Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.1996, Síða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 17. DESEMBER 1996
CHRYSLER CIRRUS
Til sölu CHRYSLER CIRRUS, árg. 1996,
2,5 L - LXI - 24 ventla - 160 hestöfl
(STRATUS)
ekinn aðeins 1.600 km,
- 4 dyra - sjálfskiptur
Einn með öllu ásamt:
hraðastillingu, þokuljósum
að framan, leðuráklæði, 15"
krómuðum álfelgum,
geislaspilara, loftkælingu
og þjófavörn.
Upplýsingar í síma
565-6096
HEIMAR
Orlofsíbúðahótel
RCI.
Söluskrifstofa Suðurgötu 7
Simi 561 3300 Fax 561 3301
opið alla daga frá kl. 14:00-22:00
RCI.
Faxfréttir úr fjolmiölum eru fréttir frá
íslandi og færa lesandanum á stuttu og
aögengilegu formi þær fréttir sem eru
efst á baugi hverju sinni. Faxfréttir koma
út 5 daga vikunnar á tveim síðum,
mánudaga til fostudaga, kl. 13 aö
íslenskum tima.
Dreifileiðir:
• Fax
• Tölvupóstur
FAX
Þverholt 11. Sími 550 5000. Fax 550 5999.
Netfang: faxfrettir@ff.is
Útlönd
Orkumálaráðherra Noregs segir af sér:
Njósnahneyksli
skekur Noreg
Grete Faremo, olíu- og orku-
málaráðherra Noregs, sagði af sér
í gær vegna njósna norsku leyni-
þjónustunnar um frammámann í
röðum vinstri manna. Faremo var
dómsmálaráðherra þegar leyni-
þjónustan hóf í júní á síðasta ári
að kanna bakgrunn Berge Furre
en hann situr í þingnefnd sem
rannsaka á störf leyniþjónustunn-
ar sjálfrar.
Hans Olav Ostgaard, yfirmaður
leyniþjónustunnar, tilkynnti
einnig um afsögn sína í gær.
Það olli mikilli ólgu í Noregi í
fyrra þegar því var ljóstrað upp að
stjórnvöld höfðu kerfísbundið
fylgst með kommúnistum á dögum
kalda stríðsins. Verkamannaflokk-
urinn sætti harðri gagnrýni
stjómarandstæðinga og flölmiðla
fyrir samvinnu við leyniþjónust-
una um njósnir á kommúnistum á
sjötta, sjöunda og áttunda áratugn-
um.
Furre, sem sagði sig úr Verka-
mannaflokknum á sjötta áratugn-
um og tók þátt í stofnun Sósíalíska
vinstri flokksins, tók í fyrrasumar
sæti í þingnefnd sem rannsaka á
njósnimar um kommúnista. í síð-
ustu viku var skýrt frá því að
norska leyniþjónustan hefði í júní
síðastliðnum skoðað leyniskjöl
Stasi, austur-þýsku leyniþjónust-
unnar, til að kanna hvort ein-
hverjar upplýsingar væri að finna
um Furre. Leitin að gögnum um
hann hélt áfram fram á haust.
Faremo, sem kveðst ekki hafa
vitað að njósnað væri um meðlim
í sjálfri njósnanefndinni, sagði í
síðustu viku, er hún hafði lesið
skýrsluna, að hún myndi missa
ráðherrastól sinn.
Þetta er í annað sinn á tæpum
þremur vikum sem ráðherra í
minnihlutastjóm Thorbjoms Jag-
lands neyðist til að segja af sér en
stjóm hans tók við völdum 25.
september síðastliðinn. Terje Red
Larsen sagði af sér embætti skipu-
lagsráðherra í nóvember vegna
ásakana um að hann hefði með
óeðlilegum hætti hagnast á hluta-
bréfaviðskiptum fyrir 10 árum.
