jólaljósastjörn- ur í ljósastaurunum og ljósin á ósýnilegum strengjum þvers og kruss og bráðum fer ég að skreyta bílinn minn með jólaseríum. Þannig er engu líkara en að runnið hafi jólaljósaæði yfir borg- ina ef þetta væri ekki allt svo glitr- andi, seiðandi og blikkandi. Það er meiraðsegja komið jólatré á hið einmanalega Lækjartorg þar sem aldrei staldrar nokkur maður við lengur nema konan sem greiðir á sér hárið nóttina eftir að hún hef- ur notið ásta. Sveiflast og sveiflast... En í þessum ljósaheimi hætta húsin og göturn- ar að vera til í sinni raunveru- legu mynd og þetta er auðvit- að ekkert flókn- ara en svo að vera í öðrum heimi en það er einmitt það sem maðurinn virð- ist hafa svo ákafa þörf fyrir. Þegar ég var að ganga heim eitt kvöldið fannst mér ég vera innaní ljósadýrðinni, ég var vafin í ljós, glitrandi, blikk- andi ljósaheim og gleðin og undr- unin varð dýpri þegar ég skynjaði að þetta myndi ekki vara um ei- lífð. Ég komst semsagt i þetta upp- hafna ástand þegar maður er vaf- inn inní eitthvað og um leið byrj- Kjallarinn Elíabet Jökulsdóttir rithöfundur „En í þessum Ijósaheimi hætta hús- in og göturnar að vera til í sinni raunverulegu mynd og þetta er auð- vitað ekkert flóknara en svo að vera í óðrum heimi en það er ein- mitt það sem maðurinn virðist hafa svo ákafa þörf fyrir.“ 15,4% kjósenda Framsóknar færa sig yfir á jafnaðarmenn Margt hefur verið skarplega at- hugað og vel grundað í forystu- greinum DV þar sem fjallað hefur verið um samstarf jafnaðarmanna og möguleika á samfylkingu þeirra í komandi kosningum. Túlkun leiðarahöfundar 9. desem- ber á skoðanakönnun þeirri sem Félagsvísindastofnun Háskóla !s- lands gerði fyrir verkefnið Sam- starf jafnaðarmanna er hins vegar umdeilanleg á köflum. Almennt má líka segja að túlkun skoðana- kannana á íslandi sé verri og óá- reiðanlegri heldur en kannanirnar sjálfar en það á síður en svo sér- staklega við DV. Elías Snæland Jónsson les út úr könnuninni að hugmyndir um sameiginlegt framboð hreyfi lítið við fylgi Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þama verður að taka tillit til þess að spurt er um fylgi ef aðeins væru þrír listar i framboði eftir að búið er að þrá- spyrja um hvað kosið yrði ef kosn- ingar væru á morgun. (Könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið). Þegar búið er að toga upp úr einstaklingi, sem lent hefur í könnun- inni, að hann myndi líklega kjósa Framsókn, er ólíklegt annað en að viðkomandi gefi sig upp á Framsóknarflokk- inn þegar í næstu andrá er boðið upp á að velja milli þriggja möguleika, sjálf- stæðismanna, framsóknarmanna og jafnaðarmanna. Marktæk hreyfing Þessi háttur á að spyrja skýrir að verulegu leyti fylgnina milli fylgis Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks i báðum spumingun- um. Annað kemur á daginn ef bor- ið er saman hvað þeir sem sögðust hafa kosið Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn í síðustu al- þingiskosningum myndu gera, ef að- eins þrír listar væru í framboði. Þá kemur í ljós að 15,4% sem kusu Framsókn myndu kjósa jafnaðar- menn og 9,7% þeirra sem kusu Sjálfstæðisflokk. Þetta er sannarlega marktæk hreyfing sem Morgunblaðið skýrði frá laugar- daginn 7. desemb- er. Sjónvarpið skýrði frá því að engin breyting hefði orðið í fylgis- hlutfóllum stjórn- arandstöðu og stjórnarflokka í áð- urnefndum könn- unum. Þetta fékk Bogi Ágústsson út með því að fela heilan flokk, sem þjóðin sjálf hefur búið til, undir samheitinu ANNAÐ, sem allt í einu er komið í 5-6%. Það era ein tíðindin í þessari könnun að þegar eru 4,3% aðspurðra farin að lýsa fylgi við jafnaðarmanna- flokk sem ekki er til formlega en er alveg örugglega í stjórnarandstöðu. Mesta fylgiö í Reykjavík Fyrir áhugafólk um samstarf jafnaðar- manna