Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
17
Eitt og annað um gervitennur
- saga þeirra og fleiri fróðleiksmolar
í nýjasta hefti Tannheilsu, fag-
tímarits tannsmiða, er að fmna ýms-
ar fróðlegar og gagnlegar upplýsing-
ar um gervitennur og greip Tilveran
aðeins niður i greinina.
Forseti með leðurtennur
Menn vita ekki með vissu hvenær
farið var að smíða gervitennur en því
hefur verið haldið fram að Forn-Eg-
yptar hafl þekkt til tannsmíða. í lík-
kistum frá þeim tíma hafa fundist
ófullkomnar tennur, búnar til úr tré
og ætlaöar til að fylla upp í skörð í
tanngörðum manna. Einnig eru til
heimildir um að notaðar hafi verið
dýratennur. Fönikíumenn, Etrúrar
og Rómverjar smíðuðu tanngarða úr
gulli sem
oft voru
snilldar-
smíði en slik
smíði lagðist
af við fall
Rómaveldis. Á
18. öld voru
s m í ð a ð i r
tanngómar sem
voru úr óhentug-
um efnum, ófull-
nægjandi útlits og
mjög dýrir. í dag eru
notuð plastefhi sem eru lík
tannholdinu að lit og gera
gómana þunna
og þægilega.
Sagan segir
að einn afforset-
um Bandaríkjanna hafi haft gervi-
tennur sem búnar voru til úr leðri.
Þær hafa auðvitað ekki verið sérstak-
lega góðar til að tyggja með og því
þurfti hann að taka þær út úr sér þeg-
ar hann borðaði. í dag gera nútíma-
efni og tækni það mögulegt að smíða
tennur sem sitja vel og líkjast náttúr-
legum tönnum.
Tannholdsbólga óvinur-
inn
Tannholdsbólga er helsta orsök
tannmissis hjá fullorðnu fólki og
öldruðu en það er tannáta sem eyði-
leggur tennur bama og unglinga sé
ekkert við henni gert. Helstu ein-
kenni
t a n n -
holds-
b ó 1 g u
e r u
blæðing
úr tann-
holdi, los á
tönnum og
andremma.
Siðari stig
bólgunnar leiða
til tannmissis sem
aftur kallar á gervi-
tennur. Munnurinn er
einn hluti meltingarveg-
arins. Tennur eru
því nauðsynlegur
þáttur ef menn
vilja ekki nærast
Það er auðvelt að brosa blítt þegar
tennur eru svona glæsilega útlít-
andi.
eingöngu á þeirri
fæðu sem ekki
þarf að tyggja.
Tennur eru einnig
mikilvægar fyrir
útlit manna og fé-
lagsleg samskipti.
Misjafn
gangur
Góð tannhirða er öllum nauðsynleg, hvort sem um er að ræða náttúrlegar tennur eða gervi-
tennur. Best er að venja sig á unga aldri á að bursta tennur a.m.k. tvisvar á dag.
Ekki gengur öll-
um jafnvel að
venjast nýjum
tönnum. Sumir
hafa það sköpulag
að gervitennur
fara þeim ekki
vel. Því er oft til
bóta, ef hægt er að
koma því við, að
halda eftir
nokkrum tönnum
til stuðnings
gervitönnunum og
fá svokallaða
tannparta. Þetta á
sérstaklega við um
neðri góma. Eðli-
leg ending er 5-8
ár ef þeim er haldið vel við með dag-
legri og góðri hreinsun. Trygginga-
stofhun ríkisins greiðir fyrir gervi-
tennur á fimm ára fresti.
Góð hirða nauðsyn
Gervigóma þarf að hirða vel,
bursta þá a.m.k. tvisvar á dag með
hreinum og mjúkum bursta og fljót-
andi mildri sápu og skola með yl-
volgu eða köldu vatni. Við hreinsun
þarf að hafa hugfast að rispa ekki
yfirborðið og þvi er óæskilegt að
nota tannkrem sem inniheldur
slipiefni sem getur rispað. Góð
munnhirða heldur tönnunum
hreinum, munnholi heilbrigðu og
ahdardráttur verður ferskur. Mikil-
vægt er að bursta tennur a.m.k.
tvisvar á dag og á það jafnt við um
eigin tennur, gervitennur og slim-
húð munnsins.
-ggá
SICRÆNA JOLA
i dv
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen
eðaltré, í hoesta gceðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
>* 10 ára ábyrgð ** Eldtraust
»* 10 stcerðir, 90 - 370 cm Þarfekki að vökva
**• Stálfótur fylgir ** íslenskar leiðbeiningar
>* Ekkert barr að ryksuga »* Traustur söluaðili
»* Truflar ekki stofublómin »* Skynsamleg fjárfesting
tTirWf'y’V; BANDALAG ÍSLENSKRA SKÁTA
Jólaföt minnsta fólksins:
Allir fá þá eitthvað fallegt
Þessi sparilegi jólakjóll er franskur
og fæst í Barnastíg. Einnig má fá
herraföt í stíl ef daman skyldi eiga
brófiur.
Litlu herrarnir gerast vart fínni en í
þessum fallega íslenska búningi
sem fæst í versluninni Englabörn-
um.
Spariskórnir verfia afi vera á sínum
stafi. Hér má sjá sýnishorn frá
Englabörnum.
Um hátíðimar finnst öllum gam-
an að klæða sig upp í sitt fínasta
púss og þá ekki síst minnsta fólkinu
sem hlakkar einna mest til jólanna.
Tilveran fór á stúfana og skellti sér
á bæjarrölt til að sjá hvað barnafata-
verslanir eru með á boðstólum fyrir
bömin fyrir þessi jól. Eins og sjá má
af myndunum er úrvalið mikið og
ættu allir foreldrar að geta fundið
falleg spariföt á litlu erfingjana.
Þessi fallegu og hlýlegu föt eru frá
stærsta framleiðanda barnafata á
Ítalíu og fást í Barnastíg.
Eins og allir foreldrar vita er oft
erfifiara afi finna föt á litlu strákana.
En þótt þú sért bara 9 mánafia
herramaður þarftu þín jolaföt. Þessi
eru frá Do Re Mi.
Fyrir allra minnstu dömuna má fá
þennan fallega blómakjól mefi hár-
bandi í stíl. Þessi kjóll er breskur og
fæst í Do Re Mi.
Sparil$ápan þín
er Islensk
Verðið kemur á óvart
Rétt verð 25.900.
Margir litir og stcerðir
Fríar Póstkröfur
ffCápusalan
Ótrúleqt Kópuúrval * Snorrabraut 56 S 562 4362