Reuter
Nunnan Helen Prejean, sem sagt var frá í hinni áhrifamiklu kvikmynd Dauðamaður nálgast, hefur gengið í lið með
þeim sem reyna að fá yfirvöld í Virginíu til að stööva fyrirhugaöa aftöku Josephs O’Dells á morgun. O’Dell var fund-
inn sekur um nauögun og morð árið 1985 en segist hafa sannanir fyrir sakleysi sínu. Helen Prejean, til hægri, er hér
með Lori Urs sem starfar fyrir lögfræðinga O’Dells. Símamynd Reuter
John Major stóðst
fýrsta alvöruprófið
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, hafði betur í tveimur
mikilvægum atkvæðagreiðslum um
Evrópusambandið í breska þinginu
í gærkvöld og stóðst þar með fyrsta
raunverulega prófið um einingu
stjórnarinnar síðan hún missti
þingmeirihluta sinn í síðustu viku.
Stjóm íhaldsmanna hafði sigur í
atkvæðagreiðslunni um afstöðu
sína til fiskveiðistefnu ESB, með 316
atkvæðum gegn 304. Nokkram mín-
útum áður stóðst stjómin áhlaup
frá Verkamannaflokknum með 316
atkvæöum gegn 305.
Eftir aukakosningamar í síðustu
viku er nú jafnræði með íhalds-
flokknum og sameinaðri stjómar-
andstöðu, hvor fylking hefur 323
þingmenn.
Major stóð frammi fyrir erflðu
verkefni í gærkvöld þar sem flokkur
hans er klofinn í afstöðunni til ESB
og flskveiðar era mikið tilfínninga-
mál fyrir íhaldsþingmenn frá
strandhéraðunum sem óttast að
missa sæti sitt í komandi kosning-
um. Stjómvöld buðu fiskimönnum á
Norður-írlandi tilslakanir til að fá
þingmenn úr röðum norður-írskra
mótmælenda til að sitja hjá við at-
kvæðagreiðsluna.
Þá tókst Major að fá hugsanlega
uppreisnarmenn innan flokksins,
sem eru reiðir út í erlendu fiski-
skipin sem veiða á Bretlandsmið-
um, til liðs við sig með loforðum um
að stjórnin mundi ekkert gefa eftir í
viðræðum um framtíð ESB nema
tekið væri á vanda breska fiskiðn-
aðarins.
Reuter
Þýskir skíðamenn farast
í snjóflóði í Kanada
Þrír þýskir skíðamenn létu líflð í
snjóflóði nálægt Whistler í Kanada í
gær. Þjóðverjamir voru í hópi ellefú
evrópskra ferðamanna sem farið
höfðu með þyrlu upp á jökul.
Heiðskírt var og lítils háttar vind-
ur og 9 stiga frost er slysið varð síð-
degis í gær. Snjóflóðahætta var ekki
talin mikil og er því jafnvel álitið að
ferð skíðamannanna sjálfra hafi
komið flóðinu af stað.
Bærinn Whistler er um 120 kíló-
metra fyrir norðan Vancouver.
Hann er talinn meðal bestu skíða-
staða i Norður-Ameríku.
Á hverju ári farast að meðaltali
sjö manns í snjóflóðum í Kanada.
Flestir þeirra hafa látið þyrlu fljúga
með sig á fjarlæga staði.
Reuter
Stuttar fréttir
Rætt um Hebron
ísraelar og Palestínumenn hafa
hafið viðræður á ný um sjálfstjómar-
samning fyrir borgina Hebron. Clint-
on Bandaríkjaforseti hvatti aðila til
að ræða saman þar sem honum
flnnst tími til kominn aö þeir komist
að samkomulagi.
Slobodan
Slobodan
Milosevic Serbíu-
forseti og stjórn
hans hafa hætt
við að ræða mjög
óvinsæla laga-
setningu um
vinnumarkaöinn
sem hagfræðing-
ar segja að hefði getað kostað um 800
þúsund manns atvinnuna um áramót.
Kofi vill peninga
Kofi Annan, nýkjörinn fram-
kvæmdastjóri SÞ, segist munu
ávarþa Bandarikjaþing ef með þarf
til að fá bandarísk stjómvöld til að
gera upp skuldir sinar.
Kraftaverk á jólum
Embættismenn í New Orleans
sögðu að líkja mætti þvi við jóla-
kraftaverkið að enginn skyldi farast
þegar flutningaskip sigldi á verslun-
armiðstöð á bökkum Mississippi á
laugardag.
Á heimleiö
Rúmlega 100 þúsund flóttamenn af
ættbálki hútúa frá Rúanda em nú á
heimleið frá Tansaníu eftir tveggja
og hálfs árs útlegð. Reuter
hættir viö