eru niðurstöður þessarar könnunar fagnaðarefhi. Það hefði verið alvarlegt áfall ef i Ijós hefði komið veruleg andstaða við hugmynd- ina meðal kjósenda. Könnunin sýnir þvert á móti bullandi meiri- hlutafylgi við hana meðal velunnara flokk- anna og verulega hreyf- ingu í þjóðfélaginu. Það er einnig staðfest að jafnaðarmannahugtak- ið er hið rétta merki þessarar hreyfingar hvort sem menn síðan vilja skreyta það með viðskeytum eða ekki. Sem leiðbeining og veg- vísir er þessi könnun gagnleg. Og mesta fylgið fá sameinaðir jafnað- armenn í Reykjavík, þar sem reynsla er komin ?. samstarf jafn- aðár- og félagshyggjufólks, eða 47%. Athyglisvert! Einar Karl Haraldsson „Sem leiðbeining og vegvísir er þessi könnun gagnleg. Og mesta fylgið fá sameinaðir jafnaðarmenn í Reykjavík, þar sem reynsla er komin á samstarf jafnaðar- og fé- lagshyggjufólks, eða 47%. Athygl- isvertr Kjallarinn Einar Karl Haraldsson framkvstj. Innform ehf., hefur með höndum verk- efni fyrir Þingfiokk jafn- aðarmanna Með og á móti Landbúnaðarkerfið er of dýrt Styrkjakerfið er eiturlyf Núverandi landbúnaðarkerfi er neytendum of dýrt. Neytendur greiða of hátt verð fyrir landbún- aðarvörur vegna óbeinna styrkja eins og innflutningstolla og tak- markana á viðskiptum með land- búnaðarvörur sem og alls konar kvaða um stærð búa. Þess vegna þurfa launþeg- ar hærri laun til að ná sömu lífskjörum og ísland stendur höllum fæti í samkeppni þjóðanna um fólk og fyrirtæki. Kerflð er skattgreiðendum dýrt. Styrkur til landbúnaðar er meiri hér en í flestum öörum löndum. Hann er gi-eiddur með sköttum sem fyrir bragðið eru of háir. Háir skattar draga úr fram- taki óg vinnugleði, öllum til Pétur H. Blöndal al- þingismaður. skaða. En kerfið er líka vont fyrir bændur. Eins og önnur styrkja- kerfi virkar landbúnaðarkerfið eins og eiturlyf á bændur og land- búnaðinn. Eitt sinn var bóndi bú- stólpi og bú landstólpi. Eftir ára- tuga styrki eru bændur hnípnir og þjakaðir. Beingreiðslur til bænda voru visst skref til þess að vinda ofan af kerfinu. Nú ætti að vera hægt að hætta við óbeina styrki og afnema kvaðirnar í áföngum og gefa bændum stefnuna. Þannig myndi landbúnaðurinn losna und- an eiturlyfinu og dugmiklir bænd- ur gæti staðið stoltir á eigin fótum og framleitt góðar og ódýrar land- búnaðarvörur. Tryggja ber matvælaöryggi Framleiðsla á vönduðum iand- búnaðarvörum kostar mikið og meira norður undir heimskauts- baug en sunnar í Evrópu. Stað- reyndin er sú að allar Evrópu- þjóðir styrkja sinn landbúnað og það er engin r 'i Ari Toítsson, for- maöur Bœndasam- takanna. tilvfljun að út- gjöld til land- búnaðarmála er langstærsti útgjaldaliður Evrópusam- bandsins. Af hverju ættum við að styrkja okkar landbún- að minna en nágrannaþjóð- irnar? Sá stuðningur er trygging fyrir matvælaöryggi og matvæla- gæðum, hornsteinn að lífsviður- væri og heilsu þjóðarinnar. Við tryggjum húsið okkar, bílinn, líf- eyri í ellinni og sameiginlega reynum við að tryggja framtíð þjóðarinnar með skynsamlegri stefnu i menntamálum, heilbrigð- ismálum, fiskveiðimálum og sam- göngumálum. Hví skyldum við ekki vera reiðubúin til að tryggja þjóðinni næg og holl matvæli í fallvöltum heimi? Á trygging þjóðarinnar fyrir nægum mat í framtíðinni að vera byggð á áframhaldandi offramboði mat- væla á heimsmarkaði, matvæla sem við vitum ekki hvernig eru framleidd, matvæla sem skortur getur orðið á fyrr en varir. Svelt- andi þjóðir í flestum heimsálfum sýna okkur að sú trygging er fall- völt. Erum við ekki einnig reiðu- búin til að kosta einhverju til að styrkja dreifða byggð i landinu, fjölþætta nýtingu landsins, nýja skóga og fjölbreyttari gróður, hlý- legra og aðgengilegra land fyrir þjóðina alla? -JHÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.